Morgunblaðið - 08.07.1979, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ1979
Spánarfarar og sprengingar:
Sprengingar raska
ekki ró ferðamanna
Nú síðustu dægur hafa birst í íslenskum blöðum
frásagnir af sprengingum sem skæruliðar Baska og
ef til vill fleiri samtök hafa staðið fyrir á Spáni. Mjög
hafa verið á reiki skoðanir manna um áhrif þessara
aðgerða á þá Islendinga sem þarna eru í leyfi á
sólarströnd.
Til þess að heyra hver eru viðbrögð þeirra
íslendinga sem þarna dveljast þá tóku blaðamaður og
Ijósmyndari Morgunblaðsins á móti Spánarförum
sem komu frá Malaga aðíaranótt síðastliðins laugar-
dags.
Engin
áhrifá
Islend-
ingana
„ Við lásum um þessar sprengingar áður en við fórum en annars urðum við Iítið varar við að þær hefðu
nokkur áhrif á íslendingana sem þarna voru," sögðu systurnar Jónína og Halla Haraldsdætur.
„Við vorum eina viku á Torremolinos með ferðaskrifstofunni Sunnu og maður heyrði örlítið á tali
fólks að það vissi um sprengingarnar, en ekkert meira. Fararstjórarnir höfðu ekki samband við okkur
vegna þeirra. “
Hvorki rœtt
um spreng-
ingarmeðal
r
Islendinga
né irmfœddra
Guðmundur Arnlaujísson. (Ljúsm. Mbl. Kristinn)
„Éj? varð ekki var við neinar sprenginjíar þær 5 vikur sem ég var á Torremolinos," sagði Guðmundur
Arniaugsson. Hann sagðist hafa verið búsettur í litlu þorpi utan við hótel ferðamanna, og þar hefði
ekkert verið rætt um sprengingarnar hvorki af íslendingum né útlendingum. „Hins vegar var mikið
getið um það í fjölmiðlum að núna nýverið gekk yfir mesta rigning sem komið hefur í Granada-fjöllum.
Flóð sem því fylgdu ollu því að allt rafmagns fór af Torremolinos í heilan dag. En um sprengingarnar
var lítið rætt.
Stærri
gerðin af
„kmverjum”
Einar Örn Stefánsson og Ásta R. Jóhannesdóttir
„Blessaður vertu, þetta var ekkert til að minnast á,“ sögðu þau hjónin Ásta R. Jóhannesdóttir og
Einar Örn Stefánsson. „Þetta var bara stærri gerðin af kínverjum. Einn íslendingurinn sá víst svona
sprengju springa og það var víst lítil sprengja, allavega í það skiptið. Annars var .okkur sagt að mest
væri um þetta á Fuengirola.“
Baskor
tilkgnna
sprengingor
fyrirfram
„ÞAÐ SPRAKK ein stór og öflug
sprengja á baðströnd mjög ná-
lægt þeim stað þar sem við
vorum," sagði Skúli Gestsson
sem ferðaðist með Samvinnu-
ferðum til Torremolinos. „Bask-
arnir settu sprengju á gangveg
niður að ströndinni en það urðu
engin meiðsl á fólki. Þeir hafa
nefnilega þann háttinn á Bask-
arnir að tilkynna það með
nokkrum fyrirvara hvar þeir
láta næst til skarar skríða þann-
ig að mögulegt reynist að rýma
viðkomandi svæði."
Skúli Gestsson.
Sigmundur Hannesson og Hildur Einarsdóttir.
Sprengjugabb
blómstrar
„Við fréttum af miklum fjölda hringinga til lögreglunnar frá
fólki sem hefur gaman af því að koma af stað sprengjugabbi.
Svoleiðis vafasamt tómstundagaman blómstrar nú í skjóli
ástandsins sem nú ríkir,“ sögðu Hildur Einarsdóttir og Sigmundur
Hannesson. „Það var einhver sprengjuleit á flugvellinum en áhrif
sprenginganna eru lítil sem en
ferðamönnum enda lítil ástæða ti
„Hegrði
svosem
dúndrur”
„Maður heyrði svosem dúndr-
ur en síðan ekki söguna meir“
sagði Þórir Magnússon þegar
hann steig út úr vélinni eftir 2ja
vikna vist á Torremolinos á
vegum ferðaskrifstofunnar Út-
sýn.
„Ég held að viðbrögð fólks við
sprengingunum hafi verið næsta
lítil þar sem ég var enda varð
maður ekki fyrir neinum óþæg-
indum vegna þeirra."
„Fararstjórarnir sögðu hópn-
um frá þeim stöðum sem varast
skyldi, því að Baskarnir voru
alltaf búnir að tilkynna hvar
yrði sprengt næst.“
'in. Engrar hræðslu gætir hjá
þess eins og ástandið er núna.“
Þórir Magnússon.