Morgunblaðið - 08.07.1979, Qupperneq 14
Hverju á ég aö klæðast? Skyldi þetta vera í tísku núna, eöa er ég asnaleg(ur) í
þessu?
Spurningar þessu líkar fljúga í gegnum huga margra karla og kvenna á
hverjum degi, ekki síst á góöum sumardögum.
Konungar tískunnar birta fjórum sinnum á ári hugmyndir sínar um þaö hverju
almenningur eigi aö klæðast og ná sumar þessara hugmynda aö festa rætur hér
norður við Dumbshaf en oft seint og síöar meir. Þó eru flestir sammála um þaö
aö íslendingar séu fremstir Norðurlandabúa í kapphlaupinu viö tískuna.
En hverju á að klæðast til aö vera samkvæmt nýjustu tísku og hvernig er
tískan á íslandi núna? Til þess aö fá svör við þessum spurningum snéri blm. sér
til Stefáns Á. Magnússonar framkvæmdastjóra og Hrafnhildar Siguröardóttir
blaöamanns, en þau fylgjast bæði grannt með því sem gerist í tískuheiminum.
Buxur, skyrtur og jakkar
fyrir kvenfólkiö
„Rauðar, gular og bláar
buxur, skyrtur og jakkar
verða í tísku í sumar en
ekkert sem er afbrigðilegt
eða skemmtilegt að
klæðast,“ sagði Hrafnhildur
Sigurðardóttir um kvenfata-
tískuna.
„Það er einnig þannig hjá
okkur íslendingum að við
tökum alltaf einn hlut ríkjandi
fatatísku og sjáum ekkert
annað. Sem dæmi um það
eru frakkakápurnar sem voru
í tísku í vetur. Þá gekk önnur
hver kona í slíkri kápu.
„Flotta línan“ í núverandi
tísku, þröng pils og fínir
jakkar, virðist ekki ætla að ná
rótfestu hér í sumar, en mikið
er um slíkt erlendis.
í haust ætti meira af gulli
og glimmeri að koma hingað
og fólk fer þá að klæða sig
mjög skrautlega.
Er líða tekur fram á vetur
fer grái liturinn að koma að
nýju en einnig nýr vínrauður
litur.
Það er einn litur sem hefur
gleymst í þeirri sumartísku
sem nú er að ryðja sér veg
hér, alveg skærgrænn litur
og sá bleiki hefur líka sést
lítið fram að þessu.“
Hrafnhildur Sigurðardóttir,
biaðamaður.
Hrafnhildur kvað
samkvæmistískuna vara
mjög svipaða og undanfarin
ár. „Síðir kjólar eru alltaf
ríkjandi í samkvæmistískunni
en nú er líka mikið um mjög
víðar eða mjög þröngar
buxur. Sumar buxurnar sem
notaðar eru í samkvæmin eru
nánast leistalausar sokka-
buxur og nokkurs konar
sloppur hafður utan yfir þær.
Hattar eru líka mikið í tísku
um þessar mundir en það er
eins og fáir þori að ganga
með þá hérlendis.
Ungar stúlkur í Reykjavík
eru ekki mjög skemmtilegar í
klæðaburði að sögn Hrafn-'
hildar. „Að vísu hugsa þær
meira um að klæða sig
fallega núna en fyrr. Þær eru
bara allar í eins fötum.
íslendingar eru þannig gerðir,
af einhverjum ástæðum, að
þeir þora ekki að klæða sig
öðru vísi en náunginn. Hér
verða allir að vera eins.“
En er hægt að klæðast
samkvæmt tískunni hér á
kalda íslandi?
„Nei, úti á götu þarf alltaf
að gera ráð fyrir yfirhöfnum.
Tískan er hins vegar sniðin
með erlenda veðráttu í huga,
Að því leyti þyrftum við
íslendingar að móta okkar
eigin tísku sem samræmdist
íslenskri veðráttu.
Það er líka algjörlega
útilokað fyrir konu með
meðaltekjur að ætla sér að
fylgjast með tískunni. Sjálf
sauma ég megnið af mínum
fötum," sagði Hrafnhildur að
lokum.
Ljós föt handa
karlmönnunum
„Ljósir litir verða yfir-
gnæfandi í tísku karlmanna í
surnar," sagði Stefán Á.
Magnússon. Skyrturnar og
buxurnar verða víðar og
skórnir Ijósir og opnir, flestir
ítalskir og franskir.
Efnin í fötunum hafa líka
breyst, gerfiefnin eru fyrir bí,
en 100% bómull, silki eða
ullarblöndur hafa tekið við.
Þá hefst nýtt æviskeið