Morgunblaðið - 24.04.1979, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 24.04.1979, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 1979 23 Borgaryfirvöld á Norðurlöndum þinga í Finnlandi Fundur stjórnenda höfuðborga Norðurlandanna hefst á morgun í Helsinki í Finnlandi, og sækja fundinn borgarstjórnarmenn frá höfuðborgum allra Norðurland- anna, Reykjavfk, Kaupmanna- höfn, Ósló, Stokkhólmi og Hels- inki. Landshöfðingi Færeyinga með fyrirlestur í Lögbergi Landshöfðingi Færeyja, Leif Groth, er staddur hér á landi og á morgun mun hann flytja fyrir- lestur í boði lagadeildar Háskóla íslands, í Lögbergi, klukkan 17.15. Landshöfðinginn mun fjalla um heimastjórn í Færeyjum og um hugsanlegar breytingar á henni. Fundurinn hefst sem fyrr segir klukkan kortér yfir fimm á morg- un og hann er öllum opinn. Frá Reykjavík sækja fundinn þeir Sigurjón Pétursson, Egill Skúli Ingibergsson, Björgvin Guð- mundsson, Kristján Benediktsson, Birgir Isleifur Gunnarsson, Ólafur B. Thors og Jón Tómasson. A fundinum verður einkum rætt um þrjú mál, í fyrsta lagi um áhrif breytinga á fólksfjölda og áhrif hans á borgarrekstur og borgarlíf, og breytt viðhorf vegna hægari fólksfjölda eða jafnvel fólksfækk- un. I öðru lagi verður rætt um það sem Danir nefna „nær-demokrati“, eða aukin tengsl borgaryfirvalda og borgarbúa, og aukin hlutdeild borgarbúa í ákvarðanatöku, eink- um hvað snertir skipulagsmál. I þriðja lagi verður svo rætt um viðhald og endurnýjun gamalla bygginga, samkvæmt upplýsingum er Morgunblaðið fékk hjá Eggert Jónssyni borgarhagfræðingi í gær. Helgi hrað- skákmeistari HRAÐSKÁKMÓT íslands fór fram í skákheimilinu við Grensásveg s.l. sunnudagskvöld og voru þátttakendur 68 talsins. Helgi Ólafsson alþjóðlegur meistari bar sigur úr býtum, hlaut 14 vinninga af 18 mögulegum. Lyngási afhentar 6 milljónir króna SEX MILLJÓNIR króna hafa safnast í „Gleymd börn ’79“ og var þessi upphæð afhent dvaiarheimilinu Lyngási í gær. Eins og kunnugt er hófst söfnunin er Mickie Gee plötusnúður hóf maraþonplötusnúning sinn á óðali í Reykjavík. Söfnuninni er enn ekki lokið þar sem nú stendur yfir sala happdrættismiða og verður dregið 17. júní. Einnig er maraþonmegrun í gangi í Hafnarfirði og er samhliða henni safnað til Lyngáss. Þórdís Bachmann, fram- maður Styrktarfélags vangef- kvæmdastjóri söfnunarinnar, afhenti Ragnheiði Jónsdóttur formanni heimilisstjórnar Lyngáss peningana. Ragnheiður þakkaði gjöfina og sagðist vita hana koma að góðum notum. Viðstaddir athöfnina voru séra Ólafur Skúlason dómprófastur sem var verndari söfnunarinn- ar, Magnús Kristinsson, for- inna, og Hrefna Haraldsdóttir, forstöðukona á Lyngási. Magnús flutti þeim, sem að söfnuninni stóðu, þakkir fyrir hönd vist- manna á Lyngási, og tveir þeirra gáfu þeim Ólafi Skúla- syni og Þórdísi Bachmann gjafir sem þeir höfðu sjálfir búið til. Magnús sagði einnig að haf- inn væri undirbúningur að byggingu skólahúss við hlið hússins að Lyngási og einnig væri nú ráðgert að byggja í Stjörnugróf annað dagheimili fyrir vangefna en það yrði fyrir eldra fólkið. Hrefna Haraldsdóttir sagði að byrjað yrði að ráðstafa söfn- unarfénu í húsgögn og aðra innanstokksmuni til að gera umhverfi barnanna vistlegra en einnig væri kvikmyndasýninga- vél ofarlega á óskalistanum. Þess má að lokum geta að um leið og peningaafhendingin fór fram var komið með málverk til heimilisins frá Veturliða Gunn- arssyni listmálara. Alþingi Þórdís Bachmann afhendir Ragnheiði Jónsdóttur peningana sem safnast hafa í „Gleymd börn ’79“. A myndinni eru einnig séra Ólafur Skúlason, Magnús Kristinsson, formaður Styrktarfélags vangefinna, Ilrefna Haraldsdóttir, forstöðukona á Lyngási, og nokkur barnanna á dagheimilinu. Ljósm. RAX. „Gleymd börn ’79”: Silungapollur: Borgin ræddi ekki við Rauða krossinn Sumardvalarheimili fyrir Reykjavíkurbörn á vegum Rauða kross íslands verður ekki starfrækt á sumri kom- anda að sögn Ragnheiðar Guð- mundsdóttur læknis sem jafn- framt er formaður Rcykjavík- urdeildar R.K.Í. Reykjavíkurdeildin hefur haft Silungapoll, sem er í eigu Reykjavíkurborgar, til umráða í 6—7 ár. Eins og kunnugt er hefur S.Á.Á. nú fengið staðinn til umráða og sagði Ragnheiður að ekki hefði verið rætt við deildina áður en Silungapolli var ráðstafað til annarra deilda. Sagði hún deildina verða að leggja niður sumar- dvalarheimilið að minnsta kosti í ár þar sem ekki væri í annað hús að venda. Um 150 börn hafa dvalið á Silungapolli á ári hverju yfir sumartímann. mun starfar á ný ALÞINGI íslendinga, 100. lög- gjafarþing, kom saman í gær að loknu páskaleyfi þingmanna. Klukkan 14 var fundur í sameinuðu þingi, en að loknum þeim fundi hófust fundir í deildum. Gengislækkunin þarf að meiri en 6 % vera — segir hagfræðingur LÍÚ EINS og fram kom í Mbl. s.l. sunnudag er talið að fiskverð þurfi að hækka um 12% ef út- gerðin á að taka á sig þá miklu olíuhækkun sem framundan er og er nálægt 50%. Einnig hefur það komið fram hjá þeim aðilum, sem um þessi mál f jalla að gengi þurfi að lækka um 6% í kjölfarið, til þess að fiskvinnslan geti borið fiskverðshækkunina. I samtali sem Mbl. átti í gær við Ágúst Stéttarfélag félagsráðgjafa: Fordæmir aðgerðir stjórnar BSRB og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar FÉLAGSRÁÐGJAFAR eru andvígir þeirri samþykkt stjórnar BSRB að felld verðir niður 3% grunn- kaupshækkunin hinn 1. aprfl síðastliðinn, án samráðs við hinn almenna félagsmann, og fordæmdi aðalfundur Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa forystu BSRB harðlega fyrir að ganga lengra en hún hefur umboð til, en aðalfundurinn var haldinn hinn 8. aprfl. Aðalfundurinn ítrekaði einnig fyrri afstöðu sína, um að rétturinn til að semja um kaup og kjör eigi ekki að ganga kaupum og sölum. Stjórn Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa hefur einnig nýverið sam- þykkt ályktun, þar sem harðlega er mótmælt lögunum um efnahagsmál, sem stjórnarflokkarnir sam- þykktu nýlega á Alþingi. Segir í ályktuninni að með * samþykkt þessara laga hafi ríkisstjórnin, með dyggilegri aðstoð verkalýðsforystunnar, gengið harkalega inn á hinn frjálsa samningsrétt launa- fólks, og hafi nú berlega komið í ljós að núverandi ríkisstjórn sé engu betri en „ríkisstjórn Geirs og Alberts" eins og það er orðað. Einarsson hagfræðing LÍÚ kemur fram að hann telur að gengislækkunin þurfi að verða allmiklu meiri, að öðrum kosti muni önnur gengisfelling fylgja í kjölfarið, eins og reyndin hafi orðið undanfarin ár, þegar áhrif gengisfellingarinnar á afkomu útgerðar og fiskvinnslu hafi ekki verið tekin með í reikninginn. — Það er rétt, sagði Ágúst, að auka þarf tekjur útgerðarinnar um 12—13% til þess að vega upp a móti væntanlegri olíuverðs- hækkun sé reiknað með því að sjómenn eigi að njóta góðs af þessari hækkun. Ef hins vegar tekjur útgerðarinnar verða auknar framhjá hlutaskiptum eins og var gert 1. marz s.l. þarf hækkunin að nema 8,5—9%. í Morgunblaðinu s.l. sunnudag er sagt að til þess að gera fisk- vinnslunni fært að greiða 12% hærra fiskverð þurfi 6% gengis- lækkun. Þarna er miðað við að hráefni sé 50% af útgjöldum vinnslunnar. En málið er ekki svo einfalt. Ef leysa á þennan vanda með gengislækkun þá er nauðsyn- legt að líta nánar á áhrif hennar á afkomu útgerðar og fiskvinnslu. Segja má að allir stærstu útgjaldaliðir útgerðarinnar hreyfist með gengi, t.d. olía, veiðarfæri, viðhald og ennfremur eru skuldir útgerðarinnar meira og minna bundnar í erlendum gjaldeyri. Við gengisbreytinguna myndu allir þessir liðir hækka í hlutfalli við hana og þá þarf viðbótartekjur umfram þau 12% sem uni var rætt til að greiða þann útgjaldaauka. Ennfremur hækka þegar til lengri tíma er litið allir innlendir kostnaðarliðir um sama hlutfall og gengisbreytingin og eru þá ónefnd áhrif hennar t.d. á kaupgjaldsvísitölu sem er mjög viðkvæm gagnvart erlendu gengi. Sömu sögu má segja um fisk- vinnsluna. Erlendir kostnaðarliðir hennar hækka á sama hátt og einnig launin sem eru bundin vísitölu. Staðreyndin er sú að til þess að koma á nýju jafnvægi í sjávarútvegi þarf mun meiri gengislækkun en 6%. Það þarf einnig gengislækkun til þess að borga þann útgjaldaauka sem 6% gengislækkun hefur í för með sér. Segja má því að gengislækkanir éti sjálfar sig að hluta. Það er því eðlilegt miðað við framansagt að athugaðir verði aðrir möguleikar við lausn þessa vandamáls, t.d. niðurgreiðsla að hluta, sagði Ágúst Einarsson að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.