Morgunblaðið - 16.03.1979, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979
Lúðrasveitin Svanur heldur
tónleika fyrir styrktarfélaga
LÚÐRASVEITIN Svanur heldur
tónleika fyrir styrktarfélaga í
Háskólabiói á morgun, laugar-
daginn 17. mars, kl. 14. Þetta er
49. starfsár Svansins.
Unglingasveit var stofnuð hjá
Svaninum fyrir tveimur árum og
tók hún s.l. sumar þátt í alþjóð-
legu móti í' Kaupmannahöfn.
Þetta mót var haldiö á vegum
samtakanna People to people og
er haldið annað hvort ár en þetta
var i fyrsta skipti sem íslensk
DÖMUR féll nýlega f máli sem
Reynir Þórðarson, fyrrverandi
forstöðumaður Áhaldahúss
Reykjavikurborgar höfðaði
gegn borgarsjoði fyrir ólög-
mæta uppsögn. Voru Reyni
dæmdar 3,5 milljónir króna í
skaðabætur.
Árið 1974 fór fram rannsókn á
starfsemi Áhaldahússins vegna
athugasemda, sem endurskoð-
unardeild borgarinnar hafði
gert vegna starfsemi hússins.
Sakadómur Reykjavíkur annað-
ist rannsóknina en að henni
lokinni taldi ríkissaksóknari
lúðrasveit tók þátt í því. 24 hópar
frá 21 landi komu fram á mótinu
sem var fyrir hljómsveitir, kóra
og þjóðdansa.
Svanurinn lék á ýmsum stöðum
í Kaupmannahöfn tvisvar til
þrisvar á dag. I konsertsalnum í
Tívolí fór fram aðalkeppni hljóm-
sveitanna. Lenti Svanurinn í 4.-6.
sæti í keppni milli 14 hljómsveita
en íslensku þátttakendurnir voru
meðal þeirra yngstu á mótinu.
Á síðast liðnu hausti var
ekki ástæðu til að höfða opin-
bert mál á hendur Reyni.
í febraar 1975 tók borgarráð
þá ákvörðun að segja Reyni upp
störfum. Hann taldi uppsögnina
ekki réttmæta og höfðaði mál
gegn borgarsjóði fyrir bæjar-
þingi Reykjavíkur og krafðist
rúmlega 50 milljóna í bætur.
Dómurinn komst að þeirri
niðurstöðu að ekki hafi verið
rétt að uppsögninni staðið og
dæmdi Reyni 3,5 milljónir í
skaðabætur. Guðmundur Jóns-
son borgardómari kvað upp
dóminn.
unglingadeildin sameinuð eldri
deildinni.
Foreldrafélag var stofnað til
styrktar unglingahljómsveitinni
og starfar það enn þótt unglinga-
deildin hafi verið sameinuð eldri
deildinni.
Það eru einnig nýmæli að hafinn
var rekstur tónskóla Svansins í
upphafi þessa starfsárs.
I tónskólanum er hljóðfæraleik-
urum sveitarinnar boðið upp á
framhaldsnám í hljóðfæraleik og
tónfræði og eru flest allir félag-
arnir í skólanum sem ekki eru í
öðrum tónskólum. Ýmsir starfandi
atvinnuhljómlistarmenn hafa
byrjað tónlistarferil sinn í Svanin-
um og eru nú starfandi í Sinfóníu-
hljómsveit íslands, þar á meðal
stjórnandi sveitarinnar, Sæbjörn
Jónsson.
Nú eru 56 hljóðfæraleikarar í
Svaninum en innan hans starfa
einnig 18 manna Big-band og 8
manna Dixieland-hljómsveitir.
I stjórn Svansins eru nú Jón Freyr
Þórarinsson formaður, Daði Þór
Einarsson varaformaður, Gísli
Sigurbjörnsson gjaldkeri, Sverrir
Guðmundson ritari og Böðvar
Pálsson meðstjórnandi.
Á tónleikum á morgun kemur öll
hljómsveitin fram og einnig
Big-bandið. Kynnir á hljómleikun-
um verður Guðrún Ásmundsdóttir.
Miðar verða seldir við innganginn.
Borgarsjóður dæmdur
ftireittár
ætium \ið...
Hvaö er langt síóan fjölskyldan
aetlaði sér aö kaupa uppþvottavél,
nýtt sófasett, litasjónvarp, jafnvel
ferö til útlanda eöa . .. ?
Sparilánakerfi Landsbankans er
svar viö þörfum heimilisins, óskum
fjölskyldunnar eða óvæntum út-
gjöldum.
Með reglubundnum greiðslum
inn á sparilánareikning í Lands-
bankanum getur fjölskyldan
safnað álitlegri upphæö í um-
saminn tíma. Aó þeim tíma loknum
getur hún fengiö sparilán strax eða
síðar. Sparilán, sem getur verið
allt að 100% hærra en sparnaðar-
in og endurgreiðist á allt
árum.
ar sparnaöarupphæðin og
rilánlð eru lögð saman eru
pln eða útgjöldin auðveldari
Landsbankann um
llnglnn um sparilánakerfið.
Sparifjársöfhun tengd rétti til lártíöku
Sparnaöur
þinn eftir
Mánaöarleg
innborgun
hámarks upphasö
Sparnaöur í
lok tímabils
Landsbankinn
lánar þér
Ráöstöfunarfé
þitt 1)
Mánaöarleg
endurgroiösla
Þú endurgreiöir
Landsbankanum
12 mánuöi
18 mánuöi
24 mánuöi
25.000
25.000
25000
300.000
450 000
600 000
300 000
675000
1.200.000
627 876
1 188 871
1.912.618
28368
32.598
39.122
á12 mánuöum
á 27 mánuöum
á 48 mánuöum
1) í tölum þessurffer reiknað meö 19% vöxtum af innlögðu fé, 24% vöxtum af lánuðu fé, svo og kostnaði vegna lántöku. Tölur þessar geta
breytzt miðað viö hvenaer sparnaður hefst. Vaxtakjör sparnaðar og láns eru háð vaxtaákvörðun Seðlabanka íslands á hverjum tíma.
LANDSBANKENN
Sparilán-tíi’gging í framtíð
Atriði úr sýningu Leikfélags Blönduóss á „Ég vil fá minn mann
„Ég vil fá minn
mann ”áBlönduósi
LEIKFÉLAG Blönduóss frum-
sýndi, laugardaginn 10. mars í
Félagsheimilinu á Blönduósi
gamanleikinn „Ég vil fá minn
mann“ eftir Philip King í þýð-
ingu Sigurðar Kristjánssonar.
Með aðalhlutverk fara Sigmar
Jónsson, Iris Blandon, Þórhallur
Jósepsson og Sigurbjörg Eiríks-
dóttir en leikendur eru alls níu.
Leikstjóri er Erlingur E. Hall-
dórsson. Fyrirhugaðar eru fleiri
sýningar á Blönduósi og í nær-
sveitum en næsta sýning á „Ég
vil fá minn mann“ verður á
Hofsósi nú um helgina.
Akranes:
Opin vika Fjöl-
brautaskólans
Akranesi, 15. marz.
SÚ NÝBREYTNI hefur verið
tekin upp hjá Fjölbrautaskólan-
um á Akranesi að verja einni viku
vorannar til fjölbreyttra verk-
efna, sem eru utan stundaskrár.
Annars vegar er nemendum gefið
ta'kifa ri til að fara í skoðunar-
ferðir til ýmissa stofnana á Vest-
urlandi og í Reykjavík, hlýða á
fyrirlestra og taka þátt í hópum-
ræðum og ýmsum verkefnum, en
hins vegar verður skólinn opnað-
ur almenningi og honum boðinn
þátttaka 1 dagskrárliðum.
Opna vikan hófst mánudaginn
12. marz. Meðal efnis sem boðið er
upp á er myndlistarsýning frá
Listasafni alþýðu, kvikmyndir frá
Éjalakettinum, tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar, Hamrahlíðar-
kórsins og kórs Fjölbrautarskól-
ans. Þá sýnir leikfélag FA tvo
einþáttunga og haldin verður
íþróttahátíð. Fyrirlestrar verða,
svo og kynning á námsbrautum
FA og námsgreinum Háskóla
íslands. Undirbúningur og fram-
kvæmd þessarar dagskrár er í
höndum kennara og nemenda skól-
ans, og er það von aðstandenda að
„opna vikan" verði upphafið að
nýrri hefð í starfsemi FA, og geti
orðið til að auka tengsl milli
skólans og almennings og gert
nemendum kleift að sinna al-
mennu menningarlífi utan beinna
kennslustunda.
Skólameistari Fjölbrautaskól-
ans á Akranesi er Ólafur Ásgeirs-
son.
- Á
Kvennasamband Ak-
ureyrar afhendir fæð-
ingardeild F.S.A.
KVENNASAMBAND Akureyrar
afhenti nýlega Fæðingardeild
F.S.A. „Fetal Monitor" en það er
tæki til að auðvelda eftirlit og
auka á öryggi fyrir konur i fæð-
ingu. Verðmæti þessa tækis er
rúmlega 3 milljónir króna án
innflutningsgjalda og söluskatts.
Stjórn Kvennasambandsins skipa:
Júdit Sveinsdóttir, Sigrun Lárus-
dóttir, Margrét Kröyer, Svanhild-
ur Þorsteinsdóttir og Marta Jóns-
dóttir.
Myndin var tekin er stjórn Kvennasambands Akureyrar afhenti
faeðingardeild F.S.A. tækið. ,