Morgunblaðið - 01.11.1979, Page 36

Morgunblaðið - 01.11.1979, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1979 Minning: Jóhanna Magnúsdótt- ir frá Kolsstöðum Fædd 3. september 1898. Dáin 23. október 1979. Merkiskonan Jóhanna Magnús- dóttir, lengst af húsfreyja á Kols- stöðum í Miðdölum, er látin eftir erfiða legu, sem vafalaust hefur reynzt þungbær svo athafnasamri konu. Því miður fór fyrir mér, eins og kannski sumum öðrum, að það góða, sem ég vildi gera, það gerði ég ekki, því að ekki heimsótti ég hana síðustu mánuðina, þó að oft hafi það verið ætlun mín og oft hafi mér orðið hugsað til hennar. En framkvæmdin vill oft dragast úr hömlu. Jóhanna Magnúsdóttir var ein- staklega góð manneskja, glaðvær og hlý, og mikið hafði ég gott af samvistunum við hana og hennar ágæta eiginmann, Guðlaug Magn- ússon, sumurin, sem ég var á Kolsstöðum. Jóhanna var mikill vinur for- eldra minna, og munu þau faðir minn hafa kynnzt, er hún var í Vallarstræti, í Björnsbakaríi, en hann á gullsmíðaverkstæðinu hjá Birni frænda sínum Símonarsyni. Við vorum svo báðir í sveit á Kolsstöðum, elzti sonurinn Bjarni, og sá yngsti. Það voru dýrðardagar og alltaf var nóg um að tala og kætast yfir, nóg að gera, en líka tími til að taka lífinu með ró. Þó að sveitin teldist þá meira fásinni en nú, þá entust okkur Jóhönnu minn- ingarnar frá dvöl minni hjá þeim hjónum allt til síðasta fundar okkar heima hjá þeim í Austur- brún. Eg er afskaplega þakklátur fyrir að hafa kynnzt Jóhönnu og sendi Guðlaugi og Jóhanni syni þeirra innilegustu samúðarkveðj- ur mínar og fjölskyldu minnar. Guðni Guðmundsson Þegar sól skín í heiði, er sem líf okkar fyllist orkulindum mikilla fyrirheita, en fölnandi haustlauf minna á fallvaltleika lífsins. Þannig var huga mínum farið, þegar ég á kyrru haustkvöldi, 21. október s.l. á Landspítalanum, hélt um hönd þessarar mikilhæfu vinkonu minnar, Jóhönnu. Lífshljómar hennar voru hljóðn- aðir og slaknað höfðu strengir þeirrar hörpu, er svo oft áður höfðu vel verið stilltir fyrir þá er hlusta vildu. Á kveðjustund minntist ég þess, hve einmitt nærvera hennar með- an heil var hafði oft orðið þess valdandi að stytta sjúkrastundir svo að ýmsir sáu ljós í myrkri og fundu innri frið. Við sjúkrarúm hennar svifu nú bjartar minn- ingar góðra samverustunda. Stunda er lýst höfðu vegvísa og leiðarljós á vegferð minni gegnum árin. Þær minningar löngu liðinna ára eru tengdar órofaböndum traustrar vináttu Kolsstaðafólks við æskuheimili mitt, Svínhól. Við hlið Jóhönnu frá Kols- stöðum leit margur heilli augum á tilveruna. Hún var mikill boðberi sannrar lífsnautnar og hóflegs fagnaðar, mitt í önn og erfiði hversdagsins og hafði skaphöfn stóra og styrka lund. Miklar til- finningar sínar bar hún ekki á torg, en þeim mun skærar glitruðu leiftrandi gleðiperlur hugans. Úr hinu rómaða gestrisna húsi og frá dyrum þeirra Kolsstaðahjóna fór ég hlýrri og heilli og oftast stærri í smæð minni. Þeim, er þekktu Jóhönnu bezt, var ljóst hve miklum andans klæðum hún skartaði. Þessi tígu- lega hetja lét sig jafnan mestu varða þá, sem höllustum fæti stóðu í lífsbaráttunni. Þegar vinir hafa kvaðst, í helst til hröðum straumi tímans er gott að láta huga hvílast, leita í minningasjóði og finna sín eigin gull: Einn sólríkan vordag, fyrir 54 árum, er ég staddur á Kols- staðahlaði og sé þau í fyrsta sinni, hin mætu hjón Jóhönnu Magnús- dóttur og Guðlaug Magnússon, er höfðu þá keypt jörðina og hafið þar búskap, en höfðu áður búið nokkur ár að Gunnarsstöðum í Hörðudal. Þetta var árið 1925 og enn er mér í minni hversu tíguleiki og reisn hinnar ungu húsfreyju hreif hálffeiminn smalastrákinn. Hún minnti helst á drottningu sögu- sagna minna. Og enn er mynd hennar skýrust í huga mínum: sem drottningu ljóss og vors, í tengslum við góða áfangasigra í heimabyggð, með góðum föru- nautum vinnandi handa, í gjöfulli sveit, innan fjallahringsins fagra, vestur í Dölum um 22ja ára skeið. Sama árið — 1925 — og þau Jóhanna og Guðlaugur hófu bú- skap á Kolsstöðum, fluttust þaðan foreldrar Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara, og mörg fullorðin börn þeirra. í tíð þessa fólks hafði Kolsstaðaheimilið verið nokkurs konar framhaldandi iðnsýning sveitarinnar vegna hagleiks og margs konar handíðamuna fólks- ins, sem fluttist nú suður í Borg- arfjörð. Var því mikil eftirsjá í því fólki. En Miðdælingar fundu fljótt að þeir höfðu aftur eignast dug- mikla þegna þar sem hin ungu hjón, Jóhanna og Guðlaugur, voru, sem aðlöguðust fljótt umhverfi og aðstæðum komandi verkefna. Og innan skamms myndaðist um Kolsstaði órjúfandi kunningja- keðja. Einn sterkasti hlekkurinn í þeirri keðju var Jóhanna, raunsæ og ráðholl. Svo virtist á stundum, að hin smæstu hvcrsdagslegustu atvik yrðu að stórum stundum í návist hennar, enda drógust til hennar vinir úr öllum áttum, eins og væri hún segulstál. Þá hurfu kynslóða- bil. Samhygð varð með ungum og öldnum. Hún gladdist með dug- mikium fermingardreng og bros- andi stúlku, sem bráðum yrði fullorðin kona. Hún tók þátt í velgengni þeirra, sem heilir voru, veitti af rausn þeim, sem minna máttu sín og hugur hennar hlýr og stór stytti mörgum sjúkum stund- ir. — Og þar sem gleðin ríkti, var hún hófstilltur hrókur fagnaðar og aufúsugestur, jafnt á leiksviði lítilla barna, sem í gleðiranni og veislusölum fullorðna fólksins. Því ber ekki að leyna, þótt nú sé kveðjustund, að oft var slegið á glaða strengi heima í Dölum, og þá ekki síst er elskuleg börn þeirra Kolsstaðahjóna, Magna og Jó- hann, uxu úr grasi og gerðu mörgum hlýtt í sinni með blæ- brigðaríkum æskubrosum, og svo er árin liðu, sem dugandi fullorðið fólk. En Magna lést hér í Reykjavík fyrir allmörgum árum í blóma lífsins. Þá sannaðist enn sem fyrr, hve móðir hennar, Jó- hanna, hin tilfinningaríka kona, var stór í harmi sínum. Smalaslóðir og heiðalönd Svínhóls og Kolsstaða liggja sam- an. Oft fór það svo að ráðsettir rollukallar og sveittir smalar urðu samstíga í Kolsstaðarétt og öðrum skyldum starfsvettvöngum, milli þess er glaðir tónar og spaugsyrði glumdu yfir gjöfulum veisluborð- um hinna gestrisnu hjóna. Vegna þvílíkra og margvíslegra samskipta mynduðust svo hin sterku tengsl millum heimila okk- ar. í flóði minninga frá þessum árum duga orð mín skammt er ég þakka þá miklu vináttu er Jó- hanna sýndi móður minni, meðan báðar lifðu. Með samstilltum huga urðu þær allt að því hamhleypur til þess að láta gott af sér leiða í „fögru Dalanna skauti". Enda eiginleikar beggja fastmótaðir fé- lagshyggju og fórnarlund. Stund- um var sem logar brynnu í heitum huga þeirra, er tekist var á við margvísleg öfl þessara miklu kreppuára aldarinnar, sem svo voru nefnd, árin 1925—1945. En oft varð óskabyr og alltaf nýir sigrar í sjónmáli. Enda trúðu báðar á þá miklu virkni, sem til staðar er, þegar maður og mold, grös og gróður leysa úr læðingi þann mikla mátt, sem ýmsum fellur í arf. En bak við hið stóra starf einstaklingsins hljómaði hinn sanni tónn, tónn lífsins sjálfs. Starfið var þeim aðals- merki og átti tengsl við þá lífsfyll- ingu: að verða þreyttur, en fá að „hvílast í aftanró“. Kvöld gaf fyrirheit um morgun og haust um vor. Fagnandi minnist ég þess að margvísleg verkefni, sem þær móðir mín og Jóhanna unnu að, urðu að veruleika áður en þær hurfu af starfsvettvangnum. Það er svo margs að minnast frá bæjunum okkar heima „hlíðar- brekkum undir". Þótt sporin lægju síðar til ýmsra átta, og leið þeirra Kols- staðahjóna til Reykjavíkur árið 1947, voru tengsl ekki rofin við heimabyggð, en skemmtilegt að verða vitni að því hve vel Jóhanna fylgdist með „æðaslætti" lífsins heima í Dölum, meðan líf og kraftar entust hér syðra. Hér skal staðar numið. Eftir- minnilegt æviskeið þessarar góðu konu er gengið á enda. Hugheilar minningar vaka. Þökk fyrir geng- in spor og góðar samverustundir. Syrgjandi eiginmaður, Guðlaug- ur, sonurinn góði, Jóhann, tengda- fólk og vinirnir allir kveðja í hljóðri bæn. Þeim stóra hópi sendi ég samúð- arkveðju mína. Ólafur Jóhannesson, frá Svínhóli. í dag verður til moldar borin Jóhanna Magnúsdóttir frá Kols- stöðum, Austurbrún 6, Reykjavík. Þó að hún væri búin að eiga heima rösk 30 ár hér í Reykjavík þá var hún af gömlum kunningj- um jafnan kennd við Kolsstaði í Miðdölum í Dalasýslu þar sem hún bjó lengi og markaði sín dýpstu spor. Með Jóhönnu eigum við á bak að sjá óvenjulega glæsilegri mann- kostakonu, sem öllum þótti vænt um og mátu mikils er kynntust henni. Ég veit að margir hugsa til hennar með hlýhug og þakklæti. Síðustu tvö árin átti hún við mikla vanheilsu að stríða, en lengst af lá hún heima því þar vildi hún helst vera. Ég vil nota tækifærið og láta í ljós aðdáun mína á umhyggju eiginmanns hennar, Guðlaugs Magnússonar, og hversu vel hon- um, háöldruðum manninum, fór- ust heimilisstörfin úr hendi. Margir sýndu Jóhönnu umhyggju og fórnfýsi í veikindum hennar. Ég nefni sérstaklega tengdadótt- urina Steinunni Magnúsdóttur og tengdasoninn Þorleif Björnsson, sem hélt alltaf umhyggjusömu sambandi við tengdaforeldrana eftir að hann missti konu sína. Jóhanna Magnúsdóttir fæddist 3. september 1898 að Hrútatungu í Hrútafirði. Nokkurra vikna gömul fer hún í fóstur að næsta bæ til Jóhanns Jónssonar og Guðrúnar Jónsdóttur á Bálkastöðum. Þau sæmdarhjón ólu Jóhönnu upp og þar átti hún heima fram yfir tvítugt. En frá 17 ára aldri var hún í Reykjavík á veturna, var þar í vist og stundaði afgreiðslustörf. Ég er þess fullviss að Jóhanna hefur verið lánsöm með fósturfor- eldra og hún hefur fengið gott uppeldi. Ég varð þess oft var að hún bar mikla virðingu fyrir Jóhanni og Guðrúnu á Bálka- stöðum, fósturforeldrum sínum, og var þeim þakklát. Jóhanna hélt alltaf sambandi við ættingja þeirra og nánustu kunningja. Þar birtust hinir sterku eiginleikar í fari hennar, ræktarsemi og trygg- lyndi. Ég veit að Bálkastaðar- heimilinu var hún tengd sterkum böndum. Árið 1921 þann 16. júní giftist Jóhanna eftirlifandi eiginmanni sínum Guðlaugi Magnússyni. Það ár hófu þau búskap að Gunnars- stöðum í Hörðudal í Dalasýslu, en þaðan var Guðlaugur ættaður. Árið 1925 keyptu þau hjón jörðina Kolsstaði í Miðdölum og bjuggu þar í 22 ár eða til ársins 1947. Kolsstaðir var annálað rausn- arheimili, enda var þar mikill gestagangur. Veitingar Jóhönnu voru höfðinglegar og gestrisni hennar tók öllu fram er ég þekki. Jóhanna var mikill persónuleiki, hreinskiptin, hispurslaus og glað- lynd. Hún lék á alls oddi er gesti bar að garði. Það var því oft margt skrafað á Kolsstöðum og mikið hlegið. „Komdu sem fyrst aftur“ eða „komdu sem oftast" voru algeng kveðjuorð Jóhönnu. Um félagslegt gildi íslenskrar gest- risni áður en hraði nútímans hóf innreið sína væri verðugt verkefni fyrir lærðan mann að skrifa um. Jóhanna hafði ríka samúð með þeim sem voru á einhvern hátt minni máttar. Hún var gáfuð kona sem margir sóttu ráð til. Ég kynntist því af eigin raun er ég liðlega tvítugur að aldri gerðist farkennari í Miðdölum og byrjaði að kenna á Kolsstöðum. Þar var mér tekið opnum örmum, fræddur um margt, leiðbeint á ýmsan hátt og talinn í mig kjarkur. Slíkt er alveg ómetanlegt. Mörgum rétti Jóhanna hjálparhönd. Hún var alltaf boðin og búin til að hjálpa þeim sem á hjálp þurfti að halda því að hún mátti aldrei aumt sjá án þess að reyna að bæta þar úr. Guðlaugur sá til þess að hana skorti aldrei neitt til þeirra hluta. Jóhanna og Guðlaugur eignuð- ust tvö börn, Mögnu, f. 1928, d. 1969, hún var gift Þorleifi Björnssyni símvirkja, og Jóhann, f. 1930, bifreiðarstjóri, giftur Steinunni Magnúsdóttur. Það var mikið áfall þegar Magna dóttir þeirra andaðist á besta aldri, glæsileg kona, þrótt- mikil og sterk. Við slíka atburði finnum við best hve vanmáttug við erum í raun og veru. Það sýnir vel sálarstyrk þeirra hjóna að þau tóku þessu mótlæti með sérstöku æðruleysi og hetjuskap. Árið'j 1947 bregða Jóhanna og Guðlaugur búi og flytja til Reykjavíkur. Fyrst bjuggu þau að Framnesvegi 16, síðar á Sólvalla- götu 26 og síðustu árin að Austur- brún 6. Það var sama hér í Reykjavík og á Kolsstöðum, hjá þeim hjónum var jafnan opið hús fyrir vini og kunningja sem voru margir. Jó- hanna hélt uppi sömu rausn gagn- vart gestum og gangandi meðan heilsa og kraftar entust. Lífi okkar má líkja við ferðalag. Við þekkjum öll hvað það er mikils virði að hafa trausta og skemmtilega ferðafélaga. Jóhanna Magnúsdóttir frá Kolsstöðum er tvímælalaust í þeim hópi. Að leiðarlokum þakka ég Jó- hönnu fyrir einlæga vináttu og hlýhug í minn garð og kveð hana með þakklæti og virðingu. Blessuð sé minning hennar. Eiginmanni, syni, og öðru venslafólki sendi ég samúðar- kveðjur. Þorsteinn ólafsson SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Prestur nokkur predikaði nýlega og notaði textann: „Laun syndarinnar er dauði“. Mér fannst predikunin ekki veita svar við spurningunni: Verða menn í raun og veru að gjalda fyrir hverja synd? Mér virðist, að þeir syndarar séu fáir, sem taka út syndagjöld. Ég þekki menn, sem hafa hagnazt stórum á óheiðarleika, og aðra, sem vegnar vel i saurlifnaði. Á hvern hátt gjalda menn fyrir syndir sínar? Kennir Bihlían, að það verði eftir dauðann? Við gjöldum synda okkar í þessu lífi og í hinu komanda. Svo kann að virðast sem sumir taki ekki út gjöld synda sinna, en þeir gera það samt. Guð sagði við Kain, sem hafði syndgað: „Ef þú gjörir ekki rétt, þá liggur syndin við dyrnar" (1. Mós. 4,7). Þessu má snúa við: „Ef syndin liggur við dyr þínar, mun þér ekki farnast vel.“ Stofur sálfræðinganna eru fullar af fólki, sem mörgu hverju „vegnar vel,“ eins og þér segið, en er þjakað af vondri samvizku. Það er hlutverk sálfræð- ingsins að fá það til að játa sekt sína. í starfi mínu ræði ég oft við leiðtoga og fólk, sem „vegnar vel,“ eins og það er kallað. Stundum hitti ég einn auðugasta mann veraldar. Hann viðurkenndi fyrir mér, að hann gæti ekki sofið, þjáðist sífellt af meltingartruflunum og ætti ekkert raunverulegt takmark með lífinu. Vandi hans var sektarkennd og einangrun frá Guði. Það fer saman. Á hinn bóginn þekki ég fjölda fólks, sem á lítið af þessa heims gæðum, en það á frið við Guð og menn. Syndin heimtar því laun, og guðhræðslan hefur umbun í för með sér. „Náðargjöf Guðs er eilíft líf, en laun syndarinnar er dauðinn." Til er líka eilífur dauði. Jesús kallaði það „helvíti." Það eru hinztu laun syndarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.