Morgunblaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1979 vUP MORö-dtV' MrriNU (O^grr a • Í ;1 ft'f .r£,t ! 2 s @ pft í ^ fl ,7 í i ^ ÍI • ! ' *47íH4isfa Almennar kosningar —einfaldasta lausnin Flautaðu þá, einu sinni! Ég vil vekja athygli yðar á því að þetta er ekki almennings baðströnd! BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Sé litið á allar hendurnar í spilinu hér að neðan virðast þrjú grönd, spiluð í suður, auðveldur samningur. En varnarspilararn- ir voru klókir og gerðu það, sem þeir gátu. Suður gaf, allir utan hættu. Norður S. G72 H. Á86 T. ÁK1093 L. K9 Vestur Austur S. K986 S. 43 H. D42 H. G975 T. G4 T. D872 L- 7653 Suður L- ÁD1° S. ÁD105 H. K103 T. 65 L. G842 Suður hafði sagt frá spaðalit sínum og þess vegna spilaði vestur út laufsjöu en hann og félagi hans notuðu þá ágætu reglu að spila út hæsta frá iágum spilum. Austur fékk fyrsta slaginn á drottningu og hann sá strax, að sjöið var ekki fjórða hæsta og því tilgangslaust að spila laufum strax aftur. Og varla var spaðinn líklegri til arangurs úr því suður hafði sagt þann Iit og ennfremur var ljóst, að sagnhafi gat búið til fjóra slagi á tígul og því nauðsyn- legt, að vörnin byggi sér til slagi sem fyrst. Þannig varð hjartað að gefa vörninni slagina og austur fann og spilaði eina spilinu, sem gerði sagnhafa erfitt fyrir. Hann spilaði hjartaníu. Suður lét tíuna og drottningin kostaði ásinn og þá spilaði sagnhafi laufkóng. Aftur var austur í vanda. Tæki hann á ásinn ynni suður spilið auðveld- lega með þremur slögum á spaða og tveim á hvern hinna litanna. Og ekki gat austur spilað aftur hjarta því þá yrði áttan í blindum óumflýjanlega slagur. Austur gaf því laufkónginn og þá spilaði sagnhafi spaða og tók á ásinn því ekki mátti svína og gefa vörninni færi á að fría hjartað of snemma. Næsta slag fékk austur á laufásinn og þar með var spilið í höfn. Austur gat ekki spilað hjarta fremur en áður, spilaði því tígli og sagnhafi hafði tíma til að ná þeim spaðaslögum, sem nauð- synlegir voru. COSPER 61» COSPER Staðan á reikningi yðar hér í bankanum segir okkur að þér getið fengið allt að 50000 króna víxil til eins mánaðar! Enn þá einu sinni er hin títt1 nefnda Bernhöftstorfa komin til umræðu og í sviðsljósið hjá al- menningi hér í borg. En þessi viðræða er nú af gefnu tilefni, vegna þeirrar friðunar er mennta- málaráðherra Ragnar Arnalds hefur nú fyrirskipað á þessu svæði og segist hann þar styðjast við rauða meirihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur, svo og við álit húsa- friðunarnefndar. 0, jæja, ekki er nú mikil reisn yfir þessari ráðstöf- un ráðherrans að vilja vernda og viðhalda þessum dönsku fúaspýt- um frá löngu liðnum tíma danska valdsins hér á landi. Ætla mætti að menntamálaráðherra kynni full skil þeirrar sögu og hefði ekki áhuga á að halda þeim minningum svo mjög á lofti. Nú er þannig í pottinn búið að ríkisstjórn og Alþingi hafa fullan ráðstöfunarrétt á þessari eignar- lóð sinni og ríkisstjórninni ber skylda til að framfylgja vilja Alþingis í þessum efnum. Alþingi ákvað fyrir meira en tveim tugum ára að á þessari torfulóð skyldu staðsettar skrifstofur stjórnaráðs- ins og allar götur síðan hefur viss upphæð á fjárlögum verið ætluð til þeirrar byggingar. Og vitanlega ber að framfylgja þeirri ákvörðun Alþingis undanbragðalaust. Fyrrverandi menntamálaráð- herra, Vilhjálmur Hjálmarsson, sagðist á sínum tíma, er hans álits var leitað varðandi þessi bygg- ingarmál, ekki hafa áhuga á nýsmíði fornminja. En einfaldasta lausnin og sú er tvímælalaust ber Lausnargjald í Persíu Eftir Evelyn Anthony Jóhanna Kristjónsdóttir sneri á íslenzku 59 ist mér að koma í samkvæmið í kvöld? James hikaði andartak. — Já, sagði hann, gerið svo vel. Kynnið yður fyrir mér og ég skal fylgja yður til hr. Fields. Hann heyrði manninn muidra þökk fyrir og sfðan var hann horfinn úr sfmanum. Um það leyti sem hann var tiibúinn að taka á móti gestum sínum hafði hann látið sér detta í hug ótal skýringar sem lægju til grundvallar þessu kynlega kaili og jafnóðum hafði honum fundizt hver og ein fráleit. Hann óskaði af öliu hjarta að það hefði ekkert komið upp á sem gæti leitt til þess að einhver tengsl yrðu við Sýrlendingana. Sýrlendingarnir voru litnir hornauga f Teheran og ieyniiög- reglan hafði haft vakandi auga á sendiráðinu um langa hrfð þar sem grunur lék á að þar væri skipulögð hvers kyns iðja sem kæmi í bága við hagsmuni ríkisins. Hann furðaði sig á því þegar vinnufólkið tjáði honum að Logan væri ekki kominn heim ennþá. Skýring sú sem kom fyrst f huga honum var að hann hefði farið að ná í Janet og myndi koma með hana f sam- kvæmið. Þessi tiihugsun hleypti í hann illu blóði. Hann vissi að hann yrði að taka á öllu sem hann ætti til f skapstillingu og mannasiðum, ef hann ætti að geta rólegur horft á hana fara inn á starfssvið Eileen. Þegar bíll Logans ók upp að dyrunum tuttugu mfnútum áður en veizl- an skyldi hefjast, fór hann beint að borðinu og hellti sér í glas f stað þess að ganga út og taka á móti þeim. Þegar hann Icit um öxl var Janet Arm- strong að ganga í áttina til hans. Hún var smekkleg og giæsileg að vanda, ópersónuleg f fasi og hann sá að hún bar dýrindis skart sem hann bjóst við að Logan hefði nýverið skenkt henni. — Ég óska til hamingju, sagði hún. — Þctta lítur undur- samlega út, finnst þér ekki, Logan. Yður ferst þetta sannar- lega vel úr hendi án þess að hafa eiginkonu yðar til hjálpar. James leit á hana hrifningar- laust. — Hvað má bjóða ykkur að drekka? — Viskí, var svarið. — Viskí og mikinn fs. Janet krækti höndinni undir arm Logans og hallaði sér að honum. — Það sama fyrir mig. James gaf þjóninum bend- ingu og hann kom með bakka. Þögn var yfir þeim. James gerði enga tilraun til þess að halda uppi samræðum. Til fjár- ans með alla kurteisi. Hann hafði megnustu andúð á þessum kvenmanni og hann foragtaði Logan innilega fyrir að halda sambandi 7eirra svona á lofti. Annað hvort var Logan sama um þessa þögn eða hann var annars hugar. Janet horfði framan í James og brosti við. Hún vissi að honum Ifkaöi ekki við hana. en hún vissi ekki af hvaða rótum það var runnið, enda kærði hún sig kollótta. Hún vissi að hann var feikna- snjall maður og Logan hafði geysimikið álit á honum, en hann var langt frá að vera hennar manngerð. Hann var alltof fágaður í framkomu. Hún hafði ekkert á móti því að karlmaður væri dálftið grófur. Hún þrýsti sér að Logan og sleppti honum svo. Þau höfðu elskast áður en þau komu í samkvæmið og henni fannst hún vera honum mjög nákomin. En hvað kvöldið er yndislegt, sagði hún. — Ég er viss um að veizlan tekst firnavel. Logan ætlaðist án efa til þess af henni að hún stæði sig og það hugðist hún sannarlega gera og bjóst ekki við að þurfa að hafa mikið fyrir því. Hún gekk yfir a£ borðinu, þar sem snittur voru á bökkum. James færði sig nær Logan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.