Morgunblaðið - 10.04.1979, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979
Landbúnaðarráðherra:
Mjólkurframleiðsla minnki um 15
milljónir lítra og lambakjötsfram-
leiðsla um 2500 tonn á fímm árum
Landbúnaðarráðherra hefur
lagt fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um
„stefnumörkun 1 landbúnaði“, og
jafnframt hefur hann kynnt
ályktunartillögu sína á sér-
stökum blaðamannafundi.
Ráherra sagði á fundinum, að
honum hefði verið leyft að flytja
máliö sem landbúnaðarráðherra,
af samráðherrum sínum, og væri
að mestu eining um málið með
stjórnarflokkunum, en ýmsar
breytingar gætu þó komið fram
við umræður um málið á Alþingi.
Á blaðamannafundinum var
svohljóðandi réttatilkynning gefin
út:
Landbúnaðarráðherra hefur
lagt fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um stefnumörkun
í landbúnaði.
Með flutningi þessarar tillögu er
að því stefnt að Alþingi ákveði
meginmarkmið langtímastefnu í
landbúnaðarmálum. Gerð verði
áætlun til 5 ára í senn um þróun
landbúnaðarins og framkvæmd
hennar tryggð með beinum
samningum milli ríkis og bænda
um verðlags- og kjaramál.
Búvöruframleiðslan verði sem
mest miðuð við neyzluþarfir
þjóðarinnar jafnframt því sem
ullar- og skinnaiðnaðinum verði
tryggt nægilegt hráefni.
Stefnt er markvisst að sam-
drætti í framleiðslu nautgripa- og
sauðfjárafurða þannig að verulega
dragi úr þörf fyrir útlfutnings-
bætur.
Gert er ráð fyrir að á næstu 5
árum verði mjólkurframleiðslan
dregin saman svo hún verði í lok
tímabilsins 5—6% umfram inn-
lendar þarfir eða um 105 milljónir
lítra á ári. Er það samdráttur um
15 milljónir lítra frá því sem var á
s.l. ári.
Þá er gert ráð fyrir að sauðfjár-
framleiðslan verði á sama tímabili
dregin saman um 18—20%. Er
þetta svipað magn nautgripa- og
sauðfjárafurða og var á árunum
1974-1976.
Jafnframt er gert ráð fyrir að
gerðar verði búrekstrar- og fram-
kvæmdaáætlanir fyrir land-
búnaðinn sem taki mið af land-
kostum og markaðsskilyrðum á
einstökum svæðum.
Með því væri horfið frá því
sjálfvirka lána- og styrkjakerfi
sem hér hefur ríkt, þar sem hver
einstakur bóndi hefur vegið og
metið framkvæmdamöguleika sína
án tillits til stöðu framleiðslu- og
markaðsmála stéttarinnar allrar.
Lögð er áherzla á að samdráttur
í nautgripa- og sauðfjárfram-
leiðslunni Verði ekki alltof hraður
og valdi sem minnstri rösku í
landbúnaðinum og raski ekki
byggðarjafnvæginu.
í þingsályktunartillögunni er
lögð áherzla á aukna fjölbreytni í
búvöruframleiðslunni, bætta
nýtingu hlunninda og að teknar
verði upp nýjar búgreinar, s.s.
loðdýrarækt til að skapa bændum
verkefni og mæta tekjutapi þeirra
þegar dregur úr framleiðslu í
hinum hefðbundnu búgreinum.
Jafnframt verði kappkostað að
bæta afkomuna og tryggja sem
lægst verð á matvælum með því að
auka hagræði hverskonar í
búvöruframleiðslunni, hagfræði-
aðstoð, fræðslu og leiðbeiningar
fyrir bændur.
Landbúnaðarráðherra hefur
lagt fram tillögu í ríkisstjórninni
um ráðstafanir til að draga úr
þeirri tekjuskerðingu sem fyrir-
sjáanleg er hjá bændastéttinni á
þessu og næsta ári vegna offram-
leiðslu nautgripa- og sauðfjár-
afurða.
Unnið verði að félagslegum
umbótum sem m.a. tryggi að
1 m A ÍWm. m f
'rwnm' ® m
Á myndinni eru forsvarsmenn Ferðamálaráðs á blaðamannafundinum talið frá vinstri: Steinn Lárusson
formaður Félags ferðaskrifstofumanna, Böðvar Valgeirsson Ferðaskrifstofunni Atlantic, Ludvig
Hjálmtýsson ferðamálastjóri og Kjartan Lárusson Ferðaskrifstofu ríkisins.
Feróamálaráð:
ísland hefur stöðugt styrkt
sess sinn sem ferðamannaland
Nú nýverið boðaði Ferðamála-
ráð til blaðamannafundar. Efni
fundarins var annars vegar að
gera fjölmiðlum grein fyrir 13.
Alþjóðlegu ferðamálasýningunni,
en í þeirri sýningu tóku’ þátt
fslenzkir aðilar, að tilhlutan
Ferðamálaráðs, og hins vegar
fyrir stöðu íslenzkra ferðamála.
13. Alþjóða ferðamálasýningin
var haldin í Berlín 3.-11. marz s.l.
og tóku þátt í henni íslenzkir
aðilar að tilhlutan Ferðamálaráðs.
íslenzka deildin á sýningunni var
staðsett á Norrænu torgi, en
Norðurlöndin hafa með sér sam-
vinnusamband — N.T.T.K., —, er
stóð að frágangi sameiginlegs
svæðis. Á torginu var byggð eftir-
líking af íslenzkum sveitabæ og
þar var íslenzka deildin staðsett. Á
sýningunni sóttu m.a. 1.029
atvinnublaðamenn frá fagtímarit-
um í 50 Iöndum.
íslenzki sv itabærinn, er settur var upp á Alþjóða ferðamálasýning- Ludvig Hjálmtýsson ferðamála-
unniíBeriín. stjóri sagði, að íslendingarnir
Steingrímur Hermannsson landbúnaðarráðherra og Hákon Sigur-
grfmsson ráðunautur hans á fundi með blaðamönnum f ráðuneytinu.
LJfem: Emllla.
bændur geti notið reglulegs
frítíma, orlofs og aðstoðar í
veikinda- og slysatilfellum, líkt og
aðrir þjóðfélagshópar, einnig
bættri þjónustu hins opinbera á
sviði heilbrigðismála, menntunar
og samgangna í dreifbýli.
sveitum. Loks er lýst umbótum
sem verða þurfa á sviði
hagræðingar og markaðsmála
landbúnaðarins.
43466 — 43805
í greinargerð með þings-
ályktunartillögunni er ítarlega
rakin þróun landbúnaðarmála
siðustu áratugina, lýst stöðunni í
markaðsmálum landbúnaðarins og
þróun síðustu ára, þróun iðnaðar
úr ull og skinnum og sagt frá
viðhorfum bænda sjálfra til þess-
ara mála.
Þá er í greinargerðinni ítarleg
útfærsla á þeim stefnumiðum sem
í þingsályktunartillögunni felast,
lýst áhrifum samdráttar í naut-
gripa- og sauðfjárrækt, fjallað um
leiðir til úrbóta til að auka fjöl-
breytni búvöruframleiðslunnar,
fjölga atvinnutækifærum í
hefðu verið ánægðir með útkomu
sýningarinnar, þó að erfitt væri að
nefna tölur í því sambandi. Kostn-
aður Ferðamálaráðs af upp-
setningu sýningarinnar hefði verið
u.þ.b. 5 millj., kr., en það væri ekki
há upphæð miðað við að heildar-
gjaldeyristekjur af erlendum
ferðamönnum hérlendis á s.l. ári
voru yfir 10,3 milljarðar kr. á
meðan gjaldeyristkjur af loðnu úr
sjó voru 8—9 milljarðar á s.l.
vertíð. Ludvig sagði, að ákveðið
væri að taka aftur þátt í
sýningunni að ári og yrði hun þá
haldin í Rússlandi.
Það kom fram á fundinum, að
ísland hefur stöðugt styrkt sess
sinn sem ferðamannaland. Á árinu
1978 komu samtals 86.167 erlendir
ferðamenn til landsins, en það er
5,3% aukning frá árinu áður.
Flestir kom frá Nprðurlöndum,
eða 25,4%. Ferðum íslendinga til
útlanda hefur einnig stöðugt farið
fjölgandi og til að mynda voru
farnar 70 þús. ferðir á s.l. ári.
Fjölbreytni í ferðum hefur aukist
til muna og væri nú t.d. aukning í
ferðum til Austantjaldslanda sem
áður fyrr voru lokuð lönd.
Ludvig sagði að lokum, að „túr-
ismi“ væri yngsta atvinnugrein
landsmanna, en gæfi samt sem
áður af sér góðan arð. Þessa
atvinnugrein yrði að styrkja, ef við
ættum að verða samkeppnishæfir
við erlenda aðila. ísland væri ekki
lengur einangrað eyríki. „Við erum
nýkomin í alfaraleið og það verð-
um við að nýta okkur,“ voru
lokaorð hans.
OPIÐ VIRKA DAGA
TIL KL. 19 OG
LAUGARDAGA KL.
10—16.
Úrval eigna á
söluskrá.
ES" Fasteignasalan
Immi EIGNABORG sf.
26600--------------------------
Austurborg
Höfum mjög góöan kaupanda aö 4ra—5 herb. sér
hæð eða góöri blokkaríbúö í Hlíöum, Háaleiti eöa
Heimum. Bílskúr eöa bílskúrsréttur skilyröi.
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17 (Silli&Valdi)
simi 26600
Ragnar Tómasson.