Morgunblaðið - 13.02.1979, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRUAR 1979
Víkingar ekki
í vandræöum
með ÍR-inga
VÍKINGAR báru sigurorð aí
ÍR-ingum, 24 — 20. í 1. dcildinni í
handknattleik á laugardag. Ekki
var erfitt fyrir Víking að na sér í
2 stig í leiknum, mótstaða ÍR var
allan ti'mann með minnsta móti.
Það cr nú ljóst að ÍR-ingar
verða í fallbaráttunni í 1. deild og
verða þeir að hressa töluvert upp
á leik sinn ef þeir ætla að sleppa
við að leika í 2. deild næsta
keppnistímabil. Næsti leikur ÍR
er á móti Fylki, og þá skýrast
línurnar milli liðanna.
Víkingar léku þennan leik
nokkuð létt og bættu við sig
þegar á þurfti hvort sem það var í
varnarleik eða í mörkum, sigur
þeirra var aldrei í hættu.
Gangur leiksins
Framan af fyrri hálfleik fóru
liðin sér mjög rólega og þegar
fyrri hálfleikur var hálfnaður var
staðan jöfn, 4—4. En svo sigu
Víkingar fram úr og náðu forystu
og staðan í leikhléi var 11—8. I
síðari hálfleiknum lifnaði yfir
leiknum og meiri hraði færðist í
hann. Viggó Sigurðsson og Óiafur
Einarssön voru í miklum ham og
skoruðu grimmt, hvorki meira né
minna en 10 mörk af þeim 13 sem
Víkingar skoruðu i síðari hálf-
leiknum.
Víkingar breyttu stöðunni fljótt
í 15—10, en oftast var þriggja
marka munur á liðunum en aldrei
minni.
í lokin var staðan oröin 23—18,
en síðustu 3 mín. skoruðu ÍR-ingar
2 mörk á móti einu hjá Víkingum
og 4 mörk skildu í leikslok, 24—20.
Liðin
Allir leikipenn í liði Víkings
virðast í nokkuð góðri æfingu, það
er að segja þeir sem fá að spreyta
sig á vellinum, en að þessu sinni
voru það bara átta. Þrír fóru
ekkert inn á og hlýtur það að bitna
á Víkingi í erfiðari leikjum ef ekki
er hægt að treysta á skiptimenn-
ina á bekknum. Bestur að þessu
sinni hjá Víkingum var Viggó
Sigurðsson sem var mjög ógnandi í
leiknum og skoraði falleg mörk
með þrumuskotum. Olafur Einars-
son lék nokkuð vel og er slæmt til
þess að vita að þessi stórskytta
kemst ekki með landsliðinu til
Spánar. Páll Björgvinsson stendur
ávallt fyrir sínu. Mjög vel leikandi
í sókninni og vel á verði í varnar-
leiknum. Páll er líka einn af okkar
fáu handknattleiksmönnum, sem
hafa glöggt auga fyrir gegnum-
brotum, og í þessum leik skoraði
hann ein þrjú mörk eftir að hafa
komið leikmönnum ÍR algerlega úr
jafnvægi og stórt gat hafði mynd-
ast í varnarvegg þeirra, þar
smeygði Páll sér í gegn og skoraði
af öryggi.
Lið IR-inga skortir meiri bar-
áttuvilja og kraft. I þessum leik
léku þeir varnarleikinn t.d. ekki af
nægilegri grimmd og sjálfsagt
hefur það haft sitt að segja að Jens
náði sér ekki á strik í leiknum og
missti svo til alla bolta inn.
Ungu mennirnir í liðinu, Hafliði
Halldórsson og Guðmundur
Þórðarson, léku báðir stórvel,
sérstaklega þó Hafliði. Guðmund-
ur gerði sig sekan um nokkuð
margar sendingarvillur og skortir
meiri yfirvegun í leik sinn en það
kemur með reynslunni.
Eldri jaxlarnir í liði ÍR voru
þungir og létu ekki mikið til sín
taka í leiknum.
í stuttu máli: Laugardalshöll 10.
febr. Islandsmótið 1. deild.
Víkingur — ÍR 24:20 (11:8).
Mörk Víkings: Ólafur Einarsson
8 (4v), Viggó Sigurðsson 7 (lv),
Páll Björgvinsson 4, Ólafur Jóns-
son 2, Steinar Birgisson 1, Erlend-
ur Hermannsson 1, Árni Indriða-
son 1.
Mörk ÍR: Hafliði Halldórsson 5,
Guðmundur Þórðarson 5, Sigurður
Svavarsson 5 (3v), Brynjólfur
Markússon 1, Guðjón Marteinsson
2, Bjarni Bessason 2.
Misheppnuð vítaköst: Páll
Björgvinsson skaut framhjá á 1.
mín., Jens Einarsson varði víta-
kast frá Ólafi Einarssyni á 22.
Brottvísun af leikvelli: Viggó
Sigurðsson, Páll Björgvinsson,
Árni Indriðason, allir úr Víkingi í
2 mín. hver.
Hafliði Halldórsson ÍR í 2x2
mín., Bjarni Hákonarsson ÍR í 2
mín., Ársæll Hafsteinsson ÍR í 2
- þr.
isiandsmótlð 1. delld
Viggó Sigurðssoti, Víkingi,
í mjög góðri æfingu um
þessar mundir. Viggó skoraði
sjö mörk á móti ÍR.
er
0 Jón Pétur Jónsson, Val, vex
með hverjum leik, bæði í sókn
og vörn.
0 Stefán Balldórsson, HK,
gerði vörn Fram gramt í geði
um helgina og skoraði 11 mörk
í leik Fram og HK.
Bjarni Guðmundsson, Val er hér kominn í gott færi á lfnunni og skorar. Svo sem sjá má, hefur litlu mátt muna að hann biti af sér tunguna af einbeit
ingu. Þetta var ekki í eina skiptið sem þessi snjalli línumaður tætti sig ígegn um afspyrnulélega vörn FH-inga. Ljósmynd RAX.
ÓH Ben kom inn á
fll að verja vítin
VALSMENN léku sama leikinn
aftur, rassskelltu lélega FH-inga
í Ilafnarfirði á sunnudagsvköld-
ið. Að vísu skildu aðeins 4 mörk í
lokin, en engin leið er að vita
hvernig farið hefði, ef Valsmenn
hefðu ekki átt slæman kafla í
byrjun síðari hálfleiks, þegar
liðið skoraði ekki mark í 12
mínútur. Verkaskipting Vals-
markvarðanna var sérkennileg í
leiknum, Ólafur byrjaði en varði
lítið og kom því Brynjar inn á í
hans stað. En Ólafur kom inn á i'
hvert skipti sem FH-ingar fengu
víti, eða alls átta sinum, Og hann
varði 5 sinnum! Það var alveg
sama hvert skotið var, Ólafur rak
útlimina í knöttinn. Það dugði
FH-ingum meira að segja ekki að
þruma miskunnarlaust i andlitið
á ólafi, en það gerðu þeir tvíveg-
is. Lokatölurnar urðu 20—16, en
staðan í hálfleik var 13—8 fyrir
Val.
FH-ingar voru frískir í byrjun
leiks og voru ávallt fyrri til að
skora, allar götur upp í 4—4, en þá
komust Valsmenn fyrst yfir með
marki Bjarna Guðmundssonar.
FH-ingar sneru blaðinu snarlega
við og þegar 18 mínútur voru
liðnar af hálfleiknum, var staðan
7—6 fyrir FH. En þar skildu leiðir
Einkunnagjöfin
FH: Magnús Ólafsson 2, Sverrir Kristinsson 3, Geir Hallsteinsson 1, Viðar
Símonarson 1, Sæmundur Stefánsson 2, Guðmundur Árni Stefánsson 3,
Guðmundur Magnússon 2, Valgarð Valgarðsson 1, Kristján Arason 1,
Janus Guðlaugsson 1, Hans Guðmundsson 1.
VALUR: Ólafur Benediktsson 3, Brynjar Kvaran 3, Steindór Gunnarsson
3, Bjarni Guðmundsson 3, Stefán Gunnarsson 2, Þorbjörn Guðmundsson
2, Þorbjörn Jensson 2, Jón Karlsson 2, Jón Pétur 3, Gísli Arnar 1,
Gunnsteinn Skúlason 1.
FRAM: Gissur Ágústsson 2, Birgir Jóhannsson 2, Björn Eiríksson 1,
Theodór Guðfinnsson 3, Gústaf Björnsson 3, Sigurbergur Sigsteinsson 2,
Pétur Jóhannsson 2, Atli Hilmarsson 3, Erlendur Davíðsson 2, Jens
Jensson 1.
HK: Einar Þorvarðarson 2, Garðar Halldórsson 2, Erling Sigurðsson 1,
Gissur Kristinsson 1, Kristinn Ólafsson 2, Ragnar Ólafsson 3, Karl
Jóhannsson 2, Stefán Halldórsson 4, Hilmar Sigurgíslason 3, Friðjón
Jónsson 1, Bergsveinn Þórarinsson 2, Jón Einarsson 2.
VÍKINGUR: Kristján Sigmundsson 1, Steinar Birgisson 2, Ólafur Jónsson
2, Páll Björgvinsson 3, Erlendur Hermannsson 2, Árni Indriðason 2,
Viggó Sigurðsson 4, Ólafur Einarsson 3.
ÍR: Jens Einarsson 1, Bjarni Hákonarson 1, Guöjón Marteinsson 2,
Sigurður Svavarsson 2, Guðmundur Þórðarson 3, Bjarni Bessason 2,
Ársæll Hafsteinsson 2, Brynjólfur Markússon 2, Hafliði Halldórsson 3,
Pétur Valdimarsson 1.
svo að um munaði. Næstu 6 mörk-
in skoruðu Valsmenn, mörg úr
hraðaupphlaupum og flest perlu-
mörk, staðan var nú orðin 12—7 og
úrslitin nánast ráðin.
Framan af síðari hálfleik sýndu
FH-ingar mikla baráttu og festu í
vörninni, þannig að ekki eitt
einasta Valsskot rataði í netið
fyrstu 12 mínútur hálfleiksins.
Sverrir Kristinsson varði eins og
berserkur í markinu og hefði
sónarleikur FH batnað að sama
skapi, hefði sannarlega verið
möguleiki að snúa taflinu við. En
sóknarleikurinn var í rennu-
steininum og FH-ingar skoruðu
aðeins 3 mörk á þessum 12 mínút-
um, þar af 2 úr vítaköstum. Staðan
breyttist úr 13—8 í 13—11, en þá
skoraði Stefán Gunnarsson frekar
ódýrt mark og þar með voru
Valsmenn komnir á skrið á ný.
Lokakaflann, skiptust liðin á um
að skora, Valsmenn sýndu kæru-
leysi, enda erfitt fyrir þá að tapa
öllu niður eins og staðan var orðin.
FH-liðið var ótrúlega slakt í
þessum leik, alveg eins og í síðustu
viðureign liðanna, gæða munurinn
var ótvíræður því að Valsmenn
hafa oft leikið mun betur en þetta
í vetur. Máttarstólparnir Geir,
Viðar og Janus áttu allir slæman
dag, Viðari gekk meira að segja
erfiðlega að grípa knöttinn. Þegar
allir þessir kappar leika illa, er
ekki von á góðu hjá FH. Guðmund-
ur Árni neitaði að gefast upp og
skoraði nokkur mörk upp á eigin
spýtur, Guðmundur Magnússon
barðist einnig vel. Magnús Ólafs-
son stóð í markinu framan af og
varði vel í fyrstu, 7 skot, en síðan
fór allt að leka inn og skipti
Magnús þá við Sverri. Sverrir
varði síðan vel út leikinn, alls 9
skot, en hann var ekki öfundsverð-
ur af hlutverki sínu, því að ef frá
eru taldar fyrstu 10—15 mínútur
síðari hálfleiks, var FH-vörnin,
eins og botnlaus hít.
Jón Pétur Jónsson, Bjarni
Guðmundsson og Steindór
Guðmundsson voru þeir Valsarar
sem skemmtilegast var að sjá til.
Jón Pétur skoraði með upp-
stökkum og þrumuskotum, en
mörk hinna tveggja af línu, úr
hornum og húr hraðaupphlaupum,
voru mörg stórglæsileg. Þegar
hefur verið greint frá sérstæðum
þætti Ólafs Benediktssonar í
markinu, en milli þess að hann
hljóp inn á völlinn til þess að verja
vítaköst, stóð Brynjar Kvaran í
markinu og varði mjög vel, 14 skot.
Leikinn dæmdu þeir Gunnar
Kjartansson og Ólafur Stein-
grímsson og dæmdu þeir erfiðan
leik yfir höfuð þokkalega.
í stuttu máli:
Laugardalshöll, 1. deild:
FH-Valur: 16-20 (8-13)
Mörk FH: Guðmundur Árni
Stefánsson 6, Geir Hallsteinsson 4
(3 víti), Guðmundur Magnússon 2
(1 víti), Sæmundur Stefánsson 2,
Valgarður Valgarðsson og
Kristján Arason eitt hvor.
Mörk Vals: Jón Pétur Jónsson 8
(3 víti), Steindór Gunnarsson og
Bjarni Guðmundsson 4 mörk hvor,
Þorbjörn Guðmundsson 2, Jón
Kalrsson og Stefán Gunnarsson
eitt mark hvor.
Vannýtt víti: Ólafur Benedkits-
son varði tvö víti frá Geir, eitt frá
Viðari, annað frá Janusi og loks
eitt frá Guðmundi Árna. Magnús
Ólafsson varði vítakast Steindórs
og Sverrir Kristinsson varði frá
Jóni Pétri.
Brottrekstrar: Geir Hallsteins-
son og Viðar Símonarson (FH) 2
mínútur hvor og Jón Karlsson
(Val) í 2 mínútur.
- gg-
HeiUadísirnar voru \
Fram hliðhollar
FRAMARAR sigruðu HK naum-
lega með einu marki, 22—21; í
hörkuspennandi leik liðanna í 1.
deildinni sem fram fór í Laugar-
dalshöllinni á sunnudagskvöld.
Var þetta fjórði leikurinn í röð
sem Framarar merja sigur með
einu marki. Það var meira fyrir
klaufaskap HK-manna en getu
Framara sem sigurinn hafnaði
þeirra megin. Lokamínútur leiks-
ins voru æsispennandi og fjöl-
margir stuðningsmenn HK létu
óspart í sér heyra, en HK á einna
öflugasta stuðningshópinn af 1.
deildar liðunum.
Spennandi lokamínútur
Heilladísirnar voru Frömurum
hliðhollar á síðustu sekúndu leiks-
ins er hörkuskot frá Karli
Jóhannssyni small í stönginni og
framhjá. Þegar fimm mínútur
voru eftir af leiktímanum hafði
HK eitt mark yfir, 20—19, en
mistök á mistök ofan í varnar-
leiknum gerðu það að verkum að
Fram náðu að jafna og komast
yfir, 21—20, með marki sem
Gústaf skoraði úr vítakasti. Ragn-
ar Ólafsson jafnaði fyrir HK
21—21 úr vítakasti, og rúm mínúta
var eftir er Fram fékk síðustu
sókn sína. Og illa var brotið á
einum af sóknarmanni Fram og
dæmt víti sem Gústaf skoraði úr
og reyndist það vera sigurmark
Fram í leiknum. Því eins og áður
sagði fór skot Karls í stöng.
Leikur liðanna var allgóður og
mikið fjör var í honum í síðari
hálfleik er HK hafði náð að jafna
og unnið upp þriggja marka for-
skot Fram. HK-liðið er mikið
stemmningslið og þegar það fer af
stað getur allt gerst. Að þessu
sinni var heppnin ekki með því.
Liðin
Lið Fram er gott sambland af
yngri og eldri leikmönnum og
mikil seigla er í leikmönnum, þeir
gefast aldrei upp þó á móti blási og
uppskera samkvæmt því. Ungu
mennirnir Atli Hilmarsson,
Gústaf Björnsson og Theódór Guð-
finnsson voru bestu menn liðsins í
þessum leik. Þá eru Sigurbergur
og Pétur sterkir í vörninni og
binda hana vel saman.
Lið HK sýndi góða kafla í
þessum leik og átti svo sannarlega
annað stigið skilið. Það sem var
einna helst að í leiknum var slakur
varnarleikur. Var mikið um að
menn lékju ekki stöður sínar
nægilega vel, sérstaklega vildu
bakverðirnir hlaupa úr stöðum
sínum og þá opnaðist línan illa.
Besti maður HK í leiknum var
Stefán Halldórsson, átti hann
stórleik og skoraði gullfalleg mörk
hvað eftir annað og réð vörn Fram
ekkert við hann. HK var styrkur í
að fá Ragnar Ólafsson og Hilmar
Sigurgíslason aftur í liðið eftir
meiðsli þau sem þeir hafa átt við
að stríða, en greinilega vantar þá
meiri styrk og æfingu til að ná
sínu gamla formi aftur, en það á
að koma fljótt. Garðar Halldórs-
son varði um tíma í síðari hálfleik
mjög vel þegar mikið lá við og átti
sinn þátt í því að HK náði að
komast yfir í leiknum.
I stuttu máli: Islandsmótið 1.
deild Laugardalshöll 11. febrúar.
Fram - HK: 22-21 (12-9).
Mörk Fram: Atli Hilmarsson 7,
Tehódór Guðfinnsson 5, Gústaf
Björnsson 4 (2 v), Pétur Jóhanns-
son 3, Sigurbergur Sigsteinsson 2,
Birgir Jóhannsson 1.
Mörk HK: Stefán Halldórsson 11
(3 v), Ragnar Ólafsson 3 (v),
Hilmar Sigurgíslason 2, Jón
Einarsson 2, Karl Jóhannsson 1,
Kristinn Ólafsson 1, Bergsteinn
Þórarinsson 1.
Misheppnuð vítaköst: Einar Þor-
varðarson varði vítakast frá
Gústaf Björnssyni á 29. mín.
Brottrekstur af leikvelli: Erlendur
Davíðsson Fram í 2 mín. og Pétur
Jóhannsson Fram í 2 mín. — þr.
STAÐAN
1. DEILD
STAÐAN í 1. deild karla eftir
leiki helgarinnar er eftirfar-
andi, en taflan er sett upp eins
og staðan er nú, þ.e.a.s. að
Vaismenn hafa 2 stig úr viður-
eigninni við IIK,J þó að síðar-
nefnda félagið hafi kært úrslit-
in.
ÍR—Víkingur 20—24
FH-Valur 16-20
Fram-HK 22-21
Valur
Vikingur
FH
Fram
Haukar
Fylkir
ÍR
HK
Stigahæstir í einkunnagjöf
Morgunbladsins
10
10
9
9
10
9 8 1 0157:127 17
9 7 1 1 213:182 15
194:190 11
194:205 11
185:178 10
164:175 5
179:197 5
168:194 4
STIGAHÆSTU leikmenn í
einkunnagjöf Mbl. eru þessir:
Atli Hilmarsson Fram 29
Jens Einarsson ÍR 27
Geir Hallsteinsson FH 27
Magnús Ólafsson FH 25
Árni Indriðason Vík. 25
Sigurbergur Sigsteinss. Fram 25
Páll Björgvinsson Vík. 25
ólafur Benediktss. Val 25
Guðjón Marteinsson ÍR 25
Hörður Harðarson Hauk. 25
Andrés Kristjánss. Hauk. 24
Birgir Jóhannesson Fram 24
Guðmundur Á. Stefánss. FH 23
Jón Gunnarsson Fylki 23
Erlendur Hermannss. Vík. 23
Sæmundur Stefánss. FH 23
Gústaf Björnsson Fram 23
Bjarni Guðmundss. Val 23
Ólafur Jónsson Vík. 22
Brynjólfur Markúss. ÍR 22
Jón Pétur Jónsson Val 22
Viggó Sigurðss. Vík. 22
Stefán Halldórss. HK 21
Einar Þorvarðarson HK 20
Kristinn Ólafsson HK 20
Guðm. Magnússon FH 20
Þórir Gíslason Hauk. 20
Markhæstu
leikmenn
1. deildar
Markhæstu leikmenn eru þessir:
Geir Hallsteinsson FH 62
Atli Hilmarsson Fram 56
Gústaf Björnsson Fram 51
Hörður Harðarson Haukum 48
Stefán Halldórsson HK 46
Guðjón Marteinsson ÍR 43
Viggó Sigurðsson Vík. 39
Jón Pétur Jónsson Val 38
Gunnar Baldursson Fylki 37
Páll Björgvinsson Vík. 36
Brynjólfur Markússon ÍR 35
Bjarni Guðmundsson Val 31
Hilmar Sigurgíslason HK 30
ólafur Einarsson Vík. 30
Ólafur Jónsson Vík. 28
Guðmundur Á. Stefánss. FH 28
Björn Blöndal HK 27
Þorbjörn Guðmundsson Val 27
Einar Einarsson Fylki 26
Sigurður Svavarsson ÍR 26
Erlendur Hermannsson Vík. 25
Þórir Gíslason Haukum 24
Jón H. Karlsson Val 24
Árni Indriðason Vík. 23
Andrés Kristjánss. Haukum 21
Birgir Jóhannesson Fram 21
Guðmundur Magnússon FH 21
Ragnar Ólafsson HK 21
Stefán Jónsson Haukum 20
)
1
I
0 Geir Hallsteinsson FH er markhæstur leikmanna í 1. deild.
Sennilega hefur enginn leikmaður fyrr eða síðar skorað jafn mörg
mörk og Geir ef öll hans mörk í 1. deildinni fyrr og nú væru lögð
saman. Þá hefur þessi ókrýndi konungur handknattleiksins skorað ^
langflest mörk allra fyrir íslenzka landsliðið eða alls 534 mörk f 118 J
landsleikjum. m