Morgunblaðið - 13.02.1979, Qupperneq 48
Lækkar
hitakostnaöinn
nnpittlif&ikifr
Verzlið
í sérverzlun meö
litasjónvörp og hljómtæki.
Ef*£.£> Skipholti 19
V BUOIN sími
ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979
Upphlaup í
ríkisstjórn
ÞEGAR Ólafur Jóhannesson
forsætisráðherra lagði frum-
varp sitt fram í rikisstjórninni
í gær, varð þar mikið upp-
hlaup og gerðist Ragnar Arn-
alds menntamálaráðherra þar
stórorður. Hitnaði ólafi þá í
hamsi og sagði hann við Ragn-
ar að hegöan hans væri ekki
samboðin honum sem ráð-
herra.
Ragnar Arnalds svaraði for-
sætisráðherra fullum hálsi og
kvaðst ekki láta segja sér, hvað
sér væri samboðið. Hitt væri
víst að eins mætti segja, að þau
vinnubrögð, sem Ólafur
Jóhannesson hefði viðhaft,
væru ekki samboðin forsætis-
ráðherra landsins.
Benedikt Davíðsson, formaður Verkamálaráðs Alþýðubandalagsins:
„Hnefahögg í andlit verka-
lýðshreyfingarinnar ’ ’
Verði stjórnarsamstarfi haldið áfram, hlýtur allt samráð að vera úr sögunni
„EINS og frumvarpið var kynnt
fyrir okkur, þá gengur þetta
þvert á fyrri hugmyndir um
samráð við verkalýðshreyfinguna
um lausn vandamála,“ sagði
Benedikt Davíðsson, formaður
Verkamálaráðs Alþýðubanda-
lagsins í samtali við Morgunblað-
ið í gær, er hann var spurður um
frumvarp Ólafs Jóhannessonar
um efnahagsráðstafanir. Um þau
ákvæði frumvarpsins, sem fjalla
um vísitölumál, sagði Benedikt:
„Þessi eini punktur f sambandi
við vfsitöluna er slfkt hnefahögg i
andlit verkalýðshreyfingarinnar
í sambandi við samráð, að ég get
ekki séð að þar höfum við neitt að
gera lengur.“ Þá sagði Ólafur
Ragnar Grímsson alþingismaður
að frumvarp ólafs væri fljótt á
litið frumvarp um skipulagt at-
vinnuleysi.
Benedikt Davíðsson sagði, að
Sveinn Benedikts-
son frkvstj. látinn
SVEINN Benediktsson fram-
kvæmdastjóri lézt í Landakots-
spítala um miðaftan f gær eftir
skamma legu. Banamein hans var
hjartabilun. Hann var á 74.
aldursári, fæddur 12. maí 1905,
sonur hinna landskunnu hjóna
Guðrúnar Pétursdóttur og Bene-
dikts Sveinssonar alþingismanns.
Sveinn Benediktsson tók virkan
þátt í stjórnmálum og á herðar
hans féllu ýmis ábyrgðarstörf
bæði fyrir Sjálfstæðisflokkinn,
ríki og Reykjavíkurborg, var t.a.m.
í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins í
nær hálfa öld og formaður
verksmiðjustjórnarinnar á fjórða
tug ára og jafnframt stjórnarfor-
maður Bæjarútgerðar Reykja-
víkur lengi vel. Sveinn Benedikts-
son var einn af umsvifamestu
útgerðarmönnum landsins, um
margra áratuga skeið einn helsti
forsvarsmaður útvegsmanna enda
í hópi umsvifamestu athafna-
manna landins um árabil. Hann
skrifaði fjölda blaða- og tímarits-
greina, ekki sízt í Morgunblaðið.
Sveinn Benediktsson rak um
árabil eigin fyrirtæki í útgerð og
síldarvinnslu. Hann var kjörinn til
forystu í mörgum hagsmunasam-
tökum útgerðar og fiskvinnslu og
oft valinn til samninga erlendis
um sölu íslenzkra fiskafurða. Þá
var hann varaþingmaður fyrir
Reykjavík 1937—’42.
Eftirlifandi kona Sveins er
Helga Ingimundardóttir frá Kald-
árholti í Holtum. Uppkomin börn
þeirra eru fjögur.
Morgunblaðið þakkar Sveini
Benediktssyni langt samstarf og
sendir konu hans og fjölskyldu
innilegar samúðarkveðjur.
verið gæti, að hugmyndir Ólafs í
vísitölumálunum kæmu heim og
saman við hugmyndir einhverra
fulltrúa í vísitölunefndinni, en þær
hefðu gengið þvert á þær
hugmyndir, sem kynntar voru í
miðstjórn Alþýðusambands ís-
lands í gær. Hann kvað það mikla
brotalöm í samráði, þegar forsæt-
isráðherra skipaði nefnd til þess
að fjalla um vísitölumálið, en gæfi
svo út sitt eigið álit áður en álit
nefndarinnar lægi fyrir. „Okkar
menn í vísitölunefndinni, laun-
þegasamtakanna, ASÍ, Farmanna-
og fiskimannasambands Islands,
BSRB og raunar BHM líka, hafa
allir lýst sig reiðubúna til að leita
Lóðir í Selási á
5 til 8 milljónir
UM ÞESSAR mundir er verið að
selja um 180 einbýlishúsa- og
raðhúsalóðir í Árbæjarhverfi í
Reykjavík. Er þar um að ræða
lóðir er hafa verið í eigu ein-
staklinga en eru nú byggingar-
hæfar eða að verða það.
— Raðhúsalóðir við Brekkubæ í
Selásnum eru nú byggingarhæfar,
sagði Gunnar Þorsteinsson
fasteignasali í samtali við Mbl. og
verið er að ganga frá útboðsgögnum
fyrir einbýlisahúsalóðir er verða
byggingarhæfar með haustinu að
því er okkur er tjáð. Fyrir raðhúsa-
lóðir hefur að undanförnu verið
borgað milli 4,5 og 5,0 m.kr. og eru
innifalin gatnagerðargjöld.
Einbýlishúsalóðirnar um 550 m!,
sagði Gunnar að kostuðu um 6
m.kr., en þær stærri allt að 900 m2
gætu farið í 7 m.kr. og jafnvel 8 ef
staðurinn þætti eftirsóknarverður.
Gunnar sagði að verð lóðanna hefði
hækkað nokkuð frá sl. hausti; rað-
húsalóðir hækkað t.d. úr u.þ.b. 3,5
m.kr. í um 5 og einbýlishúsalóðir úr
6 m.kr. í 7 m.kr. Misjafnt hvernig
þær væru greiddar, allt frá 6
mánuðum og upp í ár og þá yfirleitt
vaxtalaust. Gunnar sagði að mikið
hefði verið spurt eftir þessum lóð-
um þ.á m. byggingameistarar þar eð
skortur væri á lóðum í Reykjavík.
að einhverri lausn á vísitölunni,
sem gæti leitt til minni spennu-
verkunar af hennar hálfu. Þannig
var um málið fjallað á fundi ASI í
dag. Málið stendur síðan þannig að
boðaður er síðasti fundur vísitölu-
nefndarinnar á miðvikudag og þá
eiga menn að hafa skýra afstöðu
til mála. Okkar menn hafa lýst
yfir ákveðinni afstöðu til tiltek-
inna mála að uppfylltum ákveðn-
um forsendum." Benedikt kvað
lyktir málsins, sem þær hefðu
birzt í gær, hljóta að vera slit á
öllu samráði. Hann kvaðst líta svo
á persónulega, en hefði að vísu
félagslegar samþykktir að baki
sér. Aðspurður, hvort hann liti svo
á að með þessu yrði stjórnarsam-
starfinu slitið, kvaðst Benedikt
ekkert geta sagt. „Ef þessu verður
hins vegar haldið áfram, sé ég ekki
að um neitt beint samráð verði að
ræða.“
Frumvarp Ólafs Jóhannessonar:
Isafold bjargaði sex
möraium úr Norðursjó
Grimsby, 12. 2. Frá Þórleifi Ólafssyni fréttaritara Mbl.
ÍSLENZK-DANSKA nótaskipið tsafold, sem gert er út frá
Hirtshals í Danmörku, bjargaði sl. nótt 6 manns af v-þýzka
flutningaskipinu Frank Nibbe. ísafold kom síðan með skipbrots-
mennina til hafnar í Grimsby í morgun og búa skipbhitsmennirn-
ir nú á danska sjómannaheimilinu
Vonzkuveður var í Norðursjó
sl. nótt, 9—10 vindstig og mikill
sjór. Þegar vestur-þýzka
flutningaskipið átti um það bil
30 mílur eftir í Humber-fljót
varð það fyrir miklu áfalli og fór
áhöfnin sem voru 5 karlmenn og
ein kona þegar í gúmbjörgunar-
bát. Þau hröktust í bátnum í
u.þ.b. 30 mínútur, en þá fann
ísafoldin gúmbjörgunarbátinn
og tók skipbrotsmennina um
borð.
Af Frank Nibbe er það að
segja að það hélzt ofansjávar
þrátt fyrir mjög mikinn halla og
í morgun fóru þrír menn um
borð í skipið og var talið að það
myndi ná til Hull í kvöld með
aðstoð.
Alvarlegur ágreiningur
innan stjórnarinnar
Vísitöluþak við 5%
FRUMVARP Ólafs Jóhannessonar um framtíðarstefnu í
efnahagsmálum virðist hafa valdið algjörum og alvarlegum
klofningi innan ríkisstjórnarinnar. Er það sagt fara svo nærri
hugmyndum Alþýðuflokksins, að þingflokkur Alþýðuflokksins
hefur þegar samþykkt að lýsa stuðningi við það óbreytt og
mun Benedikt Gröndal, formaður flokksins, leggja á ríkis-
stjórnarfundi í dag áherzlu á að það verði afgreitt sem fyrst.
Alþýðuhandalagið hins vegar telur Ólaf ekki hafa farið
meðalveg við gerð frumvarpsins, það sé með öllu óaðgengilegt
flokknum og verkalýðshreyfingunni og muni það hafna því.
Frumvarpið er í 11 köflum, 62
greinum og ásamt greinargerð og
athugasemdum er það samtals 60
vélritaðar blaðsíður. Það atriði þess
sem mestur ágreiningur er um eru
án efa ákvæðin um verðbótavísi-
töluna þar sem segir að út úr
grundvelli hennar skuli teknir óbein-
ir skattar, breytingar á niður-
greiðslum á vöruverði og breytingar
á búvöruverði. Lítið er sagt um
verðbótavísitöluna nú 1. marz en
síðan er sett á hana þak við 5% og
skulu verðbætur sem eru umfram
það mark, 1. júní, 1. september og 1.
desember ekki koma til greiðslu fyrr
en 9 mánuðum eftir þessar dag-
setningar.
Þá tekur Ólafur inn í frumvarpið
hugmyndir Alþýðuflokksins um að
heildartekjur og útgjöld á fjárlögum
verði innan 30% marka vergrar
þjóðarframleiðslu og að peninga-
magn í umferð aukist ekki nema um
25% á þessu ári og verði innan 20%
marka á næsta ári. Þá er í vaxta-
málum gert ráð fyrir verðtryggingu
sparifjár og lánsfjár miðað við
vísitölu eða gengisbreytingar, en
vextir verði lágir.
Fyrstu viðbrögð ýmissa helztu
framámanna Alþýðubandalagsins í
gær við frumvarpi Ólafs, voru þau að
það væri ekki innan ramma þess
samkomulags, sem náðist í ráðherra-
nefndinni, sem skilaði skýrslu sinni
til forsætisráðherra 31. janúar
síðastliðinn. Þá voru menn og mjög
stórorðir vegna þess að forsætisráð-
herra beið ekki eftir áliti vísitölu-
nefndar, sem koma á saman til
síðasta fundar á morgun. Höfðu
menn á orði að vinnubrögð forsætis-
ráðherra væru ekki í samræmi við
þá stefnu ríkisstjórnarinnar að hafa
samráð við verkalýðshreyfinguna og
í gær voru uppi háværar raddir um
að fulltrúar launþega í vísitölunefnd
segðu sig úr nefndinni. Einn þing-
manna Alþýðubandalagsins sagði:
„Þetta er í raun og veru frumvarp
um skipulegt atvinnuleysi."
í röðum Alþýðuflokksmanna ríkti
á hinn bóginn almenn ánægja með
frumvarp Ólafs, þar sem það var
talið í meginatriðum samhljóða
frumvarpsdrögum Alþýðuflokks-
manna frá því í desember. Tveir
þingmenn Alþýðuflokksins, sem Mbl.
hafði tal af, töldu þetta frumvarp
boða mestu efnahagsúrbætur síðustu
tveggja áratuga. „Þetta er að vísu
svo mikill samdráttur og hjöðnun að
við dönsum á atvinnuleysislínunni
og erum þá auðvitað tilbúnir að slá
út, ef sú hætta kemur upp,“ sagði
annar þeirra.
Sjá nánar um efni frumvarpsins á
bls. 2.