Morgunblaðið - 01.09.1979, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1979
/
Agæt karfa-
veiði að
undanfömu
GÓÐ karfaveiði hefur verið hjá
togurunum suður af landinu und-
anfarið og t.d. komu togararnir
Bjarni Benediktsson, Ogri og
Vigri með mikinn afla til Reykja-
víkur í vikunni. Bjarni var með
um 300 lestir af ufsa eða karfa
eftir vikutima og eftir helgina er
Snorri Sturluson væntanlegur
með góðan afla.
Að sögn Marteins Jónassonar
hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur
hafa togararnir fengið ágætan
karfaafla um 80 mílur suðvestur
af Reykjanesi á karfamiðum, sem
kölluð eru Fjöll. Aðspurður um
hvernig það kæmi út fyrir útgerð-
ina að vera á karfaveiðunum sagði
Marteinn að þegar stutt væri að
sækja eins og núna, vel aflaðist og
skipin brenndu svartolíu mætti
vel hugsa séð að hægt væri að gera
út á þetta eins og Marteinn orðaði
það.
Hann sagði að svartolíu-
brennsla væri orðið lykilatriði í
þessu sambandi og einnig að þetta
dæmi hefði orðið allt öðru vísi ef
ekki hefði komið til 30% verðupp-
bót á karfa og 25% á ufsa. Um
vinnsluna sagði Marteinn að reynt
væri að vinna eins mikið og
mögulegt væri fyrir Bandaríkja-
markað og ef mismikið væri að
gera í frystihúsunum hjálpuðust
menn að. Alltaf væri þó eitthvað,
sem væri unnið fyrir Rússlands-
markað, en síðar í þessum mánuði
hefjast samningaumleitanir við
Sovétmenn um viðbotarsamninga
á karfa héðan.
♦ »-*---
Margeir
fimmti í
London
LOKIÐ er í London Lloyds Bank
Masters skákmótinu. Keppendur
voru 70 frá 22 löndum, þar af 3
stórmeistarar og 11 alþjóðlegir
meistarar. Meðal keppenda voru
tveir ísiendingar. Margeir Péturs-
son og Leifur Jósteinsson.
Úrslit urðu þau að í 1.—3. sæti
urðu Westerinen, Finnlandi, Haik,
Frakklandi og Chandler, Nýja-
Sjálandi með 7 vinninga en Chandler
hlaut flest stig og telst því sigurveg-
ari. Jansson, Svíþjóð varð fjórði með
6'/2 vinning en Margeir Pétursson
hlaut 6 vinninga ásamt átta öðrum
skákmönnum, en tefldar voru 9
umferðir. Leifur Jósteinsson hlaut 3
vinninga.
Margeir var í hópi efstu manna
allt mótið en í síðustu umferðinni
tefldi hann við Chandler með svörtu
og tapaði. Margeir heldur beint til
Manchester, þar sem hann mun tefla
á sterku skákmóti.
Þeir Jón Samúelsson og Hans Tómasson hafa fengið ágætan
sfldarafla í lagnet á Eyjafirði undanfarna daga. beir J>ekkja vel til
þessa veiðiskapar frá sínum yngri árum í Færeyjum. A myndinni er
það Hans, sem landar sfldinni við smábátabryggjuna á Akureyri í
gær. (Ljósm. Svcrrir Pálsson).
Stór og f alleg
haf síld inni á
fjördum nyrdra
STÓR OG FALLEG sfld hefur undanfarna daga veiðst í Eyjafirði,
Vopnafirði og víðar fyrir Norðurlandi hefur sést vaðandi sfld. Að
sögn Jakobs Jakobssonar fiskifræðings hefur undanfarin ár orðið
vart við sumargotssfld fyrir Norðurlandi á þessum árstíma og í
auknum mæli eftir því sem þessi stofn hefur stækkað. Sfldin hrygnir
fyrir sunnan land í júní og fram í júlí, en heldur síðan norður fyrir
land í ætisleit.
Að sögn Jakobs var mest um
stóra kynþroska síld að ræða í
fyrra og það sem hann hefði séð og
frétt af í ár væri svipuð síld.
Aðspurður sagði Jakob að sjávar-
útvegsráðuneytið hefði ekki amast
við því þó menn væru e.t.v. með
1—2 net og veiddu síld í beitu, en
menn vildu þó vita hverjir reyndu
þennan veiðiskap.
— Það er eins og menn voni
alltaf þegar þeir sjá síldina, að nú
sé síldin að koma frá Noregi, en
svo er nú ekki enn þá, því miður,
sagði Jakob Jakobsson.
Fréttaritari Morgunblaðsins á
Vopnafirði tjáði blaðinu í gær, að
síðustu fjóra daga hefði veiðst
nokkuð af síld. Þannig hefði Guð-
borgin, sem er 10 tonna trilla,
komið með 6 tunnur í gær og 6
tunnur í fyrradag, en aflinn fékkst
í reknet inni í miðjum firði
skammt frá hólmunum. Annar
bátur hefði fengið smávegis og
fleiri ætluðu að reyna fyrir sér um
helgina. Síldin væri væn og góð til
frystingar í beitu.
Tíðindamaður blaðsins á Akur-
eyri sendir eftirfarandi frétt í gær:
Akureyrl 31. ágúst.
Falleg hafsíld hefur veiðst á
Eyjafirði undanfarna daga og
eru stærstu síldarnar allt að 40
sentimetrar á lengd. Síldin virð-
ist vera dreifð um mestallan
fjörðinn. Hún hefur verið veidd í
lagnet og hafa trillur frá Dalvík,
Hjalteyri, Grenivík, Akureyri og
e.t.v. fleiri stöðum stundað þenn-
an veiðiskap með munnlegu leyfi
sjávarútvegsráðuneytisins.
Nokkuð er misjafnt hve mikið
veiðist. Suma daga fá menn lítið
sem ekkert, en aðra daga allt að
12 tunnum í 10 net eða sem því
svarar. Meirihluti síldarinnar er
seldur til K. Jónsson og co, en
nokkuð er fryst til beitu og sumt
fer beint til neyzlu. Hafsíldar
hefur orðið vart á Eyjafirði
undanfarin ár, en aldrei virzt
vera meira en nú. í hvert skipti
hefur síldin aðeins stoppað stutt
við, 2—3 vikur.
- Sv.P.
Erfidleikar í rekstri Skálatúns:
„Daggjöldin duga ekki fyr-
ir laun um, hvað þá fyr-
ir vistum og nauðsynjum”
„DAGGJÖLDIN hafa ekki fengist
hækkuð frá því f marsmánuði. Á
sama tfma hafa hins vegar allir
kostnaðarliðir hækkað og nú er svo
komið að daggjöldin duga ekki
fyrir kaupi fólksins, hvað þá fyrir
vistum og nauðsynjum", sagði
Gunnar bormar, einn af forráða-
mönnum Skálatúnsheimilisins f
Mosfellssveit, f samtali við
Morgunblaðið í gær.
Gunnar sagði að rekstur
heimilisins, en á því eru 57 vist-
menn, hefði gengið með eðlilegum
hætti fyrstu þrjá mánuði ársins og
nam launakostnaður þá 69w af
tekjum. En eðlilegt er talið að sá
kostnaður nemi 65— 70%, að sögn
Gunnars. Á tímabilinu frá fyrsta
apríl til fyrsta júlí jókst launa-
kostnaðurinn í 91% og launa-
kostnaðurinn í júlí var 114% og í
ágúst 107% miðað við tekjur.
Gunnar sagði að frá því í byrjun
apríl hefðu safnast saman lausa-
skuldir að upphæð rúmlega 20
milljónir og sagði hann að orðið
hefði að taka vistir og nauðsynjar út
á krít þessa mánúði. Þá er fyrir-
sjáanlegt að laun munu hækka um
9.17% frá og með fyrsta sepiember
og fyrirsjáanlegt er neyðarástand í
rekstri heimilisins á næstu vikum.
„Það sem virðist vald a þessu er
þessi tofstreita innan ríkisstjórnar-
innar, fjármálaráðherra hefur ekki
viljað hækka þetta á meðan ekki
hefur verið bent á leiðir til fjáröfl-
unar, skilst manni,“ sagði Gunnar
Þormar.
„Við erum búnir að snúa okkur til
allra þeirra aðila sem hafa með
þessi mál að gera og ekki fengið
neina lausn og ekker t loforð. Við
vitum því ekki til þess hvort vænta
megi úrlausnar en þetta er um það
bil að keyra slg fast,“ sagði Gunnar
Þorm;-,r.
„Vafasöm ráðstöf-
un og verður bænd-
um til stórtjóns”
segir formaður Stéttarsambands bænda um
frestun ríkisstjórnarinnar á búvöruhækkun
„BÆNDUR eru mjög óhressir
yfir þessari frestun rfkisstjórnar-
innar. Að okkar dómi er þetta
ákaflega vaíasöm ráðstöfun og á
eftir að verða bændum til stór-
tjóns vegna þess að þetta gefur
fólki færi á þvf að hamstra
búvörur," sagði Gunnar
Guðbjartsson, formaður Stéttar-
sambands bænda, er blaðið leit-
aði álits hans á þeirri ákvörðun
rfkisstjórnarinnar að fresta
ákvörðun um hækkun á naut-
gripaafurðum til 15. september
n.k.
Gunnar sagði að lögum sam-
kvæmt ætti nýtt mjólkurverð að
taka gildi 1. september ár hvert.
Stundum hefði orðið dráttur á því
að nýja verðið tæki gildi strax um
mánaðamótin, ef staðið hefði á
samningum um verðið innan sex-
mannanefndar en Gunnar tók
fram að ekki hefði staðið á því
núna. Nýja mjólkurverðið hefði
getað tekið gildi að minnsta kosti
á mánudaginn, ef ríkisstjórnin
hefði samþykkt það. Gunnar sagði
að tap bænda vegna þessarar
ákvörðunar ríkisstjórnarinnar
væri ómetanlegt en hann vildi
ekkert segja um, hvort bændur
gripu til einhverra sérstakra ráð-
stafana af þessu tilefni en um það
yrði rætt á aðalfundi Stéttarsam-
bandsins í Stykkishólmi um helg-
ina.
„Mér finnst alveg fráleitt að
grípa til aðgerða sem þessara nú,“
sagði Gunnar, „því að það hefur
ekki verið gripið til hliðstæðra
ráðstafana til dæmis þegar kaup
flugmanna hækkaði gífurlega
mikið í vetur né heldur þegar
aðrar kauphækkanir hafa orðið í
vetur. Mér finnst alveg fráleitt að
beita þessu gagnvart bændum.
Þessi hækkun búvara saman-
stendur að öðrum þræði af launa-
hækkunum, sem orðið hafa í þjóð-
félaginu. Þá er þarna um að ræða
hækkanir á innkaupsverði
rekstrarvara, sem stafa að mikl-
um hluta af gengissigi og að hluta
af erlendum verðhækkunum eins
og á olíunni. Þessar hækkanir eru
því að stærstum hluta hækkanir,
sem bændur geta engin áhrif haft
á.“
Aðalfundur Stétt-
arsambands
bænda um helgina
STÉTTARSAMBAND bænda held-
ur um helgina aðalfund sinn f
Stykkishólmi. Hefst fundurinn í
dag, laugardag, með því að Gunnar
Guðbjartsson, formaður Stéttar-
sambandsins. flytur skýrslu sína og
að henni lokinni ávarpar
Steingrímur Hermannsson land-
búnaðarráðherra fundinn.
Aðalmál fundarins verður fram-
leiðslustjórn og markaðsmál og mun
fundurinn m.a. fjalla um hvaða
heimildir nýsettrar reglugerðar um
leiðir til að hafa stjórn á búvöru-
framleiðslunni, verða notaðar við
þær aðstæður, sem nú eru uppi í
landbúnaðinum. Þá verður á fundin-
um kosið í stjórn sambandsins en
fundinum á að ljúka á sunnudags-
kvöld.
VSI boðar verk-
bann á grafiska
semjendum þeirra atvinnufyrir-
tækja, sem eiga í kjaradeilu við
SAMBANDSSTJÓRN
Vinnuveitendasambands
íslands kom saman til
fundar í gærmorgun og
fjallaði um beiðni Félags
íslenzka prentiðnaðarins
um að tafarlaust yrði boð-
að til verkbannsaðgerða
gagnvart Grafiska sveina-
félaginu, sem boðað hefur
bann á vakta- og yfirvinnu
frá og með helginni. í
samræmi við ályktun fé-
lagsfundar Félags
íslenzka prentiðnaðarins
gerði sambandsstjórnar-
fundur VSÍ eftirfarandi
samþykkt:
„Sambandsstjórn Vinnuveit-
endasambands íslands samþykkir
að boða verkbann gagnvart Graf-
iska sveinafélaginu frá kl. 24.00
sunnudaginn 9. september 1979.
Jafnframt samþykkir sam-
bandsstjórnin að heimila fram-
kvæmdastjórn að boða samúðar-
verkbann gagnvart öðrum við-
Skipstjórinn á Hval 9.
Grafiska sveinafélagið, ef það á
síðari stigum verður, að fengnu
áliti samninganefndar, talið
nauðsynlegt til þess að treysta
hagsmuni aðildarfyrirtækjanna.“
r '
Ihuga
gerðardóms-
tillögu
SÁTTAFUNDUR milli samn- I
inganefnda Félags íslenzka
prentiðnaðarins og Grafiska
sveinafélagsins var haldinn í
gær og stóð í um klukkustund.
Á fundinum lögðu vinnuveitend-
ur fram tillögu um að deilan
yrði leyst með gerðardómi.
Samninganefnd Grafiska
sveinafélagsins íhugar nú þessa
tillögu og eru samninganefndirn-
ar boðaðar til nýs fundar í dag
klukkan 18.
Grafiska sveinafélagið hefur
boðað vakta- og yfirvinnubann,
sem taka á gildi um helgina.
um ásökun Greenpeace:
„LoftriffiU er
ekki til um borð”
„ÞETTA ER bara brandari frá okkar
sjónarmiði séð og alveg út f bláinn,"
sagði Ingólfur Þórðarson skipstjóri á
Hval 9. þegar hlaðamaður Morgun-
biaðsins bar undir hann frásögn
Greenpeace-manna á Rainbow
Warrior f Morgunblaðinu f gær. En
þar héldu þeir því fram að miðað hefði
verið á þá úr loftriffli frá Hval 9. fyrir
■'ol k’-um dögum. Greenpeace-menn
sögðu að gúmbátar þeirra hefðu verið á
ferð nálægt hvalskipinu, þegar þeir
hefðu komið auga á að verið væri að
miða á þá með loftriffli. Skipstjórinn á
hvalskipinu hefði komið þjótandi að
hásetanum, sem var með loftriffilinn
og þrifið hann af honum.
Ingólfur sagði að slíkur atburður
hefði aldrei átt sér stað og loftriffili
væri ekki t.il um bo-ð