Morgunblaðið - 18.12.1979, Síða 20

Morgunblaðið - 18.12.1979, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979 Evrópukjarnorku- vopnin og ísland Samkvæmt ákvöröun þeirri, sem tekin var í Briissel í síöustu viku, verður nú hafist handa um það á vejíum Atlantshafs- bandalafisins aö hrinda í framkvæmd áætlunum um endurbætur á eldflaugavörnum aðildarlandanna á meginlandi Evrópu og Bretlandi. Jafnframt munu bandalagsríkin með skipulegum hætti hefja nýja sókn í því skyni að koma af stað raunverulegum afvopnunarviðræðum í Evrópu. Nýju eldflaugar Atlantshafsbandalagsins í Evrópu verða fyrst tiltækar 1983, því að ákvörðunin í síðustu viku snerist um það að hefja á þeim framleiðslu. Það gefst því góður tími til að komast að raun um það, hvort einlægur áhugi er fyrir hendi hjá Varsjárbandalagslöndunum á afvopnunaraðgerðum. Komi hann í ljós, verður framkvæmd eldflaugaáætlunarinnar hagað í samræmi við það. Það kann að þykja þversögn að taka fyrst ákvörðun um aukinn vígbúnað og lýsa síðan eindregnum vilja sínum til afvopnunarviðræðna. Þróunin síðustu ár hefur hins vegar orðið sú, að Sovétríkin hafa náð forskoti gagnvart Atlantshafsbandalagslöndunum, þegar litið er til meðaldrægra kjarnorkueldflauga í Evrópu. Þegar annar aðilinn býr við slíkt forskot er óhugsandi, að raunhæf viðleitni til afvopnunar ráði ferðinni hjá honum. F’orsenda allra viðræðna um takmörkun vígbúnaðar til þessa hefur verið sú, að viðræðuaðilar telji sig standa jafnt að vígi, þegar þeir setjast að samningaborðinu. Samhliða því, sem ríkisstjórnir allra Atlantshafsbandalags- landanna nema Frakklands, sem er utan sameiginlega varnar- kerfisins, hafa unnið að undirbúningi þessarar mikilvægu ákvörðunar, hefur verið að þeim lagt bæði innan frá og af kommúnistaríkjunum, að þær hyrfu frá áformum sínum. Tilgangur Sovétríkjanna og fylgiríkja þeirra er auðsær, þau vilja sitja ein að Evrópukjarnorkuvopnunum. Hitt er ekki alveg eins ljóst, hvað fyrir þeim öflum vakir, sem innan einstakra Atlantshafsbandalagslanda taka sér fyrir hendur að berjast gegn nauðsynlegum endurbótum á vörnum Vestur-Evrópu, enda eru þau ekki öll samstíga og beita mismunandi röksemdum. Hér á landi tók Þjóðviljinn seint við sér í þessu máli og raunar ekki fyrr en tveimur dögum eftir að ákvörðunin um nýja eldflaugavarnakerfið hafði verið tekin. Þá komust þeir Þjóð- viljamenn að því, að á Keflavíkurflugvelli væru það, sem þeir kalla „fljúgandi stjórnstöðvar fyrir kjarnorkustyrjöld" og auðvitað sá sjónvarpið ástæðu til að apa þetta upp óathugað. Skömmu eftir að vinstri stjórnin tók við völdum síðasta haust komu hingað til lands tvær nýjar ratsjárflugvélar af svonefndri AWACS eða E-3A gerð. Þessar vélar eru búnar mjög fullkomnum stjórn- og eftirlitsbúnaði en eru óvopnaðar. Þær eru svo nýjar af nálinni, að ekki hafa aðrar þjóðir en Bandaríkjamenn tekið þær í notkun enn sem komið er. Hins vegar hafa Evrópuríki Atlantshafsbandalagsins pantað slíkar vélar og verða þær bæði í Noregi og Mið-Evrópu eftir nokkur misseri, Bretar munu nota endurbætta gerð af Nimrod-þotu í sama tilgangi. Þjóðviljinn fullyrðir að E-3A þoturnar, sem eru hér á landi, gegni því hlutverki að stjórna ferðum bandarískra orrustu- þotna, sem geta flutt kjarnorkuvopn, frá flugvöllum í Bretlandi til árásarstöðva í Austur-Evrópu. Þessi fullyrðing er í samræmi við aðrar firrur, sem kommúnistum hér dettur í hug þegar þeir íhuga varnir landsins. I sjálfu sér er ekkert nýtt að lesa slíkt eftir þeim Þjóðviljamönnum, en hitt er alvarlegra, þegar alþingismaður, sem sæti á í nefnd, er ríkisstjórn Islands hefur skipað til að gera úttekt á öryggismálum þjóðarinnar, sýnir sömu vankunnáttu. Það er greinilega ekki vilji Olafs Ragnars Grímssonar, að svonefnd öryggismálanefnd vinni störf sín á hlutlægan hátt, heldur ætlar hann að gömlum sið kommúnista að nota hana sem áróðursvettvang og til að draga úr trausti milli manna. í ræðu þeirri, sem Henrik Sv. Björnsson, sendiherra, flutti í Brússel í síðustu viku á fundi Atlantshafsbandalagsins lagði hann á það sérstaka áherslu, að það væri eitt af grundvallar- atriðum íslenskrar varnarmálastefnu, að hér verði ekki kjarnorkuvopn, og hann taldi óhugsandi, að frá því „verði horfið í fyrirsjáanlegri framtíð". Sovétmenn hafa margítrekað lýst yfir ánægju sinni með þessa stefnu og hvernig henni hefur verið framfylgt. Herstöðvaandstæðingar og Þjóðviljinn eru í þessu efni katólskari en páfinn, því að þeir klifa stöðugt á því, að hér séu kjarnorkuvopn eða einhverjir angar þeirra. Þessi þráhyggja þeirra hefur að vonum haft lítil áhrif innan lands. Um hitt skal engu spáð, hver eru áhrif hennar út á við, en sífelldur áróður innlendra aðila um kjarnorkuvopn í landinu er ekki til þess fallinn að minnka áhuga hernaðarlega þenkjandi aðila og herforingja í Varsjárbandalaginu á landinu. Allra síst nú á þessum viðkvæmu tímum í öryggismálum álfunnar. Samkeppni um kirkjubyggingu á Seltjarnarnesi: Hörður Björnsson hlaut 1. verðlaun KYNNTAR hafa verið niður- stöður í samkeppni meðal fé- lagsmanna í Arkitektafélaginu um hönnun kirkjubyggingar á Seltjarnarnesi. Kristín Frið- bjarnardóttir, formaður dóm- nefndar. greindi við athöfn í félagsheimili Seltjarnarness frá niðurstöðum dómnefndarinnar er lauk störfum nýlega. Hlaut tillaga Ilarðar Björnssonar og samstarfsmanns hans, Harðar Harðarsonar, sem báðir eru byggingatæknifræðingar, fyrstu verðlaun, kr. 1.5 milljón- ir. Við athöfnina sagði Kristín Friðbjarnardóttir m.a.: Kirkjubygging hefur ekki staðið á Seltjarnarnesi síðan kirkjan í Nesi fauk af grunni sínum í Básendaveðrinu árið 1799. Seltirningar urðu þá sókn- arbörn Dómkirkjunnar í Reykja- vík þar til Nesprestakall hið nýja var stofnað árið 1941. Seltjarnarnes varð sérstök sókn árið 1974 og frá þeim tíma hefur kirkjuleg starfsemi færst í vax- andi mæli inn í byggðarlagið og fer hún fram í félagsheimilinu. Sóknarnefndin á Seltjarnar- nesi lagði fljótt mikla áherslu á að kirkjubygging rísi þar sem fyrst og hefur hún í því sam- bandi gert margt til að efla fjárhag sinn. Bæjarstjórn ákvað fyrir ári síðan að ætla kirkjunni lóð norðvestan Mýrarhúsaskóla eldri og bauð hún sóknarnefnd að greiða kostnað við samkeppni um bygginguna. Dómnefnd var skipuð í byrjun apríl 8.1. og undirbjó hún útboðs- gögn og auglýsti síðan sam- keppnina. Verðlaunafé var ákveðið kr. 3.400.00. Skilafrestur var til 17. okt. s.l. 19 tillögur bárust og kannaði dómnefndin þær á mörgum fundum. Dóm- nefndin varð sammála um að árangur af samkeppninni hafi í heild verið nokkuð góður. Eru verðlaunahafar þessir: 1. verðlaun, kr. 1.500.000. Hörður Björnsson, býgginga- tæknifræðingur, og samstarfs- maður hans, Hörður Harðarson, byggingatæknifræðingur. 2. til 3. verðlaun, kr. 1.000.000. Hilmar Ólafsson, arkitekt, Hrafnkell Thorlacíus, arkitekt, og Njörður Geirdal, arkitekt. 2. til 3. verðlaun, kr. 1.000.000. Jez Einar Þorsteinsson, arkitekt. 4. til innkaups, kr. 200.000. Hilmar Þór Björnsson, arkitekt, og samstarfsmaður hans, Finnur Björgvinsson, arkitekt. 5. til innkauþs, kr. 200.000. Birgir Breiðdal, arkitekt. Auk þess hlaut tillaga Arnar Sigurðssonar, arkitekts, viður- kenningu sem athyglisverð til- laga. I dómnefndinni voru: Kristín Friðbjarnardóttir, félagsmála- fulltrúi, formaður, Þórður Búa- soií, verkfræðingur, ritari, séra Ólafur Skúlason, dómprófastur, Guðmundur Kr. Kristinsson, arkitekt og Haukur A. Viktors- son, arkitekt. Trúnaðarmaður nefndarinnar var Ólafur Jens- son, framkvæmdastjóri. Tillögurnar verða allar al- menningi til sýnis til jóla, laug- ardaga og sunnudaga, kl. 14 til 18, en aðra daga kl. 16 til 22. Kristín Friðbjarnardóttir hafði orð fyrir dómnefndinni og afhenti verðlaunin. Með henni eru Hörður Björnsson (t.v.) og Ilörður Harðarson byggingatæknifræðingur cn tillaga þeirra hlaut fyrstu verðlaun. Ljósm. Kristján. Likan af kirkjubyggingu Harðar Björnssonar. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 200 kr. eintakiö.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.