Morgunblaðið - 13.02.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.02.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979 23 • Frídrík Jóhannsson skorar eitt af sjö mörkum Ármenninga & móti KA. Gunnar Gíslason (no-10) reynir að verjast og Jón Árni Rúnarsson fer út á mótíFriðrik en allt kemur tyrir ekki. KA-mönnum tókst ekki að fyigja eftir sinum góða sigri á móti KR, deginum áður. Ármann sigraði ÁRMENNINGAR rifu sig upp úr þeim öldudal, sem liðið hafði skriðið ofan f, þegar þeir léku gegn KA í Höllinni á sunnudag- inn. KA-mcnn enn fullir sjálfs- trausts eftir góðan sigur gegn KR á laugardaginn höfðu frum- kvæðið í leiknum allan fyrri hálfleik, en héldu ekki út og þegar upp var staðið blasti við öruggur sigur Ármanns, 24—18, en KA hafði forystu í hálfleik, 9—7. Eftir stórgóðan leik KA gegn KR á laugardaginn, komu þessi úrslit nokkuð á óvart og einkennilegt að sjá hvernig allur leikur KA hrundi síðasta stundarfjórðunginn, en þegar síðari hálfleikur var hálfnaður, var staðan aðeins 15—14 fyrir Ármann, þannig að lokakaflann skoruðu Ármenningar 9 mörk gegn 4. KA hóf leikinn með firnakrafti og eftir stundarkorn stóð 4—1. Ármenningum tókst að minnka muninn og jafnteflistölurnar 5—5 og 6—6 mátti sjá, áður en að KA náði 2 marka forystu á nýjan leik, Þráinn Ásmundsson byrjaði síð- ari hálfleikinn á því að skora tvö falleg mörk úr vinstra horninu og jafna leikinn 9—9. Náðu Ármenn- ingar síðan 1—2 marka forystu sem stóð fram í miðjan hálfleik- inn, án þess að Ármenningum tækist að hrista KA-menn frekar af sér. En þá gerðist það óvænta, að ein allsherjar uppgjöf lagðist yfir KA-liðið og leikur liðsins hrundi til grunna, Ármenningar skoruðu hvert markið af öðru og tryggðu sér frekar óvæntan stór- sigur. Friðrik Jóhannesson átti stór- leik í sókn Ármenninga að þessu sinni. Honum hefur farið mikið fram þegar liðið hefur á veturinn og gegn KA skoraði hann 7 mörk með miklum þrumuskotum. Þá lék Pétur Ingólfsson einn sinn besta leik í vetur, var mikið fyrir utan í stað þess að leika í horninu. Og hann virtist heldur betur kunna við sig og skoraði óspart með langskotum. Þá átti Þráinn mjög góðan leik í síðari hálfleik svo og Ragnar markvörður, einnig í síðari hálfleik. Gunnar Gíslason var einna frískastur KA-manna, barðist af hörku allt til leiksloka í stað þess að gefast upp eins og ýmsir virtust bregða fyrir sig. Magnús Gauti markvörður varði mjög vel fram eftir leiknum, en allt tók að leka inn upp úr miðjum síðari hálfleik. Jóhann Einarsson var ógnandi, en Alfreð Gíslason var í strangri gæslu mest allan leikinn. Mörk Ármanns: Friðrik 7, Pétur Ingólfsson 6, Þráinn Ásmundsson 5, Jón Viðar 2, Óskar Ásmundsson 2, Björn Jóhannesson l(víti) og Einar Þórhallsson 1 mark. Mörk KA: Jóhann Einarsson 6, Gunnar Gíslason 4, Alfreð Gísla- son 3, Jón Árni Rúnarssno 2, Hermann Haraldsson, Þorleifur Ananíasson og Haraldur Haralds- son 1 mark hver. — gg. Stórsigur KA gegn KR ÞAÐ var sanngjarn stórsigur sem KA vann á KR-ingum. efsta liðinu í 2. deildinni, á laugardag- inn í Laugardalshöllinni. Og norðanmenn fögnuðu ákaft og innilega sex marka sigri sínum, 28—22, er leikurinn var flautað- ur af. Leikur KA og KR var allan tímann mjög skemmtilegur á að horfa. Var mikið líf og fjör í leiknum og var alltaf eitthvað um að vera sem gladdi augað. Lið KA lék mjög kröftugan og hraðan handknattleik, og var vel tekið á bæði í vörn og sókn. Þá vakti það athygli undirritaðs hversu hreyf- anlegir allir leikmenn, liðsins voru. KR-ingar hafa eflaust ekki búist við svo mikilli mótspyrnu í leiknum eins og raun varð á. Máske hafa þeir farið inn á með þvf hugarfari að sigurinn væri þeirra. Slíkt kann aldrei góðri íukku að stýra. Gangur leiksins var sá, að KA náði strax forystu 3—1, en KR jafnar 4—4 á 11. mínútu. Var það í eina skiptið í leiknum sem staðan var jöfn. Akureyringarnir svöruðu með þremur mörkum án þess að KR-ingar skoruðu og áfram héldu þeir ótrauðir að raða mörkum hjá KR og höfðu forystu í leikhléi 13—11. Var síðasta mark þeirra í hálfleiknum hálfævintýralegt. Dæmt var aukakast á KR og leiktíma hálfleiksins var lokið. Röðuðu því leikmenn KR sér í varnarvegg og markvörður þeirra var við öllu búinn er Alfreð Gísla- son bjó sig úndir að skjóta. En í stað þess að skjóta á markið vippaði Alfreð boltanum í boga yfir vörn og markvörð KR í blá- horn marksins. Mikill hraði var í hálfleiknum og hart barist. Reyndu KR-ingar allt hvað af tók að reyna að jafna metin, en allt kom fyrir ekki. Um tíma var samt tveggja marka munur, 19—17, og aðeins 12 mín- útur eftir. En norðanmenn voru miklu sprækari á endasprettinum og á sama tíma var sem vonleysi gripi um sig hjá KR-ingum. Stór- sigur KA varð raunin, 28—22. Lið KA sýndi svo sannarlega getu sína í þessum leik og eru margir bráðefnilegir og um leið góðir handknattleiksmenn í liðinu. I þessum leik blómstruðu þeir Alfreð Gíslason, bráðfrískur leik- maður og Jón Árni Rúnarsson og skoruðu þessir tveir leikmenn 18 mörk af þeim 28 sem lið þeirra skoraði. Þá átti Gunnar Gíslason, kornungur leikmaður, góðan leik í vörninni. Lið KR var óvenju dauft í þessum leik, einna helst var það Haukur Ottesen sem stóð upp úr. KR-liðinu vantar tilfinnanlega að geta leikið agaðan handknattleik. Það er t.d. einkennilegt að sjá leikmann reka boltann á undan sér yfir allan völlin án þess að gefa hann og skjóta síðan á markið í vonlausu færi. Þrátt fyrir þetta tap er staða KR sterk í 2. deildinni og vafalaust herðir þetta tap þá í leikjunum sem framundan eru. Mörk KR skoruðu: Björn Pétursson 4 (2v), Haukur Ottesen 4, Stmon llnndórason 4, Olafur Láruaaon 3, Kristinn Ingason 3, Ingi Steinn 2, Jón Hróbjartsson 2, Mörk KA skoruðu: Aifreð Gfslason 9, Jón Árni Rúnarsson 9, Jóhann Einarsson 3, Þorleifur Ananfasson 3, Haraidur Haralds- son 2, Gunnar Gfslason 1, Guðbjörn Gísla- son 1. _ þr Kvennaleik frestað \ vegna þess að dómararnir létu ekki sjá sig FRESTA varð leik Víkings og Breiðabliks í 1. deild kvenna. sem fram átti að fara í Laugardalshöll á sunnudagskvöldið. Ástæðan var sú að dómararnk Pétur Christiansen og Jón Magnússon, sem dæma áttu leikinn, létu ekki sjá sig. Að vonum voru leikmenn beggja liða ekki of ánægðir með þetta og Bodan Kowalzyk. hinn pólski þjálfari Víkings, sagði að þetta væri í fyrsta skipti á 18 ára þjálfaraferli sem svona henti sig. „Þetta gæti líklega hvergi gerst nema á íslandi," sagði Bodan og var þungur á brún. Reykvíkingar sigruðu í ísknattleiknum Í maM 4. Á LAUGARDAG tók Skautafélag Akureyrar formlega í notkun skautasvæði sitt sem stendur í innbænum, nálægt verslunarhúsi Höphners, sem flestir Akureyringar þekkja. Að loknum ávarps- orðum formanns Skautafélags Akureyrar og íþróttafulltrúa Akureyrar. Hermanns Sigtryggssonar. fór fram bæjakeppni í ísknattleik (íshockey) milli Akureyringa og Reykvíkinga. Reykvíkingarnir sigruðu með yfirburðum, með 6 mörkum gegn einu. Margir fylgdust með þessari hörðu og skemmtilegu keppni og voru flestir að sjálfsögðu óánægðir með tap heimamanna og drógu úr sárindum sínum með því að segja, að uppistaðan í liði Reykvíkinga væru burtfluttir Akureyringar auk nokkurra Kanadamanna. Meðfylgjandi ljósmyndir tók Ragnar Þorvaldsson og sýnir efri myndin okkur liðin áður en keppnin hófst og sú neðri er frá leiknum sjálfum. Fyrir ekki allmörgum árum var bæjarjeppni í ísknattleik fastur liður á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Væri gott til þess að vita ef sú venja kæmist á aftur. - þr. Haukar — Fylkir í Hafnarfirði TVEIR leikir fara fram í íslandsmótinu í handknattleik í kvöld, báðir í Hafnarfirði og báðir í 1. deild. Annar í fyrstu deild kvenna og hinn í 1. deild karla. í kvennaleiknum eigast við Haukar og Valur og í karlaleiknum glíma Ilaukar og Fylkir. Báðir gætu leikirnir hæglega orðið spennandi viðureignar, enda eru liðin öll fær um að leika góðan handbolta, en eiga siðan slæma leiki á milli. Fyrri leikur kvöldsins hefst klukkan 20.00. ! rma^^

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.