Morgunblaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1979 IKtffgmiÞIftfeifr Útgefandi hf. Árvakur, Raykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinaaon. Ritatjórar Matthíaa Johanneaaen, Styrmir Gunnarsaon. Ritstjórnarfulitrúi Þorbjörn Guömundsaon. Fróttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýaingastjóri Baldvin Jónsson Ritstjórn og skrifstofur Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla Sími 83033 Áskriftargjald 3500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 180 kr. eintakiö. Á ársaf mæli ríkisstjórnar Idag er ár liðið, síðan ríkisstjórnin settist að völdum. Ýmsir bundu við hana miklar vonir, enda var hún mynduð um það kosningaloforð að samningarnir tækju gildi, þótt Steingrímur Hermannsson viðurkenndi, að það magnaði efnahagsvandann og gerði hann raunar lítt viðráðanlegan. Þó var Ólafur Jóhannesson bjartsýnn, þegar hann settist í stól forsætisráðherra og talaði um, að nýir vendir sópuðu best, enda vænti hann þess, að ráðherrarnir myndu bæta reynsluleysi sitt upp með nýjum hugmyndum. Að fenginni reynslu geta flestir íslendingar undir það tekið, að ríkisstjórnin hafi sýnt á sér nýjar hliðar, sem við höfum ekki átt að venjast áður. Þannig hafði fæðingarhríð- unum naumast slotað, þegar bryddaði upp á ágreiningi um hin aðskiljanlegustu mál. Og æ síðan hefur það verið svo, að hið eðlilega ástand stjórnarsamstarfsins er það, að einn ráðherrann jagist við annan, en á meðan eru málin látin danka. Lúðvík Jósepsson hefur með réttu verið kallaður guðfaðir ríkisstjórnarinnar. Hann skýrði aðild Alþýðubandalagsins að henni með því, að lausn hefði fengizt á efnahagsvandan- um og á málefnum launþega. Og að vísu er það rétt, að með margvíslegum millifærslum og með því að spila á vísitöluna tókst um skeið að láta líta svo út, sem ríkisstjórnin hefði raunverulega náð árangri í baráttunni við verðbólguna, en þó haldið kaupmættinum uppi. Þannig hrósuðu ráðherrar Alþýðubandalagsins sér af því um hríð, að verðbólgan væri komin niður í 22%. Allt reyndust þetta þó blekkingar einar og þannig til orðnar, að óhjákvæmilegum hækkunum á vörum og þjónustu var slegið á frest með hallarekstri bæði hjá fyrirtækjum og opinberum aðilum. Til lengdar gat slík stefna ekki staðizt, enda fór svo, að hækkanirnar komu fram með tvöföldum þunga, þegar stíflan loksins brast, og nú er verðbólguhraðinn orðinn meiri en nokkru sinni fyrr. Ýmsir forystumenn launþegahreyfingarinnar og þó sérstaklega Verkamannasambands Islands bera höfuð- ábyrgðina á því, að ríkisstjórnin var mynduð. Með það í huga er auðskiljanlegt, hversu aðgerðarlítil verkalýðs- hreyfingin hefur verið frá því í fyrra bæði með því að söðla algjörlega um í launakröfum og láta það þó gott heita, þótt hvað eftir annað hafi verið gengið á gerða samninga. Þannig hélt Verkamannasambandið að sér höndum, þótt þaklyftingin hefði þau áhrif, að einungis hækkun flug- mannslauna næmi hærri fjárhæð en öll mánaðarlaun verkamanns. Alþýðusamband íslands sagði ekki orð, þótt verkfall sjómanna væri brotið á bak aftur með tilstyrk Vinnuveitendasambandsins og settur á þá gerðardómur með bráðabirgðalögum. Um síðustu mánaðamót hækkuðu laun ráðherra um 118 þús. kr., en verkamanns um 18 þús. kr. Þannig hefur launamunurinn sífellt orðið meiri, eftir að þessi ríkisstjórn settist að völdum, gagnstætt því sem lofað var í upphafi. Þá er það ein afleiðing stjórnarstefnunnar, að atvinnu- reksturinn á stöðugt erfiðar uppdráttar. Þetta hefur þegar haft þær afleiðingar, að kaupmátturinn hefur skerst mjög verulega á síðustu mánuðum, umfram það sem ella hefði orðið, og ástandið framundan er sannarlega ekki bjart. Þannig má búast við atvinnuleysi, þegar kemur fram á vetur, og engar horfur eru á því, að afrakstur þjóðarbúsins aukist. Þvert á móti stefnir þar í halla með enn frekari skerðingu lífskjara og vaxandi erfiðleikum hjá atvinnu- rekstrinum. Eins og áður segir bundu ýmsir miklar vonir við ríkisstjórnina í upphafi. Að liðnu einu ári hafa þær allar brostið. Sem heild hefur ríkisstjórnin reynst léleg og slöpp, og enginn af ráðherrunum stendur upp úr. Af efnahagsráð- stöfunum sl. vor, sem áttu að duga til langframa, er nú ekkert eftir og vinstri flokkarnir horfa með hryllingi fram til afgreiðslu fjárlaga, sem þeir sjá enga leið út úr. Boðaðar eru nýjar skattahækkanir og enn frekari skerðing kjara- samninga, en engin viðleitni uppi höfð til þess að skapa atvinnuvegunum eðlilegan rekstrargrundvöll. Að öllu venjulegu myndi slík ríkisstjórn grípa tækifærið í dag og segja af sér. Það yrði kærkomin gjöf til íslenzku þjóðarinnar á þessum afmælisdegi. Birgir fsl. Gunnarsson: Sagan um ráðningu £ kvæmdastjóra Æskulj Þessa viku hafa borgarbúar verið vitni að þeim illindum og deilum, sem ríkja meðal vinstri flokkanna í borgarstjórn. Að þessu sinni komst upp á yfir- borðið það, sem stöðugt kraumar undir niðri. Hrossakaupin og óheillindin eru einkenni þessa samstarfs, þó að reynt sé að hafa allt slétt og fellt á yfirborðinu. Þegar rifa kemst á huluna, sem reynt er að breiða yfir sam- starfið, fá borgarbúar tækifæri til að sjá, hvernig kraumar í pottinum. Framkvæmda- stjóri Æskulýðsráðs Það sem opinberaði ágreining- inn að þessu sinni var ráðning framkvæmdastjóra Æskulýðs- ráðs. Þrír umsækjendur voru um stöðuna: Ómar Einarsson, sem starfað hefur sem fulltrúi hjá Æskulýðsráði um árabil og unnið sér mjög gott orð sem ötull og samvizkusamur starfs- maður. Tveir aðrir umsækjendur sóttu um, sem ekki hafa starfað á vegum borgarinnar áður, þ.e. Hilmar Jónsson frá Keflavík og Gylfi Kristinsson, sem starfað hefur í ungliðasamtökum Fram- sóknarflokksins. í Æskulýðsráði hafði Ómar mjög eindreginn stuðning. Fimm fulltrúar í ráðinu greiddu honum atkvæði sitt, þ.e. fulltrúar Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og annar fulltrúi Alþýðubanda- lags. Hinn fulltrúi Alþýðubanda- lagsins sat hjá, en Framsóknar- fulltrúinn greiddi flokksbróður sínum atkvæði. Samstarfs- samningurinn Eftir slíkan stuðning hefði mátt ætla að málið væri í raun afgreitt og eftirleikurinn fyrir borgarráð væri auðveldur. í samstarfssamningi þeim, sem vinstri flokkarnir birtu borgar- búum í upphafi samstarfsins segir: „Ráðningar á nýju starfs- fólki skulu háðar samþykki viðkomandi ráöa og nefnda kjörinna fulltrúa, nema þeir aðilar ákveði annað“. Viðkomandi ráð í þessu til- viki var Æskulýðsráð. Það hafði tjáð sig mjög ákveðið með Ómari Einarssyni og vinstri mönnum í borgarráði bar hrein skylda til að fylgja þeirri samþykkt sam- kvæmt þeim samningi, sem þeir sjálfir höfðu gert með sér og hátíðlega birt borgarstjórn og borgarbúum. Ómar Einarsson. Æskulýðsráð hefur fengið hæfan og dugmikinn fram- kvæmdastjóra. Framsókn reis upp En þá sprakk blaðran. Fulltrúi Framsóknar harðneitaði og hótaði öllu illu. Vitnaði hann til þess, að þetta væri þriðja mikil- væga embættið, sem ráðið væri í hjá borginni í tíð hins nýja meirihluta. Alþýðuflokkurinn hefði fengið forstöðumann fjár- máladeildar (Björn Friðfinns- son), Alþýðubandalag hefði fengið skrifstofustjóra borgar- stjórnar (Gunnar Eydal) og nú væri röðin komin að Framsókn. Því hefði verið lofað í sérstökum leynisamningi í upphafi sam- starfsins, að flokkarnir skiptu embættum nokkurn veginn jafnt á milli sín og því ættu þeir nú ótvíræðan rétt á þessu embætti, hvað sem öllum opinberum sam- starfssamningum liði. Hótaði Kristján Benediktsson. Fulltrúi Framsóknar taldi að nú væri röðin komin af flokkn- um að fá feitt embætti hjá borginni fyrir flokksgæðing. A ROKSTOLUM ________HANNES_________ HÓLMSTEINN GISSURARSON: Ludwig Bertil Margrét Erhard Ohlin Thatcher í miklum umræðum síðustu tólf mánuði um kjarna stjórn- málakenninganna hafa nokkrar hjáróma raddir heyrzt um hism- ið. Ein slík heyrðist í Þjóðviljan- um 18. ágúst sl. vegna veru Davids Friedmans á landinu, en hann var málshefjandi á mál- þingi Félags frjálshyggjumanna um einstakling, markað og riki þann daginn. Sagt var í blaðinu, að faðir Davids, Milton Fried- man (nóbelsverðlaunahafi í hag- fræði 1976), hefði hjálpað ísraelsmönnum að koma verð- bólgunni upp í 100%, og þessu bætt við um feðgana: „Þeir geta vafalaust hjálpað okkur að bæta fyrri verðbólgumet og koma henni kannski upp í 200%, svo við sigrum Israelsmenn, eða jafnvel í 1000%, til að tryggja okkur sigur yfir Chile. Sértu velkominn, Friedman." Ég hrakti það í Mbl. 28. janúar 1978, að Milton Friedman hefði haft einhver afskipti af hag- stjórn herforingjanna í Chile, og í Mbl. 20. febrúar 1979, að hagstjórn í Israel væri í anda hagfræðikenningar hans. Að sögn Friedmans var einungis einu ráði hans fylgt í Israel, að skrá rétt gengi ísraelska gjald- miðilsins, en halda því ekki of háu. Ráði hana við verðbólgu var ekki fylgt í Israel, en það er einfalt: að takmarka aukningu peningamagns við aukningu þjóðarframleiðslu. Ríkisstjórn Israels hefur síðustu árin prent- að peningaseðla og aukið útlán banka umfram það, sem telja má hóflegt (en það er reyndar skilj- anlegt, því að ísraelsmenn heyja styrjöld við nágrannaþjóðir sínar, og þjóðir sleppa varla úr styrjöldum án verðbólgu). Van- þekking Þjóðviljamannsins (sem nefnir sig „eng.“) er dæmalaus. Hann þekkir ekki kenningu Friedmans um verðbólgu — að hún sé vegna aukningar pen- ingamagns umfram aukningu þjóðarframleiðslu — eða hag- stjórn í ísrael. Hvorki Milton né David Fried- man er spámaður íslenzkra frjálshyggjumanna, enda trúa frjálshyggjumenn engum einum spámanni eins og samhyggju- menn (sósíalistar) Karli Marx, þótt þeir reyni að læra af snjöllustu hagfræðingum sam- tíðarinnar. En Milton Friedman deilir þeirri stjórnmálakenningu með öðrum frjálshyggjumönn- um, að einstaklingsfrelsið sé frumgildi stjórnmálanna og að markaðskerfið sé nauðsynlegt skilyrði fyrir almennum mann- réttindum, og færir fyrir henni betri rök en margur annar. Hvers vegna gagnrýna Þjóð- viljamenn ekki rök hans í bók- inni Capitalism and Freedom?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.