Morgunblaðið - 10.04.1979, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979
5
Bókaklúbbur AB:
„Rauða herbergið”
— skáldsaga Strind-
bergs er komin út
Síðasta sýning
á Syni skógarans
SÍÐASTA sýning á verki Jökuls
Jakobssonar „Sonur skóarans og
dóttir bakarans“ verður í Þjóð-
leikhúsinu annað kvöld kl. 20.00.
Leikritið hefur verið sýnt í allan
vetur og verður það 55. sýning á
Kórsöngur
á Flúðum
Syðra-Langholti, 9. apríl.
KARLAKÓRINN Heimir í Skaga-
firði hélt söngskemmtun á Flúðum
sl. laugardagskvöld, en kórinn var
í söngför á Suðurlandi nú um
helgina. Stjórnandi er Ingimar
Pálsson, einsöngvari Þórunn Ólafs-
dóttir og undirleikari Einar Schw-
aigcr. Aðsókn var ágæt og þökkum
við Skagfirðingunum fyrir komuna
og skemmtilegan söng.
Á miðvikudagskvöldið ætla Flúða-
kórinn og Árneskórinn að halda
söngskemmtun á Flúðum kl. 21.
Þetta eru blandaðir kórar, um 80
manns alls. Stjórnendur eru Sigurð-
ur Ágústsson í Birtingaholti og
Loftur S. Loftsson í Breiðanesi.
Syngja kórarnir nokkur lög, þá
verður bingó og eru utanlandsferðir
í aðalvinninga. Að lokum verður
dansað. Fyrirhugað er að þessir
kórar fari í söngför til Norður-Nor-
egs í júlí til að endurgjalda heim-
sókn norskra kóra sem komu sl.
sumar, samkoma þessi er m.a. hald-
in til styrktar þessari söngferð í
sumar.
Sig.Sigm.
verkinu annað kvöld. Leikstjóri er
Helgi Skúlason.
Myndin er af Róbért Arnfinns-
syni og Bryndísi Pétursdóttur í
hlutverkum oddvitans og oddvita-
frúarinnar í „Sonur skóarans og
dóttir bakarans."
BÓKAKLÚBBUR Almenna bóka-
félagsins hefur gefið út skáldsög-
una „Rauða herbergið“ eftir
sænska rithöfundinn August
Strindberg. Hjörtur Pálsson
sneri bókinni á íslensku. Um
þessar mundir eru hundrað ár
liðin frá því Strindberg gaf skáld-
söguna út.
I tilkynningu frá Almenna bókafé-
laginu segir svo um útgáfu bókarinn-
ar:
Svíar kalla Rauða herbergið
„fyrstu sænsku nútímaskáldsöguna".
„Sú skilgreining ér rétt, svo langt
sem hún nær,“ segir þýðandinn
Hjörtur Pálsson í grein um bókina í
Fréttabréfi AB, „en engu að síður er
sagan jafnframt miskunnarlaus upp-
skurður samfélags, þar sem engri
stefnu þess eða stofnun er hlíft, en
gengið á röðina í kafla eftir kafla og
hnífnum beitt...“
Sögusvið Rauða herbergisins er
höfuðborgin Stokkhólmur. Svíar
hafa gert sjónvarpsmyndaflokk eftir
bókinni, og hefur hann verið sýndur
ÍSLAND 110
LMJUl
ÍSLAND 190
IiA.NAuN NiiNinNnNiNnÍiiiNuNnN
Póst- og símamálastjórnin hef-
ur tilkynnt um útkomu nýrra
frímerkja hinn 30. apríl n.k. Er
þar um að ræða tvö frímerki með
verðgildi 110 kr. og 190 kr„ en
merkin eru Evrópumerki teiknuð
af Þresti Magnússyni.
Á 110 kr. merkinu er mynd af
gömlu talsímatæki og á 190 kr.
merkinu mynd af póstlúðri og
tösku, en 50 merki eru í örk og eru
þau prentuð hjá Courvoisier í
Sviss, með svonefndri sólprentun.
Með útkomu þessara merkja er
minnst þess að tuttugu ár eru liðin
frá því að Evrópusamráð pósts og
síma, CEPT, var stofnað, en þá var
ákveðið að aðildarlöndin skyldu
árlega gefa út Evrópufrímerki
með sameiginlegu myndefni. Að
þessu sinni verða gefin út í hverju
aðildarlandi fyrir sig merki úr
sögu póst- og símaþjónustu.
Leiðrétting perming i Bíldudalskirkju
í MINNINGARGREIN um Mar-
gréti Hrefnu Guðmundsdóttur
sem birtist hér í Mbl. á laugar-
daginn áttu sér stað misritanir
varðandi börn hennar.
Með fyrri eiginmanni sínum
Davíð Péturssyni er lézt árið
1973, eignaðist Margrét heitin
tvo syni þá Guðmund Árna og
Sigurð Guðjón. Helga dóttir
Margrétar er Magnúsdóttir, og
eignaðist hún hana áður en hún
giftist. Með síðari eiginmanni
sínum, Cecil Viðari Jensen, eign-
aðist Margrét son, sem Ingi
Steinar heitir.
FERMING í Bíldudalskirkju
annan páskadag kl. 2 síðd. Prest-
ur séra Erlendur Sigmundsson.
— Þessi börn verða fermd:
Bylgja Agnarsdóttir,
Tjarnarbraut 7.
Kristín Pétursdóttir,
Dalbraut 18.
Sigríður Berglind Snæbjörnsdótt-
ir,
Dalbraut 24.
Eiríkur Þórðarson,
Dalbraut 25.
Guðni Jónsson,
Arnarbakka 1.
Matthías Fossberg Matthíasson,
Fóssi.
Ragnar Gísli Bjarnason,
Hvesstu.
Viðar Örn Ástvaldsson,
Brekkustíg 1.
Þórir Hauksson,
Lönguhlíð 36.
Ferming á Raufarhöfn
Leiðrétting
MEINLEG prentvilla slæddist inn
í vísukorn eftir Tryggva Vilmund-
arson í Hlaðvarpa Morgunblaðsins
síðastliðinn laugardag. Fyrsta orð
vísunnar á að vera byltist, en ekki
fyllist. Rétt er vísan þannig:
„Byltist um hafið bárufans,
böivaðar lægðirnar stíga dans.
Létt verða f vasa launin manns,
ef loðnan er farin til andskot-
ans.“
FERMING á Raufarhöfn annan í
páskum.
Prestur: Sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
Fermd verða eftirtalin börn:
Árni Heiðar Gylfason,
Aðalbraut 60.
Auður Jónsdóttir,
Ásgötu 14.
Erla Guðmundsdóttir,
Miðási 1.
Björn Friðriksson,
Vogsholti 5.
Halldór Þorsteinn Þórólfsson,
Ásgötu 16.
Halldóra Margrét Árnadóttir,
Vogsholti 9.
Héðinn Ólafsson, Geysi.
Jón Hermann Hermannsson,
Ásgötu 19.
Kristján Guðmundsson,
Vogshoti 3.
Kristján Guðmundsson,
Sæbliki.
Linda Viðarsdóttir,
Vogsholti 10.
Margrét Magnúsdóttir,
Ásgötu 15.
Páll Steingrímsson,
Bæjarási 2.
Sigþrúður Árnadóttir,
Glaumbæ.
Logi Rafn Arnþórsson,
Grænási 3.
Þóra Guðrún Árnadóttir,
Vogsholti 9.
hér og er ýmsum sjálfsagt minnis-
stæður.
Rauða herbergisins er höfuðborgin
Stokkhólmur. Svíar hafa gert sjón-
varpsmyndaflokk eftir bókinni, og
hefur hann verið sýndur hér og er
ýmsum sjálfsagt minnisstæður.
Rauða herbergið er 339 bls. að
stærð. Bókin er prentuð í Prentstofu
G. Benediktssonar og bundin í Örk-
August Strindberg
Sólarlandaferdir
fyrir eldri borgara
TVÆR sólarlandaferðir til Mall-
orka fyrir eldri borgara á vegum
Félagsmálastofnunar Reykjavík-
ur í samvinnu við Ferðaskrifstoí-
una Úrval eru fyrirhugaðar 20.
apríl og 11. maí.
Undanfarin ár hefur verið gist á
Hotel Columbus í St. Ponsa og svo
verður einnig nú. Öll herbergi eru
með baði, svölum og síma. I hótel-
inu sjálfu eru rúmgóðar vistarver-
ur svo sem eins og spilaherbergi,
sjónvarpsherbergi, setustofa o.fl.
Á kvöldin er spilað á spil, bingó,
tískusýningar o.fl.
Sérstakir fararstjórar eru með í
ferðum frá Félagsmálastofnun
auk fararstjóra Örvals og eru
skipulagðar skoðunarferðir fyrir
farþegana.
Nokkur undanfarin ár hefur
Félagsmálastofnun Reykjavíkur-
borgar efnt til sams konar ferða og
hafa ferðir þessar ávallt tekist
mjög vel og færri komist með en
óskað hafa.
Við hótelið eru tvær stórar og
góðar sundlaugar auk innisund-
laugar. Bærinn St. Ponsa er vina-
legur bær við fallega sandvík 17
km fyrir vestan borgina Palma.
(Fré ttatilky nning
frá Urval).
Ný frímerki 30. apríl
Gísli Gestsson lát-
inn - tíræður að aldrí
í GÆRMORGUN lézt á elli- og iHg > - TWSNRá
hjúkrunarheimilinu Grund Gísli
Gestsson Irá Suður-Nýjabæ í
Þykkvabæ, en hann var á 101.
aldursári, varð 100 ára 6. septem-
ber síðastl.
Gamli maðurinn hafði verið við
allgóða heilsu og frískur vel fram
yfir áramótin. Hann var fluttur í
sjúkradeild heimilisins fyrir
nokkru. Kona Gísla heitins, Guð-
rún Magnúsdóttir úr Þykkvabæ,
lézt 16. janúar síðastliðinn, 92ja
ára að aldri.