Morgunblaðið - 13.02.1979, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.02.1979, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979 Fréttir frá Sovétríkjunum 400 kristnir menn handteknir Þann 9. maí söfnuðust 800 manns saman til kristilegs æsku- lýðsmóts í borginni Krasnodar á austurströnd Svartahafs, sem átti að fara fram í einu skráðu bapt- istakirkju borgarinnar. Boðið hafði verið kristnu fólki frá Minsk, Kíev, Kharkóv, Rovna, Ríga, Len- ingrad, Arkhangelsk og víðar að. Leiðtogar baptistakirkjunnar í Krasnodar höfðu veitt leyfi til að nota kirkjuna fyrir mótið. En þegar mótsgestir komu á áfanga- stað tók lögregluvörður á móti þeim og varnaði þeim inngöngu í kirkjuna. Heimavarnarliðið notaði gjall- arhorn og skipaði mannfjöldanum að dreifa sér því að ekkert yrði af samkomu þennan dag. „Leyfið okkur að fara inn í kirkjuna og biðja til Guðs“, sagði einn hinna trúuðu. Von bráðar byrjuðu hinir kristnu utan kirkjuhliðsins að syngja sálma og flytja stutta vitnisburði, og að vörmu spori dreif að mikinn skara áhorfenda. Opinber fulltrúi í trúflokka- nefnd Krasnodarborgar var nær- staddur ásamt formanni „GORI- SPOLKOM", (eftirlitsnefnd um atferli og hegðan). Þessir menn skipuðu enn á ný hinum sívaxandi mannfjölda að hverfa til síns heima. Hinir kristnu héldu áfram að biðja og syngja úti fyrir kirkj- unni. Kl. 11.30 f.h. lét sveitarfor- ingi í OBD (heimavarnarliðinu) þá aðvörun út ganga að stjórnvöld myndu stöðva samkomuna með valdi, ef hún leystist ekki upp samstundis. Á samri stundu komu hlaðnar rútur með heimavarnar- liðsmönnum, borgaralega klædd- um sjálfboðaliðum og félögum í Komsomols með rauðum arm- böndum til að handsama óróa- seggina. Með lokafyrirmæli frá viðstöddum KGB yfirmönnum var aðgerðin hafin. Án þess að skeyta því, hvort um karla, konur eða börn var að ræða sneri lögreglan upp á handleggi og barði fólkið með kylfum. Fjölmargir lögreglu- menn voru drukknir. Ung kona var slegin í höfuðið með þungum málmhlut af drukknum lögreglu- manni. Stúlkan missti meðvitund og var dröslað inn í rútubíl. Áhorfendur sem sáu aðfarirnar hrópuðu, „tortímið hinum kristnu, skjótið þá“. Þetta kom til af því að mannfjöldanum hafði verið sagt að baptistar fórnuðu Guði börnum sínum. Einn bifreiðastjórinn sem ók hinum kristnu í rútubíl lét í Ijós samúð sína og sagði: „Við ættum heldur að fjarlægja lögregluna en ekki þá kristnu". Þegar rútan hægði ferðina á götuhorni opnaði hann dyrnar og hleypti föngunum út. Margir slösuðust þegar þeir féllu á maibikið út úr rútunni. Kringum 400 kristnir menn voru handteknir og fluttir til aðal- stöðva heimavarnarliösins. Þegar komið var á lögreglustöðina byrj- uðu hinir kristnu að syngja og biðja á nýjan leik. Foringi skipaði þeim að þegja ella skyldu þeir hafa vehra af. „Ef ég hefði vald til þess, skyldi ég skjóta þig á staðnum", sagði yfirforinginn við einn ungan kristinn mann. Meðan þessu fór fram æddu félagar í Komsomols um götur borgarinnar í bifreiðum og stöðv- uðu vegfarendur og spurðu hvort. þeir væru kristnir. Ef þeir svöruðu „já“ voru þeir handteknir á stund- inni. Innan 24 klukkustunda voru flestir hinna 400 handteknu sendir heim til sín, með flugvélum og i'Aum. Þeir fengu ekkert ráðrúm t. að hirða föggur sínar. Meðal I ia handteknu voru Pavel V onenko frá Arkhangelsk, \ idja Filipov frá Leningrad og Jósrjj Bondarenko frá Ríga. Hann r, einn áhrifamesti prédikari Sovétríkjanna í dag og hefur stundum verið nefndur „Billy Graham" Rússlands. Hann hefur setið áður í fangelsi vegna trúar sinnar og er ennþá í fangelsi þegar vitað var síðast í feb. 1979. 3. maí 1978 gáfust 17 ungmenni Jesú Kristi í borginni Brest, þrátt fyrir afskipti yfirvalda staðarins af samkomunni. Og hinn 8. maí s.l. tóku 15 manns á móti Jesú sem frelsara sínum í Gomel sem er í grennd Krasnodar. Heimild: Slaviska Missionen Box 15037, S-161 15 Bromma, Svíþjóð. „Hjálpið hvítasunnumönnum í Sovétríkjunum“ „Við erum afar áhyggjufullir yfir því, hvað muni verða um þá sjö hvítasunnumenn sem tilheyra Vashchenko og Shmykolovfjöl- skyldunni. Við óttumst að þeim verði vísað á brott úr bandaríska sendiráðinu. Þessir kristnu menn hafa þegar orðið að þola miklar þrengingar, á þeim 17 árum sem þeir hafa reynt að flytjast til Bandaríkjanna. Nú eiga þeir enn á hættu, að þurfa að þjást nýtt útlegðartímabil í fangabúðum í Síberíu". Þetta er úr bréfi sem nokkrir kirkjuleiðtogar í Bandaríkjunum skrifuðu Jimmy Carter forseta, til að vekja athygli hans á neyðar- kjörum sjö hvítasunnumanna frá Síberíu sem urðu fangar banda- ríska sendiráðsins í Moskvu vegna miskunnarlausrar framkomu sovézkra stjórnvalda í þeirra garð. Frá því 27. júní 1978 hafa þeir látið fyrirberast í litlu herbergi, ásamt móður og tveim börnum hennar frá Armeníu. I þessu þrönga rými hafast við samtals tíu manns. Þegar þeir ruddust inn í sendi- ráðið sumarið 1978 varð John sautján ára sonur Vashchenkos fyrir líkamsárás sovézkra öryggis- varða við sendiráðshliðið. Það var þessi hrottalega meðferð sem leiddi til þess, að þeir tóku þá sögulegu ákvörðun að verða um kyrrt í bandaríska sendiráðinu, í stað skyndiheimsóknar. Þeir ein- faldlega voguðu ekki að yfirgefa sendiráðið sem varð griðastaður í ríkjandi kringumstæðum þeirra, og ekki einungis fyrir þá sjálfa, heldur jafnframt hinni stóru fjöl- skyldu þeirra sem var ennþá í Chernogorsk, Síberíu. Sovézk stjórnvöld bíða þess eins að bandaríkjamennirnir verði þreyttir á návist þeirra og reki þá úr sendiráðinu. Þá falla þeir enn á ný í hendur KGB sem um tugi ára hefur ofsótt þessar fjölskyldur, jafnhliða öðrum hvítasunnumönn- um í Síberíu — ofsóknir, sem í sumum tilvikum hafa endað með dauða. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hvítasunnumenn snúa sér til bandaríska sendiráðsins. Á nístíngsköldum vetrardegi í janúarmánuði 1963, þustu 32 hvítasunnumenn inn í sendiráðið í Moskvu og hrópuðu: „Bjargið okk- ur, hjálpið okkur! Við krefjumst þess að þeir sem trúa á Krist og Guð hjálpi okkur. Það er ekkert rúm fyrir okkur í Sovétríkjunum". Þeir gripu til þessa örþrifaráðs sökum þeirrar hræðilegu meðferð- ar er börn þeirra sættu í skólum Síberíu, þar sem þeir bjuggu. Kennarinn sem var guðleysingi hóf hugmyndafræðilega árás á börn hinna trúuðu. Hann reyndi m.a. að neyða þau til að fara með guðlöstunarorð um Guð. Þessu lyktaði á þann veg að kristnir foreldrar tóku börn sín úr skóla. Foreldrar þessir voru þá sviptir foreldraréttinum og börnin drifin á barnaheimili í órafjarlægð. Eftir þessar ómannúðlegu aðfarir sem stóðu um langan tíma, ákvað Vashchenkofjölskyldan og fleiri að flytjast úr landi til Israels. „Við sem erum kristnir eigum hvergi höfði að halla í þessu guðlausa þjóðfélagi", sögðu þeir. Löngun þeirra að yfirgefa Sovét- ríkin óx ásmegin fyrir tilstuðlan frægs Biblíuspádóms sem fjallar um hrun Sovétríkjanna. Tuttugu og eitt foreldri sem neitaði að senda börn sín í skóla var fangels- að og sent í vinnubúðir. Á meðan heimurinn gleymdi Vashchenko- málinu og hvítasunnumönnum frá Síberíu, háðu þessar fjölskyldur linnulausa mannréttindabaráttu sína og eins til þess að fá leyfi að flytjast til ísraels eða Bandaríkj- anna. En nú eru þeir aftur í sviðsljósinu. Ef sendiherra Bandaríkjanna i Moskvu hr. Toom ákveður að láta vísa þeim úr sendiráðinu verða þeir á nýjan Ieik ofurseldir ólýsan- legum þjáningum og örvæntingu, og falla í gleymsku. Viðbrögð á alþjóðavettvangi eru nú hafin til að birta umheiminum kjör hvíta- sunnumanna í Sovétríkjunum. Nýjar heimildir Á sama tíma sem þessu fer fram í bandaríska sendiráðinu í Raðhús í Höfum til sölu glæsilegt 195 ferm pallaraðhús með bílskúr í smíðum viö Brautarás. Húsiö afhendist tilbúið að utan með gleri bílskúrsúti- dyrahurðum en fokhelt að innan. Beðiö eftir veödeildarlárti kr. 5.4 millj. Húsafell Lúóvík Halldórsson FASTEIGNASALA Langholtsvegi 115 Aöalsteinn PéturSSOn (Beeiarieibahusinu) simi 81066 Bergur Guönason hdl Raðhús til sölu Var að fá í einkasölu nýlegt fullgert raðhús á einni hæð í Fellahverfinu í Reykjavík ásamt uppsteyptum bílskúr. íbúðin er: Rúmgóð stofa, sjónvarpsskáli, eldhús með borðkrók, þvottahús inn af eldhúsi, geymsla og anddyri, svo og 3 rúmgóð svefnherbergi og baö viö svefnherbergjagang. Laust 1. júní n.k. Teikningar til sýnis á skrifstofunni. Útborgun 18—20 milljónir. Árni Stefánsson, hrl. Suðurgötu 4, Reykjavík. Sími 14314. Kvölds. 34231. Kristnir feðgar í fangelsi í Sovétrfkjunum. Moskvu, hefur Slavneska kristni- boðinu í Stokkhólmi borizt nýjar upplýsingar frá hvítasunnumönn- um úr ýmsum landshlutum Sovét- ríkjanna. Þessar heimildir inni- halda áskorun um fyrirbænir, bréf til Sameinuðu þjóðanna, Amnesty International, Rauða krossins, Rauða hálfmánans, alþjóða heil- brigðismálastofnunarinnar og sömuleiðis alþjóðlegra verkalýðs- félaga, heimskirkjuráðsins og allra frjálsra kirkna um víða veröld. Eitt slíkt fyrirbænaskjal greinir frá 33 upplýsingaratriðum varðandi allt það sem hvítasunnu- menn og forfeður þelrra hafa orðið að líða í 60 ár. Ekki gleyma þeir heldur að geta þeirra sem hjálp- uðu þeim að verja mannréttindi sín, en þeir eru m.a. Ginzburg, Shcharanski og Pyotr Vins, 21 árs gamall sonur Georgi Vins — menn, sem hafa það eitt unnið til saka að fylgjast með því að Helsinkisamkomulagið sé virt í Sovétríkjunum. ÞúSundir hvítasunnumanna í Sovétríkjunum og sívaxandi fjöldi baptista, afsala sér í dag sovézkum þegnrétti. Þeir leita trú- og stjórn- málafrelsis í löndum vestur Evrópu, Ástralíu, Bandaríkjunum eða Kanada. bú sem lest þetta getur stutt þessa ofsóttu hvítasunnumenn í Sovétríkjunum. Skrifaðu hr. Bréznev og talaðu máli þeirra. Skrifaðu á ensku, þýzku eða rússnesku. Heimilisfang: SSR, Moscow, Kreml. General Secretary L.I. Brezhnev. bú getur einnig skrifað til rússneska sendiráðsins í landi þínu. Bulletin no. 1,1979. 43466 — 43805 OPIÐ VIRKA DAGA TIL KL. 19 OG LAUGARDAGA KL. 10—16. Úrval eigna á söluskrá. Fasteignasalan EIGNABORG sf Fasteignasalan Norðurveri Hátúni 4 a Símar 21 870 og 20998 Við Vatnsstíg 3ja herb. 86 ferm ágætis íbúð í steinhúsi. Við Njálsgötu 3ja herb. íbúð á 2. hæð. Við Hverfisgötu Hf. 3ja herb. íbúð á 2. hæð. Bílskúr. Við Álfaskeið 4ra herb. endaíbúð á 3. hæð. Við Ásbraut 4ra herb. endaibúö á 3. hæð. Bílskúr. Við Bárugötu 4ra herb. 100 ferm íbúð á 1. hæð og 40 ferm iðnaðarhús- næði í kjallara. Bílskúr. Við Ásenda 5 herb. íbúö á 2. hæð. Við Laugarnesveg Einbýlishús 2:110 ferm óg 40 ferm bílskúr. Við Básenda Einbýlishús tvær hæöir og kjall- ari. Tvöfaldur bílskúr. í Hveragerði Einbýlishús viö Heiöarbrún. Viö Norðurbraut Hf. Fokheld neðri hæð í tvíbýlis- húsi. Erum með kaupendur að ein- býlishúsum, raðhúsum og sér hæðum. Oft um mjög miklar útb. að ræöa. Jón Bjarnason, hrl., Hiimar Valdimarsson, fasteignaviðskipti. Óskar Þ. Þorgeirsson, Heimasímí 34153 16688 Baldursgata Góð 2ja herb. íbúð á 2. hæð í steinhúsi. Hraunbær Góð 2ja herb. íbúð á 1. hæö. Laus fljótlega. Orrahólar 2ja herb. íbúð tilb. undir tré- verk á 1. hæð. Til afhendingar 15. apríl. Hamraborg 3ja herb. falleg ibúð á 5. hæð í lyftuhúsi. Bílskýli. Hraunbær Glæsileg 3ja herb. íbúð á 3. hæð með suður svölum. Fæst aðeins í skiptum fyrir 2ja herb. íbúð með suður svölum. Kóngsbakki 3ja herb. góð íbúð á 1. hæð. Rúmgott eldhús með þvotta- herb. inn af. Þinghólsbraut Til sölu 120 ferm falleg jarð- hæð. Skipti æskileg á 3ja herb. íbúð í blokk í Kópavogi. Fokheld raðhús Höfum til sölu tvær gerðir af fokheldum raöhúsum í Garða- bæ. Teikningar á skrifstofunni. Tilbúið undir tréverk Höfum til sölu 2ja, 3ja og 4ra—5 herb. íbúðir tilb. undir tréverk. og málningu við Hamraborg í Kópavogi. íbúð- irnar afhendast með fullfrá- genginni sameign og bílskýli. EIGIMB UmBODIDln LAUGAVEGI 87, S: 13837 ///QO Helmir Lárusson s. 10399 fOOÖO Inglleifur Bnarsson s. 31361 ngolfur Hjartarson hdl Asgeir Thoroddssen hdl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.