Morgunblaðið - 27.09.1979, Side 10

Morgunblaðið - 27.09.1979, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1979 Richard Björgvinsson bæjarfulltrúi skrifar um bæjarmál r 1 Kópavogi: Að áliðnum febrúar í vetur gerðist sá atburður í bæjarstjórn Kópavogs, eins og kunnugt er, að Helga Sigurjónsdóttir, bæjar- fulltrúi Alþýðubandalagsins sagði af sér úr bæjarstjórn. Með henni fór einnig 1. varamaður listans og fleiri varamenn aftar á listanum ásamt ýmsum, sem starfað höfðu í nefndum á vegum bæjarstjórnar. Samtals marseraði Helga út úr bæjarstjórn við fjórtánda mann. Er það eitt hið glæsilegasta brott- hlaup úr pólitík, sem gefið hefur að líta. Með þessum atburðum varð Ásmundur Ásmundsson einn af aðalfulltrúum Alþýðubandalags- ins í bæjarstjórn, en bæjarfull- trúinn hefur aldrei heiðrað bæjar- stjórn með nærveru sinni, aldrei ember s.l. og var þessum fyrir- spurnum svarað á bæjarstjórnarf- undi föstudaginn 14. þ.m. Heldur varð fátt um svör, bæj- arstjórinn sagði, að hér væru mannleg mistök á ferðinni, reynt hefði verið oft af honum o.fl., að leiðrétta þessi „mistök", en það hefði ekki tekist. Hinsvegar upp- lýsti hann, að nú yrðu greiðslurn- ar stöðvaðar við óbreyttar aðstæð- ur. Björn Ólafsson, oddviti þeirra Alþýðubandalagsmanna í bæjar- stjórn, sagði bæjarstjórninni, að hann hefði marg sinnis gengið í það að stöðva þessar launagreiðsl- ur, en það hefði bara ekki tekist, en nú yrði ekkert greitt 1. október til þessa bæjarfulltrúa. Mikill er framkvæmdavilji þeirra vinstri manna, þeir reyndu allt hvað þeir spyrjast fyrir um ástæður og fá fram umræður um málið. Þessi fyrirspurn kom líka fyrir á síðasta fundi bæjarstjórnar 14. þ.m. Upplýst var, að starfsmatið myndi brátt sjá dagsins ljós, kostnaður væri þegar orðinn um 9,1 millj. króna, eins og að framan er getið, en fer væntanlega í 10 millj. eða meir. Kostnaðurinn er að mestu leyti kaupgreiðslur til þeirra manna, er að þessu hafa unnið og var tveim þeirra greitt tímakaup, þ.e. sérfræðingnum og Ásmundi, en fulltrúi starfsfólks- ins er fastur starfsmaður bæjar- ins og höfðu laun hans þennan tíma, meðan á matinu stóð, verið talinn kostnaður við það, enda hafði hann ekki gegnt sínu venju- lega starfi, þessi þáttur var tæpar Nokkuðaf „afrekum,, vinstri meirihluta í Kópavogi EKKI er úr vegi að skýra lesend- um Mbl., sérstaklega Kópavogs- búum, nokkuð frá ýmsum „afrek- um“ vinstri meirihluta í Kópa- vogi, hvernig þeir t.d. verja almannafé í eigin þágu. Af nógu er að taka, en eg læt nægja í þetta sinn að nefna hér nokkur af nýjustu dæmunum. Ásmundar þáttur: Maður er nefndur Ásmundur Ásmundsson, formaður hernáms- andstæðinga og verkfræðingur með meiru. Hann skipaði 5. sæti á framboðslista Álþýðubanda- lagsins við síðustu bæjarstjórn- arkosningar í Kópavogi, en listinn kom þrem mönnum í bæjarstjórn eins og áður, Ásmundur var því annar varamaður listans. mætt á fundum hennar, og þess vegna hafa varafulltrúar mætt í hans stað. Síðan 1975 hefur sú regla gilt hjá bæjarstjórn Kópavogs varð- andi laun bæjarfulltrúa og bæj- arráðsmanna, að föst laun til þeirra falla niður eftir einn mán- uð, sé um lengri fjarvistir að ræða af öðrum ástæðum en veikindum. Hinsvegar fékk Ásmundur Ásmundsson greidd full laun bæj- arfulltrúa á tímabilinu mars til ágúst á þessu ári, án þess að láta sjá sig í bæjarstjórn í eitt einasta skipti. Til þess að fá úr því skorið hvernig á þessu stæði, lagði ég fram fyrirspurn um þett o.fl., sem síðar verður að vikið, til bæjar- stjóra á fundi bæjarráðs 11. sept- orkuðu í 6 mánuði, en það tókst bara ekki betur en svona. Skyldi hugur hafa fylgt máli í þetta sinn? Hér er ekki um stórar upphæðir að ræða, launin þessa 5 mánuði, sem greidd voru fram yfir regl- una, námu um 234 þúsund krón- um. Dýr myndi Hafliði allur eða Ásmundur: Á miðjum vetri ákvað bæjarráð Kópavogs, að láta gera svonefnt starfsmat á störfum starfsfólks bæjarins. Var og er hugmyndin, að af þessu mætti hafa stuðning við röðun starfsfólks í laun- aflokka. Til þessa verks var ráðinn sérfræðingur á þessu sviði, sem áður hafði unnið að slíkum málum hjá öðrum bæjarfélögum. Ennfr- emur þótti sjálfsagt, að einn fulltrúi frá hvorum aðila, þ.e. starfsfolki og bæjarstjórn, ynnu að þessu líka með sérfræðingnum. Meirihluti bæjarráðs, þ.e. vinstri menn, tilnefndu til þessa verks af sinni hálfu, títt nefndan Ásmund Ásmundsson. Þegar ákvörðun um þetta starfsmat var tekin, ræddu þeir meirihlutamenn um, að kostnaður við það yrði sennilega um 5 millj. króna, og skyldi verkinu vera lokið í síðasta lagi í júní mánuði. Þegar ekkert sást til loka verks- ins í byrjun september og kost- naður við það hafði þegar farið fram úr 9 millj. króna, þótti mér rétt og meir en tími til kominn að 2,4 millj. króna, hlutur sérfræð- ingsins, sem lang mest hafði unnið, var um 4 millj. króna og hlutur Ásmundar var um 2,5 millj. króna. Hins vegar kom einnig annað og meira í ljós, er þetta mál var betur skoðað og er sá þáttur stórlega gagnrýnisverður. Bæjarfulltrúinn Ásmundur hafði metið þessa vinnu sína á verkfræðingataxta. Hann hafði áskilið sér og fengið greiddar S þús. kr. á tímann á tímabilinu marz til júní, en í júlí 7 þús. kr. á klukkustund. Það ein- kennilega var, að sérfræðingurinn krafðist mun lægri launa en Ásm- undur bæjarfulltrúi, sem aldrei mætir. Þegar ÁSmundur tók t.d. 6.000 kr. fékk sérfræðingurinn BOKASSA Jean Bedel Bokassa, sem flúinn er frá Miö-Afríku-keisararíkinu eftir stjórnarbyltingu er batt enda á 13 ára blóðugan valdaferil sem nánast geröi 2,3 milljónir íbúa landsins gjaldþrota, fæddist í fátœkt í frumskógi fyrir 58 árum. Hann náöi svo langt að eignast keisararíki, bronzhásæti, sem vó tvær lestir og gullkórónu meö 13 karata demöntum. Bokassa fékk þaö álit aö hann væri frönskumælandi Amin. Alvarlegasta ásökunin á hendur uppgjafa-keisaranum, sem lét sig eitt sinn dreyma um aö verða prestur, kom fram í maí þegar Amnesty International sagði að allt aö 200 skólanemendur hefóu veriö myrtir þegar þeir höföu efnt til mótmæla í janúar og apríl gegn kostnaói af skólaeinkennisbúningum. Búningarnir fengust aöeins í verzlun, sem ein af konum Bokassa átti aö nokkru leyti, og hver þeirra um sig kostaði sem svarar átta til níu þúsundum íslenzkra króna — eöa sem svaraói kennaralaunum. Liðþjálfin sem varð keisari og myrti börn Börnunum var smalaö saman eftir mótmælaaögeröirnar og þau voru flutt í Bangui-fangelsiö þar sem þau voru barin, pyntuö, kæfö og skotin til bana. „Þú færð að deyja.. Sjónarvottur sagði, aö keisarinn heföi veriö í fangelsinu þegar fjöldamorðin í apríl voru framin. Þegar níu ára gamalt barn hróp- aði: „Dauði yfir Bokassa" svaraöi Bokassa meö því aö hrópa: „Þaö ert þú sem færö aö deyja.“ Bo- kassa skaut barniö í höfuöiö. Síöan sneri hann sér aö ööru barni og sagöi: „Ég skal sýna þér hvaö viö gerum viö börn sem haga sér illa." Hann tók síöan upp göngu- staf sinn og boraði augun úr barninu. Bokassa neitaöi ásökunum um, aö hann heföi stjórnaö þessum fjöldamoröum. En Afríkuríki brugöu hart viö aldrei þessu vant og skipuöu nefnd lögfræöinga frá fimm löndum er lagöi fram sönn- unargögn um að hann heföi veriö viöriöinn moröin. Fjöldamoröin eru aðeins eitt af fjölmörgum málum sem vörpuöu skugga á feril Bokassa frá því hann hrifsaöi völdin fyrir 13 árum er hann haföi steypt af stóli frænda sínum David Dacko, sem haföi veriö forseti landsins síöan Frakk- ar veittu því sjálfstæöi 1960. Bo- kassa var þá lautinant-ofursti í hernum. Fyrst í staö leit út fyrir aö landið gæti haft gott af stjórn hans. Hann stofnaöi fyrsta háskóla landsins, furðufáir fangar sátu inni og trú- frelsi ríkti. Bokassa varö einnig fyrstur til aö skipa konu forsætis- ráöherra. Frakkavinur Frakkar höföu í fyrstu gaman af því samblandi ástar og haturs sem einkenndi samskipti Bokassa viö þá. Frakkar höföu tekið föður hans af lífi fyrir aö hafa samúö meö Þjóöverjum, en Bokassa var mikill aödáandi franskrar menningar og Napoieons og de Gaulles. Viö útför de Gaulles 1970 brast Bokassa í grát og hann fleygöi sér á gröfina og sagöi kjökrandi: „Papa, papa.“ Áriö 1976, fjórum árum eftir aö Bokassa tók sér keisaranafnbót, krýndi hann sjálfan sig viö krýning- arathöfn, sem var sniöin eftir hinni glæsilegu krýningu Napoleons I. Hann pantaöi krýningar-búning- ana frá sama fyrirtæki og geröi krýningarbúningana fyrir Napo- leon 1904. Stórum fúlgum var eytt til aö flytja inn gullvagna og aöra dýra muni til krýningarinnar. í anda hetju sinnar fyrirskipaði Bokassa Bokassa keisari: frönskumælandi Amin aö aliir sem kæmu nær honum en tvo metra yröu aö falla á kné. Frakkar hlógu þegar þeir sáu fyrir sér keisarann lágvaxna í loöskinnskirtli undir heitri Afríku- sólinni en þeir hættu aö hlæja þegar þeir fréttu, aö þeir yröu aö greiöa kostnaöinn. Krýningin kost- aöi 12 milljónir punda. Heildartekj- ur Miö-Afríku-keisararíkisins áriö á undan námu 14 milljónum punda. Barði þjófa Til þess aö draga úr glæpum í Bangui fyrirskipaði Bokassa 1972, aö annaö eyraö skyldi skoriö af þjófum fyrir fyrsta brot, bæöi eyrun fyrir annað brot, handleggur höggvinn af fyrir þriöja brot og að þeir yröu líflátnir fyrir þaö fjóröa. Hann stjórnaöi sjálfur árásum gegn meintum glæpamönnum og Ijósmyndir voru teknar af honum þegar hann baröi fanga. Hann haföi eftirlit meö því þegar 40 þjófar voru baröir meö bareflum og byssuskeftum. Þrír létust síöar. Bokassa bauö biaöamönnum aö fylgjast meö barsmíöunum. Þegar Kurt Waldheim, framkvæmdastjóri SÞ, mótmælti barsmíðunum kall- aöi Bokassa hann „hórumangara" og „nýlendusinna". Hann varö alræmdur 1970 fyrir ferö sem hann fór til Víetnams til aö leita óskilgetinnar dóttur, sem hann haföi ekki séö síöan hann var í franska hernum í Indókína. Hann tók meö sér til Bangui tvær stúlk- ur, sem héldu því fram aö þær væru dætur hans. Eftir fylgdu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.