Morgunblaðið - 01.09.1979, Page 27

Morgunblaðið - 01.09.1979, Page 27
Hemjum skattana — lækkum útcpiöldin 2 6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1979 m ‘m *• V > JH , V' ySíl.,. ■'pB 'o-Q. wBk Wf M JD ■ % M’ 1 mm - 6 Á síðustu árum hafa nýir skattar og gjöld verið lagðir á, oft skattur á skatt ofan, til þess að fjármagna aukin umsvif hins opinbera í atvinnulífinu. Þessi aukna skattheimta hefur aðal- lega örðið með óbeinum skött- um, sem hefur verið leið stjórnmálamanna til að fela vaxandi skattheimtu fyrir al- menningi, sem ber byrðina í lægri ráðstöfunartekjum, lægri launum eða hærra vöruverði. Til marks um þessa auknu skattheimtu má geta þess, að á árinu 1950 námu skatttekjur hins opinbera, ríkis og sveitar- félaga, rúmlega 25% af vergum þjóðartekjum (þ.e. vergri þjóð- arframleiðslu á markaðsvirði að frádregnum óbeinum sköttum en að viðbættum framleiðslu- styrkjum). Síðan þá hefur skatt- heimtan stóraukizt. Á árinu 1960 var hlutfallið rúmlega 34%, 1970 var það litlu hærra eða um 36%, en á síðustu árum hefur það numið 42—44% af vergum þjóðartekjum. Þessi aukna skattheimta hef- ur orðið bæði vegna hækkunar skatta og vegna nýrra skatta, sem oft hefur verið komið á í nokkrum fljótheitum. Þrátt fyrir þykkar skýrslur um sam- ræmt og skynsamlegt skattkerfi og yfirlýstan vilja ráðamanna í því efni, er núverandi skatta- kerfi sem heild á margan hátt verulega gallað og þarfnast end- urskipulagningar frá grunni. Skattlagning tekna af at- vinnurekstri hérlendis fylgir ekki þeim sjónarmiðum, sem eðlilegt er að leggja slíkri skatt- lagningu til grundvallar. Verzl- unarráðið telur því nauðsynlegt að ítreka grundvallarsjónarmið varðandi réttláta skattlagningu tekna af atvinnurekstri: 1. Skattlagning tekna af at- vinnurekstri má ekki draga úr arðsamri fjárfestingu og hagvexti. 2. Atvinnuvegunum og rekstr- arformum fyrirtækja má ekki mismuna í skattlagn- ingu. 3. Skattar þurfa að vera al- mennir og hlutlausir og mega ekki skekkja atvinnustarf- semi þjóðfélagsins frá því fyrirkomulagi, sem frjálst markaðshagkerfi ákveður. 4. Verðrýrnun peninga veldur ekki tekjuaukningu og er því ekki tilefni skattlagningar. 5. Af sama skattstofni á að greiða sama skatt og ekki oftar en einu sinni. 6. Draga þarf úr kostnaði skatt- greiðenda við framtöl og skattgreiðslur. Gildandi skattalög eru í mik- ilsverðum atriðum í andstöðu við þessi sjónarmið og telur Verzlunarráðið því rétt að setja fram hugmyndir um nýtt skatt- kerfi í samræmi við þau. Jafn- framt verður að stöðva þá gífur- legu skattheimtu, sem nú á sér stað og stefna að því að lækka hlutdeild opinberrar skatt- heimtu niður í 33% af vergum þjóðartekjum á næstu þremur árum. Hvernig það má verða, er rætt í kafla VII um Opinber fjármál og stjórn efnahagsmála. Hér er hins vegar dregin upp mynd af því skattkerfi, sem afla ætti tekna til æskilegrar starf- semi hins opinbera. Þeir skattar og gjöld sem ætlað er að afla þessara tekna eru fimm: Tekjuskattur, gjald af nýtingu auðlinda, virðisauka- skattur, fasteignaskattur og gjald af sölu áfengis og tóbaks. Aðrir skattar mundu hins vegar falla niður í áföngum. Skal nú lýst þessum fimm sköttum. Tekjuskattur. Tekjur af at- vinnurekstri á að skattleggja einu sinni og eins og aðrar sambærilegar tekjur annað- hvort hjá fyrirtækinu eða við- takanda, og með sama hætti, hvert svo sem rekstrarform at- vinnurekstrarins er. Skatthlut- fall félaga á að vera hið sama og hjá einstaklingum. Áður en skattskyldur hagnaður er fund- inn, ætti að ráðstafa 40% hagnaðar í fjárfestingarsjóð til varðveizlu og til fjárfestingar innan 10 ára. Þessi fjárfesting- arsjóður kemur í stað núverandi varasjóðs og framlaga til fjar-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.