Morgunblaðið - 18.12.1979, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.12.1979, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979 Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri: Hver sigraði? Verðbólgan Það er svipað með verðbólg- una, tóbakið og áfengið að allir tala um að draga úr því eða helst komast af án þess, en láta ekki verða af framkvæmdum, þegar til á að taka. Kosningarnar um helgina leiddu í ljós að þjóðin hefur sætt sig við óðaverðbólgu og vill jafnvel ekki lyfta hendi til að draga úr henni. Heil kynslóð er nú vaxin úr grasi, sem aldrei hefur þekkt annað ástand en það, sem nú ríkir, en hefur þó ekki kynnst verstu hliðum þessa vágests — atvinnuleysinu, sem óhjákvæmilega hlýtur að fylgja þegar allir erlendir lánamögul- eikar eru tæmdir og við þurfum að standa á eigin fótum. Mikil vinnuaflsnotkun og gíf- urlegir fjármunir fara árlega í byggingaiðnað landsmanna, sem hefur þanist út í hlutfalli við vaxandi verðbólgu. — Með verð- tryggingarákvæðum lána má búast við miklum samdrætti í þessari grein og erfiðleikum við verkefnaöflun. Skattheimta hlýtur að aukast að mun, ef það er stefna stjórn- valda að láta opinbera aðila auka rekstur og framkvæmdir, til að koma í veg fyrir atvinnu- leysi. En af hverju Framsókn? Segja má að stefna Sjálfstæð- isflokksins hafi verið að svifta Vinsæl verðbólga Af hverju Framsókn? Næsta lota þjóðina verðbólgunni í einni svipan líkt og ef flaskan eða sígarettupakkinn væri tekinn af óhófsmanninum fyrirvaralaust. Þetta var stærra stökk en svo, að okkar verðbólguþjakaða þjóð treysti sér að þola og þess vegna hófst leitin að þeim sem sagði — þetta er allt í lagi við venjum þig af þessu í áföngum, þetta kemur ekkert við þig. Við lestur á stefnu Framsókn- arflokksins nú að loknum kosn- ingum er þetta eina skýringin sem hægt er að finna á sigri flokksins, þar sem hvergi örlar á neinum tillögum um beinar að- gerðir, heldur er farið mörgum orðum um niðurfærslu verð- bólgu í áföngum, án nánari skýringa. Ekki kæmi mér á óvart að í næstu kosningum hefði einhver flokkur það beinlínis á stefnu- skrá sinni að tryggja verðbólgu- bröskurum stöðuga verðbólgu, til þess að þeir geti haldið áfram að „mata krókinn" á kostnað þeirra, sem ekki geta tekið þátt í verðbólgudansinum. Við sprengjum Við sprengjum, var slagorð krata fyrir þessar kosningar og vafalaust meina þeir það. Við verðum að gera ráð fyrir nýrri vinstri stjórn fljótlega og vanda- laust er að spá að leikslokum. Vonandi verður þó næsta vinstri stjórn farsælli, en þær fyrri sem setið hafa, því að hvað sem óskhyggjan segir um niður- stöður kosninga, þá hefur þjóðin ekki ráð á annarri eins óstjórn og verið hefur. Frestur er á illu bestur, segir gamalt máltæki og má vafalaust heimfæra það að núverandi að- stæðum. Kjósendur frestuðu uppgjör- inu við verðbólguna m.a. vegna þess að hún hefur ekki sýnt sínar verstu hliðar ennþá. Astæða er þó til að ætla að einn hópur kjósenda sé orðinn þreytt- ur á verðbólgunni. Það er að segja elli- og örorkuþegár sem hafa ekki getað tekið þátt í lífsgæðakapphlaupinu með okk- ur hinum og þar af leiðandi orðið að borga brúsann. Sjálfstæðisflokkurinn verður að sætta sig við þá staðreynd að íslenskt efnahagslíf er orðið svo háð verðbólgunni að landsmenn þora ekki að ráðast gegn henni framan frá. Stjórnarmyndun með þátttöku Sjálfstæðisflokksins er því óhugsandi miðað við úrslit kosn- inganna 2.-3. des. þar sem meiri hluti kjósenda hafnaði stefnu okkar í efnahagsmálum. Sjálfstæðismenn munu ekki standa að neinum sprengingum og munu ekki leggja stein í götu vinstra samstarfs, við hljótum að óska þess þjóðarinnar vegna, að það takist vel. Hinu er ekki að leyna að við trúum ekki á vinstri stjórnir og verðum því reiðubún- ir, þegar næsta sprenging á sér stað. „V instrist jórnarmeirihlutinn getur varla eignað sér aukinn afla skipa Bæjarútgerðarinnar“ — segir Ragnar Júlíusson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í útgerðarráði „ÉG ER auðvitað fyrsti maður til að fagna því ef rekstur Bæjarút- gerðar Reykjavikur fer að ganga bctur cn undanfarin ár. Ilitt tel ég fráieitt að hinn nýi meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur eigni sér bætta afkomu það sem af er þessu ári,“ sagði Ragnar Júlíus- son fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í útgerðarráði Bæjarútgerðar Reykjavíkur, BÚR. vegna end- urtekinna skrifa i Þjóðviljanum um bættan rekstur BÚR eftir að vinstri meirihlutinn tók við í Reykjavík svo og skrif um áhugaleysi sjálfstæðismanna á málefnum BÚR. „I fyrsta lagi vil ég vísa til föðurhúsanna fullyrðingu Krist- vins Kristinssonar, annars full- trúa Alþýðubandalagsins í út- gerðarráði, um að hagnaður verði á rekstri BÚR í fyrsta sinn frá upphafi í ár. Hið rétta er að hagnaður hefur verið af rekstri BÚR níu ár síðan hún var stofnuð 1947. Það þarf ekki annað en að fletta reikningum fyrirtækisins til þess að sjá þetta svart á hvítu. Það er því með eindæmum að útgerðarráðsmaður skuli láta svona vitleysu frá sér fara. — Ragnar vildi hins vegar ekki tjá sig um tölur fyrr en þær lægju endanlega fyrir. Þá er til þess að taka að afli togara BÚR á s.l. ári var 15633 tonn á 1185 úthaldsdögum, að verðmæti 1543 milljónir króna. Fyrstu níu mánuði þessa árs veiddu togarar BÚR hins vegar 15396 tonn' á 841 úthaldsdegi, að verðmæti 2173 milljónir króna. Það er nú frekar einkennilegt ef meirihluta menn ætla að fara að eigna sér aukna veiði togaranna. Verðmæti hvers tonns í ár er 141.141 króna, en var á s.l. ári aðeins 98.700 krónur, sem segir það að aflaverðmæti hefur aukist um 43% og aflaaukningin er 39% á hvern úthaldsdag. Það þarf örugglega ekki að hafa fleiri orð um þetta. Annars má segja almennt um bætta afkomu BUR, að hún er að sjálfsögðu í beinu framhaldi af ýmiss konar hagræðingaraðgerð- um sem við sjálfstæðismenn sam- þykktum og framkvæmdum þegar á árinu 1976. Þá var ákveðið að koma starfseminni í landi í ný- tízkulegt form. Bakkaskemmunni var breytt í kæligeymslu sem gerði það að verkum að nýting fisksins varð mun betri en áður. Þá var ákveðið að gera ýmsar breytingar um borð í skipunum, t.d. átti að koma fyrir kössum og flottrollstromlum auk ísvéla sem gera myndi skipin samkeppnis- færari við önnur skip á landinu. Þá var gerð gjörbylting á frys- tihúsinu á sínum tíma, m.a. var komið upp vinnslurásum til þess tl að gera bónusvinnu mögulega. Það hafði gengið á ýmsu árin á undan. Rekstrarerfiðleikar voru miklir á árunum 1974—1975 með tilkomu Spánartogaranna svo- kölluðu. Þeir reyndust meingall- aðir og var landlega þeirra þriggja alls 530 dagar á þessu tímabili. Kristvin Kristinsson hælir sér og sínum mönnum af því að þeir hafi gjörbreytt öllum gangi mála með fjölmörgum úrbótum og til- lögum, jafnframt sem hann talar um fádæma áhugaleysi sjálfstæð- ismanna meðan þeir voru í meiri- hluta. — Ef vel er að gáð eru tillögur meirihlutans sem fram- kvæmdar hafa verið aðeins tvær. í fyrsta lagi var ákveðið að breyta vélum skipa BÚR þannig að þau gætu brennt svartolíu í stað gasolíu og í því sambandi fyllyrða meirihluta menn að sparnaður vegna þessa síðan í júní sé um 300 milljónir. Ég leyfi mér að rengja þetta, sparnaðurinn var ekki nema í kringum 200 milljónir auk þess sem ekki var tekið inni í dæmið að allt viðhald á vélunum hefur stórum aukist. Þegar sam- þykkt var samhljóða í útgerðar- ráði BÚR að breyta yfir í svart- olíu var verðmunur á svartolíu og gasolíu mjög mikill, en sá munur hefur stórum minnkað að undan- förnu og ég vona bara að þessi breyting muni ekki reynast BÚR fjárhagslegur baggi i framtíðinni. Hin tillaga meirihlutans var sú að samþykkt voru kaup á tveimur nýjum togurum, þ.e. togara frá Portúgal og frá Stálvík. Reyndar Ragnar Júliusson fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins i útgerðarráði Bæjarútgerðar Reykjavíkur. tel ég samninginn við Portúgal aðeins aðgöngumiða til þess að fá smíðasamninginn við Stálvík samþykktan. Það vil ég og segja að ég vona að Portúgalstogarinn verði ekki sami vandræðageml- ingurinn og Spánartogararnir forðum. Varðandi tillöguna um end- urskipulagningu BÚR í landi frá 1976 er vert að það komi fram að enn hefur ekki tekist að fá ýmis atriði fram. T.d. flutti ég tillögu í útgerðarráðinu stuttu eftir valda- töku vinstrimeirihlutans um breytingar á löndunaraðstöðu, en af einhverjum annarlegum ástæð- um hefur sú tillaga ekki náð fram að ganga, þrátt fyrir „góðan“ vilja meirihlutans. — í því sambandi er einkennilegt að heyra mann eins og Kristvin Kristinsson stæra sig af því að vinstrimeiri- hlutinn hafi látið fara fram ýms- ar hagræðingarbreytingar á fyrirtækinu á sama tíma og það er yfirlýst stefna mannsins að allir. hagfræðingar séu vondir menn og plokki aðeins peninga af fyrirtæk- inu, “ sagði Ragnar Júlíusson að síðustu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.