Morgunblaðið - 13.02.1979, Qupperneq 5
1
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979
Hvöt og Heimdallur:
Friðhelgi einkalífs
— Með sérstöku tilliti
til foreldra og bama
HVÖT félag sjálfstæðiskvenna
Reykjavík og Heimdallur félag
ungra sjálfstæðismanna í Reykja-
vík boða sameiginlega til fundar
um efnið: „Friðhelgi einkalífs
með sérstöku tilliti til foreldra og
Góður afli
hjá Grinda-
víkurbátum
Grindavík 13.2.
í GRINDAVÍK er nú vetrarvertíð í
fullum gangi. Héðan róa nú 34 bátar
og fleiri að hefja róðra, enda hefur
veiðst vel. Framan af vertíð var mest
ufsi í aflanum sem veiddist en nú er
nær eingöngu þorskveiði. I gær
lönduðu netabátar góðum afla t.d.
Kópur 18 tonnum, Jóhannes Gunnar
30 og Geirfugl 18, Vörður 25 og
Fjölnir 20. Fjölnir er nú aflahæstur
netabáta með 286 tonn. Það þykir
mjög gott svo snemma vertíðar
miðað við síðustu vertíðir. Frekar
treg veiði hefur verið hjá línubátum
að undanförnu. Mikil vinna hefur
v^rið við verkun aflans og er nú
margt aðkomufólk hér á vertíð að
venju.
Leikfélag Grindavíkur hefur að
undanförnu æft leikritið
Fjalla-Eyvind og hyggst hefja
sýningar á því á næstunni. I kvöld,
þriðjudag 13. kl. 21, halda Slysa-
varnadeild kvenna í Grindavík stór-
bingó. Þar er margt stórvinninga t.d.
3 utanlandsferðir og há peningaverð-
laun. — Guðfinnur.
Almennar sýning-
ar hjá Herranótt
HERRANÓTT, leikfélag Mennta-
skólans í Reykjavík sýnir leikritið
Yvonne eftir pólverjann Witold
Gombrowicz á Hótel Borg og verða
næstu sýningar opnar almenningi.
Miðaverð er 1000 krónur. Leik-
stjóri er Hrafn Gunnlaugsson.
Miðar verða seldir á Hótel Borg
sýningardagana frá kl. 3.
Sýningarnar eru í kvöld, þiðjudag
kl. 20.30 og á miðvikudagskvöld kl.
20 en óvíst er með framhald
sýninga.
barna“. Fundurinn verður hald-
inn miðvikudaginn 14. febrúar í
Sjálfstæðishúsinu Valhöll við
Háaleitisbraut og hefst kl. 20.30.
Framsögu á fundinum hefur
Ragnhildur Helgadóttir alþingis-
maður en hún hefur nýlega flutt
lagafrumvarp um þetta efni, m.a. í
tilefni af ítarlegri skoðanakönnun
sem gerð var um persónuhagi
nemenda í grunnskólanum.
Að lokinni framsögu Ragnhildar
verða frjálsar umræður, en síðan
fara fram pallborðsumræður um
efnið.
Þátttakendur í pallborðsum-
ræðunum verða:
Sigríður Jónsdóttir námsstjóri,
Sigurður Pálsson námsstjóri,
Kjartan Gunnarsson lögfræðingur.
Jóhanna Thorsteinsson fóstra.
Ragnar Ingimarsson verkfræðingur.
Umræðustjóri verður Erna
Ragnarsdóttir innanhúsarkitekt.
Eins og fyrr segir verður fundur-
inn í Valhöll miðvikudagskvöldið
14. febrúar kl. 20.30 og er öllum
heimill aðgangur.
Borgarafund-
ur í Garðinum
á fímmtudag
Garði, 12. febrúar
ALMENNUR borgarafundur
verður haldinn í samkomuhúsinu
n.k. fimmtudagskvöld kl. 20.30.
Verður þar fjallað um drög að
fjárhagsáætlun fyrir Gerðahrepp
1979.
Utsvörin eru helzti tekjuliður
hreppsins og er áætlað að þau
verði á árinu um 110 milljónir.
Stærstu gjaldaliðir eru afborganir
lána og vextir, stjórnunarkostn-
aður, grunskóli Gerðahrepps,
sjúkrasamlagsgreiðslur og vatns-
veituframkvæmdir.
Fundur sem þessi hefir ekki
áður verið haldinn — en hingað til
hefir verið haldinn opinn hrepps-
nefndarfundur sem fjallað hefur
um fjárhagsáætlanir. — Frétta-
ritari.
Janúar 19T (lestir úsl. ^
Bráðabirgða- Endanlejar '
tölur 1919 . tölur l ’T s
I. BOTNFISKAFLI: 34620 30363
a) Bátaafli: 16633 13123
Vestm. /StykJdsh. 9617 ' T44T
VestfirSir 296 2 26 30
NorÖurland 1150 1431
Austfirðir 243 S 1314
t.andað erlendis 486 2 6 2 •
b) Togaraafli: 17967 17 240
Vestm. /Stykkish. 6234 7141
Vestfirfiir 3460 29T 5
Norðurland 4 846 4441
Austfirðir 1 5 S3 . 23 3 3
LandaÓ erlendis 1 84 2 3 50
II. LOÐNUAFLI: ' ' 1I012S '66041
III. SÍLDARAFLI: 0 0
IV. RÆKJUAFLI: 146 2 111T
V. HUMARAFLI: 0 (3
VI. HÖRFUDISKUR: 766 5T 2
VII.KOLMUNNI: 0
VIII. ANNAR AFLI: 49 3
(Spærl. o. fl.)
HEILDARAFLINN ALLS: 146989 9 810 3
Botnfiskafliim í janúar
4 þúsund lestum meiri
en sama mánuð í fyrra
BOTNFISKAFLI íslendinga var 36.620 lestir í janúar eða rúmum 4000
lestum meira en sama mánuð í fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands. Munar mest um verulega aukinn bátaafla. Heildarfisk-
aflinn í janúar var 146.989 lestir en var sama mánuð í fyrra 98.103 lestir.
Heildaraflinn var sem hér segir í janúar. Aflatölur frá janúar i fyrra eru
birtar með til samanburðar. (Sjá töflu hér fyrir ofan)
Eins og sjá má er bátaaflinn víðast hvar mun betri en í fyrra og hefur mest
aflaaukning orðið hjá Austfjarðabátum og bátum, sem gerðir eru út frá
höfnum á svæðinu frá Vestmannaeyjum að Stykkishólmi.
Frœðslu- og skemmti-
kvöld hjá sykursjúkum
SAMTÖK sykursjúkra efna til
fræðslu- og skemmtikvölds í húsa-
kynnum Domus Medica kl. 20.50 í
kvöld, þriðjudag.
Á dagskrá verður m.a. stutt
ferðakynning frá Ferðaskrifstof-
unni Úrval, snyrtisérfræðingur
leiðbeinir um fótsnyrtingu, frjáls-
ar umræður verða, kaffiveitingar
og bingó með góðum vinningum.
Félagsmenn mega taka með sér
gesti og kemur fram í fréttatil-
kynningu frá samtökunum að
verði á veitingum og
bingóspjöldum verður stillt í hóf.
Sjór í
loðnuskip á
Eskifirði
Eskifirði. 13. 2.
ÞAÐ óhapp varð hér á
laugardag að sjór flæddi
inn í loðnuskipið Jón
Kjartansson SU 111 þar
sem það lá við löndunar-
bryggju loðnuverksmiðj-
unnar hér á Eskifirði og
var fullhlaðið loðnu.
1100 — 1200 tonnum, og
beið eftir löndun.
Mun kælivatnsrör hafa bilað og
því fór sem fór. Sjórinn fór inn í
stafnklefa þar sem vélin fyrir
hliðarskrúfur er staðsett og fór
hún á kaf í sjó ásamt fleiru. Dælt
var úr skipinu aftur og vélarnar
hreinsaðar og lagðar og komst það
á veiðar aftur í dag.
Nú er búið að taka á móti
rúmlega 36 þúsund tonnum af
loðnu hér en sem alkunna er hefur
loðnunefnd bannað löndun hér
austanlands þótt víða sé þróar-
rými og þar af leiðandi er erfitt
með frystingu á loðnunni. Hvað
skyldi valda?
Mikið ófremdarástand er í hafn-
armálum hér þar sem gamla hafn-
arbryggjan er orðin algjörlega
ónýt og ekki er hægt að vinna
nema við eitt flutningaskip í einu í
nýju höfninni en miklar skipakom-
ur eru hér, sérstaklega á veturna,
kannski 3 og upp í 5 skip sama
daginn og bara hægt að vinna við
eitt. Þá verða hin að bíða á meðan.
Á morgun eru t.d. væntanleg 5
flutningaskip, svo eru loðnuskipin,
togararnir og vertíðarbátarnir, en
þeir landa sínum afla á gömlu
hafnarbryggjunni, en sem fyrr
segir er hún algjörlega ónýt og
stórhættulegt að fara með bíl
niður á hana og bara tímaspurs-
mál hvenær þeir fara niður úr
dekkinu. — Ævar.
INNLENT
Otrúlegt úrval,
sprenghlægilegt
verö
Iðnaðarmannahúsinu
v. Hallveigarstíg
• Tökum fram nýjar vörur
á hverjum degi.
• Verðin eru þegar
farin að lækka
Saumastofa Karnabæjar
Belgjagerðin
Karnabær
Björn Pétursson, heildverzlun
Steinar h.f.