Morgunblaðið - 13.02.1979, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRUAR 1979
47
Verkföllrýra
fylgi brezku
stjómarinnar
London, 12. lebr. — Reuter
EKKERT varð úr fyrirhuguðu
verkfalli, sem átti að hefjast í dag
hjá brezku Leyland-bílasmiðjun-
um. Verkalýðsforustan hafði hvatt
til verkfallsins, en starfsmenn
smiðjanna um 100 þúsund talsins,
felldu verkfallsheimild með mikl-
um meirihluta atkvæða.
Verkföll og vinnustöðvanir eru
Andstaðan
í meirihluta
Stokkhólmi, 12. íeb. — AP
Á SUNNUDAG var birt í Stokk-
hólmi niðurstaða síðustu skoðana-
könnunar á fylgi stjórnmálaflokk-
anna í Svíþjóð. Kemur þar fram að
stjórnarandstaðan — jafnaðar-
menn og kommúnistar — njóta
stuðnings meirihluta kjósenda.
Könnun sem þessi er gerð
mánaðarlega á vegum dagblaðsins
Dagens Nyheter og sérstakrar
rannsóknastofnunar, sem kölluð er
SIFE. Samkvæmt nýjustu niður-
stöðum njóta jafnaðarmenn fylgis
46,5% kjósenda, sem er 0,5% lægra
en í janúar. Kommúnistar njóta
stuðnings 4%, og hefur fylgi þeirra
minnkað um 1%.
Borgaraflokkarnir þrír — Frjáls-
lyndi flokkurinn, Miðflokkurinn og
íhaldsflokkurinn — njóta hver fyrir
sig stuðnings 16% kjósenda, eða
samtals 48%. Hefur íhaldsflokkur-
inn því unnið 2%, frjálslyndir 1%, en
Miðflokkurinn tapað 1% frá því í
könnuninni í janúar.
Þingkosningar verða væntanlega í
Svíþjóð 16. september n.k.
hins vegar útbreidd hjá ýmsum
opinberum starfsmönnum. Er áætl-
að að um ein mikljón skólabarna
geti ekki sótt skólatíma vegna
verkfalla hjá þeim er annast
hreinsun og eftirlit með skólunum.
Sömu erfiðleikar eru víða í sjúkra-
húsum, sem ekki taka við sjúkling-
um nema í neyðartilfellum.
Alls nær verkfall opinberra
starfsmanna til 1V& milljónar
manna, og þar af eru um 700
þúsund sorphreinsunarmenn.
Krefjast þeir þess að lágmarkslaun
verði 60 sterlingspund á viku (um
kr. 39.000.-) en það er yfir 20%
hækkun frá því sem nú er.
Verkfallsaðgerðirnar í Bretlandi
hafa nú staðið í rúmar þrjár vikur,
og ekki orðið til þess að auka
vinsældir ríkisstjórnar Verka-
mannaflokksins. Niðurstöður nýj-
ustu skoðanakannana voru birtar í
London í dag, og kemur þar fram að
stjórnarandstaða íhaldsflokksins
hefur 18% meira fylgi en Verka-
mannaflokkurinn, og í fyrsta skipti
er nú Margaret Tatcher leiðtogi
íhaldsflokksins vinsælli en James
Callaghan forsætisráðh rra. Nýtur
Tatcher stuðnings 44%, en Callagh-
an 33%. Þá segjast 76% aðspurðra
mjög óánægðir með stjórn Callagh-
ans.
Samkvæmt skoðanakönnuninni
kysu 53% íhaldsflokkinn, ef efnt
yrði til kosninga nú, 35% kysu
Verkamannaflokkinn, og 8%
Frjálslynda flokkinn. Fyrir tveim-
ur mánuðum var Verkamanna-
flokkurinn 3% hærri en Ihalds-
flokkurinn í sams konar skoðana-
könnun.
Kardeli látinn
Var
hægri
hönd
Títós
Veður
víða um heim
Amsterdam 1 snjókoma
Apena 21 bjart
Berlín +2 skýjað
BrUssel 5 rigning
Chicago *7 snjókoma
Frankfurt 3 rigning
Genf +11 bjart
Helsinki Salskýjaö
Jerúsalem 15 bjart
Jóhannesarborg 27 skýjaó
Lissabon 14 rigning
London 3 snjókoma
Los Angeles 24 skýjað
Madrid 14 skýjaö
Miami 20 skýjað
Moskva +8 bjart
Nýja Delhi 25 sól
New York +8 skýjað
Ósló +13 skýjað
Parfs 11 skýjað
Rómaborg 16 skýjað
San Francisco 16 rigning
Stokkhólmur +2 skýjað
Sydney 29 mistur
Tel Aviv 19 bjart
Tókfó 15 bjart
Vancouver +13 alskýjað
Vinarborg 0 skýjað
Belgrad, 12. febr. — AP, Reuter.
EDVARD Kardelj, sem talinn var
hægri hönd Tftós forseta og nánasti
samstarfsmaður hans, lézt úr
krabbameini á laugardag. og
verður útför hans gerð frá
Ljubljana, höfuðborg Slóveníu-
héraðs, á morgun, þriðjudag.
Tító forseti var staddur í Sýrlandi
á ferð sinni um Mið-Austurlönd er
honum barst fréttin um lát þessa
vinar síns og ákvað forsetinn þá að
halda strax heimleiðis.
Á sunnudag og mánudag stóð kista
Kardeljs á viðhafnarbörum í þing-
salnum í Ljubljana, sveipuð þjóðfána
Júgóslavíu. Skiptust ýmsir
framámenn kommúnistaflokksins á
um að standa heiðursvörð við kist-
una, en þúsundir borgarbúa stóðu í
löngum biðröðum í kulda og úrkomu
til að fá að votta hinum látna
virðingu.
Edvard Kardelj var lengi talinn
líklegastur eftirmaður Títós. Hann
varð 69 ára fyrir hálfum mánuði, en
Tító verður 87 ára í maí.
iftft
\ U'cn'áfiSbb-T^
Bandaríkj amenn
óttast óáran
vegna olíuskorts
og að við valdatöku Khomeinis í íran
verði skrúfað fyrir alla olíusölu til þeirra
Washington, New York, Kuwait,
12. febrúar. AP. Reuter.
JAMES Schlesinger orkumála-
ráðherra Bandarikjanna sagði
á fundi með orkumálanefnd
þingsins að allt stefndi nú í
óáran í Bandaríkjunum vegna
skorts á olíu eins og þegar
verst lét í olíukreppunní
1973 — 1974, að því er áreiðan-
legar heimildir í Washington
herma.
Ráðherrann sagði að vegna
stöðvunar á olíuframleiðslu
Irana væri heildarolíufram-
leiðslan í heiminum nú um 2
milljónum tunna minni en í
meðalári. Iranir framleiddu
ekki þær 5 milljónir tunna sem
þeir gerðu fyrir stöðvunina en
til að bæta tapið nokkuð upp
hefðu nokkur framleiðsluríki
aukið framleiðslu sína um 3
milljónir tunna á dag. Frétta-
skýrendur Reutersfrétta-
stofunnar hafa hins vegar hafn-
að þessari svörtu mynd sem
ráðherrann dregur upp og segja
að þrátt fyrir að nokkur hækkun
á olíu sé í aðsigi geti ástandið
alls ekki talist eins alvarlegt
eins og það var í kreppunni
1973-1974.
Harold Brown varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna sem
um þessar mundir er í heimsókn
í Saudi-Arabíu skoðaði í dag
stærsta olíuframleiðslusvæði
landsins og sagði við það tæki-
færi að Bandaríkjamenn treystu
nú í auknum mæli á
Saudi-Araba og hvatti þá jafn-
framt til þess að auka verulega
framleiðslu sína til þess að geta
selt Bandaríkjamönnum.
Saudi-Arabar segjast hins vegar
þegar framleiða mun meira en
eðlilegt geti talist eða um 10
milljónir tunna á dag. Eðlilega
framleiðslu telja þeir vera um
8,5 milljón tunna á dag.
Þá var haft eftir áreiðan-
legum heimildum í Washington
í dag, að Bandaríkjamenn væru
þegar farnir að eyða verulega af
þeim olíuforða sem nota átti
næsta vetur, þannig að
nauðsynlegt væri að þeir
tryggðu sér aukna olíu alveg á
næstu vikum. Þá vakti það
nokkra athygli í New York í dag
að öldungadeildarþingmaðurinn
Henry Jackson staðhæfði að við
valdatöku Khomeinis yrði
skrúfað fyrir alla olíusölu til
Bandaríkjanna og annarra
vestrænna ríkja í framtíðinni.
Deilumar harðna milli
Kínverja og Víetnama
Hong Kong, 12. febrúar. AP. Reuter
KÍNVERJAR hafa ásakað Víet-
nama um að hafa drepið meira en
sjötíu hermenn og óbreytta
borgara á landamærum ríkjanna
á síðustu þremur vikum að því er
fréttastofan Nýja Kína segir í dag.
Á móti hafa Víetnamar ásakað
Kínverja um að hafa drepið fjóra
hermenn sína í átökum í síðustu
viku og sært og handtekið nokkra
aðra. Ennfremur segja Víetnamar
að Kínverjar hafi gert síðustu
áras sína yfir landamærin í gær-
dag og fellt einn landamæravörð.
Þá afhentu Kínverjar sendiráði
Víetnama í Peking í dag harðorð
mótmæli vegna aðfara þeirra á
3 milljónir Kambódíu-
manna létust á 3 árum
Helsinki 11. febr. Reuter
FORYSTUMENN nýju stjórnar-
innar í Kambódíu hafa skýrt
finnskum blaðamanni svo frá, að
þrjár milljónir manna — eða
röskiega 40% íbúa — hafi látist á
þriggja ára valdatíma Pol Pots
og stjórnar hans. Þessar tölur ná
yfir alla þá sem dáið hafa í
fjöldamorðum, í fangelsi eða úr
sulti og sjúkdómum.
Það er Kaare Nordenstreng
prófessor, formaður Alþjóðasam-
bands blaðamanna, sem fékk við-
tal við Heng Samrin sem er yfir-
maður byltingarráðs þess sem fer
með völdin. Á fundinum voru
einnig utanríkisráðherra og upp-
lýsingamálaráðherrann. Norden-
streng segir, að Samrin hafi
komizt svo að orði, „að í fyrstu
athugunum bendi allt til þess, að
af átta milljón borgurum hafi um
þrjár verið líflátnar, en þessar
tölur kunni þó enn að hækka."
Einnig kemur fram, að fjölskyldur
hafa tvístrast svo að óvíst er hvort
unnt verði að aðstoða við
sameiningu þeirra en þó létu
ráðherrarnir þess getið, að margt
af fólkinu væri að byrja að leita á
ný til sinha fyrri heimkynna og
skólar hefðu opnað á stöku stað.
iandamærum ríkjanna. Þar lýstu
Kínverjar mikilli reiði sinni yfir
svokallaðri hernaðarlegri ertingu
Víetnama á landamærum ríkjanna
að undanförnu og Víetnamar jafn-
framt varaðir við því að skella
skollaeyrum við þessum mótmæl-
um. Þessi mótmæli Kinverja koma
aðeins nokkrum klukkustundum
eftir að fréttastofan Nýja Kína
sagði, að Hanoistjórnin væri nú að
safna miklu herliði á landamærun-
um og væri að undirbúa mikla
bardaga.
Haft var eftir Li Xiannian, eins
varaforsætisráðherra Kína, í
morgun að Kínverjar létu hart
mæta hörðu ef Víetnamar héldu
uppteknum hætti.
í ásökunum Kínverja segir, að
frá áramótum hafi Víetnamar ráð-
ist a.m.k. fimmtíu sinnum yfir
landamærin og gert aðför að
fjórum þorpum stutt frá landa-
mærunum.
Víetnamar ítrekuðu í dag tilmæli
sín til Sameinuðu þjóðanna um að
þau létu fara fram rannsókn á því
alvarlega ástandi sem ríkjandi er á
landamærum þeirra og Kínverja
vegna átroðslu þeirra síðarnefndu.