Morgunblaðið - 24.04.1979, Síða 20

Morgunblaðið - 24.04.1979, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1979 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1979 21 ARNOR hefur staðið sig alveg frábærlega vel í knattspyrnunni í Beigíu í vetur, af svo ungum manni að vera. Hann hefur verið fastur maður í liði sínu frá því að hann hóf að leika og verið einn hættulegasti sóknarmaður liðsins. Lokaren vHI gera þriggja ára samning við Arnór LIÐ Arnórs Guðjohnsens, Lokar- en, vann stórsigur á La Louviere um helgina. 7 — 0. Þorsteinn Bjarnason heíur því haft nóg að gera. Lið Lokaren er mjög gott um þessar mundir og eru þeir Arnór og Luhanski aðalmennirn- ir í liðinu. Arnór Guðjohnsen sagði í viðtali við Mbl. í gær, að þeir hefðu haft mikla yfirburði í leiknum eins og markatalan ségði til um. — Fyrstu tvö mörkin voru skoruð eftir hornspyrnur frá mér, en þeir Sommer og Lubanski bættu svo þremur mörkum við. Staðan í hálfleik var því 5—0. Fljótlega í upphafi siðari hálf- Ieiksins skoraði ég 6. markið og átti skömmu síðar hörkuskot í þvcrslána, Luhanski fylgdi vel á eftir og tókst að skora. — Næsta laugardag leikum við á útivelli við Winterslag, og nú stefnum við að því að komast í UEFA-keppnina með því að tryggja okkur þriðja sætið í 1. deildinni. Keppnistímabilinu lýkur 27. maí og þá leikum við síðasta leikinn í deildinni. Samningur minn rennur út þegar keppnistímabilinu lýkur og nú standa yfir viðræður milli mín og Lokaren. Þeir vilja að ég skrifi undir þriggja ára samning við liðið en ég vil helst ekki skrifa undir nema til eins árs í einu. Línurnar í samningaviðræðunum munu skýrast á næstunni, sagði Arnór. - þr. Fjölskylda Arnórs hefur dvalið í Beigíu í vetur. Þessi mynd er tekinn af þeim á heimili þeirra í Lokeren. Frá vinstri Eiður, Sigríður 13 ára, Ragnheiður 15 ára, Þóra Kristín 11 ára, Arnór og unnusta hans ólöf, og móðir Arnórs, Arnrún. Naumur sigur ÍS í blakinu ÍÞRÓTTAFÉLAG stúdenta bar sigur úr býtum í bikarkeppni Blaksambands íslands f ár. Stúdentarnir unnu Eyfirðinga naumlega 3:2 í jöfnum og spenn- andi leik. Eyfirðingarnir komu mjög á óvart með góðri baráttu því fyrirfram var búist við léttum sigri ÍS. Eyfirðingar höfðu engan skiptimann og kom það þeim um koll í lokin því úthaldið brást grcinilega hjá þeim í úrslitalot- unni. Fyrsta lotan var alger einstefna, stúdentarnir unnu 15:0 og héldu menn nú að það yrði aðeins forms- atriði að ljúka leiknum. En Eyfirð- ingarnir efldust mjög í annarri lotunni og tókst að sigra 15:13. I þriðju lotunni voru stúdentarnir aftur á móti miklu betri og unnu 15:6. Þegar fjórða lotan hófst héldu menn að stúdentarnir myndu reka smiðshöggið á sigur sinn í keppninni en bað var öðru nær. Eyfirðingarnir neituðu að gefast upp og þeim tókst að vinna nauman sigur í lotunni 15:13 og vafalaust hafa þeir komið sjálfum sér, stúdentum og áhorfendum ekki síst á óv'art með þessum sigri. Nú var komið að fimmtu lot- unni, úrslitalotunni. Eyfirðingarn- ir voru ekkert bangnir í þeirri lotu. Þeir komust í 7:1 og virtist stefna í óvæntan sigur UMSE í bikar- keppninni. En nú fór þreytan virkilega að segja til sín hjá þeim sex leikmönnum UMSE, sem höfðu verið inná vellinum allan tímann. Þeir urðu að gefa eftir og stúdent- um tókst því að jafna metin 7:7 og siðan að vinna naumar sigur 15:12. Stúdentarnir léku að þessu sinni langt undir getu, hvað sem því hefur valdið. Segja má að þeir Indriði Arnórsson og Frakkinn Jean Pierre hafi unnið leikinn fyrir þá með smössum sínum, sem Eyfirðingunum gekk illa að ráða við. Án þeirra hefði ÍS tapað. Eyfirðingarnir komu ákaflega á óvart í þessum leik óg þeir unnu hylli áhorfenda með sinni miklu baráttu. Ef þeir hefðu haft 2—3 skiptimenn hefðu þeir líklega unn- ið þennan leik. - SS. • Lið ÍS með bikarinn, sem Smjörlíki hf gaí og er einn glæsilegasti farandgripur sem í umferð er. Það vakti athygli þegar stúdínur fengu sín verðlaun, að því miður hefði enginn bikar verið gefinn til þeirrar keppni ennþá. Er það líklega eina bikarkeppnin í heiminum, þar sem ekki er keppt um bikar! Knattspyrnuúrslit Stjarnan sigraði 12—1 Breiðablik vann góðan sigur á Haukum í Litlu Bikarkeppninni í knattspyrnu um helgina. Leikið var í Kópavogi og vann UBK 3—1. Hákon Gunnarsson skoraði tvívegis og nýi maðurinn úr Stjörnunni, Ingólfur Ingólfsson eitt mark. Ilaukarnir eru ný- komnir heim úr vel heppnaðri æfingaferð til Maidenhead í Englandi, en mættu samt ofjörl- um sínum i liki 2. deildar liðs UBK. - O - ÍA og ÍBK skildu jöfn í Meistarakeppni KSÍ á laugardag- inn, en leikurinn fór fram á Skaganum. Kristinn Björnsson náði forystunni fyrir ÍA í fyrri háifieik, skallaði þá knöttinn laglega í netið. í síðari hálfleik tókst IBK að jafna og voru Skagamenn allt annað en sann- færandi. - O - UBK lék einnig gegn IBV um hclgina í bæjarkeppni félaganna. UBK virðist sterkt um þessar mundir og vann þarna sinn annan sigur á 1. deildar liði á 2 dögum. Það þurfti þó sjálfsmark Friðfinns Finnbogasonar til að vinna leikinn fyrir UBK. Heima- mönnum í Eyjum og gcstum þeirra ber ekki saman um hvort Friðfinnur skoraði af 25 eða 30 mctra færi, en hann ætlaði að senda knöttinn aftur til mark- varðar síns, en lyfti kncttinum snyrtilega yfir hann og í netið. — O — _ Þá vann Fylkir sigur 1—0, á Ármanni í Reykjavíkurmótinu í fótbolta á Melavellinum á laugar- daginn. Leikurinn var slakur og skoraði Hilmar Sighvatsson sigurmark Fylkis. - O - Úrslitin í leik Þórs frá Þorláks- höfn og Stjörnunnar úr Garðabæ í Stóru Bikarkeppninni voru væg- ast sagt óvenjuleg og furðulcg þegar ýmsir þa'ttir málsins eru kannaðir. Snemma í leiknum var cinn Stjörnumanna rckinn af leikvelli og lék Garðabæjarliðið með 10 leikmönnum allt til leiks- loka. En liðið fór rækilega í gang þegar leikmcnn liðsins voru orðn- ir einum færri og lauk leiknum með rosasigri Stjörnunnar 12—1! Hvernig væri við Stjörnurnar að eiga ef tveim eða fleirum væri vísað af leikvelli? v.#' Þýskur sigur TSC BERLIN vann Ferencvaros frá Ungverja- landi í fyrri leik liðanna í úrslitum Evrópukcppni bik- arhafa í kvennahandbolta, en leikið var í Vestur-Þýska- landi um hclgina. TSC vann 20 — 15, eftir að staðan í hálflcik hafði verið 7 — 6 fyrir Ferencvaros. Síðari leikur liðanna fer fram í Búdapest 29. apríl næstkom- andi. • ÍS varð bikarmeistari í blaki kvenna þetta árið, vann Völsung og sá þar með um það að Húsavíkurliðið vann ekki tvöfalt. Myndin er af sigurliði ÍS. Ljósm. Guðjón Birgisson. Dómgæslan fleytti KR Eftir jafntefli Fram og KR í Reykjavíkurmótinu í knatt- spyrnu á sunnudaginn. ættu KR-ingar að sjá sóma sinn í því að gera Magnús V. Pétursson dómara að heiðursfélaga í KR. Framarar höfðu nefnilega 2 marka forystu þegar 15 mínútur voru til leiksloka, en þá hreinlega gaf Magnús KR-ingum tvö mörk. MÓTANEFND HSÍ og hennar vinnubrögð hafa verið mikið til umræðu bæði meðal almennings ekki síður en í f jölmiðlum í vetur. Og yfirleitt ekki að ástæðulausu. Hér er þó ekki ætlunin að fara að rifja neitt upp, cnda sumt betur gleymt. En næstu dagana fara síðustu leikirnir í íslandsmótinu og bikarkeppninni fram og niður- röðun leikja á þessum lokaspretti vekur vægast sagt furðu. Nú kom upp sú staða í 2. deild kvenna, að lið ÍBK og UMFG urðu efst og jöfn. Efsta liðið í deildinni á ð fara beint upp og þarf því aukaleiki um efsta sætið. En næst- efsta liðið á þess einnig kost að leika við Víking, sem varð í næsU neðsta sæti 1. deildar um sætið. í báðum tilvikum eru leiknir tveir leikir, heima og heiman. Nú er búið að ákveða leikdaga og sér margumrædd mótanefnd um þá hlið málsins. Niðurröðunin er þessi: Þriðjudagur 24. apríl kl. 20.00 ÍBK-UMFG Fimmtudagur 26. apríl kl. 20.00 UMFG-ÍBK Föstudagur 27. apríl kl. 21.15 Víkingur — UMFG eða ÍBK Laugardagur 28. apríl kl. 13.00 UMFG eða ÍBK—Víkingur ... eða samtals 4 leikir á 5 dögum fyrir það lið sem býður lægri hlut í viðureign ÍBK og UMFG. Hætt er við að Víkingsstúlkurnar kvarti ekki yfir því að leika leikina það síðara þegar aðeins 2 mínút- ur voru til leiksloka. Á 75. mínútu leiksins tók Hauk- ur Ottesen aukaspyrnu úti á miðj- um vellinum. Hann spyrnti háum bolta inn í vítateiginn og Guð- mundur Baldursson markvörður Fram stökk upp og greip knöttinn. En í sömu mund kom Jón Oddsson aðvífandi og hljóp Guðmund um stórmikilvægu við örþreytt lið. Það er meira að segja rétt á mörkunum að það 2. deildarliðið sem maraþonið hreppir fái almennilega næturhvíld milli leikjanna við Víking. Þetta verður vægast sagt að teljast ósanngjarnt og allt að því forkastanlegt að bjóða liði upp á slíkt þegar svo mikið er í húfi. Þarna er félögum mismunað. — gg. Rotaði Best Það dró heldur betur til tíðinda í leik Fort Lauderdale Strikers og New York Cosmos í bandarísku knattspyrnudeildinni um helg- ina. Staðan var 2—2 og skammt til leiksloka, þegar tveim kunn- um köppum lenti saman. Þð voru þeir Wim Rijsbergen, hollcnski landsliðsmaðurinn og George Best sem þá lentu í slagsmálum með þeim afleiðingum að Rijs- bergen sendi Bcst ha'gri handar sveiflu á kjálkann. Vissi Best varla hvar hann var eða hvað hann hét næstu tíu mínúturnar. en Rijsbergen var rekinn af leik- velli. Cosmos vann síðan leikinn 3—2 með þrennu Marihno. koll með þeim afleiðingum, að hann missti knöttinn í netið. Öllum til mikillar furðu dæmdi Magnús markið gilt. Maður veit varla hvort eigi að skrifa markið á Hauk, Jón eða jafnvel Magnús. Þetta var ekki það versta. 2 mínút- um fyrir leikslok fékk Elías Guð- mundsson boltann skyndilega í dauðafæri við mark Fram. Hann hitti hins vegar knöttinn illa, Guðmundur sló hann frá, en náði fijótlega jafnvæginu á ný og góm- aði knöttinn örugglega. En sjá, Magnús dæmdi þá vítaspyrnu í rólegheitum! En á hvað? Því getur hann varla svarað sjálfur, önnur eins della hefur varla sést. En úr vítinu skoraði Sverrir Herbertsson af miklu öryggi. Þessi tvö atvik voru hápunkturínn á slakri dóm- gæslu í leiknum og eitt er víst, að ef þetta er forsmekkurinn af þeirri dómgæslu sem koma skal, er óhætt að aflýsa öllu saman fyrir- fram. Leikurinn var slakur, mest hnoð og kýlingar. Grófur var hann og höfðu KR-ingar þar frumkvæðið. Framarar hefðu átt sigurinn skil- inn, það litla sem sást af knatt- spyrnu í leiknum kom frá þeim og þeir skutu meira á markið. Pétur Ormslev skoraði glæsilegt mark í fyrri hálfleik, en hafði áður brennt af úr víti. Marteinn Geirsson skoraði annað markið upp úr miðjum síðari hálfleik með góðu skoti eftir langt innkast. — KK. Watson ríkari TOM WATSON sigraði í meiri háttar golfmóti sem fram fór í Rancho La Costa í Kaliforníu um helgina. Keppnin stóð yfir í 4 daga og var heildarskor Watsons 275 (69-66, 70-70). Fékk Watson í sinn hlut 54.000 bandaríkjadali. Bruce Lietzke varð annar, en 6 höggum áeftir Watson. Höggafjöldi Lietzke var 281, sama og hjá Gerry Pate. Suður-Afríkumaðurinn Gary Player varð fjórði á 282 höggum. Annað frægt nafn á móti þessu var Lee Trevino, sem að þessu sinni varð í 6. sæti með höggafjöldann 284. 4 leikir á 5 dögum Fylkir—Valurj EINN LEIKUR fer í kvöld fram í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu. Að venju fer leikurinn fram á Melaveliin- um. Fylkir og Valur eigast við að þessu sinni og hefst leikurinn klukkan 20.00. Bikar HSÍ: KR—Haukar SÍÐARI leikurinn í undan- úrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta fer fram í Laugardalshöllinni f kvöld. KR og Haukar leiða saman hesta sína og hefst lcikurinn klukkan 21.30. Óvænt úrslit SUMARDAGINN fyrsta var hið árlega sumardagsmót T.B.R. haldið, en það hefur lengi verið árlegur viðburður. Keppt var í einliðaleik í öllum flokkum unglinga. Mótið var jafnframt síðasta unglingamótið á keppnis- tímabilinu. Mikil barátta var því milli krakkanna og þá sérstakiega í tveimur yngstu flokkunum. í hnokkaflokki kom mest á óvart Ingólfur Helgason Í.A., sem sigraði félaga sinn, Árna Þór Hallgrímsson Í.A., í úrslitum, en Árni hefur verið nær einvaldur í hnokkaflokki í meira en ár. Úrslit urðu annars sem hér segir: Piltar: Guðmundur Adolfsson T.B.R. sigraði Helga Magnússon ÍA. 15:7 og 15:8 Stúlkur: Sif Friðleifsdóttir K.R. sigraði Ragnheiði Jónas- dóttur Í.A. 6:11, 12:9 og 11:5. Drengir: Þorsteinn P. Hængsson T.B.R. sigraði Gunnar Björnsson T.B.R. 11:3 og 11:6. Telpur: Laufey Sigurðardóttir Í.A. sigraði Bryndísi Hilmars- dóttur T.B.R. 8:11, 11:4 og 11:7. Sveinar: Indriði Björnsson T.B.R. sigraði Fritz Berndsen T.B.R. 11:4, 9:12 og 11:6. Meyjar: Þórdís Edwald T.B.R. sigraði Ingu Kjartansdóttur TBR. 12:10, 11:12 og 11:2. Hnokkar: Ingólfur'’ Helgason Í.A. sigraði Árna Þ. Hallgríms- son Í.A. 11:12,11:7 og 11:0. Tátur: Guðrún Júlíusdóttir T.B.R. sigraði Ástu Sigurðardóttur Í.A. 7:11,11:2 og 11:0. Skráðir keppendur voru 58 frá fimm félögum, þar af 32 frá Tennis- og badminton- félagi Reykjavíkur. Haukar AÐALFUNDUR knatt- spyrnufélagsins Hauka. fer fram fimmtudaginn 24. apr- íl og hefst kl. 20.00 í félags- heimilinu. Venjuleg aðal- fundarstörf. Mætið stundvís- loga. Stjórnin. IHoriumblnbit* GMH3 Jfm

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.