Morgunblaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 23
Hempum skattana — lækkum útqjöldin 2 2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAQUR 1. SEPTEMBER 1979 Markaðshagkerfið og hlutverk hins opinbera í í veraldarsögunni þekkjast í grundvallaratriðum einungis tvær leiðir til að samhæfa efnahagslega starfsemi margra manna. Onnur leiðin er alræðishyggjan — mið- stýring á grundvelli þvingana og valdboðs. Hin leiðin er frjáls- hyggjan — frjáls viðskipti ein- staklinga á markaðir Samhæfing efnahagsstarfsem- innar á grundvelli frjálsra við- skipta byggist á því, að báðir aðilar hagnist á viðskiptunum, taki þátt í þeim af fúsum og frjálsum vilja og þekki þá val- kosti, sem standa til boða. Við- skipti, sem er beggja hagur, geta þannig komizt á án valdboðs og þvingana. Slíkt hagskipulag kall- ast frjálst markaðshagkerfi. Bæði efnahagslega og lýðræðis- lega hefur frjálsa markaðshag- kerfið skýra yfirburði yfir hag- kerfi alræðishyggjunnar. Frjáls markaðshagkerfi, er hluti af al- mennum mannréttindum. Það hagnýtir frumkvæði, hugkvæmni og atorku einstaklingsins, lætur hann njóta eigin verka og bera jafnframt ábyrgð gerða sinna. Það beinir atorku manna til þeirra verka, sem þeir vinna bezt, fjár- magni landsmanna til þeirra framkvæmda, sem gefa mestan arð og færir neytendum þá vöru og þjónustu, sem þeir vilja helzt. Markaðshagkerfið samrýmist bezt atvinnustarfsemi einstaklinga óskum þjóðarheildarinnar, án þess að skerða rétt þeirra til að ráða eigin málum. I markaðshagkerfinu nást efna- hagsleg markmið betur en í öðrum hagkerfum. Það eykur efnalega velferð þjóðfélagsins, heldur framboði í hámarki og verði í lágmarki, skapar ákjósanlegustu skilyrðin fyrir öran hagvöxt og nýtir bezt takmarkaða fram- leiðslugetu þjóðfélagsins. Mark- aðshagkerfið er því bezt fallið til að uppfylla óskir manna um betri lífskjör, efnalegt sjálfstæði og frelsi til að ráða eigin málum. Þótt æskilegast sé, að efnahags- starfsemin grundvallist á frjáls- um markaðsbúskap með sem minnstum opinberum afskiptum, hefur hið opinbera að sjálfsögðu miklu hlutverki að gegna í at- vinnulífinu: Sem löggjafi og framkvæmda- vald þarf hið opinbera að styrkja og vernda frjálsa atvinnuhætti, vernda eignarrétt og örva sam- keppni, en hindra einokun. Sem hagstjórnaraðili þarf hið opinbera að sjá atvinnulífinu fyrir traustum gjaldmiðli, stuðla að hagkvæmri nýtingu sameiginlegra auðlinda, jafnvægi í efnahagslíf- inu og góðri nýtingu framleiðslu- getu, og örva þar með hagvöxt. Sem samstarfsvettvangur íbú- anna í leit að réttlátara þjóðfélagi ætti hið opinbera að jafna tæki- færi manna til menntunar, at- vinnu, heilbrigðisþjónustu og tryggrar afkomu. Það ætti þó að gerast í samræmi við frjálsan markaðsbúskap og án óeðlilegrar takmörkunar á frelsi einstaklings- ins til að ráða eigin málum. Á liðnum árum hefur hið opin- bera, samhliða aukinni skatt- heimtu og auknum almennum útgjöldum, aukið umsvif sín á margvíslegum atvinnurekstri, þar sem enga nauðsyn ber til. Æskilegast væri því, að opinber þjónusta, t.d. á sviði heilbrigðis- mála, tryggingamála og mennta- mála yrði fjármögnuð og skipu- lögð þannig, að einkaaðilar gætu veitt þjónustu á þessu sviði til jafns við opinbera aðila. Einnig er æskilegt, að opinberar fram- kvæmdir, fjárfestingar og þjón- usta verði boðnar út, eins og frekast er kostur, meðal einkaað- ila. Til þessa hafa opinber fyrirtæki búið við margs konar forréttindi. Má þar nefna undanþágur frá skattskyldu til ríkis og sveitarfé- laga, greiðan aðgang að lánsfé, ónógar arðsemiskröfur miðað við stofnkostnað og einokun á mark- aði. Hér þarf að verða breyting á, svo að allur atvinnurekstur búi við sömu starfsskilyrði og skyldur. Verðbólga 2 Stöðugt verðlag er heilbrigðu atvinnulífi, sem skila á fullum afköstum og batnandi lífskjörum, grundvallarnauðsyn. Á þessu sviði hefur hið opinbera hins vegar brugðizt skyldum sínum og ekki séð efnahagslífinu fyrir traustum gjaldmiðli, sem heldur verðgildi sínu. Síðan 1938 — í yfir 40 ár — höfum við íslendingar lifað sam- fellt verðbólguskeið, sem sett hef- ur mark sitt á þjóðlíf sem og atvinnulíf með margvíslegum hætti. Það sem eitt sinn voru fornar dyggðir svo sem sparsemi, fyrirhyggja og ráðdeild falla fyrir verðbólgunni, sem grefur undan siðferðilegum styrk þjóðarinnar og siðgæði í meðferð fjármuna. Efnahagslífið í heild hefur illi- lega orðið fyrir barðinu á verð- bólgunni. Uppsprettur láns- og áhættufjár til atvinnuvega og einstaklinga hafa nær þornað upp. Arðbærum fjárfestingum hefur fækkað að sama skapi og óarðbær- um fjárfestingum hefur fjölgað með þeim afleiðingum, að fjárfest- ing landsmanna hefur ekki skilað þeim hagvexti, er til stóð. Vegna þess má telja, að lífskjör séu hér um þriðjungi lakari, en annars hefði verið. Verðbólgan er atvinnulífinu sérstakur bölvaldur. Hún hefur rænt atvinnuvegina rekstrarfé sínu og leitt til stór- felldrar ofsköttunar hjá atvinnu- vegunum vegna vanmetinna fyrn- inga og vörunotkunar, sem leiðir til ofmats á hagnaði og þar með hærri tekjuskatts- og arðgreiðslna en væri í stöðugu verðlagi. Verð- bólgan hefur veikt svo atvinnulífið í landinu, að atvinnumöguleikum á næstu árum er stórfelld hætta búin. Á undanförnum árum hefur verðbólgan verið versti óvinur allra í senn: Einstaklinga, at- vinnuvega, efnahagslífsins og þess þjóðskipulags, sem við viljum viðhalda. Hún hefur leitt til átaka milli launþega og atvinnurekenda, milli stjórnvalda og fólksins í landinu og milli atvinnugreina og þjóðfélagshópa. Þessi átök gætu um síðir eytt íslenzku þjóðfélagi. Verðbólguna verður að stöðva, áður en það gerist. Til þess að vinna bug á verð- bólgunni þarf sterka ríkisstjórn, sem beitir samræmdri efnahags- stefnu markvisst í þeim tilgangi. Liðir í slíkri efnahagsstefnu væru eftirfarandi aðgerðir: Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðar- ins þarf að endurreisa og starf- rækja í samræmi við upphaflegan tilgang sinn. Bankakerfið og gjaldeyrisvara- sjóð þarf að byggja upp með frjálsum vöxtum og gengisskrán- ingu. Fjárfestingarstyrki og aðra styrki til atvinnuveganna ætti síðan að afnema. Hlutverki og starfsemi Seðla- bankans þarf að breyta. Koma þarf í veg fyrir, að ríkissjóður safni skuldum við Seðlabankann og bankanum þarf að gera kleift að stýra aukningu peningamagns í umferð og uppbyggingu nauðsyn- legs gjaldeyrisforða með raun- verulegri bindiskyldu, verðbréfa- viðskiptum og vaxtaákvörðunum af eigin lánum. Opinber útgjöld og skatt- heimtun þarf að draga saman og mynda verulegan greiðsluafgang hjá ríki- og sveitarfélögum. Vísitölubindingu launa þarf að afnema og samræma kaupmátt launa greiðslugetu atvinnuveg- anna. Verðmyndun á vöru og þjónustu þarf að gefa frjálsa samhliða örvun samkeppni og ströngu að- haldi með samkeppnishamlandi viðskiptaháttum. Áhrifum verðbólgunnar á skatt- lagningu atvinnurekstrar verður að eyða og láta vörunotkun og fyrningar fylgja verðlagi, um leið og fjárfesting yrði örvuð í vélum og tækjum, sem auka framleiðni og framleiðslu í atvinnuiífinu. Þegar sigrazt hefur verið á verðbólgunni, þarf að varðveita árangurinn með markvissri beit- ingu verðjöfnunarsjóðs fiskiðnað- arins og sjá til þess, að laun, peningamagn í umferð og skatt- heimtu og útgjöld hins opinbera aukist ekki meira en seni nemur um 5% á ári. Við slíkar aðstæður má viðhalda stöðugu verðlagi, fullri atvinnu og örum hagvexti, sem er forsenda batnandi lífs- kjara. 4.000.000 3.500.000 3.000.000 2.500.000 2.000.000 1.500.000 1.0CC.000 500.000 1960 1965 1970 1975 1980 1 HEÐAL KV 1 TEKJUR HEI ÆHTRA KARL 1962-1977 MILA A 3.478.0 10 Á VEP BLAGI / ÁRS 19 IIIS J 77 / ■ Á VERÐL AGI 2.070.000 | HVERS r árs STÐAí; 196? HAFA MESALTEKJUR M HÆKKAÐ TXL JAFNAÐAR 'J.M 24,41 M ÁRLEGA. SAMA ÁRANGlfl ÁL VLRD- t BÖLGU KEFÐI 3,5% ÁRLEG HÆKKL':. § SKILAÐ. 131.000 Verzlunanráí Islands L 4.000.000 3.500.000 3.000.000 2.500.000 2.000.000 1.500.000 1.000.000 500.000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.