Morgunblaðið - 01.09.1979, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1979
11
Glæsíleg sýning
í Norræna húsinu hafa frá
fyrstu tíð verið haldnar allmarg-
ar grafíksýningar bæði innlend-
ar og erlendar og er ekki að efa,
að það hafi orðið innlendri graf-
ík-mennt mikil lyftistöng. Er-
lendir listamenn hafa ósjaldan
kynnt grafískar greinar, er hér
voru óþekktar, og þ. á m. ýmsar
nýjungar, er rutt hafa sér til
rúms á undanförnum árum.
Grafík sem handverk er allt
annað á vorum dögum er fyrir
hálfri öld t.d., og hvað þá ef farið
er aftur í tímann til daga Goya,
Rembrandts og annarra slíkra
höfuðsnillinga. Nútíma tækni
hefur umbylt grafíkinni bæði
hvað útfærslu og þrykkingu
áhrærir. En um leið hafa ýmsir
þættir gamla handverksins verið
endurreistir, þótt vinnslan kunni
ýmsum tilvikum að fara fram á
annan og auðveldari hátt.
Ljósmyndavélin og þrykk-
tæknin hafa haft ómælt að segja
við umbyltingu tæknisviðsins, og
þær mörgu aðferðir, er henni
tengjast, og þá bæði til góðs og
ills, — hún hefur t.d. rutt fjölda
miðlungsmanna braut inn í raðir
hinna þekktari grafíklistamanna
og um leið gert hæfileikameiri
listamönnum, er halda tryggð
við hin sígildu vinnubrögð, erfið-
ara fyrir um verðskuldaða viður-
Myndllst
eitir BRAGA
ÁSGEIRSSON
kenningu. Þá gerir nútímatækn-
in það mögulegt að þrykkja
grafík-myndir í stórum, já
næsta ótakmörkuðum upplögum,
svo að helst minnir á endur-
prentunartæknina, enda eru
skilin hér á tíðum harla lítil, ef
þá nokkur.
— Allt eru þetta nauðsynleg-
ar upplýsingar varðandi sýningu
á nútíma finnskri grafík, er var
opnuð í kjallarasölum N. hússins
sl. laugardag og stendur til 9.
september. I langflestum tilvik-
um er nefnilega um hin sígildari
vinnubrögð að ræða á þessari
sýningu, upplag mynda tak-
markað, og gerir þetta hana
þeim mun merkilegri á þessum
síðustu tímum. Það má segja, að
hér séu samankomnar allar hin-
ar sígildu grafísku aðferðir þó að
xylografíu undanskilinni, jafn-
vel „mezzotinta", sem er með
erfiðustu og tímafrekustu grein-
um grafískra aðferða og verður
því vafalítið aldrei vinsæl meðal
iðkenda grafískra lista. Freist-
ingin við að láta sýrurnar vinna
fyrir sig með ívafi ljósmynda-
tækninnar er alltof mikil og
almenn, og þó eru þar einungis
örfáir sannir meistarar.
— Sýningin í Norræna húsinu
er vafalítið fágaðasta sýning
sinnar tegundar, er þar hefur
sést og verðskuldar, að henni sé
sérstakur gaumur gefinn, ekki
aðeins af almenningi heldur og
fjölmiðlum, og er þá sjónvarpið
hér áhrifaríkasti miðillinn. Ég
tel það tvímælalaust skyldu
sjónvarpsins að annast góða
kynningu á sýningunni, því að
slíkt hefur geysilega þýðingu
sem menntunaratriði um þessa
hluti.
Þessari sýningu hefur verið
mætt með furðulega tómlæti,
aðsókn og sala er t.d. í lágmarki.
Mætti líkja þessu við, að frábær
hljómlistarmaður fengi örfáa
gesti á tónleika sína.
Vegna þess að sýningin er í
svo háum gæðaflokki, væri alltof
langt mál að fara að telja her
upp nöfn sýnendanna, því að það
væri alltof löng of fræðileg
upptalning. Hér eru einnig svo
margir, sem eru unnendum þess-
arar listgreinar að góðu kunnir
og sýna frábær tæknibrögð að
venju, aðrir eru minna þekktir,
svo sem hin unga Elina Luukan-
en (f. 1941). Ég sá fyrst myndir
eftir hana á Biennalinum í Rost-
ock í sumar og hreifst mjög af
þeim, — þær eru frekar smáar
að stærð, en hafa yfir sér fágæt-
an þokka og eru sumar hreint
„brillant" í útfærslu. Get ég illa
skilið, að hverju slíkar myndir
eru ekki rifnar út, því að verði
þeirra er mjög stillt í hóf,
einkum ef miðað er við gæði.
Að sjálfsögðu eiga ýmir á
sýningunni jafngóðar myndir, en
þessar litlu, tæru og innilegu
myndir höfðuðu sérstaklega
sterkt til mín.
Ég læt hér staðar numið, en
vil hvetja fólk eindregið til að
sjá þessa sýningu, hún ætti
engan að svíkja, er ánægju hefur
af grafík og myndlist almennt.
Bragi Ásgeirsson.
Pentti Kaskipuro — Borð og stólar
Marjatta Nuoveva — Eyja og strönd
Já - nú ber vel í veiði fyrir alla sem vinna við og hafa áhuga á
sjávarútvegi og fiskvinnslu. - Á alþjóðlegu vörusýningunni er
sérstök sjávarútvegsdeild í 1000 fermetra hliðarkála við höllina.
Þar er að finna fjöldan allan af nýjungum í tækjabúnaði til veiða
og vinnslu - þar er 900 hestafla bátavél, 50 milljón króna
fiskleitartæki - tölvustýrðar vogir - færibönd og
handfæravindur - lyftarar - fiskikassar og umbúðir og
fleira og fleira
BERVELI
I
ALÞJÓÐLEG
VÖRUSÝNING
1979
SÝNINGIN SJÁLF
ER SÖGU RÍKARI