Morgunblaðið - 27.09.1979, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 27.09.1979, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1979 19 Kristján Thorlacius, formaður BSRB: V axtasteína ríkisstjómarinii- ar leiðir til gjaldþrots heimila Jón Hjartarson skólameistari. Jón Ásbergsson formaður skóla- nefndar. Þorbjörn Árnason forseti bæjar- stjórnar Sauðárkróks. Ragnar Arnalds menntamálaráð- herra. NÝJASTA dæmið um skottulækningar stjórn- valda eru vaxtamálin, seg- ir Kristján Thorlacíus, formaður BSRB í rit- stjórnargrein nýs Ás- garðs, sem kominn er út, en þar ræðir hann um efnahagsmálin og segir að enn einu sinni hafi stjórn- völdum mistekizt að hafa hemil á verðbólgunni, og „ef að líkum lætur stefnir allt að því, að nýtt verð- bólgumet sé framundan.“ Morfíni stolið úr bátum BROTIST var inn í tvo báta í Vestmannaeyjahöfn í fyrrinótt. Voru lyfjakassar bátanna í báð- um tilvikum brotnir upp og mor- fini stolið. Bæði innbrotin voru óupplýst í gærkvöldi. í RÆÐU inni á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í fyrra- kvöld, sagði Benedikt Gröndal utanríkisráðherra m.a.: „Viðsjár eru enn miklar í Miðausturlönd- um og allt verður að reyna til að tryggja frið sem gerir öllum ríkjum á svæðinu kleift að lifa í friði og öryggi innan viður- kenndra landamæra. Palestínu- menn verða að fá sín réttmætu þjóðarréttindi.“ Benedikt Grön- dal var í gær spurður, við hvað hann ætti með þeim orðum, að Palestínumenn yrðu að fá sín réttmætu þjóðarréttindi. Benedikt sagði að þetta orðalag væri nákvæmlega það sem Norð- urlöndin hefðu orðið sammála um í sameiginlegum yfirlýsingum sín- um um nokkurt árabil. „Þetta er 9pið orðalag og þýðir ekki að íslendingar viðurkenni Frelsis- samtök Palestínu (PLO),“ sagði Benedikt, „en það er mismunandi hvaða orðalag menn nota yfir „ÞAÐ ER alveg óyggjandi að ég valdi þann umsækjandann sem meiri menntun hefur, þ.e. Hjálm- ar Árnason, sem aðeins vantar herzlumuninn til að ljúka há- skólanámi. Enda er hann aðeins settur í starfið, verður ekki skip- aður fyrr en hann hefur lokið sinu námi,“ sagði Ragnar Arn- alds menntamálaráðherra þegar hann var inntur eftir forsendum fyrir veitingu skólastjórastöðu við grunnskólann í Grindavik. „Bogi Hallgrímsson sem gegnt Um vaxtastefnu ríkisstjórnar- innar segir formaður BSRB: „Sú stefna að miða vexti við hækkun framfærsluvísitölu og byggingar- vísitölu, án hliðarráðstafana jafn- hliða til stöðvunar verðbólgunnar, hlýtur að leiða til gjaldþrots jafnt einstaklinga sem fyrirtækja innan örskamms tíma. Launafólk, sem skuldar vegna í KJÖLFAR ákvörðunar um nýtt lágmarksverð á síld til söltunar sneri Morgunblaðið sér til Gunn- ars Flóvenz framkvæmdastjóra Síldarútvegsnefndar og innti hann álits á þvi. — Gunnar sagði að Síldarútvegsnefnd hefði engin afskipti af verðlagningu fersk- síldar, enda hefði stofnunin þá sérstöðu fram yfir önnur sölu- samtök, að stjórn hennar væri skipuð bæði fulltrúum síldarsalt- enda, útvegsmanna og sjómanna. þetta. Sumir nota þjóðarréttindi eins og Norðurlöndin, þó að ekki sé til nein viðurkennd skýring á því hvað felst raunverulega í því.“ Benedikt Gröndal sagðist í þess- um hluta ræðu sinnar hafa viljað hafa tvær setningar. Aðra um að þjóðir á þessu svæði fengju að lifa í öryggi innan sinna landamæra. „Það er jú viðurkenning á ísrael og að þeir eigi rétt á öryggi og friði. Hins vegar vildi ég hafa þarna setningu um að Palestínu- menn eigi þarna réttindi. En hvernig eigi að fullnægja þeim réttindum er kjarninn í því vanda- máli, sem við er að stríða á þessum slóðum og enn liggur ekki fyrir nákvæm útlistun á því. Menn hafa dálítið mismunandi hug- myndir um þetta atriði en ætlun mín var að gera ekki meira en lýsa yfir mjög almennum vilja á því að réttur Palestínumanna yrði að minnsta kosti meiri heldur en hann er í dag.“ hefur starfinu síðastliðin þrjú ár er handavinnu- og leikfimikennari að mennt þannig að ég tók þann kostinn að veita Hjálmari stöðuna og fylgja minnihluta skólanefndar að málum," sagði ráðherra enn- fremur. Aðspurður hvort undirskrifta- listi 670 bæjarbúa um að Bogi yrði ráðinn í starfið hefði ekkert haft að segja sagði Ragnar að svo hefði ekki verið, enda teldi hann það frekar ósmekklegt að standa að undirskriftasöfnun áður en fyrir lá hverjir umsækjendur væru. íbúða, húsmuna, heimilistækja eða annars, stendur ekki undir 40% vöxtum, hvað þá enn hærri vaxtagreiðslum, sem við blasa, ef svo heldur fram sem horfir. Ríkisstjórnin sjálf leggur á nýja skatta til að greiða aukin vaxtaút- gjöld ríkissjóðs, stöðugt gengisfall bj argar útflutningsframleiðslunni Sagði Gunnar að það væri föst venja að fulltrúar þessara aðila tæku þátt i öllum meiriháttar samningagerðum um sölu á salt- aðri sild. Gunnar sagði að alls væri búið að semja um sölu á um 145 þúsund tunnum. Til þess að framleiða það magn þyrfti um 20 þúsund tonn af hráefni eða um helming þess sem búast má við að veiðist á vertíð- inni. Gunnar kvaðst ekki gera ráð fyrir því að neinir frekari fyrir- framsamningar verði gerðir á næstunni um sölu á saltaðri síld, enda væri nauðsynlegt að láta það strax koma fram hvaða verð unnt væri að fá fyrir 15—20 þúsund tonn af frystri síld. „Markaður fyrir frysta síld er margfalt stærri en fyrir saltaða síld,“ sagði Gunnar, „og þykir mér því furðulegt af Verðlagsráði að krefjast þess ár eftir ár að sala sé STJÓRN Félags síldarsalt- enda á Suðurlandi kom saman til fundar í gær í Reykjavík til að ræða nýja síldarverðið og hvort grundvöllur væri fyrir því að salta síld áfram miðað við nýja verðið. Ákvað stjórnin að boða til fundar með síldarsaltendum næst- komandi mánudag í Reykjavík og verður sá fundur á Hótel Sögu kl. 15. „Á þessum fundi verða tekin fyrir þessi mál og þá ákveðið hvort við verðum löghlýðnir borgarar hvað mikið sem barið er á okkur eða hvort við hreinlega leggjum til við okkar félaga að salta ekki við þessar aðstæður. í raun er það til þess eins að setja hvern á hausinn að salta miðað við þetta síldar- verð,“ sagði Jón Þ. Árnason síldar- saltandi í Þorlákshöfn í gær. Á laugardag verður aðalfundur Félags síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi haldinn á Höfn í Hornafirði og er gert ráð fyrir að þessi mál verði einnig til umræðu þar. Þær tvær síldarsöltunar- stöðvar á Höfn, sem fram að þessu hafa saltað á þessari vertíð, hafa ákveðið að salta þar til fundur síldarsaltenda hefur verið haldinn á mánudag. „Ég vil vekja athygli á því að það er búið að selja úr landi mikið af síld og það er trúlegt að það verði ekki trúverðugt út á við fyrir ísland ef þetta stenst ekki. Ég tel því víst að stjórnvöld muni gera í bili. En allur bagginn lendir að lokum á launafólki. Vafalaust er of mikil bjartsýni að búast við stöðvun verðbólgunn- ar á næstunni, hvað þá minnkun hennar. En stjórnvöld verða án tafar að snúa við blaðinu og breyta til í vaxtamálum áður en almennt gjaldþrot skellur yfir.“ fyrst tryggð á saltaðri síld og ákveða verðlagningu fersksíldar eingöngu út frá þeirri sölu, í stað þess að krefjast ítarlegra upplýs- inga um sölumöguleikana á báðum tegundum samtímis." Gunnar kvaðst í þessu sambandi vilja geta þess að Kanadamenn, aðalkeppi- nautar okkar á síldarmörkuðum, hefðu á síðasta ári fryst til út- flutnings um 76 þúsund tonn af aflanum á Atlantshafsströndinni, en aðeins tekið um 38 þúsund tonn til söltunar, og teldu kanadískir útflytjendur mun hagstæðara að frysta síldina en salta, enda væri söluverð þeirra á saltaðri síld að meðaltali meira en þriðjungi lægra en okkar söluverð. „Við bíðum nú með frekari sölutilraunir á saltsíld þar til ljóst verður með sölumöguleika á frystu síldinni," sagði Gunnar Flóvenz að lokum. saltendum kleift að koma þessu frá. En eins og þetta stefnir nú er yfir 2000 króna halli á hverri tunnu,“ sagði Unnsteinn Guð- mundsson hjá Söltunarstöðinni Stemmu á Höfn. Fram kom hjá Unnsteini að 10 til 12% hækkun væri á því verði, sem fengist fyrir síldina miðað við dollar en dollar- inn hefði hins vegar sigið um 28 til 29% frá fyrra ári. Rekstrarkostn- aður hefði hækkað um 55%, „Ég geri ekki ráð fyrir að við leikum sama skollaleik og sjó- menn hafa leikið. Og þá á ég við að með aðgerðum sínum voru Al- þýðusambandið og Vinnuveitenda- sambandið í verkfalli við Vinnu- veitendasambandið. Það er Kristj- án Ragnarsson, sem stýrir aðgerð- um útgerðarmanna og sendir sjó- mennina í land og við sitjum í súpunni en sjálfur situr hann í stjórn Vinnuveitendasambands- ins,“ sagði Unnsteinn. Fyrirlestur um baráttu r Israelsmanna viðverðbólguna SHLOMO Levin dómari frá ísrael er nú staddur hér á landi í boði lagadeildar H.í. og Lögfræðinga- félagsins. Hann flytur í dag fyrir- lestur í Lögbergi og fjallar um efnið hvernig ísraelsmenn leysa verðbólguvandann í löggjöf og lagaframkvæmd. Fyrirlesturinn hefst klukkan 17:00. Benedikt Gröndal á þingi S.Þ.: Réttur Palestínumanna verði að minnsta kosti meiri en hann er í dag Ragnar Arnalds menntamálaráðherra: „Valdi þann sem meiri menntun hefur” Gunnar Flóvenz: „Ekki gerðir frekari samningar um saltsíldarsölur á næstunni” Beðið eftir niðurstöðum varðandi sölu á hraðfrystri síld Síldarsaltendur boða til fundar á mánudag um nýja síldarverðið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.