Morgunblaðið - 08.07.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ1979
„Stórir bflar og jepp-
ar nær óseljanlegir”
„FÓLK spyr varla um annað en
neyzlugranna bíla þessa dagana
og við fáum mikið af upphring-
ingum frá fólki úti á landi sem
biður okkur að útvega sér bíla
sem eyða sem allra minnstu",
sagði Jónas Ásgeirsson sölu-
stjóri hjá Sveini Egilssyni, er
Mbl. innti hann eftir áhrifum
hinna miklu olíuverðshækkana
hér á landi að undanförnu.
„Það gengur verulega erfið-
lega að selja alla stóra sex og
átta cylindra bíla í dag og stóra
jeppa kaupa nær einvörðungu
þeir sem þurfa að nota vegna
vinnu eða þess háttar.
Af nýjum bílum seljum við
langmest af Ford FIESTA sem
er lítill og eyðslugrannur bíll, en
af stærri bílunum seljum við
mest af Ford Fairmont fjögurra
cylindra, en hann er líka fáan-
legur með stærri vélurn," sagði
Jónas ennfremur.
Aðspurður sagði Jónas að
hann teldi heppilegast fyrir þá
sem ættu jeppa sér til ánægju,
þ.e. til að fara á þeim í fjalla-
ferðir og á skíði, að fá ser annan
lítinn bíl til að vera á innanbæj-
ar. Þetta væri heppilegra þegar
á heildina væri litið þrátt fyrir
að þá yrði auðvitað að greiða
tvöfaldar tryggingar og þess
háttar.
Hafsteinn Hauksson hjá Bíla-
sölunni Braut tók alveg undir
orð Jónasar og sagði að sala á
benzínfrekum bílum væri nær
dauð. Eini möguleikinn fyrir
eigendur slíkra bíla væri að
bjóða mjög góð kjör. — „Eini
jeppinn sem selst í dag er Lada
Sport, enda er hann fjögurra
cylindra, aðrir hreyfast hrein-
lega ekki,“ sagði Hafsteinn.
Aro jepp-
inn í sýn-
ingarferð
UM ÞESSA helgi verða tveir
ARO jeppar kynntir á Norður-
landi, en Aro umboðið á íslandi
hefur sent tvo bfla í hringferð
um landið og verða þeir sýndir
á ýmsum stöðum Norðan-, Aust-
an- og Sunnanlands nú næstu
eina til tvær vikurnar.
Aro jeppinn er fjórhjóladrif-
inn og má aka honum ýmist á
fram- eða afturdrifi eingöngu og
er hann fáanlegur í þremur
gerðum, 5 manna, eða með
stærra húsi og þá 8 manna eða
með tveggja manna húsi en sú
gerð er pallbíll með eða án
yfirbreiðslu. Bergur Lárusson
hjá Aro umboðinu tjáði Mbl. að
Aro jepparnir hefðu reynst vel,
en þeir hafa verið hér um nokk-
urt skeið þótt innflutningur
þeirra sé nú að hefjast fyrir
alvöru. Eyða þeir kringum 13
lítrum á 100 km, eru með 4
strokka 86 SAE hestafla vél og
kosta frá 5,4 upp í 5,9 m.kr.
Bergur sagði að verkstæði er
tekið hefði að sér að annast
viðgerðaþjónustu fyrir Aro jepp-
ana flytti í nýtt húsnæði í haust.
Myndlr: Kristján
Aro jcppann má fá 5—8 manna og kostar frá 5,4—5,9 m.kr.
Grind Aro jeppanna kemur ryðvarin, en umboðsmenn ráðleggja þó ryðvörn hérlendis einnig.
Ritmo — nýr bíll
frá Fiat í haust
RITMO nefnist nýr bfll frá Fiat
verksmiðjunum, sem er að
koma á markað hérlendis í
haust. Hefur hann þegar verið
kynntur erlendis, en hann á að
vera hliðstæður Fiat 128, sem
margir þekkja. Er hann fáan-
legur 3 eða 5 dyra með hinu
venjubundna lagi, sem svo
margir bflar hafa fengið á
sfðustu árum og nefndir á
íslenzku skutbflar.
Fiat Ritmo var af 19 blaða-
mönnum hjá bílablaðinu Motor
kjörinn bíll næsta áratugsins og
var honum m.a. talið til ágætis
að vera hagkvæmur í rekstri,
liggja vel á vegi og smekklega
innréttaður og þægilega. Þá hef-
ur hann verið valinn bíll ársins í
Danmörku af hópi bíla- og véla-
sérfræðinga, er skrifa um bíla
fyrir ritið „Morgunpóstinn", en
21 bíll var til meðferðar í þessari
athugun. Hlaut Ritmo 67 stig á
móti 33 stigum næsta bíls á
eftir, Citroen Visa, Reunault 18
var í 3. sæti með 30 stig, en þetta
er í fjórða sinn sem Fiat hlýtur
þennan titil.
Fiat verksmiðjurnar segja að
sala á Fiat hafi stórlega aukizt
það sem af er árinu, t.d. um 49%
í Svíþjóð, sem sé einkum að
þakka hinum nýja bíl og sé
hlutfall Fiat í Danmörku nú
16% af allri bílasölu þar. Fiat
Ritmo er fáanlegur með 3 vél-
_ arstærðum, 60, 65 og 75 hestafla,
4,5 gíra eða sjálfskiptur.
Fiat Ritmo lítur nokkuð skemmtilega út svo sem sjá má af
þessari mynd.
VW og Chrysler
hyggjast smíða
sparneytnar bíl-
vélar í sameiningu
VOLKSWAGEN verk-
smiðjurnar vestur-þýzku
og bandarísku Chrysler—
verksmiðjurnar hyggjast í
framtíðinni sameinast um
smíði sparneytinna bíla-
véla í Bandaríkjunum, að
því er Toni Schmuecker
aðalframkvæmdastjóri
Volkswagenverksmiðj-
anna tilkynnti á fundi
með fréttamönnum í
vikunni.
Bflar
Umsjón: JÓHANNES
TÓMASSON OG SIG-
UR BLÖNDAHL
Þetta yrði þá önnur tveggja
stórra bílaverksmiðja sem VW
ætlar að byggja utan Þýzkalands
á næstu árum. Þegar hefur verið
samið um að VW byggi stóra
verksmiðju í Mexíkó og á hún að
vera komin í gagnið innan fjög-
urra ára.
Schmuecker sagði á frétta-
mannafundinum, að með þessu
samstarfi VW við Chrysler
styrktist staða VW verulega á
heimsmarkaði, en verksmiðjurn-
ar hafa gert sérstakt átak á
undangengnum fimm árum til
að auka hlutdeild sína á erlend-
um mörkuðum og þá sérstaklega
í Bandaríkjunum. í því sam-
bandi má geta þess að í dag eru
VW bílar í fjórða sæti yfir mest
seldu bílana í Bandaríkjunum,
eftir að þeir skákuðu American
Motors úr því sæti á s.l. ári.