Morgunblaðið - 18.12.1979, Síða 21

Morgunblaðið - 18.12.1979, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979 21 í IDrúHlr 1 • Tekst hinum leikreynda kappa Geir Ilallsteinssyni að ieiða lið sitt FH til si«urs i kvold. Geir verður kjolfesta unjfu efnilegu leikmannanna sem hafa komið á óvart í vetur. A myndinni sést Geir í leik á móti VíkinKum og hefur grcinilega leikið illa á þá. Hvernig skildi honum takast upp i kvöld? Setur FH strik í reikninginn? VÍKINGUR og FH mætast í 1. deild íslandsmótsins i hand- knattleik i Laugardalshöllinni i kvöld og hefst leikurinn klukk- an 21.00. Eins og staðan í mótinu er nú, lita menn til FH-inga í þeirri von að einhver spenna haldist i mótinu. Þegar 5 umferðum er lokið hafa Víkingar nefnilega hlotið 10 stig, en FH 9. Leikurinn i kvöld gæti því hæglega verið úrslita- leikur mótsins. Vinni Víkingur, má eitthvað rosalegt gerast ef liðið myndi ekki fylgja þvi eftir og vinna mótið. Til þessa hafa varla önnur lið sýnt eitthvað sem ógnað gæti Víkingi, nema ef vera skyldi KR. KR-ingarnir hafa nefnilega aðeins tapað tveimur leikjum... fyrir FH og Vikingi. Leikurinn í kvöld gæti orðið mikill átakaleikur og vonandi í háum gæðaflokki. Þetta verður mikil prófraun fyrir hið unga lið FH. Tekst liðinu að klekkja á hinni vel smurðu Víkingsvél? Við þvi fæst svar í kvöld. Svar fæst einnig við því hvort úrslit- in í mótinu eru nánast ráðin eða ekki. • Fétur Pétursson (fyrir miðri mynd) sækir að markverðinum. Ekki skoraði Pétur um helgina, en hann er nú kominn i jólafri. Það verður reyndar ekki langt. því að innan skamms heldur hann ásamt félagi sinu til Egyptalands. Petur til Egyptalands PÉTUR Pétursson er nú kominn heim í jólafrí. Knattspyrnukapp- inn kom heim i gær ásamt unnustu sinni. Pétur sagði í stuttu spjalli við Mbl. að hann væri hvildinni feginn. — Siðustu leikir hafa verið erfiðir. Við lékum á sunnudaginn við Twente og vorum afar óheppnir að ná aðeins jafntefli 1 — 1. Þeir náðu að jafna á lokasekúndunni. Við gátum ekki einu sinni tekið miðju. Við höfum ekki leikið eins vel að undanförnu og við gerðum fyrst í haust. Það er greinilegt að hið mikla álag á okkur setur strik í reikninginn. Evrópuleik- irnir voru erfiðir svo og ferðalög- in í kringum þau, ég persónulega er dauðuppgcfinn. En hvíldin verður ekki löng, ég verð að koma mér til Hollands 27. des. því að liðið er á förum til Egyptalands í keppnisferð. Þar lcikum við tvo leiki við landsliðið og rétt náum heim aftur fyrir gamlárskvöld, okkar næsti leikur í deildinni er svo 6. janúar, sagði Pétur sem var greinilega feginn að komast heim i nokkra daga. Jólafrí er nú hafið meðal hol- lenskra knattspyrnumanna. Ajax er í efsta sætinu með 28 stig að loknum 17 leikjum. Feyenoord er í öðru sæti með 24 stig að loknum 17 leikjum, en AZ ’67 Alkmaar er í þriðja sæti með 23 stig og hefur leikið 16 leiki. Pétur Pétursson er markhæsti leikmaður hollensku deildarinnar, hefur skorað 16 mörk. Þá má bæta því við, að Pétur skoraði 4 mörk í Evrópu- keppninni og hefur til þessa skor- að tvívegis í hollensku bikar- keppninni, þannig að uppskera Péturs það sem af er vetri er 22 mörk. Úrslit einstakra leikja í Hol- landi urðu sem hér segir: AZ 67 Alkmaar — Nec Nijmegen fr. Nac Breda — Sparta fr Roda JC - Willen 11 Tilburx 1-2 Feyenoord — Tvente l_i FC lltrecht — Pec Zwolle 3—1 Haarlem — PSV Gindhoven 1—4 Vitesse Arnhem — MVV Maastricht 1 — 1 GAE Deventer — Den Haag fr. Ajax — Excelsior 6—0 Frammistaða vekur athygli Betts í NÝLEGU hefti af enska vikurit- inu Shoot er stutt grein ásamt enn styttra viðtali og mynd af James Bett. James Bett lék einn og hálfan leik með Val hér um árið eins og menn eflaust muna. En meira varð það ekki, hér á landi voru staddir stórlaxar frá belgíska félaginu Lokeren. Þeir voru að semja við Arnór Guð- johnsen, Eið Guðjohnsen og síðast en ekki sist Víking. Bett fór til Belgíu. einnig Arnór, en á meðan Arnór gerði stormandi lukku á siðasta keppn- istímabili fór minna fyrir Bett. Nú gengur allt betur og mun betri knattspyrnumaður er hann nú en áður. Svo vel hefur hann staðið sig, að hann hefur verið valinn þrívegis i lið vikunnar hjá einu af stærstu dagblöðum Belgiu. Bett segir í umræddu viðtali: „Ég hitti fyrst Kristján Bernburg þegar ég var 16 ára og lék með skosku unglingaliði. Kristján er nú sérlegur ráðgjafi minn og það var að hans ráði að ég fór til íslands. Þar lék ég einn og hálfan leik með Val, en forráðamenn Lokeren voru þarna staddir óg þeir buðu mér samning. Ég lék minn fyrsta leik með aðalliðinu snemma í haust gegn Anderlecht. Ég átti að gæta landsliðsmannsins Frank Vercauteren. Ég lék hann svo grátt að hann hótaði að sparka mér alla leið á sjúkrahús, en ekkert varð úr því og við unnum 2-1“ í lok viðtalsins kemur fram, að Bett hefur hug á að leika með Lokeren næstu 3—4 árin, en þá hefur hann mikinn hug á að spreyta sig með ensku liði. • James Bett (hvítklæddur) reynir markskot í leiknum gegn Anderlecht. Þar var hon- um hótað likamsmeiðingum af reiðum mótherjum. Hlöðver til Leiknis HLÖÐVER Rafnsson hef- ur verið ráðinn þjálfari 3. deildar liðs Leiknis í Breiðholti. Einniu mun Hlöðver þjálfa 2. flokk félagsins. Illöðver þjálf- aði Leikni fyrir nokkrum árum með þokkalegum árangri, en hann þjálfaði Þór á Akureyri í 2. deild á síðasta keppnistíma- hili. Knatlspyrna 1 UMFL og Þróttur eru að stinga af LAUGDÆLIR og Þróttur unnu góða sigra í 1. deild íslands- mótsins i blaki um helgina og er nú svo komið, að önnur lið eiga varla möguleika á því að skáka þeim. Þróttur átti ekki í erfiðleik- um með fS, vann 3—0, þar af fyrstu hrinuna 15—0, þar sem Valdemar Jónasson innbyrti 11 fyrstu stigin með uppgjöfum sinum. önnur hrinan var jöfn, en Þróttur vann 15 — 13. Loks vann Þróttur 15—9. UMFL lenti á hinn bóginn í miklu svitabaði er liðið mætti- Víkingum. Laugdælir unnu reyndar 3—2, en sýndu ekki sama stjörnuleikinn og Þróttur fékk að finna fyrir á fimmtudag- inn. Fyrst vann UMFL 15—7 og tók forystuna. En Víkingur jafn- aði enn og var Páll Ólafsson óstöðvandi er Víkingur vann fjórðu hrinuna 15—12. Úrslita- hrinuna vann hins vegar lið UMFL, einkum fyrir tilstilli Leifs Harðarsonar, sem rakaði inn 12 af 15 stigum UMFL með uppgjöfum sínum. Nú tekur við jólafrí meðal blakmanna. en staðan er þessi í 1. deild karla: UMFL 9 8 1 26-9 16 Þróttur 7 5 2 15-10 10 ÍS 8 3 5 13-17 6 Víkingur 7 2 5 12—17 4 UMSE 7 1 6 7-20 2 I 1. deild kvenna vann Víking- ur öruggan sigur á UMFL, 3—0, og skaust með þeim sigri í efsta sætið í deildinni. Hrinurnar fóru: 15—13,15—9 og loks 15—0, fátt um varnir hjá UMFL í lokahrinunni. Staðan í 1. deild kvenna er þessi: Víkingur 4 4 0 12—4 8 ÍS 4 3 1 11-6 6 IMA 3 2 1 7-5 4 UBK 3 1 2 7-6 2 UMFL 4 0 4 2-12 0 Þróttur 2 0 2 0-6 0

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.