Morgunblaðið - 13.02.1979, Síða 14

Morgunblaðið - 13.02.1979, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979 „Ég er orðin sjötíu og fimm ára,“ sagði Þórdís Guðjóns- dóttir þar sem hún sat við borðið sitt með hnífinn og töngina og skveraði frá sér flökunum einu af öðru. „Hér er ég búin að vera í þrjátíu ár og ég ætla mér að vera hér í „hraðinu“ þar til ég dett. Nei, ekki þar til ég dett niður dauð, — Ég hafði nú hugsað mér að komast heim áður en það verður," sagði hún og hlð. „Það er óhætt að segja að það hefur ýmislegt breytzt á þeim tíma sem ég hef verið hér og allt hefur það verið til batn- aðar. Aðstaðan hefur gjör- breytzt. Nú getur maður setið hér í stól í rólegheitunum en áður fyrr bara stóð maður allan liðlangan daginn og datt ekkert annað í hug. Jú, jú, ég átti fullt hús af börnum — fjögur, og þar af eru þrjú enn á lífi. En það gekk allt ágætlega." „Unga fólkið? Ég er nú ekki ein af þeim sem eru að hneykslast á unga fólkinu. Heldurðu að maður hafi kannski ekki haft gaman af að skemmta sér sjálfur? Það væri skárra óðlið ef ungt fólk hefði ekki gaman af að skemmta sér. Eini munurinn var sá að það var minna drukkið, en ég er ekki viss um að það hafi verið af því að fólk hafi verið reglusamara. Það átti bara enga peninga og heldur ekki brennivín, það var nú lóðið, skal ég segja þér. Þótt fólkið hafi það yfirleitt miklu betra núna held ég samt ekki að því líði miklu betur andlega. Pening- ar hafa ekkert með þá líðan að gera. Auðvitað er mikils um vert að nú hafa allir nóg að borða og gott húsnæði til að búa í, en ég hugsa að því liði ekkert síður þótt það hefði heldur minna til að spila úr. Kröfurnar fara bara vaxandi eftir því sem það hefur meiri aura. En fólkið sjálft er jafngott hvernig sem umbúðirnar eru og það get ég sagt þér að á þessum vinnu- stað hefur alltaf verið gott fólk og fyrir það er ég þakk- lát.“ Við borð 14 í pökkunar- salnum standa tvær ástralsk- ar stúlkur, þær Helen „Ætla mérað vera í „hraðinu ” þar til ég dett” Það er búiö að segja Þaö oft og mörgum sinnum að slorið sé leiöindavinna, einhæf og andlaus, óþrifaleg og niður- drepandi. Aðra sögu hafa pær að segja, stúlkurnar, sem við hittum í frystihúsinu á Eskifirði um daginn. Þær standa um fjörutíu talsins í pökkunarsalnum á efri hæðinni og pá stund sem við stóðum viö bar ekki á pví að andrúmsloftið væri prúgað. „Þetta er eins og hver önnur vinna. Stundum verður maður preyttur og hundleiður, en geturðu bent mér á starf par sem aldrei bar á slíku? Svo kemst skapið í lag aftur og pá kemur vinnugleðin um leið,“ sagði ein, sem er búin að standa í „hraðinu“ árum saman og segist engan hug hafa á pví að fá sér annað að gera. Ein nítján ára var búin að vera í frystihúsinu vikutíma. „Við erum nýflutt hingað, maðurinn minn og ég, með tvö börn. Við erum frá Grindavík og fréttum að hér væri alltaf nóg að gera. Krakkarnir eru eins og tveggj ára og meðan ég er að vinna hér á daginn passar maðurinn, en svo vinnur hann í bræðslunni á nóttunni. Okkur líkar hér ágætlega pað sem við höfum kynnzt pví enn sem komið er. Eg er ánægð með vinnustaðinn en veit nú ekki almenniiega ennpá hvernig mér lízt á plássið hérna. En okkur langaði til að drífa okkur eitthvað og koma undir okkur fótunum og pess vegna er ég nú hér,“ sagði hún. Þær sem viö töluðum við voru sammála um að ef eitthvað sérstakt mætti að starfinu í frystihúsinu finna pá væri pað helzt pað að of mikið væri að gera. „Ef hráefnið er einu sinni komið á land pá er ekkert sem heitir með aö láta pað bíða til að geta sinnt sínum eigin málum. Og pótt álagið geti stundum orðiö svæsið pá hleypir pað í mann kappi og pá gleymist preytan,“ sagði ein stúlknanna, „en talaöu við hana Dísu. Hún er búin aö vera hér lengst og ætti að vera farin að kannast viö petta. Þórdís Guðjónsdóttir. Kristín Pétursdótfír ■ •- : í Séð yfir pökkunarsalinn í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar. Rætt við starfsfólk í hraðfrysti- húsi Eski- fjarðar Stepien og Kathy Miller. Helen er kennari, þrítug að aldri, en Kathy er síma- stúlka, tuttugu og tveggja ára. í frystihúsinu eru tíu ástralskar stúlkur, og við spurðum hvað það væri, sem drægi fólk heimskauta á milli til að vinna í frystihúsi. „Við erum að safna pening- um, hvað annað?“ sagði Helen. „Við vorum í Englandi og fjárhagurinn var farinn að daprast svo það var ekki annað að gera en grípa ti! róttækra ráðstafana. Ég frétti að það væri uppgripa- vinna í fiski á íslandi, svo að ég kynnti mér málin og sótti um að komast hingað. Það er bara verst að kjörin eru langt í frá að vera jafn hagstæð og mér var sagt áður en ég kom hingað. Það gleymdist nefni- lega alveg að taka fram hvað mikið væri dregið frá manni. En það þýðir ekkert að ergja sig yfir því úr því sem komið er. Ég er ánægð hérna og kann þokkalega við starfið.“ Við spurðum hvernig þær verðu tómstundunum og hvar þær byggju. „Vlð búum í bragga,“ sagði Kathy. „Það er nú kannski ekki skemmtilegasta húsnæði sem hugsazt getur, en það kemur ekki að sök í smátíma. Við ætlum að verða hér þar til í maí — Þá er kominn tími til að hugsa til heimferðar. Ég er búin að vera að heiman í tvö ár og mér finnst ég hafa lært heilmikið af því að skoða mig um í heiminum. Það er til dæmis ekki lítil reynsla að hafa verið hér á Eskifirði. ísland er nefnilega svo allt öðru vísi en þeir staðir sem ég hef áður verið á. Að vísu er nú ómögulegt að segja að kuldinn og snjórinn hér séu til yndisauka, en fólkið bætir það upp. Það er alltaf nóg að gera í tómstundunum, og við látum okkur sannarlega ekki leiðast. Við förum á böll og í bíó, í heimsóknir til þeirra vina, sem við höfum eignast hér, — nú og svo erum við alltaf að prjóna. Það væsir svo sannarlega ekki um okkur, en það sem ég býst við að við Astralíustelpurnar metum mest í sambandi við dvölina hér er allt það hjálp- sama og yndislega fólk, sem við höfum kynnzt hér. Það hefur tekið okkur frábærlega vel og það þarf ekki að vor- kenna neinum að vera aðkomandi hér á Eskifirði," sagði Kathy um leið og hún sneri sér aftur að upplýstu borðinu til að binda enda á ævi ormanna alræmdu, sem þorskurinn hefur tekið sér fyrir lífsförunauta. Hún Kristín Pétursdóttir á borði 6 var ekki alveg á því að tala við okkur fyrst í stað. Sagðist ekkert geta sagt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.