Morgunblaðið - 01.09.1979, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1979
Fimmtugur:
Ragnar S.
í dag 1. september verður Ragn-
ar S. Halldórsson, forstjóri
íslenzka Álfélagsins hf., fimmtug-
ur.
Ragnar réðist til ISAL í árs-
byrjun 1967 sem framkvæmda-
stjóri og vann við verksmiðju
Swiss Aluminium Ltd. í Austur-
ríki og við höfuðstöðvar þess í
Sviss á árunum 1967 og ’68 til að
kynna sér rekstur álvinnslufyrir-
tækja. Árið 1969 var Ragnar
ráðinn forstjóri íslenzka Álfélags-
ins h.f. Hann hefur sýnt frábæra
hæfni í starfi og er einn þeirra fáu
manna, sem er það gefið að geta
stjórnað stórfyrirtæki. Ragnar
vinnur langan vinnudag og lætur
verkefnin ekki hlaðast upp, en
afgreiðir í dag það sem öðrum er
hætt við að láta bíða til morguns.
Eins og góðum forstjóra sæmir er
hann snöggur að taka ákvarðanir.
Hann hefur góða samvinnu við
starfsmenn sína og er mjög vel
metinn af öllum starfsmönnum
fyrirtækisins fyrir fljóta úrlausn
þeirra vandamála, sem upp koma,
og fyrir drengskap sinn.
Áður en Ragnar réðist til
íslenzka Álfélagsins var hann
verkfræðingur hjá flugher Banda-
ríkjanna á Keflavíkurflugvelli ár-
in 1956—59, en þangað réðist hann
að afloknu prófi í byggingaverk-
fræði frá DTH í Kaupmannahöfn.
Yfirverkfræðingur var hann frá
1959 til 1961 og framkvæmdastjóri
verkfræðideildar sjóhers Banda-
ríkjanna á Keflavíkurflugvelli ár-
in 1961 til 1966. Á þeim tíma hafði
hann umsjón með viðhaldi og
endurnýjun mannvirkja flugvall-
arins og annarra bækistöðva
varnarliðsins hér á landi.
Á þessum árum fór hann nokkr-
um sinnum í stuttar námsdvalir í
Bandaríkjunum. Eftir að hann
varð forstjóri ISAL sótti hann
námskeið í stjórnun í Ziirich og
Fontainebleu.
Á Keflavíkurflugvelli var Ragn-
ar sem annars staðar vel metinn
og var í stjórn Islandsdeildar
Félags bandarískra herverkfræð-
inga frá 1959 til 1966 og þar af tvö
ár varaformaður. Ragnar var í
stjórn Bridgefélags Reykjavíkur
og formaður þess 1972—1973.
Ragnar er mikill sportmaður,
hann hefur farið til eggjatöku í
Látrabjargi, sem fáir munu leika
Oddfellow-
húsið
AÐ GEFNU tilefni hér í Morgun-
blaðinu, hefur blaðið verið beðið
að geta þess, að það var Þorleifur
Eyjólfsson húsameistari, sem á
sínum tíma teiknaði Oddfellow-
húsið við Vonarstræti. — Þór
Sandholt skólastjóri teiknaði
fimmtu hæð þess, sem jafnframt
er rishæð og var byggð mörgum
árum seinna. — Þá teiknaði Þór
einnig skyggni við suðurdyr Odd-
fpllnwhnQQÍnQ
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
\l (.LVSIN(, \
SÍMIW Elí:
22480
Halldórsson, forstjóri
19
Breytingar á botn-
vörpusvæðum vestra
eftir, og gengur léttilega upp á
Eiríksjökul eða Heklu, svo að ekki
sé talað um smáfjöll eins og Keili.
Sundmaður er Ragnar góður,
enda byrjaði hann snemma að
iðka það, og var eins gott að kunna
að synda, þegar hann var í Róðr-
arfélagi Reykjavíkur, en hann var
varaformaður þess frá 1950 til
1952.
Bridgespil og laxveiði eru upp-
áhaldssportgreinar Ragnars og
stundar hann þær af áhuga og
kappi eins og annað, sem hann
leggur gjörva hönd á.
Ragnar hefur haft mikinn
áhuga fyrir að kynna öðrum
stjórnun fyrirtækja, sem hann
hefur náð mikilli þekkingu í. Hann
hefur verið í stjórn Stjórnunarfé-
lags íslands frá 1970 og var
formaður þess frá 1975 til 1979.
Lagði hann sig fram, þar eins og
annars staðar, til að auka veg þess
félags, sem hefur sinnt hlutverki
sínu með ágætum.
Ragnar er fæddur í Reykjavík,
og eru foreldrar hans Halldór,
forstjóri og alþingismaður, Stef-
ánssonar prests að Desjarmýri í
Borgarfirði eystra og Halldóra
Sigfúsdóttir bónda á Hofströnd í
Borgarfirði eystra Gíslasonar.
Halldóri, föður Ragnars, kynntist
ég ekki en móður hans Halldóru
kynntist ég, þegar hún var í stjórn
og formaður kvenfélags Háteigs-
kirkju, en hún er mikil höfðings-
kona, og sækir Ragnar áreiðan-
lega marga af sínum góðu kostum
til hennar.
Auk þeirra félaga, sem áður eru
nefnd, hefur Ragnar verið í stjórn
Verkfræðingafélags íslands 1971
til 1973, í stjórn Vinnuveitenda-
sambands Islands og fram-
kvæmdastjórn frá 1973 og vara-
formaður Verzlunarráðs Islands
frá 1978, í stjórn Rafgeymaverk-
smiðjunnar Póla h.f. frá 1972 og
stjórnarformaður frá 1977.
Ragnar hefur því nú þegar
afkastað miklu dagsverki, þótt
stutt sé liðið af æfi hans, og er það
gæfa hverrar þjóðar að eiga mikil-
hæfa framkvæmdamenn sem
hann.
Ragnar er giftur sérstaklega
góðri og myndarlegri konu, Mar-
gréti Sigurðardóttur, stórkaup-
manns í Reykjavík Þorsteinsson-
ar, og konu hans Kristínar Hann-
esdóttur, bónda í Stóru-Sandvík
Magnússonar. Margrét er þéttur
bakhjarl manni sínum í hans
mikla starfi, og aldrei hefi ég hitt
hana nema glaða og hressa og hún
kann ráð við öllu.
Þau hjónin eiga tvo syni og tvær
dætur. Kristínu Völu, jarðfræð-
ing, Halldór Pál, verkfræðing,
Sigurð Ragnar og Margréti Dóru.
Við Margrét óskum þeim hjón-
um og börnum þeirra til hamingju
með afmælið, við óskum þeim
gæfu og gengis, farsælla og langra
lífdaga.
Fyrir hönd stjórnar íslenzka
Álfélagsins þakka ég Ragnari
fyrir hans vel unnin störf, dugnað
og drengskap.
Halldór H. Jónsson.
Á S.L. VORI voru á Al-
þingi samþykkt lög um
breytingu á lögum nr. 81
31. maí 1976, um veiðar í
fiskveiðilandhelgi íslands.
í breytingu þessari felst,
að bátum undir 20 metrum
er nú heimilt að stunda
veiðar með botnvörpu úti
fyrir Vestfjörðum á eftir-
greindum tímabilum og
svæðum:
1. Á tímabilinu frá 1. september
til 30. nóvember á svæði utan línu,
sem dregin er 4 mílur utan við
viðmiðunarlínu, og markast svæð-
ið af línum, sem dregnar eru
réttvísandi 315° frá 66°23’6N og
23°24’5V og réttvísandi 360° frá
66°31’7N og 23°01’v.
2. Á tímabilinú frá 1. október
til 30. nóvember á svæði utan línu,
sem dregin er 4 mílur utan við-
miðunarlínu, og markast svæðið
af línum, sem dregnar eru réttvís-
andi 300° frá punkti 65°51’5N og
24°13’0V og réttvísandi 300° frá
punkti 66°04’8N og 23°57’0V.
Við ákvörðun á lengd skips er
miðað við mestu lengd samkvæmt
mælingum Siglingamálastofnunar
ríkisins.
(Fréttatilkynning
trá Sjivarútvegsr.)
dief pepsi-cola
drykKurinn
Ein kaloría í heilli flösku af Pepsi!
Þetta eru góðar fréttir fyrir þá, sem þurfa aó gæta matar-
ræðis vegna aukakílóanna — jú og okkur hin líka.
Nú fáum við okkur sykurlaust DIET PEPSI
þegar okkur langar í, ein
kaloría er ekki neitt.
Haldið áfram að njóta lífsins með
sykurlausu DIET PEPSI,nýja drykkn-
um frá
SANITAS HF.