Morgunblaðið - 08.07.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ1979
5
Eins og nafn þessa þáttar gefur
til kynna verður honum varið til
kynningar á ítalska tónskáldinu
Otto Respighi, en hann er án efa
eitt mikilvirkasta og merkasta
tónskáld ítala. Þessi þáttur er
fluttur í tilefni af 100 ára fæðing-
arafmæli tónskáldsins en Res-
pighi fæddist 9. júní 1979.
I kvöld verða leikin þrjú verk
eftir hann og verða þau sitt af
hvoru tagi. Hingað til hafa tvö
tónverk verið mest flutt í útvarp
eftir hann, en það eru verkin
„Furtré Rómaborgar" og „Gos-
brunnur Rómaborgar". Þau verk
sem nú verða tekin til umfjöllunar
eru fáheyrðari en engu að síður,
mjög athyglisverð tónverk.
Áskell Másson kynnir tónlist
eftir Respihgi á mánudagskvöld.
Útvarp kl. 21.45:
Tónlist eft-
ir Respighi
Fyrst ber að geta verks sem
heitir „Notte" en það er úr söng-
lagasafni skáldsins. Síðan verður
flutt „Sei Liriche“, Renata Tebaldi
syngur. Þriðja og síðasta verk á
þessari dagskrá er píanóverk sem
unnið er upp úr hljómsveitarverk-
inu „Notturno".
Otto Respighi var afkastamikið
tónskáld og lét eftir sig mikið af
alls kyns tónverkum. Síðustu ár
ævi sinnar einbeitti hann sér að
því að útsetja og endurskapa 17.
og 18. aldar tónlist, m.a. sönglög
og lútuverk fyrir hljómsveit. Res-
pighi var hrifinn af gamalli tón-
list og má segja að hann hafi verið
íhaldsamur á gamlar tónlistar-
hefðir.
Otto Respighi lést árið 1936, 57
ára að aldri.
dagbl. (útdr). Dagskrá. Tón-
leikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Oeiðdís Norðfjörð heldur
áfram að lesa „Halla og
Kalla, Palla og Möggu Lenu“
eftir Magneu frá Kleifum
(15).
9.20 Tónleikar. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Tónleikar.
11.00 Sjávarútvegur og sigling-
ar. Umsjónarmaður Guð-
mundur Hallvarðsson. Rætt
við óttar Yngvason,
framkvstj. (slensku útflutn-
ingsmiðstöðvarinnar um út-
flutning og sölu á sjávaraf-
urðum.
11.15 Morguntónleikar:
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Á frívaktinni. Sigrún Sigurð-
ardóttir kynnir óskalög sjó-
manna.
14.30 Miðdegissagan: „Kapp-
hlaupið“ eftir Káre Holt.
Sigurður Gunnarsson les
þýðingu sína (24).
15.00 Miðdegistónleikar: Maria
Littauer og Sinfóníuhljóm-
sveit Berlfnar leika Píanó-
konsert nr. 2 eftir Anton
Arensky; Jörg Faerber stj./
Sinfónfuhljómsveit Lundúna
leikur tónverkið „Hljóm-
sveitin kynnir sig“ op. 34
eftir Benjamin Britten;
höfundurinn stj./ Tékkneska
fflharmonfusveitin leikur
forleikinn að óperunni
„TannhSuser“ eftir Richard
Wagner; Franz Konwitschny
stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp.
17.20 Sagan: „Sumarbókin“
eftir Tove Jansson. Kristinn
Jóhannesson heldur áfram
lestri þýðingar sinnar (6),
17.50 Tónleikar.
17.55 Á faraldsfæti: Endurtek-
inn þáttur Birnu G. Bjarn-
leifsdóttur frá sunnudags-
morgni.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 öryggismál Evrópu. Har-
aldur Blöndal lögfræðingur
flytur erindi.
20.00 Kammertónlist. Jacque-
line Eymar, Giinther Kehr,
Erich Sichermann og
Bernharc Braunholz leika
Píanókvartett í c-moll op. 15
eftir Gabriel Fauré.
20.30 Útvarpssagan: „Trúður-
inn“ eftir Heinrich Böll.
Franz A. Gfslason byrjar
lestur þýðingar sinnar.
21.00 Einsöngur: Elfsabet
Erlingsdóttir syngur lög
eftir Karl O. Runólfsson og
Pál ísólfsson. Guðrún
Kristinsdóttir leikur á pfanó.
21.20 Sumarvaka
a. Á Djúpavogi við Beru-
fjörð. Séra Garðar Svavars-
son minnist fyrstu prest-
skaparára sinna fyrir hálf-
um fimmta áratug; — annar
þáttur.
b. Að kveldi. Ingólfur Jóns-
son frá Prestbakka les frum-
ort ljóð, áður óbirt.
c. í júlfmánuði fyrir 75
árum. Gunnar M. Magnúss
rithöfundur les nokkra kafla
úr bók sinni „Það voraði vel
1904“.
d. Kórsöngur: Karladór
Reykjavíkur syngur lög eftir
Sigfús Einarsson. Páll P.
Pálsson stjórnar.
22.30 Fréttir. Veðurfregnir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Harmonikulög. The
Accordeon Masters leika.
22.50 Á hljóðbergi. Umsjónar-
maður: Björn Th. Björnsson
listfræðingur. „Þegar gömlu
hetjurnar hittast ...“ Ensk-
ur gamanþáttur. Aðalflytj-
endur: Tony Hancock og
Sidney James.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
SL Petersburg Florída
Draumafeið
fyrirtírvalsvetó
Brottför:
15. sept.
vikur
vikur
vikur
vikur
vikur
Dvalist verður á Hotel Hilton Inn, St.
Petersburg Beach, við Mexicoflóa.
Hóteliö er byggt í Austurlandastíl. Öll
herbergi eru meó baði, loftkælingu,
litasjónvarpi og svölum. Og þaó er
svo sannarlega nóg að gera þarna,
þú getur auk þess að sleikja sól-
skinið:
— farið á sjóstangaveiðar
— spilað golf
— jafnvel minigolf
— leikið tennis
— siglt seglskútu
o.m.fl.
N/eröiö er 375.000.— Innifalið í verði
eru flugferóir, gisting í tveggja
manna herbergjum, fararstjórn og
flutningur til og frá flugvelli. Brott-
fararskattur er ekki innifalinn.
ATHUGIÐ: Verðið er miðað við að
bókað sé 30 dögum fyrir brottför.
Eftir það hækkar veröiö.
Aukaverö fyrir herbergi með eldhús-
krók er 15.000.— á mann.
Aukaverð fyrir eins manns herbergí
er 58.000.—
ATH. í sept. brottförum er 14.000.—
aukagjald. Öll verð mióast við 28.
júní 1979.
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
VID AUSTURVÖLL SÍMI26900
. *. ' . • • . • ■ . •
eztu kaú
í landinu
CRC-535
Verð Kr.
79.180
Útvarp segulband.
Rafmagn og rafhlöður.
Sjálfvirk upptaka.
Sterkur hátalari.
CRC-550
Verð Kr.
98.980
Útvarp + segulband.
Rafmagn rafhlöður.
2 hátalarar.
SENDUM UM ALLT LAND
FÆST HJÁ UMB0DSMÖNNUM
29800
Skipholti19
argus