Morgunblaðið - 16.03.1979, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979
31
• Víkingurinn Skarphéðinn Óskarsson tekinn óblíðum tökum. Páll Björgvinsson til vinstri við öllu búinn.
Ljósmynd Mbl. Emilía.
Víkingar afgreiddu
Fylki með 11 mörkum
VÍKINGAR voru ekki í vandræð-
um með að afgreiða Fylki með 11
marka sigri í 1. deildinni í hand-
knattleik í gærkvöldi í Laugar-
dalshöllinni. Fylkismenn leyfðu
sér að leika á sama hraða og
Víkingsliðið gerði og það varð til
þess að þeir gerðu ótal skyssur og
áttu enga möguleika á að halda í
við lið Víkings sem hefur gott
vald á hraðanum sem þeir keyra
upp í leikjum sínum. Strax í
byrjun leiksins var mikill hraði í
honum og Vikingar náðu góðu
forskoti. Eftir 20 mfnútna leik
var staðan 9—3. Heldur réttu
Fylkismenn úr kútnum eftir að
hafa bara skorað þrjú mörk í
heilar 20 mínútur og staðan f
hálfleik var 13—7.
í síðari hálfleiknum gekk hvorki
né rak hjá Víkingum fyrstu 10
mínútur hálfleiksins og tókst þeim
þá aðeins að skora eitt mark.
Fylkismenn tóku hressilega á í
varnarleiknum og gerðu Víkingum
erfitt fyrir. Sóknarleikur Fylkis
var hins vegar hið mesta hnoð. Um
miðjan síðari hálfleik var sex
marka munur á liðunum 19—13.
Eh þá tóku Víkingarnir virkilega
góðan endasprett og skoruðu fimm
síðustu mörk leiksins án þess að
Fylkir svaraði.
í heildina var leikurinn ekki
neitt sérlega vel leikinn. Allmikill
hraði var í honum og boltinn gekk
vel á milli manna hjá Víkingum.
Hraðaupphlaupin eru beitt vopn
hjá þeim, og er undircituðum til
efs að nokkurt íslenskt handknatt-
leikslið hafi svo gott vald á hraða-
upphiaupum sem Víkingar.
Fylkismenn gerðu alltof mikið
af því að reyna að hnoða inn í vörn
andstæðinganna sem var þétt fyr-
ir. Skynsamlegra hefði verið að
leika lengra út á vellinum og leika
yfirvegað og reyna meira línuspil.
Hjá Fylki var Jón Gunnarsson
markvörður bestur, varði skínandi
vel þrátt fyrir að varnarleikur
Fylkis væri oft ekki sannfærandi.
Þá átti Magnús Sigurðsson ágætan
leik og voru nokkur marka hans
hreinasta gull. Þrumuskot af
löngu færi í samskeytin. Sigurður
Simonarson barðist vel í vörninni
og gafst aldrei upp.
Hjá Víkingum var Ólafur Jóns-
Oómsorð vegna
kæru HK
SUNNUDAGINN 11. marz 1979 kom dómstóll H.S.Í. saman á
skrifstofu H.S.Í.
Fyrir var tekið málið nr. 2/1979.
II.K. gegn Val.
H.K. hefur með símskeytum, dags. 8.2. 1979, til mótanefndar H.S.Í. og
Dómstóls H.S.I. kært þá ákvörðun mótanefndar að telja Val sigurvegara
í leik Vals og H.K. í 1. deild karla í íslandsmóti, innanhúss. En leikur
þessi, sem frestað hafði verið, en skyldi skv. upphaflegri mótaskrá hafa
verið leikinn 21.12. 1978, var af mótanefnd á fundi hennar 30. jan. og 1.
febr. 1979 settur á 6. febr. 1979 kl. 21.00 og báðum liðum tilkynnt sú
ákvörðun hinn 4. og 5. febr. s.l.
Dómstóllinn fellst á það, að tilkynningafresturinn, varðandi boðun
leiksins, hafi verið skammur, en með tilliti til venju, varðandi
tilkynningar um frestaða leiki í íslandsmótinu, verður ekki á það fallist,
að H.K. hafi verið heimilt að mæta ekki til leiks.
DÓMSORÐ
Úrskurður mótanefndar varðandi úrslit leiks Vals og HK stendur
óhaggaður.
Ingvar Björnsson, (sign) Sigurður Jónsson, (sign)
Haukur Bjarnason, (sign)
Vegna framangreinds kærumáls beinir dómstóllinn því til móta-
nefndar, að hún reyni framvegis að setja frestaða leiki á með góðum
fyrirvara og tilkynna viðkomandi aðilum strax með sannanlegum
hætti ákvörðun sína. Jafnframt beinir dómstóllinn því til stjórnar
II.S.Í., að athugað verði, hkort ekki sé heppilegt að setja ákveðnar
reglur um frestun leikja og um tilkynningar vegna slíks sem og önnur
atriði er skipta máli í þvf sambandi.
KR-ingar ekki
dauðir úr
öllum æðum
KR-INGAR sýndu það í gær-
kvöldi í leik sínum við stúdenta f
Úrvalsdeildinni í körfubolta, að
þeim eru svo sannarlega ekki
ailar bjargir bannaðar, þó það
vanti svo sem eins og einn John
Hudson í lið þeirra. Skemmst er
frá að segja. að leikur þeirra f
gærkvöldi var einn sá albesti hjá
þeim í vetur. Leiknum lauk með
sigri KR, 85—79, en í hálfleik var
staðan 45—40, þeim í hag.
Því fór þó fjarri að sigurinn
ynnist átakalaust. Stúdentar
mættu baráttuglaðir til þessa
leiks, ákveðnir í að selja sig dýrt.
KR-ingar höfðu forystuna allan
fyrri hálfleikinn, en forskot þeirra
varð þó aldrei meira en 8 stig.
I síðari hálfleiknum var sama
baráttan og fjörið uppi á teningn-
um og áhorfendur, sem voru fjöl-
margir að vanda, fengu að sjá
margt af því besta, sem körfubolti
son bestur, skoraði hann 8 mörk í
leiknum úr horninu og eins úr
hröðum upphlaupum. Steinar
Birgisson var og góður og hefur
engum íslenskum handknattleiks-
manni farið jafnmikið fram í
vetur og honum. Hann er jafn
leikmaður sem stendur vel fyrir
sínu bæði í vörn og sókn. Viggó
Sigurðsson var afaróheppinn í
skotum sínum. Átti alls 10 skot í
leiknum en skoraði 1 mark. Árni
batt vörnina vel saman og var
öruggur í vítaköstunum. Kristján
varði og vel í leiknum.
I STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1.
deild Laugardalshöll 15. marz.
Víkingur — Fylkir 24—13(13—7)
fyiÖRK VÍKINGS: Ólafur Jónsson 8,
Árni Indriöason 7 (5v), Steinar Birgis-
son 3, Erlendur Hermannsson 2, Páll
Björgvinsson 2, Viggó Sigurðsson 1,
Skarphéöinn Óskarsson 1.
MÖRK FYLKIS: Guöni Hauksson 3
(1 v), Gunnar Baldursson 3, Magnús
Sigurðsson 4 (1v), Halldór Sigurös-
son 1, Sigurður Símonarson 1, Örn
Hafsteinsson 1.
BROTTVÍSANIR AF LEIKVELLI: Einar
Ágústsson og Kristinn Sigurösson
Fylki báöir í 2 mín., Viggó Sigurðsson
Víkingi í 2 mín.
MISHEPPNUÐ VÍTAKÖST: Viggó
skaut yfir á 4. mín., Kristján Sig-
mundsson Víkingi varði hjá Guöna
Haukssyni á 13. mín., Jón Gunnars-
son Fylki varöi hjá Einari Magnússyni
á 23. mínútu, og Magnús Sigurösson
Fylki skaut í stöng á 24. mín. — þr.
Góöur leikur
Vals og Víkings
VALUR sigraði Víking 15—13 í
1. deild kvenna í Laugardalshöll-
inni í gærkvöldi. Var leikur lið-
anna mjög vel leikinn af hálfu
beggja aðila. Mikið jafnræði var
með liðunum í fyrri hálfleiknum
þrátt fyrir að Val tækist að ná
eins marks forystu rétt fyrir
leikhlé 8—6. Byrjun síðari hálf-
leiksins var síðan snörp hjá Vals-
stúlkunum og gerðu þær þá út
um leikinn með því að ná 3 marka
forystu. Víkingsstúlkurnar voru
síður en svo á þeim buxunum að
gefast upp og minnkuðu muninn
tvívegis niður í eitt mark, en þær
vantaði herslumuninn.
Best í liði Víkings var mark-
vörðurinn Hlín, sem varði mjög
vel. Þá var Ingunn góð. Hjá Val
var Oddný best.
Mork VíkinKs: Ingunn 3, Sólveig 3,
Sigurrós 2. Erika 2, Sigrón 2 og Guðrún 1.
Mörk Vals: Oddný 5. Elfn 4. Björg 4. Erna
1, Harpa 1. Sigrún 1. — þr.
• Þær eru margar myndirnar
sem teknar hafa verið a/ Jóni
Sigurðssyni á flegiferð. enda
varla hægt að ná mynd af mann-
inum öðruvísi! Jón átti mjög
góðan leik á móti Stúdentum í
gærkvöldi.
hefur upp á að bjóða. Varnarleikur
beggja liða var allan tímann mjög
góður, mikið um vel útfærð hraða-
upphlaup og svo mætti lengi telja.
Um miðjan síðari hálfleikinn náðu
KR-ingar í fyrsta skipti í leiknum
meira en 10 stiga forskoti og héldu
því allt fram á lokamínútur leiks-
ins, en þá söxuðu stúdentar nokk-
uð á forystu þeirra, en engu að
síður var öruggur KR-sigur í höfn.
Þau orð hafa verið látin falla um
KR-liðið í vetur, að leikur þeirra
snerist alltof mikið um tvo leik-
menn, þá Jón Sigurðsson og John
Hudson. Það sýndi sig í gærkvöldi,
að það eru svo sannarlega fleiri
leikmenn í liðinu, sem geta leikið
skínandi körfubolta ef svo ber
undir. Birgir Guðbjörnsson, sem
átt hefur nokkuð misjafna leiki í
vetur, lék mjög vel í gærkvöldi, var
harður í vörninni og skoraði lag-
legar körfur úr langskotum. Einar
Bollason var einnig góður og hitti
sérlega vel í seinni hálfleik, eina
körfuna T síðari hálfleik skoraði
hann með sveifluskoti, eins og
honum einum er lagið. Árni Guð-
mundsson átti einnig mjög góðan
leik. Bestur allra var þó Jón
Sigurðsson. Snilli þessa leikmanns
eru lítil sem engin takmörk sett.
Þá var Garðar Jóhannsson einnig
góður.
Stúdentar léku leikinn í gær-
kvöldi vel, hittu einfaldlega á
KR-inga í banastuði. Trent Smock
var góður að venju, var að vísu í
strangri gæslu og það sama má
raunar segja um hina stóru menn-
ina, þá Bjarna Gunnar og Jón
Héðinsson. Við það losnaði nokkuð
um aðra leikmenn og notfærði
Gísli Gíslason sér þetta frelsi vel í
fyrri hálfleiknum, en var nokkuð
daufur í þeim síðari. Jón Héðins-
son er sérlega sterkur og ósérhlíf-
inn leikmaður, en hann mætti
gjarnan vera eilítið eigingjarnari,
þótt slíkt hljómi ekki vel. Bjarni
Gunnar fékk lítinn frið til afhafna
undir körfu KR-inga, en var
harður undir sinni eigin körfu.
Stigin fyrir ÍS: Trent Smock 29, Jón
Héðinsson 15, Gtsli Gislason 11. Bjarni
Gunnar Sveinsson og Steinn Sveinsson 9
hvor, Ingi Stefánsson 4 og Albert Guð-
mundsson 2.
Stigin fyrir KR: Jón Sigurðsson 28, Einar
Bollason 18, Garöar Jóhannsson 15, Árni
Guðmundsson 12, Birgir Guðbjörnsson 8 og
Þröstur Guðmundsson 4.
Dómarar voru þeir Kristbjörn Albertsson
og Erlendur Eysteinsson og dæmdu jteir
leikinn ágætlega.
- GI.
IS: Albert Guðmundsson 1, Bjarni Gunnar
Sveinsson 3, Glsli Gfslason 3, Gunnar
Halldórsson 1, Ingi Stefánsson 2. Jón
Héðinsson 3, Jón Oddsson 1, Steinn Sveins-
son 2.
KR: Árni Guðmundsson 3, Ásgeir Hall-
grímsson 1, Einar Bollason 3. Birgir Guð-
björnsson 3. Eiríkur Jóhannesson 1, Garðar
Jóhannsson 3, Gunnar Jóakimsson 2. Jón
Sigurðsson 4, Þröstur Guðmundsson 2.
Eins marks siaur
KA i hörkuleik
STEMMNINGIN í Skemmunni á Akureyri í gærkvöldi var hreint með
ólíkindum er KA sigraði bór í 2. deildinni í handknattleik 20—19. í
miklu hörkuuppgjöri þessara liða eftir að staðan hafði verið jöfn í
leikhléi, 9 mörk gegn 9. Þegar aðeins sex mínútur voru. til leiksloka
voru KA menn með fimm marka forystu, 20—15, en Þórsarar eygðu
enn möguleika og skoruðu fjögur síðustu mörk leiksins, staðan allt í
einu orðin 20 mörk gegn 19 og allt á suðupunkti í troðfullu húsinu. KA
missti síðan boltann þegar 30 sekúndur voru til leiksloka, en allt kom
fyrir ekki, sigurinn varð þeirra. Sigur KA í leiknum var fyllilega
sanngjarn og undirritaður er sannfærður um að þeir eru með
sterkasta liðið í 2. deild nú.
Beztu mcnn KA-liðsins voru Gauti Gautason markvörður og
Þorleifur. Hjá Þór voru þeir Tryggvi Gunnarsson markvörður og
Arnar Guðlaugsson beztir.
Markhæstir KA: Þorleifur 7, Jón Árni 5.
Markhæstir Þórsara: Arnar 5, Sigtryggur og Sigurður 4 hvor.
Nánar í blaðinu á morgun. Sigurbjörn