Morgunblaðið - 18.12.1979, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 18.12.1979, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979 Ríkisstjórnin samþykkir ekki verðhækkanir sem fara yfir 9% RÍKISSTJÓRNIN hefur sett leiA beinandi hámark fyrir verðbreyt- ingar og hefur viðskiptaráðherra gert fulltrúum í verðlagsráði grein fyrir þvi, segir i frétt frá viðskiptaráðuneytinu. Þetta há- mark felst i svofelldri samþykkt rikisstjórnarinnar. „Með tilliti til almennra að- stæðna í verðlags- og efnahags- málum hefur ríkisstjórnin ákveðið að samþykkja ekki verðhækkanir fyrst um sinn, sem fari fram úr 9% enda hafi hlutaðeigandi aðili fengið samþykkta verðhækkun á síðustu 4 mánuðum. Samþykkt þessi tekur þó hvorki til breytinga á verði vöru eða þjónustu þar sem launakostnaður er meginuppistaða framleiðslu- kostnaðar né til olíuvara. Þessi afstaða ríkisstjórnarinnar mun gilda þar til öðruvísi hefur verið ákveðið". Kratar réðu at- kvæðagreiðsluimi MISSKILNINGS gætir í ummæl- um, sem höfð eru eftir Ólafi G. Einarssyni, formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins, í Morgun- blaðinu síðastliðinn laugardag varðandi forsetakjör á Alþingi. Af þeim má ráða, að hann hafi verið einkar ánægður með ákvörðun krata að kjósa sem forseta sameinaðs Alþingis fram- bjóðanda þess flokks, sem mesta fékk atkvæðaaukninguna i kosn- ingunum fyrir skömmu. Óiafur G. Einarsson sagði: „Svo var alls ekki. Tillaga um samstarf flokkanna á þeim grundvelli kom aldrei til Sjálf- stæðisflokksins og að mínu mati var þetta fráleitt fyrirkomulag. Upphaflega tillagan, sem gerði ráð fyrir því, að Sjálfstæðisflokk- urinn fengi forseta sameinaðs þings, var hin eina eðlilega og var reyndar samþykkt í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, en hafnað af Framsókn og kommum. Eftir það fóru kratar sínu fram án samráðs við aðra og réðu þannig í raun hvaða frambjóðendur voru kosnir. Við atkvæðagreiðsluna sjálfa hafði ég hins vegar ekkert að athuga, en um það hafði blaða- maðurinn spurt." Heita vatninu hleypt á Egils- staði í vikunni EgilNHtöðum 17. desember UM HELGINA var gangsett heitavatnsdæla við borholuna í Urriðavatni og er nú lokið við prófun á aðveituæðinni til Egils- staða. Verður heita vatninu hleypt á kerfið einhvern næstu daga. Nú hefur hitaveita verið lögð í um 60% þorpsins og verður ekki meira gert í vetur, en hins vegar er ætlunin að bora aðra holu í Urriðavatni. Nú fást um 15 sek- úndulítrar af 65 gráðu heitu vatni, en áætlað er að þorpið þurfi um 25 sekúndulítra. Jarðfræðingar full- yrða, að þar sem bora á í vetur, sé bæði að fá meira og heitara vatn. Steinþór. Söngskólinn í Reykjavík. Tónleikar Söng- skólans á morgun ELLEFTU hádegistónleikar Schubert, fyrir fiðlu, víólu, celló, Söngskólans í Reykjavík verða kontrabassa og píanó. haldnir á morgun. miðvikudag- Listamenn á þessum tónleik- inn 19. desember. í tónleikasal um eru: Krystyna Cortes, píanó- Söngskólans og hejast þeir leikari, Maria Verconte fiðlu- klukkan 12.10. leikari, Brian Carlile víóluleik- Verkefni þessara tónleika er ari, Carmel Russill cellóleikari píanókvintett í A-moll op. 114, og Jennifer Ann Davies bassa- „Silungakvintettinn" eftir F. leikari. JOIAGLEÐII PENNANUM Jólasveinarnir okkar hafa lýst vel- þóknun sinni á Jólamörkuðum Pennans enda hefur úrvalið sjaldan verið fallegra! CTT ■n Jólamarkaðurinn, Hallarmúla, Laugavegi 84, Hafnarstræti 18. Norræn bókbands- list á Akureyri SÝNINGIN Norræn bókbandslist 1979 sem verið hefur í bókasafni Norræna hússins í Reykjavík verður i Amtsbókasafninu á Ak- ureyri í kvöld, 18. desember. Á henni má sjá úrval bóka úr Norrænu bókbandskeppninni 1979 en ísiendingar tóku nú þátt í henni I fyrsta skipti. Einnig verða þar sýnishorn af akur- eyrsku bókbandi. I tengslum við sýninguna mun Arne Moller Pedersen, forstöðu- maður viðgerðarstofu Ríkisskjala- safnsins í Kaupmannahöfn, flytja erindi með litskyggnum um við- gerðir á bókum og handritum sem skemmdust í flóðunum miklu í Flórens á Ítalíu árið 1966 en Danir áttu mikinn þátt í því starfi. Erindið hefst kl. 20.30. AUGLÝSINGASTOFA MYNDAMÓTA Aðalstræti 6 simi 25810

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.