Morgunblaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1979 Bullandi verð- bólga fyrsta árið VERÐBÓLGUHÆKKUNIN á fyrsta starfsári ríkis- stjórnarinnar er miðað við nóvember til nóvember áætl- uð um 50%. Sé hins vegar tekið tillit til þróunar verð- lagsmála frá maí til nóvemb- er eða í 6 mánuði er hækkun- in 60,3% miðað við heilt ár. Miðað við sama tfma f fyrra var verðbólgustigið á sama tfma þá miðað við heilt ár 39,2%. Þess ber að gæta að við- miðunin milli þessara tveggja tímabila er talsvert misvísandi, þar sem ríkis- stjórnin jók mjög niður- greiðslur síðari hluta árs í fyrra, sem hún hefur síðan aftur dregið úr á fyrri hluta þessa árs. Þá má geta þess að í fréttatilkynningu Seðla- bankans er tilkynnt var um hækkaða vexti, er verðbólgu- stigið nú talið komið upp í 52,3%. Hafði það hækkað á þriggja mánaða tímabili um 10,5 prósentustig, þar eð það var í júníbyrjun 41,8%. Ár frá valdatöku vinstri stjórnar bl N Skattastefna ríkisstjórnarinnar: Skattbyrðin á fyrsta starfsári allt að 70% RÍKISSTJÓRNIN hefur á því ári, sem hún hefur setið við völd þyngt mjög skattaálögur og enn nú á ársafmæli stjórnarsamstarfsins eru stjórnarflokkarnir að ræða auknar álögur. Morgunblaðið hefur tekið saman nokkrar helztu skattaálögur, sem ríkisstjórnin hefur lagt á fólk þessa valdatíð sína og fer það yfirlit hér á eftir. Tekjuskattur: Ríkisstjórnin setti með bráðabirgðalögum nýtt skattþrep, þ.e. að af tekjum ein- staklings yfir 3.8 milljónum tæki ríkið helming teknanna eða 50%. Þetta tekjumark hjá hjónum er rétt rúmar 5 milljónir króna. Áætlaður tekjuauki ríkissjóðs af þessari breytingu, en hæsta skatt- þrep var áður 40%, var 1.850 milljónir króna. Tekjuskattur fé- laga og stofnana var einnig hækk- Gengisbreytingar eftir eins árs vinstri stjórn; Sterlingspund til ferðamanna hefur hækkaðum 863% HÆKKUN erlends gjald- eyris samkvæmt gjald- eyrisskráningu Seðla- banka íslands er gagn- vart Bandaríkjadollar á því ári, sem liðið er frá því er núverandi ríkis- stjórn tók við völdum orðið 44,5% og sé tekið tillit til skattlagningar stjórnarinnar á ferða- mannagjaldeyri, hefur gjaldeyrir til ferða- manna í dollurum hækk- að um 59%. Svo sem menn rekur minni til felldi ríkisstjórn- in gengi krónunnar hinn 6. september í fyrra eða tæpri viku eftir að hún tók við völdum. Sú gengisfell- ing var um 15% og hafði í för með sér hækkun dollar- ans um 17,7%. Síðan hefur verið stöðugt gengissig og er hækkunin nú orðin svo sem áður er getið 44,5%. Hækkun sterlingspunds er enn meiri en dollarans. Á þessu ári hefur sterlings- pund hækkað um 69,4% og ferðamannagjaldeyrir í pundum um 86,3%. Dönsk króna hefur hækkað um 52,9% og ferðamanna- gjaldeyrir í dönskum krón- um um 68,2%. Vestur-þýzk mörk hafa hækkað á þess- um sama tíma um 59,6% og ferðamannagjaldeyrir í mörkum um 75,5%. Þá hef- ur pesetinn hækkað um 62,6% og ferðamanna- gjaldeyrir í pesetum hefur hækkað um 78,9%. aður. Áður þurftu félög að greiða 53% af skattskyldum tekjum, en ríkisstjórnin hækkaði markið í 65%. Áætlaður tekjuauki rjkis- sjóðs vegna þessarar breytingar var 1.200 milljónir króna. Eignaskattar: Skatthlutfall einstaklinga var hækkað um 50%, úr 0,8% í 1,2% af eign og hjá félögum var skatthlutfallið hækk- að um 100%, úr 0,8% í 1,6%. Allar ofangreindar álögur voru og aft- urvirkar fyrir síðasta skattaár, þótt álagningu hafi verið að fullu lokið fyrir það ár. Eigin húsaleiga til tekjuskatts: Þegar framtalseyðublöð bárust skattgreiðendum eftir síðustu áramót, kom í ljós, að eigin húsaleiga hafði hækkað úr 1,1% í 1,5% af fasteignamati. Með því náði hækkun þess tekjuliðar milli ára 94%. Breytingar fyrningarreglna: Ríkisstjórnin felldi niður svokall- aða verðstuðulsfyrningu, sem átti að hafa í för með sér að afskriftir héldust nær raungildi hins af- skrifaða. Þá voru og reglur um flýtifyrningu. Lækkar hún úr 30% í 10% og hún má aldrei verða meiri en 2% á einu ári. Þessar breytingar hafa í för með sér hækkaða tekjuskatta á atvinnu- rekstur, sem nema 1.300 milljón- um króna vegna verðstuðuls fyrn- inganna, en um 1.060 milljónir króna vegna flýtifyrningarinnar. Aukning skattbyrði: Með þess- um breytingum hefur skattbyrði hækkað í allt að 70% á fólki, en var áður 56%. Skattur á skrifstofu- og verzl- unarhúsnæði: Ríkisstjórnin setti á nýjan skatt, sem ekki hafði verið áður við líði. Af verzlunar- og skrifstofuhúsnæði skyldi greiða 1,4% af fasteignamats- verði ásamt lóð og voru áætlaðar tekjur ríkissjóðs vegna þessa nýja skattstofns 550 milljónir króna. Þessi skattstofn var að nokkru umdeildur vegna þess, að sveitar- félög töldu, að með þessu væri farið inn á tekjustofnasvið þeirra, fasteignaskatta, sem ríkissjóður hefur ekki áður haft. Nýbyggingagjald: Ríkisstjórnin fann upp enn nýjan tekjustofn, en undanþegið honum var íbúðarhúsnæði og húsnæði ýmissa opinberra stofnana, svo sem skóla, sjúkrahúsa og barna- heimila. Hagstofu íslands var falið að reikna gjaldstofn og gefa út skrá um áætlaðan bygginga- kostnað. Skyldu menn greiða 2% til ríkisins við upphaf fram- kvæmda. Gjaldstofninn var í verzlunarhúsnæði 40 þúsund krónur fyrir hvern rúmmetra, fyrir iðnaðarhúsnæði 20 þúsund krónur fyrir hvern rúmmetra, fyrir fjós 16 þúsund krónur fyrir hvern rúmmetra, fyrir hesthús, svínahús eða alifuglahús 15 þús- und krónur á hvern rúmmetra o.s.frv. Áætlaðar tekjur ríkissjóðs af þessum nýja tekjustofni voru 300 milljónir króna. Vörugjald: Þegar ríkisstjórnin tók við var vörugjald á ýmsar vörur 16%. I september ákvað hún að hækka vörugjaldið á all- margar vörutegundir í 30%, en aðrar sátu eftir í 16%. Síðar var lægra markið hækkað í 18%. Verðhöfnunargjald á raforku: Þegar ríkisstjórnin tók við hafði verðjöfnunargjald á raforku til styrktar fjárhag Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða um skeið verið 13%. Ríkisstjórnin hækkaði verðjöfnunargjaldið um 6 prósentustig í 19%. Áætluð tekjuaukning vegna þessarar hækkunar var 700 milljónir króna. 10% gengisskattur ferða- manna: Þegar er ríkisstjórnin tók við og felldi gengi krónunnar um 15%, sem hafði í för með sér hækkun gjaldeyris í Seðlabanka- skráningunni, sem nam rúmlega 17%, setti hún 10% skatt á ferðamannagjaldeyri. Þessi breyt- ing olli hækkun gjaldeyris fyrir íslendinga, sem ferðuðust til út- landa strax í upphafi stjórnar- samstarfsins, sem nam um 29% á farðamannagj aldeyri. Flugvallarskattur: Ríkis- stjórnin hækkaði fyrir tæplega ári svokallaðan flugvallarskatt úr 3.000 krónum fyrir fullorðna í 5.500 krónur eða um 83,3%. Flug- vallarskattur fyrir börn hækkaði hins vegar úr 1.500 krónum í 2.800 krónur eða um 86,6%. Vísitöluskerðing á fyrsta ári vinstri stiómar 10,5% VÍSITÖLUSKERÐING launa á valdatíma núverandi ríkisstjórnar er orðin 10,5%. á láglaun eða laun þessu tfmabili hefur verið 37,96%, en hækkun framfærsluvísitölu hefur verið á sama tímabili 52. mánuðina, eða frá því er lög rfkisstjórnarinnar um aðgerðir f efnahagsmálum tóku gildi er, 6,6%. tímabili hækkað um 27,62%, en hin nýja vfsitala laga ríkisstjórnarinnar um 19,24%. Á þeim tíma frá því er ríkis- stjórnin tók við fyrir réttu ári hafa laun hækkað vegna verð- bótaákvæða þannig: 1. septem- ber 1978 um 0%, 1. desember um 6,12%, 1. marz 1979 um 6,90%, 1. júní um 11,40% og nú 1. septem- ber um 9,17%. Hækkun launa er því á þessu tímabili 37,96%. Framfærsluvísitala á þessu tímabili, frá ágústmánuði 1978 til jafnlengdar í ár hefur hækk- að um 41,97%, en sú viðmiðun er eigi alls kostar rétt, þar sem vísitalan var færð niður í febrú- ar. Sé tekið tillit til þeirrar niðurfærslu fæst rétt mat á hækkun F-vísitölunnar og er hækkunin þá 52,5%. Skerðing launa er því á þessu verðlagsári um 10,5%. Þess ber að geta að þessi skerðing er að nokkru leyti vegna búvörufrádráttar og vegna frádráttar vegna hækkun- ar á tóbaki og áfengi. Einnig koma inn skerðingarákvæði laga ríkisstjórnarinnar, olíustyrks- frádráttur og frádráttur vegna rýrnunar viðskiptakjara. Hinn síðastnefndi liður er þó enn ekki að fullu kominn inn í áðurnefnd- ar tölur, en mun ná fullum áhrifum á því tímabili sem fyrir höndum er fram til 1. desember. Sé aðeins tekið það tímabil, sem lög ríkisstjórnarinnar, er samþykkt voru í þinglok í vor, hafa gilt, þá settu lögin F-vísi- töluna i febrúar, sem var 1.292 stig á 100. Þessi gamla vísitala var í ágústmánuði komin í 1.649 stig. Hækkunin er 27.63%, en verðbótavísitalan hefur á sama tíma hækkað um 19,24%. Þar hafa því laun verið skert um 6,6% með tveimur vísitöluút- reikningum á tímabilinu frá febrúar til ágúst. Þar af eru vegna búvörufrádráttar 1,6%, vegna olíustyrksfrádráttar 1,3% og vegna áfengis og tóbaks-frá- alls þorra íólks. Hækkun launa á ,5%. Vísitöluskerðingin síðustu 6 Framlærsluvísitala hefur á þessu dráttar 0,8%. Samanlagt gerir þetta 3,7% og er skerðing vegna viðskiptakjara rýrnunar því 2,9%. Hún hefur enn ekki fylli- lega komið til framkvæmda gagnvart láglaunum eins og áður er vikið að, þar sem verðbóta- vísitala láglauna var við síðasta útreikning 121,62 stig. Því er skerðingin á láglaun enn ekki nema 4,3% en nær fullu gildi 6,6% fyrir 1. desember. Þessi skerðing verður því á hálfu ári, og verður síðan enn meiri við næsta útreikning verðbótavísi- tölunnar, sem taka á gildi 1. desember.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.