Morgunblaðið - 13.02.1979, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979
13
Staða Tengs
er enn í hættu
Teng skálar við væntanlegan sendiherra Bandaríkjanna í Peking, Leonard Woodcock.
VERULEIKINN bak við sjón-
varpssýninguna á Teng
Hsiao-ping á ferðum hans um
Bandaríkin var allt öðru vísi en
myndirnar sem birtust á skján-
um.
Hin mikla sýning í sjónvarp-
inu var af sigursælum, sjálfsör-
uggum stjórnmálaleiðtoga á há-
tindi valdsins, og hann var
sagður raunverulegur sigurveg-
ari baráttunnar um völdin eftir
dauða Mao Tse-tungs. En í raun
og veru sést 74 ára gamall
stjórnmálamaður, sem á enn í
leynilegri valdabaráttu sem enn
er engan veginn ljóst hvernig
lyktar.
Staða Tengs heima fyrir er
langtum veikari en hún virðist
vera á yfirborðinu. Hann á það á
hættu að verða aftur steypt af
stóli, eins og honum var tvívegis
steypt af stóli á ævidögum
Maos, en að þessu sinni yrði það
í eitt skipti fyrir öll. Ef hann
hverfur af sviðinu, hverfur með
honum tilraun hans til að draga
Kína ofsahratt inn í heim
nútímans. Úrslit togstreitunnar
í Peking munu ekki einungis
hafa áhrif á framtíð eins millj-
arðs Kínverja, þau gætu einnig
haft í för með sér alvarlegar
afleiðingar fyrir allt mannkyn-
ið.
Kremlverjar halda því fram,
að ef barátta Tengs fyrir þeim
nútímabreytingum, sem hann
nú reynir að kom til leiðar með
vestrænni aðstoð verði árang-
ursrík, muni aðrar þjóðir með
tíð og tíma standa andspænis
iðnaðarrisa sem gæti ráðið lög-
um og lofum í heiminum. En ef
þróunin í Kína verður hægari,
eins og andstæðingar Tengs
vilja, má vera að birgðir þeirra
af matvælum og öðrum lífs-
nauðsynjum þverri. Sú þjóðfé-
lagslega upplausn, sem af þessu
mundi leiða, kynni þá að breið-
ast út fyrir landamæri Kína
Eftir Victor Zorza
með þvílíkum hætti, að það gæti
haft í för með sér umrót og
öryggisleysi annars staðar í
heiminum.
Tálsýn manna um vald Tengs
stafar af því, að almennt er
álitið á Vesturlöndum að allar
óskir hans hafi verið uppfylltar
á flokksfundinum í Peking í
síðasta mánuði. Þar var sam-
þykkt að færa samskiptin við
Bandaríkin í eðlilegt horf með
þeim skilmálum, sem hann hafði
samið um, þótt áður hefði ýmis-
legt bent til þess, að aðrir
leiðtogar legðust gegn því. Bar-
átta hans fyrir nútímabreyting-
um var samþykkt. Teng hafði
gagnrýnt kreddur vinstrisinn-
aðra maoista, sem andstæðingar
hans höfðu notað til þess að
koma í veg fyrir að sú hægri-
stefna, sem hann hafði beitt sér
fyrir, yrði tekin upp, og mið-
stjórnin var honum raunar sam-
mála um að losa sig við „andlega
fjötra“ fortíðarinnar.
En þessir sigrar eru ekki eins
öruggir og þeir líta út fyrir að
vera. Teng Hsiao-ping vildi
ganga miklu lengra í baráttu
gegn maoisma en miðstjórnin
var reiðubúin að fallast á. I
greinum, sem aðstoðarmenn
hans birtu í kínverskum blöðum,
og í veggspjaldaherferðinni, sem
þeir skipulögðu, var allt að því
krafizt „afstaliniseringar", eins
og þeirrar sem staðið var fyrir í
Rússlandi á árunum fyrir 1960.
Þegar Teng tókst ekki að fá vilja
sínum framgengt á flokksfund-
inum flýtti hann sér að taka
afstöðu gegn þessum kröfum, en
það var herbragð til þess ætlað
að dylja takmarkaðan ósigur.
Teng hafði krafizt endurreisn-
ar nokkurra leiðtoga, sem Mao
hafði ófrægt og hreinsað, og
eftir margra mánaða þjark var
kunngert að nokkrum hefði
verið veitt uppreisn æru. Það fór
fram hjá mönnum í öllum æs-
ingnum, að miðstjórnin lét
undir höfuð leggjast að leggja
blessun sína yfir kröfur Tengs
um endurreisn áhrifamanna,
sem meira máli skipti í pólitísku
tilliti, manna eins og Liu
Shao-chi forseta. Slíkt hefði
jafngilt því, að boðuð hefði verið
alger endurskoðun þeirrar
vinstristefnu, sem fólst í
menningarbyltingu Maos, og
það er það sem Teng Hsiao-ping
þarf áður en stefna hans sjálfs
getur sigrað.
Teng veit, að svo lengi sem
menningarbyltingin nýtur
verndar stafar honum ógn af
þeim vinstrisinnum, sem mynda
hóp aðalandstæðinga stefnu
hans. En miðstjórnin vísaði á
bug áskorun hans um endur-
skoðun menningarbyltingarinn-
ar. Hún fyrirskipaði einnig að
hætt skyldi hreinsun vinstri-
sinnanna( þótt margir þeirra
séu enn í valdastöðum.
í staðinn fyrir að samþykkja
þetta fékk Teng nútímabreyt-
ingar sínar samþykktar, þótt
þar tækist honum ekki heldur
að fá öllu framgengt sem hann
vildi. Opinberlega skoraði mið-
stjórnin á þjóðina að beina
kröftum sínum að nútímabreyt-
ingum, en á bak við tjöldin var
ákveðið samkvæmt áreiðanieg-
um leyniþjónustuupplýsingum,
sem hafa borizt til Vesturlanda,
að spenna bogann ekki eins hátt
og Teng vildi.
Komizt var að þeirri niður-
stöðu, að Kínverjar hefðu ekki
yfir að ráða nógu miklum auð-
lindum til þess að kaupa allan
þann erlenda tækjabúnað, sem
nauðsynlegur væri til þess að
hrinda áætlunum hans í fram-
kvæmd, jafnvei þótt hliðsjón
væri höfð af öllum þeim vest-
rænu lánum, sem þeir gerðu ráð
fyrir að fá. Þetta var meirihátt-
ar áfall fyrir stefnu Tengs, því
að það táknaði að hann hefði
sett markið of hátt. (Framhald).
Teng með Sihanouk fursta sem hefur fengið athvarf í Peking.
Þægilegasta leiðin til að verzla í London án ferðalaga
of London
Versliö á nýjan liátt
608 stórar litríkar blaösíöur, meö tískufatnaöi á alla fjölskylduna, og
sígildum fatnaöi viö öll tækifæri og margt, margt fleira. Þetta er til hjá
Freemans, pantiö listann, yöar er aö velja. Þessi þægilegi verzlunarmáti,
innan veggja heimilisins hefur unniö sér traustan sess, einnig hér á
íslandi.
Auðvelt aö panta
Meö hverjum pöntunarlista fylgja nákvæmar leiöbeiningar á íslensku
með einföldu stæröarkerfi.
Auðvelt aö borga
Þér sækiö pakkann eftir 3—4 vikur á næsta pósthúsi, og greiðið allt í
ísl. krónum.
Allar upplýsingar
í síma
25360
0* of Loodon
líeemon/
P.O. Box 147,
222 Hafnarfirði.
Skrifstofan
Klapparstíg 25—7. Rvík.