Morgunblaðið - 01.11.1979, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1979
31
Helgi Þorláksson:
Sterkasta áhrífaaflið
Allir foreldrar hljóta að eiga
þá ósk heitasta að börn þeirra
verði hamingjusamar manneskj-
ur, njóti góðrar heilsu og reynist
samfélaginu vel. Gangi það eftir,
þá nefnist það barnalán og er
talin mesta auðlegð hverra for-
eldra.
Við vöggu hvers barns bindast
fagrar vonir og óskir um ókomnu
árin, bænir og fyrirheit fléttast
saman í hugum foreldranna.
Vissulega er máttur slíkra fyrir-
bæna mikill en þó þarf meira til.
Ber þá næst til ráða að leggja
börnum okkar þær lífsreglur,
sem við vitum bestar. Við vörum
þau við ýmsum hættum er við
blasa eða við óttumst að verði á
vegi þeirra. Varúðar þurfi að
gæta í nánd við eld eða sjóðandi
vatn, gætnr þurfi í umferð,
forðast beri ljótan munnsöfnuð.
Bent er á að ekki megi stela, ekki
skrökva né svíkja, ekki skemma
eigur annarra. Svo gleymum við
ekki að vara þau við margvísleg-
um hættum af neyslu tóbaks,
áfengis og annarra fíkniefna.
Þannig skortir okkur sjaldn-
ast heilræðin — og börn okkar
hlýða athugul á og heita sjálfum
sér og okkur að fara ætíð eftir
þeim.
En svo vaxa börnin úr grasi,
hefja göngu sína sem æ sjálf-
stæðari einstaklingar og mæta
vandamálum lífsins hlaðin heil-
ræðum foreldra og annarra
hollráðamanna. Við höfum varð-
að leið þeirra vegvísum og
hættumerkjum og vissulega
vilja börnin fara eftir þeim
leiðbeiningum.
En brátt kennir lífið þessum
sömu börnum að líklega sé ekki
bara einn sannleikur í hverju
máli heldur eigi hinir fullorðnu
annan sannleika fyrir sig og
hann oft andstæðan þeim boð-
orðum sem börnunum voru
kennd. Margir hinna fullorðnu
reynast hirðulitlir um umferð-
arreglur, eru gálausir með eld-
færi, sóðar í málfari og um-
gengni, hirða lítt um sannindi
máls. Við eyrum klingja fregnir
af þjófnaði, ránum, misþyrming-
um, morðum. Og flestir hinna
fullorðnu reynast neyta í vax-
andi mæli þeirra fíkniefna, sem
við sögðum börnum okkar að
forðast af því að þau væru
skaðvaldar.
Á viðkvæmum aldri stendur
því barnið frammi fyrir þeirri
skeifingu, að líklega sé til tvenns
konar sannleikur: annars vegar
sá sem börnum sé ætlað að trúa
— og hins vegar sá „sannleikur"
sem fullorðnir — jafnvel for-
eldrar þeirra — lifi eftir.
Ef svona fer, hvernig endist
börnum þá vegnestið, hollráðin
sem við gáfum í hjartans ein-
lægni — en gleymdum bara sjálf
að lifa eftir?
Er þá nokkurt undrunarefni
þótt til verði „unglingavanda-
mál“? Höfum við gleymt því að
„af því læra börnin málið að það
er fyrir þeim haft“? Höfum við
gleymt því að börnum er eðlis-
lægt að elska og virða foreldra
sína, trúa þeim og treysta?
Bænir og óskir foreldra um
bjarta framtíð barnanna, heil-
ræði okkar og aðvaranir eru
vissulega mikils virði. En for-
dæmi okkar verður þó mikilvæg-
ast svo að börnum okkar sé ljóst
að við meinum það sem við
segjum, aðvörun sé alvara. Gott
eða illt sem við höfum fyrir
börnum okkar er sterkasta
framlag okkar til að móta
framtíð þeirra.
Foreldrar. Hvernig væri nú
við lok þessarar fyrstu viku gegn
vímuefnum að huga betur að
þessu máli, leitast við að breyta
þeim siðvenjum okkar sem and-
stæðar eru heilræðunum til
barna okkar? Við vitum nú öll að
áfengi og tóbak eru skaðvaldar.
Fræðum börn okkar um það, en
framar öllu: Gleymum aldrei
fordæminu, sterkasta áhrifa-
valdinum. Helgi Þorláksson.
PÍERRE RobERT
Beauty Care — Skin Care
NÝJU SNYRTIVÖRURNAR FRÁ
PIERRE ROBERT.
Andlitssnyrtivörur og fullkomlega ofnæmisprófuð
húðkrem í hæsta gæðaflokki.
Komiö og kynnist þessum
frábæru snyrtivörum 1. og 2. nóv.
kl. 1—6 í
Apóteki Norðurbæjar
Hafnarfiröi.
Ragnhildur Björnsson verður stödd þar, og leið-
beinir um val og notkun Pierre Robert snyrtivara.
Komið, kynnist og sannfærist.
cMmeriólzcL ?
Tunguhálsf 11, R. Síml 82700
AUGLÝSJNGASTOFA
MYNDAMÓTA
Adalstræti 6 simi 25810
Hjolaskofla
til sölu
Michigan 75 B, árgerö 1972.
Vélin er á góöum dekkjum, meö 2,5 rúmm.
skólfu. Mögulegt aö lána allt kaupveröið gegn
góöum tryggingum. Guðmundur Karlsson
Austurstræti 17, 5. h.
Sími19711
Aðsetur
yfirkjörstjórnar
Vesturlandskjördæmis
vegna alþingiskosninganna sem fram eiga að fara
2. og 3. desember 1979 verður í Hótel Borgarness,
Borgarnesi.
Tekið veröur á móti framboðum miövikudaginn 7.
nóvember n.k. frá kl. 14:00.
Fundur, til úrskurðar framkominna framboðslista,
veröur haldinn á sama stað fimmtudaginn 8. nóv. kl.
14.
Yfirkjörstjórn Vesturlandskjördæmis
31. október 1979,
Jón Magnússon, formaður.
Hvað er
svo glatt
Söngur & gaman
Helstu söngvarar landsins fara á
kostum
í Háskólabíói
annað kvöld kl. 23.30
og flytja þar ásamt Kór Söngskólans
og Hljómsveit Björns R. Einarssonar
þekkt og vinsæl atriði, m.a. úr óperunum
La Traviata og Carmen söngleikjunum
West Side Story og Porgy og Bess og
óperettunum Káta ekkjan og
Leðurblakan
og Meyjarskemman.
Ýmislegt fleira
glens og gaman.
Kynnir er
Guðmundur
____Jónsson.
Forsala aðgöngumiða
í dag frá kl. 4 i
Háskólabíói.
Söngskglinn í Reykjavík
Hagstætt veró í nóvembeir
° til afgreiðslu í nóvember og desember!
ÚTSÖLUSTAÐIR:
J.L. húsið, Hringbraut 121, Reykjavík
Teppabúðin, Síðumúla 31, Reykjavík
Persía, Skeifunni 8, Reykjavík
Halldór Kristjánsson, Strandgötu 37, Akureyri
Weston umboðið, Box 117, Reykjavík
Weston gólfteppi - gæði í hverjum þræði