Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979
11
Ljósm. Kristján.
október 1977. Framleiðandanum,
Stefáni Jónssyni á Lýsuhóli í
Staðarsveit, hefur verið veitt leyfi
að nýju til að selja ölkelduvatn,
að uppfylltum vissum skilyrðum.
Fyrstu birgðunum af
ölkelduvatni var dreift í verzlanir
í Reykjavík fyrir helgina og á
myndinni má sjá Stefán (t.h.) og
umboðsmanninn í Reykjavík, for-
stjóra Elmaro hf, halda á flöskum
með ölkelduvatni.
• •
Olkelduvatn
í verzlanir
á ný
BANNI ví framleiðslu og sölu
ölkelduvatns hefur verið aflétt
eins og fram hefur komið hér í
Mbl., en bannið var sett á í
Ætla ad finna nýj-
an stað fyrir hús-
ið Hverfisgata 40
UMHVERFISMÁLARÁÐ borgar-
innar fjallaði nýlega um framtíð-
arstað fyrir húsið Hverfisgata 40,
en hús þetta skagar út í götuna
og er til trafala fyrir umferð og
þarf það því að víkja.
í fundargerð ráðsins segir að
húsið sé enn mjög heillegt og lítið
breytt frá fyrstu tíð. Þar sem ekki
hafi reynst unnt að færa húsið
innar á lóðina var samþykkt að
fela borgarminjaverði í samráði
við skipulagsnefnd, Þróunarstofn-
un og borgarverkfræðing að huga
að lóð fyrir húsi innan marka
gamla bæjarins og sérstaklega í
Grjótaþorpinu.
Búizt við að Loftleiðaflug-
menn fái einnig þaklyftingu
ENGIR samningafundir
hafa verið haldnir milli
Flugleiða og Félags Loft-
leiðaflugmanna, en kjara-
samningur þeirra gildir til
1. febrúar 1980. Hins vegar
er launaliður samninganna
laus. Talið er fullvíst að í
kjölfar þaklyftingar hjá
flugmönnum innan Félags
íslenzkra atvinnuflug-
manna, verði þaki einnig
lyft að launum
loftleiðaflugmanna.
Loftleiðamenn hafa hærri
laun en flugmenn innan
FÍA og mun að meðaltali
muna röskum 6% í launum.
Samkvæmt samkomulagi
við FÍ A þá varð niðurstaðan
sú, að þessi mismunur yrði
settur í gerðardóm, sem
yfirborgardómarinn í
Reykjavík skipaði, en
FÍA-menn kröfðust jafn-
launastefnu við Loftleiða-
flugmenn.
Leiðrétting
í MINNINGARGREIN er birtist
hér í blaöinu 27. marz sl. um
hjónin Þórey Elíasdóttur og
Kristján Guðbjartsson misritaðist
dánardægur Kristjáns, en hann
lézt 22. febrúar 1979, ekki 1978.
Þetta leiðréttist hér með.
„Búizt við fjölmermi á Húsavík”
— segir Einar Olgeirsson hótelstjóri á Húsavík
„ÞAÐ er mjög góður skíða-
snjór hérna og ég byst við
fjölmenni á Húsavík um pásk-
ana,“ sagði Einar Olgeirsson
hótelstjóri þegar blm. sló á
þráðinn til hans í gær.
Hér hafa um páska dvalið á
vegum Útsýnar fjölskylduhópar
og verður sami háttur á í ár.
Valdimar Örnólfsson mun að
venju vera með skíðakennslu og
einnig verður haldin Útsýnar-
kvöldvaka og barnaskemmtanir
og eru Húsvíkingar, Þingeying-
ar og að sjálfsögðu allir gest-
komandi velkomnir á þær
samkomur. Vanalega eru á
hótelinu í kringum 30
fjölskyldur, hótelið tekur u.þ.b.
60 rnanns."
Á hótel Húsavík hefur verið
mikil umferð upp á síðkastið,
hafa þar verið haldnar nokkrar
ráðstefnur, bæði smáar og
stórar. Búið er að panta mikið af
svokölluðum tilboðsferðum á
vegum hótelsins og Flugleiða í
vor og mikið af fólki kemur frá
nágrannabæjunum til Húsa-
víkur um helgar og kemur það
til af því, að þar er verið að sýna
„Fiðlarann á þakinu“ og fólk
gerir sér gjarnan helgarferð úr
leikhúsferðinni. Það er meira og
minna pantað hjá okkur allar
helgar í þessum mánuði.
„Veðrið er ágætt hjá okkur,
smávegis logndrífa. Hafísinn
syndir hér út og inn, en mér
sýnist þetta vera orðið mest
krap,“ sagði Einar að lokum.
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚN 8 - 15655