Morgunblaðið - 18.12.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979
13
Margt merkilegt
í minningarskrif-
um aldraðra
HAUSTIÐ 1976 hleyptu Sagn-
fræðistofnun Háskóla Islands,
Stofnun Arna Magnússonar og
Þjóðminjasafn íslands af stokkun-
um samkeppni um minningaskrif
fólks eldra en G7 ára. Heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið veitti
þá mikilsverðu aðstoð, að dreif-
ingarkerfi Tryggingarstofnunar
ríkisins var notað til að unnt væri
að koma boðsbréfinu og verkefna-
listanum til allra ellilífeyrisþega í
landinu.
Skilafrestur var í fyrstu ákveð-
inn til 1. nóvember 1977, en síðan
framlengdur til 1. mars 1978.
Alls bárust frásagnir 148
manna, 75 karla og 73 kvenna,
stuttar og langar, eða allt frá 2—3
bls. upp í 4—500 síður. Oftast var
lengdin þó á bilinu 30—40 síður,
enda mun heildarmagnið vera
nálægt fimmþúsund vélrituðum
meðalsíðum eða sem svarar u.þ.b.
tuttugu meðalstórum bókum.
Þótt ekki sé unnt að rígbinda
sérhvern mann við eina ákveðna
sýslu, var greinilega t^lsverður
munur á því, hversu mikið barst
frá einstökum upprunahéröðum.
Langmest var frá þrem samfelld-
um svæðum á landinu, þ.e. Vest-
fjarða kjálkanum með Breiðafirði
eða 37%, Suður-Þingeyjarsýslu
10% og Árnessýslu 10%. Áberandi
minnst kom hinsvegar úr Húna-
vatnssýslum, Eyjafirði, Norður-
Þingeyjarsýslu, Suður-Múlasýslu
og Austur-Skaftafellssýslu.
Fulltrúar stofnananna þriggja,
sem að þessari framkvæmd stóðu,
voru Ólafur Hansson frá Sa~n-
fræðistofnun Háskólans, Einar G.
Pétursson' frá Árnastofnun og
Árni Björnsson frá Þjóðminja-
safninu.
Við mat á frásögnunum voru
þeir sammála um, að eitthvað
væri bitastætt í öllum þeirra og að
í íshelli
Magnús Jóhannsson
frá Hafnarnesi:
FERÐIN TIL
STJÖRNULANDSINS.
Haínarnesútgáfan 1979.
MAGNÚS JÓHANNSSON frá
Hafnarnesi hefur vakið mesta
athygli fyrir skáldsögu sína Heim-
ur í fingurbjörg (1966). Heitið er
snjallt og sagan um margt athygl-
isverð. Ljóð hefur Magnús líka ort
Bðkmenntlr
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
og eru það einkum ljóðin í Silung-
urinn í lindinni (1978) sem vitna
um hæfileika hans í þá áttina. En
sé öll sagan sögð þá virðist
Magnús hafa flýtt sér um of við að
senda frá sér bækur og er hann
síður en svo einn á þeim báti.
Magnús hefur til að bera metnað,
en þarf að vanda sig betur. Þetta
gildir um Ferðina til stjörnu-
landsins jafnt og aðrar bækur sem
hann hefur látið frá sér fara eftir
heim í fingurbjörg.
Ferðin til stjörnulandsins er
saga rithöfundar sem margt á
eftir ólært. Það er ónákvæmni í
tímasetningu sögunnar til dæmis
sem bitnar á málfari persónanna
auk þess sem heildarmyndin verð-
ur slakari fyrir bragðið. Manni er
ekki alveg ljóst hvort sagan gerist
fyrir þrjátíu árum eða hvort hún á
að slá í takt við áttunda áratug.
En margt má gott segja um
þessa sögu. Lýsing á viðkvæmum
pilti sem fær að kynnast ýmsum
vonbrigðum lífsins er á köflum vel
gerð. Pilturinn á lausláta móður
sem hverfur frá fyrri lífsháttum,
mjög mörgum mikill fengur. Afar
erfitt var að gera upp á milli u.þ.b.
þrjátíu þeirra bestu, þegar veita
skyldi sérstaka viðurkenningu.
Það var þó að lokum niðurstaðan,
að þrjár mundu teljast sameina
best það tvennt að vera mjög
fróðlegar um hætti liðinnar tíðar
og jafnframt ágæta vel skrifaðar.
Þetta voru frásagnir þeirra
Emilíu Biering frá Barðaströnd,
Guðmundar Guðmundssonar úr
Ofeigsfirði og Péturs Guðmunds-
sonar frá Rifi og Hellissandi, en
hann andaðist reyndar daginn
eftir að hann sendi frá sér minn-
ingarnar.
Höfundar annarra frásagna,
sem sérstök ástæða þykir til að
nefna eru: Sigurður Thoroddsen,
Reykjavík, Valbjörg Kristmunds-
dóttir, Grundarfirði og Saurbæ,
Hallgrímur Jónsson, Laxárdal,
Geir Sigurðsson, Hvammssveit og
Arnkell Ingimundarson, Saurbæ,
Dalasýslu, Theodór Daníelsson,
Breiðafjarðareyjum, Torfi Össur-
arson, Rauðasandshreppi, Jóhann
Lúther Einarsson, Tálknafirði,
Sigríður Jóna Þorbergsdóttir,
Hornströndum, Sveinsína Ágústs-
dóttir, Strandasýslu, Guðný í.
Björnsdóttir, Vestur-Húnavatns-
sýslu, Guðmundur Jónatansson,
Eyjafirði, Sigurjón Valdimarsson,
Svalbarðsströnd, Sölvi St. Jóns-
son, Bárðardal, Guðrún E. Jóns-
dóttir, Einar Sigurfinnsson, Með-
allandi, Þórður Elías Sigfússon,
Fljótshlíð, Ingveldur Jónsdóttir,
Stokkseyri og Jóna Guðlaugsdótt-
ir, Suðurlandsundirlendi.
Ákveðið hefur verið, að kaflar
úr nokkrum bestu frásögnunum
verði lesnir í útvarp seinni hluta
vetrar, ef höfundar veita leyfi til.
Þá verða íhugaðir möguleikar á að
gefa nokkrar frásagnanna út eða
úrval þeirra.
(Fréttatilkynning.)
gerist ráðskona í sveit og tekur
soninn með. Bóndinn er ekki
mikill sjarmör, en hann getur séð
fyrir konunni. Auk þess fær pilt-
urinn að ganga í skóla og sýna
hvað í honum býr. Prestsdóttir
gefur honum hýrt auga. Hann
ferðast með henni til stjörnulands
draumanna. En presturinn sem
annars er hinn besti maður sættir
sig ekki við ævintýri unga fólksins
og sendir dótturina til Kaup-
mannahafnar. Þaðan kemur hún
gjörspillt. Ástin hreina í brjósti
drengsins verður að und sem
læknast ekki. Á bak við söguþráð-
inn leynist mynd stéttaskiptingar,
hin gamla saga um þau sem ekki
ná saman vegna óréttlætis samfé-
lagsins. Undir lok sögunnar hefur
pilturinn gripið til örþrifaráða til
að hefna sín á vonsku heimsins.
Einhvern veginn hefur lesandinn
það á tilfinningunni að pilturinn
sé ekki úr sögunni, höfundurinn
muni segja meira frá honum síðar.
Hvað sem því líður þá er hinum
ungu ástum lýst laglega í sögunni.
Höfundinum tekst að skapa vissa
spennu og stemningu sem teygir
lesandann til að halda áfram að
lesa, gerir hann forvitinn.
Á einum stað segir um von-
brigði piltsins að þau reistu klaka-
hallir í huga hans. Að vera
„kviksettur í íshelli" er reynsla
sem Ferðin til stjörnulandsins
lýsir. En sjaldan er gripið til
líkingamáls af þessu tagi. Álgeng-
ari eru nöturlegar myndir úr
raunveruleikanum þar sem hvers-
dagsleikinn leikur sitt hlutverk
dyggilega og gerir líf sögupersón-
anna tilganslítið og umhverfið
kaldhæðnislegt.
Að ýmsum veikleikum Ferðar-
innar til stjörnulandsins frátöld-
um er bókin drög að lýsingu sem
okkur virðist að nokkru leyti
sannferðug, en hefði vissulega
þarfnast hnitmiðunar og mark-
vissari listrænnar úrvinnslu.
Urvals hangikjöt
Hella upp á 2—12 bolla
í einu og halda heitu.
Philips vörur
— Philips þjónusta.
heimilistæki s
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655