Morgunblaðið - 01.11.1979, Side 1
48 SÍÐUR
240. tbl. 66. árg. FIMMTUDAGUR l.NÓVEMBER 1979 Prentsmiöja Morgunblaðsins.
Joan Baez og þrír öldungadeildarþingmenn:
Hún komst lifs af úr flugslysinu.
Simamynd AP
„Ég kýs dauðann fremur
en grunsemdir . . .
— sagði Robert Boulin í harðorðu bréfi
sem barst til Agence France Presse
París, 31. október — AP, Reuter
„Ég kýs dauðann fremur en grunsemdir þó að sakleysi mitt sé ljóst,“
sagði Robert Boulin, yerkalýðsmálaráðherra Frakklands, í bréfi til
frönsku fréttastofunnar Agence France Presse, sem barst fréttastof-
unni í dag. Bréfið skrifaði Boulin á mánudagskvöld en lik hans fannst
í gærmorgun. Hann fyrirfór sér eftir að blaðið Le Canard hafði sakað
hann um að hafa misnotað aðstöðu sína til að komast yfir fimm ekrur
lands á frönsku Riveríunni fyrir lítið verð.
Þá barst einnig bréf til franska
blaðsins Le Monde og Jacques
Chaban-Delmas, forseta þjóð-
þingsins og konu Boulins. Þar
skýrði hann ástæðurnar fyrir
sjálfsmorðinu. Hann var harðorð-
ur og sagði ásakanir á hendur sér
gerðar til að flekka mannorð sitt.
Hann ásakaði dómarann, sem hef-
ur með málið að gera, um að hafa
notað það í því skyni að komast í
sviðsljósið. þá ásakaði hann
dómsmálaráðherrann, Alain
Peyrefitte, og sagði hann hafa
hugsað meira um eigin pólitískan
frama en að láta réttlætið koma
fram.
Hann þvertók fyrir allt misferli,
sagðist hafa verið fórnarlamb fast-
eignasala sem hefði haft rangt við.
Þá þvertók hann fyrir að hafa gert
nokkuð til að forðast fasteignasal-
anum frá handtöku.
Viðbrögðin í Frakklandi við
sjálfsmorði Boulins voru þau, að
Le Canard var mjög fordæmt.
Jacques Chaban-Delmas sagði, að
herferðin á hendur Boulin hefði
verið „morð“. Valery Giscard
d’Estaing forseti var einnig
harðorður og sagði, að herferð
pressunnar yrði að fordæma harð-
lega. Franska blaðið France-Soir
sagði í stórri fyrirsögn á forsíðu:
„Forkastanlegt." Blaðið sagði að
Boulin hefði verið fórnarlamb per-
sónulegra árása.
Víetnamar haía
beitt eiturgasi
Washington. 31. október — AP, Reuter.
ÞRÍR bandarískir oldungadeildarþingmenn og söngkonan kunna,
Joan Baez, sögðu i dag fyrir lögnefnd bandarisku öldungadeildarinn-
ar, að þau hefðu fundið sannanir fyrir þvi að eiturgas hefði verið
notað af vietnamska hernum og stjórnarhernum í Phnom Penh. James
Sassar, öldungadeildarþingmaður, sagði að Víetnamar hafi notað
banvænt taugagas og eiturgas, sem ylli innvortis blæðingum og að
lokum dauða.
Joan Baez, sem á sínum tíma
gagnrýndi þátttöku Bandaríkj-
anna í Víetnamstríðinu harðlega
ferðaðist um Kambódíu. Hún var
ekki í fylgd með öldungadeildarþ-
ingmönnunum. „Þetta gerðist
Dýrir bílar
í Póllandi
Varsjá, 31. október — AP
VERÐ á bilum seldum á frjáls-
um markaði jaðrar við geð-
veiki, skrifar kaþólska blaðið
Slow Powszechne í dag. Blaðið
er ekki stýrt af kirkjunni en
hefur iðulega flutt fréttir
stjórnvalda. Samkvæmt
skýrslum hefur fjöldi bila i
Póllandi fjórfaldast frá 1970,
úr 450 þúsund i l.S milljónir,
en það virðist ekki anna cftir-
spurn.
Nýlega var haldið uppboð á
FIAT 125p — bílum, sem höfðu
skemmst. Þeir höfðu sokkið
með ferjuskipi, Það tókst að ná
61 bíl upp. Þeir voru síðan
þrifnir og settir á uppboð.
Uppboð hófust við rétt um 1200
þúsund krónur, sem er opinbert
verð á pólskum FIAT, og dýr-
asti bíllinn á uppboðinu fór á
3.4 milljónir. „Kaupendur áttu í
erfiðleikum með að koma
bílunum heim — enginn
bílanna fór í gang og varð að
draga þá alla í burtu," skrifar
biaðið. Um verðið sagði blaðið.
„Þetta verð gæti virst sann-
gjarnt.... en aðeins þeim sem
ekki hafa séð bílana."
raunverulega. Ég hitti hundruð
sem höfðu orðið fyrir gaseitrun,"
sagði hún. Formaður lögnefndar-
innar, Edward Kennedy, sagði
eftir vitnaleiðslur fjórmenn-
inganna, að ástandið í Kambódíu
gæti ekki verið verra þó að
kjarnorkuárás hefði verið gerð á
landið. Einn þingmannanna, John
Danforth, sagði að íbúafjöldi
Kambódíu hafi þegar minnkað úr
sjö milljónum í fjórar. Hann sagði
að án aðstoðar erlendis frá myndu
2.25 milljónir manna deyja á
næstu mánuðum.
Flugslysið í Mexíkóborg:
Björgunarmenn slökkva elda i DC-10 þotunni sem fórst i Mexíkó.
Símamynd AP.
DC-IO þotan lenti
á lokaðri flugbraut
Mexíkó, 31. október — AP. Reuter.
DC-10 ÞOTA bandaríska flugfélagsins Western Airlines hrapaði til jarðar i lendingu i Mexíkóborg í
morgun. Að minnsta kosti 64 af 89 manns um borð biðu bana. I tilkynningu flugvallaryfirvalda seint í
kvöld sagði, að þotan hafi lent á rangri flugbraut. Flugstjórinn hafði fengið fyrirmæli um að lenda á
fiugbraut 23 hægra megin en í þess stað lent á flugbraut 23 vinstra megin. Hún hefur verið lokuð siðustu
12 dagana vegna viðgerða.
Þotan skall á sendiferðabíl og
beið bílstjóri hans samstundis
bana. Síðan rakst hún á verkstæð-
•sbyggingu á flugvellinum. Að-
stæður voru slæmar en í tilkynn-
ingu flugvallaryfirvalda sagði, að
skyggni hefði verið bærilegt þrátt
fyrir þoku.
Flak þotunnar dreifðist víða og
hvarvetna mátti sjá lík. Áður en
þotan hrapaði reyndi hún lend-
ingu en varð að snúa frá vegna
þoku. „Flugmaðurinn varaði okk-
ur ekki við neinu ... ég held að
þotan hafi rekist á eitthvað áður
en hún lenti, vegna þess að hús
skammt frá var alelda. Ég held að
þotan hafi rekist á húsið áður en
hún lenti," sagði einn farþeganna
sem komst lífs af.
Fréttir frá Mexíkó hermdu, að
sjónarvottar hefðu séð eldbjarma
aftan úr þotunni áður en hún
hrapaði. Einn þriggja hreyfla þot-
unnar, stélhreyfillinn, fannst um
300 metra frá flakínu. Ekki \jar
ljóst hvort hreyfillinn datt af
þotunni áður en hún hrapaði eða
hvort hann hefur fallið af við
brotlendinguna. Hvarvetna í brak-
inu mátti sjá lík og lík fundust allt
að 30 metra frá þotunni þar sem
hún loks stoppaði.
Þegar DC—10 þota fórst við
Chicago fyrir skömmu féll einn
hreyfla hennar af í flugtaki og olli
mannskæðasta flygslysi í sögu
Bandaríkjanna. Getgátur voru
uppi um það í Mexíkó, að hið sama
kynni að hafa gerst í morgun.
Fulltrúar bandarísku flugmálast-
ofnunarinnar flugu til Mexíkó-
borgar um leið og fréttir bárust af
slysinu. Augu þeirra beindust ein-
kum að hreyflinum sem fannst um
300 metra frá flakinu. Þá gátu
menn sér til að orsök slyssins
hefði verið mannleg mistök vegna
þess, að þotan lenti á skakkri
braut. Meðal þeirra sem komust
lífs af var flugstjóri þotunnar.
Seint í kvöld sagði Dennis
Feldman, talsmaður bandarísku
flugmálastofnunarinnar í Wash-
ington, að orsakir slyssins hefðu
verið mistök í lendingu. „Það var
ekki galli í smíði þotunnar, á því
er enginn vafi,“ sagði hann og
bætti við: „Leitast verður við að
finna skýringu á af hverju flug-
maðurinn reyndi að lenda á flug-
braut, sem var lokuð.“