Morgunblaðið - 13.02.1979, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.02.1979, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRIJAR 1979 Fallinu frestað þar til síðar Þá ekki auðveldara úr að bæta Viðtal við Sverri Pálsson, skólastjóra Sverrir Pálsson, skólastjóri á Akureyri, tók í upphafi máls síns á ráðstefnu sjálfstæðismanna um skólamál fyrir lög um grunnskóla, sem eru eins og hann orðaði það, handbók og Biblía þeirra, sem grunnskólum stjórna og við þá starfa og grundvöllur starfsins ásamt reglugerðum og námsskrám. bar sagði Sverrir m.a.: Því var mjög á loft haldið í umræðum um grunnskólafrum- varpið á sínum tíma og síðar lögin sjálf, að í þeim fælist dreifing valdsins í menntamálum út um byggðir landsins, svo sem með stofnun fræðsluskrifstofa, fræðslustjóraembætta, fræðslu- ráða og skólanefnda. Margt í lögunum bendir að vísu til þess við fyrstu sýn, en við nánari athugun úir og grúir af lítt áberandi setningum eins og „með samþykki menntamálaráðuneytisins", „menntamálaráðuneytið úrskurð- ar“, „eftir því sem menntamála- ráðuneytið ákveður" o.s.frv. Nú er ég ekki að segja, að miðstýring þessara mála sé óæskileg eða ónauðsynleg, síður en svo, en feluleikur af þessu tagi er í mínum augum fremur ógeðfelldur. Þegar í upphafi 1. greinar lag- anna er tekið fram, að ríki og sveitarfélögum s '• skylt að halda skóla fyrir öll börn og unglinga á aldrinum 7—16 ára, og hvergi hefi ég heyrt réttmæti þessa ákvæðis um fræðsluskylduna, þ.e. skyldu hins opinbera til að halda uppi skólastarfi, dregið í efa. í því felst mikil trygging fyrir almenning. Á hinn bóginn var einnig gert ráð fyrir 9 ára skólagönguskyldu ung- menna, þ.e. lengingu um 1 ár, í upphaflegri gerð, og það var fyrst við endanlega afgreiðslu frum- varpsins frá Alþingi sem fallist var á að halda 8 ára skólaskyldu óbreyttri, fyrst um sinn a.m.k., vegna mikils þrýstings víðs vegar að. Þetta tel ég hafa verið vel ráðið. Ég sé ekki enn nauðsyn þess að þvinga fólk í skóla eftir 15 ára aldur gegn vilja sínum og heldur ekki árangur þess háttar lögþving- aðrar skólagöngu. Reynslan er sú, að allur rneginþorri unglinga kem- ur í 9. bekk skólanna af fúsum og frjálsum vilja, þar sem slíkrar skólagöngu er kostur, og áreiðan- lega með jákvæðari hug til skóla- starfsins en ella væri. Þvingun fólks á þessum aldri kallar á þverúð og mótþróa þess. Oft vakn- ar löngun þess til menntunar síðar, og þá kemur skólagangan að gagni. Meðal þess, sem menn velta einna fyrst fyrir sér í sambandi við skólahald, er árlegur starfs- tími. Sótt hefir i það horf hin seinni ár, að hann hafi verið lengdur, einkum að skólar hafi tekið til starfa fyrr á haustin en áður var. Fyrir eigi allmörgum árum var algengast, að gagn- fræðaskólar störfuðu 8 mánuði á ári, þ.e. október—maí, en nú er að öðru jöfnu gert ráð fyrir, að skólaárið hefjist í septemberbyrj- un og sé 9 mánuðir. Þó er skóla- nefndum á hverjum stað heimilað að stytta skólaárið nokkuð, ef sérstakar ástæður liggja til, eink- um atvinnuhættir og þátttaka skólafólksins í nauðsynlegum framleiðslustörfum. Tel ég sjálf- sagt og eðlilegt, að slíkur sveigjan- leiki sé til, enda er að mínum dómi nauðsynlegur þáttur menntunar hvers einstaklings að hann hafi tekið þátt í þeim störfum, sem eru undirstaða atvinnulífs og fram- færslu íbúanna á hverjum stað, hvort sem þau eru við sjávarafla eða uppskeru, vinnslu eða fram- leiðslu af einhverju tagi. Illt er að gera nemendum á þessum aldri, sem hér um ræðir, erfitt fyrir um að stunda sumarvinnu með því að stytta sumarhlé skólanna, en efna í þess stað til dýrrar skólakennslu um verk og vinnubrögð. Nauðsyn- legt er að lofa unglingum að stunda holla vinnu um bjargræðis- tímann og jafnvel ætlast til þess af þeim, að þeir geri það, þeim til menningarauka, skilningsauka á gildi vinnunnar og jafnframt til að drýgja sjálfsaflafé þeirra. Ékki geðjaðist Stefáni G. að andlegum ígulkerum ótal skólabóka, sem lifa í gerviheimi fræðanna án snert- ingar við lífsbjargarviðleitni vinn- andi fólks, — án þess að þekkja af eigin raun gildi strengja, siggs og svita. Tengslin við atvinnulífið, eigin kynni af því og þátttaka í því er nauðsyn hverjum þeim, sem Sverrir Pálsson, skólastjóri. ekki vill vera eins og álfur úr hól, þótt heilinn kunni að vera troðinn út af fræðum og formúlum. Þar við bætist, að víða hagar svo til, einkum vor og haust, að þátttaka unglinga í störfum, ekki síst bú- skaparstörfum, er alger og óum- flýjanleg nauðsyn, annars staðar og á öðrum tímum þarf að bjarga aflanum í veiðihrotum. Margt væri hægt að tína til úr daglegu skólastarfi og minnast á hér í þessu spjalli, en fátt eitt verður þó upp talið. Meðal ný- mæla, sem komið hafa upp, eru valgreinar eða námsgreinaval nemenda. Með þeim ættu nemend- ur að geta búið til sína eigin námsskrá að nokkru leyti og þá í samræmi við áhugaefni sín og hæfileika, þó að nauðsynlegur námsefniskjarni haldist óbreyttur eða lítt breyttur hjá öllum. Á þetta kerfi er nú komin nokkur reynsla og hún allgóð í stórúm dráttum. Þó verður þess sífellt vart, að mörg- um nemendum þykir erfitt að velja sér námsgreinar og eru nokkuð reikulir í vali sínu. Nokk- urt aðhald held ég að sé æskilegt um valfrelsi, en í stórum dráttum er þessi stefna rétt, þótt gæta verði hófs. Hún eykur fjölbreytni daglegra viðfangsefna, og nemandinn ætti að geta verið ánægðari í skólanum en ella. Ekki síst ætti að leggja áherslu á verk- og handmenntagreinar, þegar til valsins kemur, en hlutur þeirra virðist fara rýrnandi í námsskrá efri bekkja grunnskólans, þrátt fyrir stór og fögur orð valdhafa um eflingu þeirra. — Víða í fá- mennum skólum er það valgreina- kerfinu líka fjötur um fót, að vegna fámennis verður í raun ekki valið um nema mjög fáar greinar, ef val getur farið fram á annað borð, því að reglur menntamála- ráðuneytisins mæla svo fyrir, að lágmarksfjöldi nemenda í náms- hóp í valgrein skuli vera 12, en meðaltalsfjöldi í valgreinahópum skólans megi ekki vera undir 17. Af þessu leiðir, að valfrelsi nemenda verður aðeins svipur hjá sjón, nema þar sem árgangar nemenda eru fjölmennir. Þetta veldur miklum aðstöðumun, og nauðsynlegt er að rýmka þessi lágmarksákvæði. Ráðgjafar- og sálfræðiþjónusta í skólum þyrfti að vera miklu virk- ari en nú er, því að þörfin fyrir /hana er æpandi víða um land. Vel menntaður og góðviljaður fræði- maður á þessu sviði getur gert ótrúlega mikið gagn, þegar vel tekst til, og hvert böl, sem bætist, er óendanlega mikils virði. En fámenni sálfræðinga er enn svo mikið, að víðast hvar á landinu fara skólar enn á mis við þjónustu þeirra til óbætanlegs tjóns fyrir einstaklinga, fjölskyldur, skóla og samfélag. Nýir kennsluhættir og nýjar kennsluaðferðir hafa komið til skjalanna í mörgum námsgreinum hin síðari ár, svo sem í eðlis- og efnafræði, líffræði, samfélags- fræðum og tungumálum, svo að eitthvað sé nefnt. Rétt er það, að kennsluhættir, kennslubækur og kennslugögn þoldu vel endurskoð- un og lífgun, og því var margt í þessari þreytingu til bóta. Við verðum þó að gæta þess að varpa ekki öllu fyrir borð, sem áður tíðkaðist og gafst vel, aðeins af því að það er gamalt. Mér er það t.a.m. mikið áhyggjuefni, ef ekki er lengur rúm fyrir rækilega kennslu í sögu Islands í grunnskóla, eins og var, meðan efsti bekkur gagn- fræðanáms var til. Staðgóð kennsla í orðflokkagreiningu og beygingafræði var mörgum mikill styrkur, þegar þeir fóru að læra erlend mál, en nú liggur við að sú gamla góða grammatik sé bann- orð. Vissulega skorti mikið á fyrrum, að menn yrðu liprir í að gera sig skiljanlega í mæltu er- lendu máli, því að kennslan var fólgin í þýðingum á íslensku og þegar best lét, skriflegum þýðing- um af íslensku á hið erlenda mál. Þetta mátti breytast. En mörgum nemandanum kæmi þó vel að geta leitað til traustrar þekkingar í beinharðri málfræði á stundum efasemdanna. Sumum kann að hafa þótt hún erfið, jafnvel svolít- ið leiðinleg stundum, en hún var traust og vinur í raun. Slíkum vinum eigum við ekki að varpa frá okkur, allra síst á flótta nútimans undan erfiðinu og fyrirhöfninni, sem aldrei leiðir til stórra sigra. Ég viðurkenni fúslega þörf breyttra hátta, t.d. meiri talmáls- þjálfunar í erlendum málum og meiri notkunar hjálpartækja og tilrauna (eigin upplifunar nemandans) í mörgum greinum, en við ættum að fara okkur hægt í að fleygja þeim þáttum, sem vel hafa gefist. I lok erindis síns ræddi Sverrir um próf og einkunnir og lauk máli sínu þannig: Margir tala um, að grunnskóla- prófin séu miklu léttari nú en landspróf var áður og eiga þá við, að auðveldara sé að ná framhalds- einkunn. Sennilega hafa þeir mik- ið til síns máls. Eðli prófanna er slíkt, að hæfnisvalinu er frestað eins lengi og kostur er, enda tilgangur löggjafans. Nemendur velja að prófgreinum þær náms- greinar og námsgreinaflokka, sem þeim eru helst að skapi og þeir eiga auðveldast með að nema, en sleppa öðrum, sem þeim vegnar miður í. Með þessu móti er aug- ljóst, að niðurstöður prófanna gefa ekki nægilega breiða mynd af almennri hæfni nemandans eða getu hans til að leggja stund á framhaldsskólanám og ljúka því. Grunnskólaprófið vinsar ekki úr eins og landsprófið gamla gerði, heldur er fallinu frestað þar til síðar. Þá er ekki auðveldara úr að bæta, þegar búið er að eyða árum á rangri braut, í stað þess að átta sig fyrr á staðreyndum og haga vali sínu á námsbrautum meir í sam- ræmi við það, sem hneigð og hæfileikar benda til. Þá yrði kom- ist hjá mörgum sárindum og von- brigðum, jafnvel fjárhagstjóni, þó að það sé að jafnaði léttvægast. Og þarna liggur áreiðanlega nokkur skýring á hinu mikla mannfalli, sem orðið hefir vart í framhalds- skólum að undanförnu, einkum á 1. ári menntaskóla. Hér við bætist, að skólarnir þurfa að gera meiri kröfur nú um sinn til góðra vinnubragða nem- enda við námið, sem aldrei má verða „leikur einn“, heldur alvar- legt starf, sem venur menn við að gera skyldu sína, hvort sem hún er ljúf eða leið, og leysa hana af hendi með fullum sóma og sátt við aðra menn, sjálfan sig og samvisk- una. Ábádumáttum Sveinbjörn Þ. LJÓÐ INNAN GLERS. Letur 1978. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson: FÖRNUNÓTT. Ljóð. Gunnar Árnason myndskreytti. Fjölvi 1978. „Ekki er ég Bjarni Bernharður, Dagur eða Siggi Jóh.“ segir Svein- björn Þ. sem nú kveður sér hljóðs með hjálp bókaútgáfunnar Leturs sem virðist orðin helsta athvarf ungra og óráðinna skálda. En vel að merkja: Letur gefur líka út bækur hinna ráðsettu. Ef til vill eru skáldin þrjú meðal þeirra sem Sveinbjörn Þ. hefur lesið sér til gagns. Sleppum því. Sveinbjörn heldur áfram: „Þessi ég er Sveinbjörn Þ. flakandi sár, kommúnistaflekkir í andliti, íhaldsgloppur í höndum og úrkynj- un rómantíkur allra innst“. Ætli þessi skilgreining eigi ekki nokkuð vel við hann? Að minnsta kosti er hann rómantískur, yrkir mikið um ástina, stundum af innileik, stundum kaldhæðni. Dæmi um ljóð Sveinbjörns er Innan glers: Það hrannast upp óveðursaký ég st það í getznum gler Bókmenntlr eftir JÓHANN HJÁLMARSSON óræktargarðurinn úti skiptir litlu þvl innan glera hef ég ástina Ég hjúfra mig f fangi hennar Byrgi auglit mitt f hlýju hennar vitandi vits um grýtta jörðina úti vitandi vits um mismunandi viðbrögð glers við skýi við grjóti Það er helvftis grjótið sem angrar mig Allt brestur Allt hrynur Ég sit einn f mjúkum faðmi hugaróra minna og finnst það bara harla gott dóp. Það er einkum seinasta ljóðlín- an sem kemur á óvart. Ljóðið í heild sinni lýsir veröld sem kemur á óvart. Ljóðið í heild sinni lýsir veröld sem skáldið hefur smíðað sér fjarri kröfum tímans. Það situr öruggt í mjúkum faðmi eigin hugaróra. „Mig langar til að skrifa, /helst ljóðahróp,/ en nú vantar styrk- inn“, stendur á öðrum stað. Yfir- leitt eru ljóð Sveinbjörns Þ. þank- ar um hitt og þetta, sumt er laglega orðað og gefur nokkur fyrir heit. Bókin er engu að síður sundurlaus eins og títt er um bækur byrjenda. Innan um eru nokkur heilleg Ijóð eins og Kynslóð eftir kynslóð, Speglun og Trúar- Ijóð. I Förunótt Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar er ljóð sem nefnist Á báðum áttum: Kvíöin veröld f fangi mér elskar lffió sumarlangt. Nöktum skýlir brjóstum sfnum fagurdreymin valkyrja. Þorpið okkar á heimsenda virðist næstum ósnortið. Seinna: llvflum við bláþreytta nótt f augum vatnsins. Siglum til rökkurmóður dimmhvftum ferjum. Lendum á brimsorfinni. kaldri mánaströnd. Til baka virðist leiðin með öllu óþekkt. Ljóð Aðalsteins Ásbergs Sig- urðssonar eru mun fágaðri en ljóð Sveinbjörns Þ. Um leið eru þau innhverfari. Lagt er upp úr hljómi orða og myndvísi, samanber „blá- þreytt nótt“, „dimmhvítar ferjur" og „rökkurmóðir". Það mætti ætla að Förunótt væri sprottin úr allt öðru umhverfi en Ljóð innan glers. Svo er þó ekki, heldur er hér um ólík vinnubrögð að ræða. Förunótt er önnur ljóðabók Aðalsteins Ásbergs, hin fyrsta var Ósánar lendur (1977). Bókin er nokkuð eintóna og skáldskapur hennar almennur. Það að skáldið agar mál sitt er virðingarvert og lofar góðu. En það sem Aðalstein Ásberg skortir helst eru nánari tengsl við umhverfi sitt og dagleg- an veruleik, ljóð hans eiga rætur í skáldskap annarra, eru þókleg. Að þessu er vikið í Hús þar sem lokaerindið hljóðar svo: Á vÍKsan hátt erum við ajálf einokonar hú«. lokuð og læst finsog gengur. Hið dula svipmót ljóðanna í Förunótt þykir mér Gunnar Árna- son ná að túlka í myndum sínum. Athygli er • • • ArUWfBÍ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.