Morgunblaðið - 13.02.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979
31
máli — Þingfréttir í stuttu
Ellerts B. Schram um landshluta-
útvarp, nauðsyn breytinga á þjón-
ustu útvarpsins, s.s. útvarp í
steríó, tvær flutningsrásir (dag-
skrár) og næturútvarp — en allt
væru þetta hugmyndir á umræðu-
stigi.
Arni Gunnarsson (A) taldi
framangreind frumvörp vera til
góðs vegna þeirrar umræðu um
ríkisútvarpið, sem þau væru
kveikjan að, og þegar hefði borið
nokkurn árangur. Hann sagðist þó
andvígur frjálsum útvarpsrekstri.
Taldi nær að hlúa betur að ríkisút-
varpinu, sem væri í fjárhagssvelti.
Minnti hann á að útvarpið væri
almannavarnakerfi okkar, möstrin
á Vatnsendahæð væru komin að
falli og gætu hrunið í næsta
óveðri, tækjakostnaður stofnun-
arinnar væri lélegur og úr sér
genginn og hún ætti ekki eigið
húsnæði.
Eiður Guðnason (A) tók í sama
streng og Árni. Frumvarpið um
landshlutaútvörp, undir handar-
jaðri ríkisútvarpsins, væri góðra
gjalda vert, en frjáls útvarpsrekt-
ur væri hæpinn. Hann fæli aðeins
í sér frjálsræði og lýðræði pening-
anna. Slíkur útvarpsrekstur væri
og miðaður við þéttbýli og væri
ekki ætlað að þjóna strjálli byggð.
Misskilningur væri að slíkar
stöðvar kostuðu lítið. Það eitt að
útvarpa hljómlist hefði kostað
ríkisútvarpið um 5 m.kr. á mánuði
í gjald til STEFs á liðnu ári. Frjáls
útvarpsrekstur myndi þrengja
kost ríkisútvarps um auglýsinga-
tekjur og skerða þjónustu þess
þann veg.
Guðmundur H. Garðarsson (S)
taldi sjónarmið Árna og Eiðs bera
þess vott, að þeir væru gamlir
starfsmenn ríkisútvarps, en hvorki
framsýni né frjálslyndi þeirra —
eða þess, að þeir væru sérstakir
talsmenn sjónarmiða hinna yngri í
þjóðfélaginu.
I efri deild var framhaldið
fyrstu umræðu um stjórnarfrum-
varp um hækkun verðjöfnunar-
gjalds á raforku (úr 13% í 19%).
Oddur Ólafsson taldi réttara að
jafna þetta verð með öðrum hætti
en sérstökum skatti á raforkuverð,
annað tveggja framlagi úr sam-
eiginlegum sjóði landsmanna eða
að tekjur af raforku til stóriðju
renni til þess verkefnis.
Eyjólfur K. Jónsson (S) var
andvígur hækkuninni en minnti á,
að fleiri orkuver ættu við erfið-
leika að stríða en RARIK og
Orkubú Vestfjarða. Harmaði hann
að iðnaðarráðherra, Hjörleifur
Guttormsson, skyldi ekki geta
tekið undir hógværa ósk
Siglfirðinga, þess efnis, að verð-
jöfnunargjaldið gengi til fleiri
aðila, sem eiga við sambærileg
rekstrarvandræði að etja, en
Skeiðfosssvæðið væri einangrað og
ekki tengt RARIK-svæðinu, þótt
það létti hins vegar undir með
RARIK, bæði með raforku til
Ólafsfjarðar og Fljóta.
Ragnar Arnalds, samgönguráð-
herra, mælti fyrir frv. um land-
flutningasjóð, sem verði sjálfstæð
stofnun í eigu ríkissjóðs og stuðli
með lánveitingum að bættum
vöru- og fólksflutningum með
stórum bifreiðum. Sjóðurinn fái
2% gjald af starfsemi sérleyfis-
hafa, hópferðaleyfishafa, eigenda
leigubifreiða til vöruflutninga og
framlag úr ríkissjóði eftir ákvæð-
um fjárlaga hverju sinni.
Upphaf þessa máls er þings-
ályktun sem samþykkt var í marz
1976 og stjórnarfrumvarp, sem
flutt var þá um vorið en varð ekki
útrætt. í janúar 1977 er enn skipuð
nefnd til að semja frumvarp að
slíkum stofnlánasjóði og er frum-
varp þetta að meginefni byggt á
meirihlutaáliti þeirrar nefndar.
Húsaleigusamningar
Magnús H. Magnússon, félags-
málaráðherra, mælti fyrir stjórn-
arfrumvarpi um húsaleigusamn-
inga, sem flutt er í framhaldi af
ákvæðum í stjórnarsamningi nú-
verandi ríkisstjórnarflokka.
Framsögu hans verða gerð nánari
skil á þingsíðu blaðsins síðar.
Atburðarásin hefur
verið hröð í íran
Teheran, 12. febrúar. AP
MOHAMMAD Reza Pahlavi franskeisari lýsti því yfir á fundi með fréttamönnum í íran á nýársdag.
að hann færi í frí fegins hendi ef ástandið í landinu leyfði. Þá var um eitt ár liðið frá því að óíga gegn
keisaranum byrjaði í landinu Og frá því að keisarinn lýsti ofangreindu hafa mál þróast hratt í lran.
Hér verður atburðarásinni í landinu síðustu 42 dagana lýst. en á þeim tíma var 37 ára veldi
keisaradæmisins lagt í rúst.
1. janúar: Eftir að keisarinn
lýsti löngun sinni til að fara í frí
lýsir Shahpour Bakhtiar, en
keisarinn hafði útnefnt hann í
embætti forsætisráðherra, að
hann taki við völdum gegn því
skilyrði að keisarinn fari um
ótilgreindan tíma til annars
ríkis.
9. janúar: Keisarinn felur
Pahlavi-stofnuninni í Iran í
hendur yfirráð yfir persónuleg-
um eignum sínum í Iran en þær
eru metnar á um 200 milljónir
dollara eða um 64 milljarða
íslenzkra króna.
13. janúar: Keisarinn útnefn-
ir ríkisráð til að fara með
skyldur keisaradæmisins meðan
hann dvelst erlendis. Khomeini
tilkynnir í París að hann hafi
myndað byltingarráð til að und-
irbúa stofnun islamsks
lýðveldis. Áreiðanlegar heimild-
ir herma að keisarinn hafi varað
herforingja vð því að reyna
byltingu í landinu.
16. janúar: Keisarinn fer frá
íran með leynd. í tilkynningu til
þjóðarinnar hvetur hann lands-
lýð til að vernda keisaradæmið
meðan á dvöl hans erlendis
stendur. Þegar brottför keisar-
ans spyrst út brutust út fagn-
aðarlæti í Teheran.
18. janúar: Ramsey Clark
fyrrverandi dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna segir að lítil von
sé um árangur hjá stjórn
Bakhtiars og að Bandaríkja-
menn ættu að setja sig í
samband við Khomeini. Ölæti
sem beinast gegn keisaranum og
stjórn Bakhtiars halda áfram í
íran. Khomeini neitar frá
höfuðstöðvum sínum í París að
hitta sendimann ríkisráðsins
sem keisarinn myndaði áður en
hann fór úr landinu.
19. janúar: Yfir ein milljón
manna fer í göngum um
Teheran og krefst þess að stjórn
Bakhtiars fari frá völdum, en
Khomeini verði falið að stofna
bráðabirgðastjórn í landinu hið
snarasta.
20. janúar: Khomeini tilkynn-
ir frá París að hann haldi til
írans 26. janúar og bindi þar
með enda á 14 ára útlegð sína í
írak og París.
21. janúar: Bakhtiar heldur
fund með landvarnaráðinu til að
draga upp áætlanir um viðbún-
að vegna komu Khomeinis til
írans. Hann hvetur landsmenn
til að binda endi á óeirðir og
mótmæli gegn stjórnarfarinu.
23. janúar: Yfirmenn hersins
segja að herinn muni samein-
aður standa vörð um keisara-
dæmið, og láta blóð sitt renna ef
þörf krefur.
24. janúar: Herinn lokar
Mehrabad flugvellinum tveimur
dögum áður en von er á
Khomeini og Bakhtiar tilkynnir
að hann hafi sent mikilhæfan
fulltrúa sinn til Parísar til að
reyna að ná sáttum við
Khomeini.
25. janúar: Khomeini virðir
að vettugi ósk Bakhtiars um að
trúarleiðtoginn fresti heimkomu
sinni um þrjár vikur.
26. janúar: Hermenn kljást
við þúsundir andstæðinga
stjórnarinnar á götum úti og eru
það afdrifaríkustu götubar-
dagar frá upphafi byltingar-
innar.
27. janúar: Hundruð þúsunda
stuðningsmanna Khomeinis
fara fylktu liði um Teheran og
aðrar borgir og krefjast heim-
komu trúarleiðtogans. Bakhtiar
tilkynnir að hann hyggist fara
til Parísar til fundar við
Khomeini.
28. janúar: Bakhtiar lokar
öllum flugvöllum í Iran til að
fresta heimkomu Khomeinis.
Khomeini segist ekki geta orðið
við ósk Bakhtiars um fund
þeirra tveggja í París, nema
Bakhtiar segi af sér. Nýjar
óeirðir brjótast út í Iran og
hermenn skjóta á ólátabelgi við
háskólann í Teheran.
29. janúar: Bakhtiar segist
hafa látið af áætlunum um að
hitta Khomeini vegna óaðgengi-
legra skilyrða trúarleiðtogans.
30. janúar: Yfirvöld tilkyhna
að flugvöllurinn í Teheran sé
opinn á ný og að Khomeini sé
frjálst að koma til landsins, en
von er á honum eftir tvo daga.
Forsvarsmenn Air France
segjast ekki fljúga með
Khomeini og fylgdarlið hans
fyrr en flugfélagið sé ánægt með
ýmis öryggisatriði. Sendiráð
Bandaríkjanna tilkynnir öllum
starfsmönnum bandarískra
stjórnvalda að hverfa brott úr
Iran.
31. janúar: Herinn sýnir veldi
sitt á götum Teheran daginn
áður en Khomeini kemur, en
hann hélt seint um kvöld frá
París.
1. febrúar: Milljónir manna
fagna komu Khomeinis til írans
og trúarleiðtoginn lýsir því yfir
að hann hyggist kljást við stjórn
Bakhtiars.
2. febrúar: Khomeini neitar
enn að hitta Bakhtiar og krefst
afsagnar forsætisráðherrans.
3. febrúar: Khomeini heitir
„trúarstríði" við Bakhtiar neiti
sá síðarnefdni að segja af sér og
greiða þannig götu fyrir stofnun
islamsks lýðveldis. Einnig segist
Khomeini ætla að stofna bráða-
birgðastjórn bráðlega.
4. febrúar: Bakhtiar segist
ekki ætla að spyrna fótum við
stofnun „skugga“stjórnar
Khomeinis.
5. febrúar: Khomeini tilnefnir
Mehdi Bazargan forsætisráð-
herra bráðabirgðastjórnar sinn-
ar.
6. febrúar: Bakhtiar kveðst
ætla að halda áfram völdum
þrátt fyrir öflug mótmæli gegn
sér. Aðstoðarmenn Khomeinis
segja að herinn muni héðan í frá
tæpast efna til byltingar til að
bjarga keisaradæminu.
7. febrúar: Stuðningsmenn
Khomeinis ná yfirráðum í ýms-
um borgum landsins og opinber-
ir starfsmenn í ráðuneytum
ganga í lið trúarleiðtogans.
8. febrúar: Yfir ein milljón
manns lýsir stuðningi við
Bazargan með fylkingum um
götur Teheran og Bakhtiar seg-
ist aldrei ætla að gefast upp
fyrir Khomeini. í fyrsta sinn
verður vart hermanna í fylking-
um stuðningsmanna Khomeinis.
9. febrúar: í brýnu slær milli
hermanna í flughernum og líf-
varðar keisarans á Farahabad
æfingavelli flughersins í
Austur-íran.
10. febrúar: Borgarastyrjöld á
algleymingi í Teheran er upp-
reisnarmenn Khomeinis berjast
um yfirráð í Teheran við her-
menn úr lífverði keisarans. Yfir
1000 eru sagðir hafa fallið eða
særst. Uppreisnarmenn brjótast
inn í nokkur fangelsi og frelsa
pólitíska fanga.
RICHMAC
RICHMAC búðarkassinn er sérstaklega gerður
fyrir mikið álag, þar sem atgreiðsla þarf að
ganga fljótt en örugglega fyrir sig.
Meðal þeirra, sem nú þegar eru byrjaðir að
nota RICHMAC elektróníska búðarkassa, eru:
BREIÐHOLTSKJÖR, KRON,NÓATÚN,
STRAUMNES, KJÖRBÚÐ BJARNA, AK.
Sölumenn okkar eru reiðubúnir að gefa allar
nánari upplýsingar um RICHMAC búðar-
kassana.
SKRIFSTQFUVÉLAR H.F.
V+ = " Simi 20560