Morgunblaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 22
Hemjum skattana — lækkum útgjöldin MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1979 2 1 Á sl. vetri samþykkti Verzlunarráö íslands sérstaka stefnuyfirlýsingu í efna- hags- og atvinnumálum. Mikil vinna lá aö baki þessari stefnuyfirlýsingu og voru fyrstu drög hennar lögö fram á fundi stjórnar Verzlunarráös íslands í september 1977. ÞaÖ var sjö manna nefnd faliö aö fullvinna þessi drög en í henni áttu sæti: Víglundur Þorsteinsson, formaöur, Brynjólfur Bjarnason, Friörik Pálsson, Höröur Sigurgestsson, Jóhann J. Ólafsson, Oddur C.S. Thorarensen og Óskar Jó- hannsson. Árni Árnason, núverandi fram- kvæmdastjóri Verzlunarráösins vann meö nefndinni. Nú eru efnahagsmál í brennidepli á ný eftir nokkurt hlé yfir sumarmánuöina. Ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir þinga um nýjar ráöstafanir í efnahagsmálum, veröbólgan fer vaxandi og er taliö aö hún muni nema 50—55% frá ársbyrjun til ársloka eöa meiri en nokkru sinni fyrr. Morgunblaöiö birtir hér í heild stefnu Verzlunarráös íslands í efnahags- og atvinnumálum, sem framlag til þeirra umræöna, sem fara mun fram um efna- hagsmálin á næstu vikum og mánuöum. Verzlunarráö ís- lands er samtök fyrirtækja viöskiptalífsins. Stefna þess mót- ast af hagsmunum atvinnulífsins í heild og Þá jafn- framt hagsmunum pjóöarinnar allrar. Stefna Verzlun- arráösins er sú aö efla skilyröi fyrir frjálst framtak ein- staklinga og sam- taka Þeirra í at- vinnulífinu, stuöla aö frjálsum og heiöarlegum viö- skiptaháttum og frjálsu markaös- hagkerfi sem grundvallarskipu- lagi efnahagslífs- ins. Hér á eftir er pessi stefna út- færö í sjö köflum, sem hver um sig fjallar um tiltekiö sviö efnahags- og atvinnumála. Þar kemur fram nánari rökstuöningur og útskýringar á eftir- farandi sjö stefnu- atriöum Aö frjálst markaðshagkerfí og jafnrétti milli fyrirtækja og atvinnuvega verði grundvallarskipulag efnahagslífsins og nauðsynleg sameiginleg útgjöld veröi aölöguö Því hagskipulagi. Að ráöiö veröi niöurlögum verðbólgunnar meö markvissri efnahags stefnu og sá árangur síöan varöveittur til frambúðar. 3 4 5 6 7 Aö verðmyndun veröi gefin frjáls og samkeppni örvuö til aö lækka verölag og auka hagkvæmni atvinnulífsins. Aö gildi frjáls sparnaður í págu aröbærs reksturs- og fjárfestinga veröi endurvakiö með frjálsri ákvörðun vaxta og bættum skilyröum atvinnurekstrar til arögreiöslna, pannig aö arösemi veröi helzta leiöarljós í fjárfestingum og atvinnurekstri. Aö fríverzlun veröi óskoruö stefnan í utanríkisviðskiptum og frjáls gjaldeyrisviðskipti veröi innleidd samhliöa afnámi aöflutningsgjalda og upptöku auðlindaskatts til nýtingar á fiskimiöunum. Aö tekiö veröi upp nýtt skattkerfi, par sem sköttum er fækkaö og skattheimtan takmörkuö viö priöjung pjóöartekna. Aö opinber útgjöld og umsvif veröi takmörkuö og endurskipulögð samhliöa alhliða endurbótum á hagstjórn og fjármálum hins opinbera.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.