Morgunblaðið - 18.12.1979, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979
25
eik á móti ÍR. Þorbjörn er hér að skora eitt aí fimm mörkum
Ljósm. Emilía.
Ismeistararnir
Valur 26:22
marka forystu og tekst að halda
henni, þrátt fyrir örvæntingar-
fullar tilraunir Valsmanna til þess
að jafna metin.
Þegar átta mínútur eru eftir af
leiknum og staðan er 20—18 skor-
ar Bjarni Bessason 21—18 og rétt
skömmu síðar 22—18, fjögurra
marka forysta og sigurinn svo til í
höfn.
Þrátt fyrir darraðardans
síðustu mínúturnar í leiknum þar
sem Valsmenn reyndu meðal ann-
ars að leika maður á mann síðustu
2. mínúturnar kom allt fyrir ekki,
það var kraftur í ungu mönnunum
í ÍR, þeir rifu sig í gegnum vörn
Valsmanna og skoruðu hvað eftir
annað fram hjá ólafi Benedikts-
syni í markinu og fjögurra marka
sigur varð útkoman og 2 dýrmæt
stig til anda ÍR.
Furðulegur leikur.
Það var hreint út sagt ótrúlegt,
að ÍR skyldi sigra í leiknum eftir
öll mistökin sem liðinu hafði orðið
á í fyrri hálfleiknum. Að vísu
lagaðist leikur liðsins í þeim síðari
en að Valsmenn skyldu leika svo
ráðleysislega bæði í vörn og sókn
eins og þeir gerðu á ekki að geta
komið fyrir lið sem hefur á að
skipa jafn mörgum landsliðs-
mönnum.
í fyrri hálfleik fékk Valur 26
sóknarlotur en aðeins 12 þeirra
skiluðu mörkum. Þá var varnar-
leikurinn allan tímann slakur og
markvarslan mótaðist af því.
Nú er sýnt að möguleikar Vals í
mótinu eru hverfandi litlir og
varla er hægt að búast við mjklu í
Evrópukeppninni ef liðið sýnir svo
sveiflukennda leiki eins og raunin
hefur verið í haust. í liði Vals var
það einna helst Steindór Gunn-
arsson Og Þorbjörn Jensson sem
sýndu eitthvað, aðrir leikmenn
léku ekki vel.
Liði ÍR er ekki gott að hrósa
þrátt fyrir að sigur hafi unnist.
Fyrri hálfleikur var afar’ illa
leikinn hjá liðinu og lét landsliðs-
þjálfarinn, Jóhann Ingi, þau orð
falla í hálfleik, að halda mætti að
liðið hefði 30 stig í deildinni, slíkt
væri kæruleysið. í síðari hálf-
leiknum batnaði leikur þess hins
vegar mjög og sérstaklega var
Bjarni Bessason sprækur. Skoraði
hann sjö mörk og var mjög
ákveðinn. Guðjón Marteinsson var
líka seigur að skora en þau voru
líka nokkur skotin sem fóru langt
framhjá eða voru varin. Þá varði
Þórir Flosason ágætlega í leikn-
um, og oft á mikilvægum augna-
blikum.
I stuttu máli: Islandsmótið 1.
deild. Laugardalshöll 16. des.
Valur-IR: 22-26 (12-10)
Mörk Vals: Þorbjörn Jensson 5,
Steindór Gunnarsson 4, Gunnar
Lúðvíksson 4, Þorbjörn Guð-
mundsson 3v, Stefán Halldórsson
2v, Jón H. Karlsson 2, Brynjar
Harðarson 1, Bjarni Guðmunds-
son 1.
Mörk ÍR: Bjarni Bessason 8,
Sigurður Svavarsson 3v, Guðjón
Marteinsson 7, Guðmundur Þórð-
arson 3, Ársæll Hafsteinsson 2,
Bjarni Hákonarson 3.
Brottvísanir af leikvelli: Bjarni
Hákonarson, IR, í 4 mínútur.
Varin vítaköst: Brynjar Kvaran
varði hjá Sigurði Svavarssyni, ÍR,
á 25. mín.
-þr.
r
M
HK á uppleið þrátt
fyrir 6 marka tap
ÞJÁLFARALAUSIR léku leik-
menn HK úr Kópavogi sinn besta
leik á þessu keppnistímabili. Það
var gegn Víkingi, en leikurinn
tapaðist þrátt fyrir allt með 6
mörkum. Víkingarnir virtust
áhugalitlir og þungir lengst af,
en það verður ckki af IIK skafið,
að liðið hefur ekki leikið betri
leik í vetur og verður fróðlegt að
sjá framvindu mála. Sigur
Vikings var svo sem öruggur
allan tímann, lokatölur leiksins
urðu 24 — 18, en staðan í hálfleik
var aðeins 12 — 10 fyrir Víking.
Sem fyrr segir lék HK leik
þennan án þjálfara. en Halldór
Rafnsson KÁ-maður mun hafa
sagt upp störíum sem slíkur í
siðustu viku. HK mun hafa haft i
hyggju að segja honum upp, en
kappinn varð fyrri til. tók pok-
ann sinn og fór.
Það tók Víking aðeins 10 sek-
úndur að skora fyrsta mark leiks-
ins og fóru þá margir að búa sig
undir mettölur. Það var Ólafur
Jónsson sem skoraði og Árni bætti
fljótlega öðru við. Ragnar golf-
meistari minnkaði muninn, en
Steinar Birgisson skoraði þriðja
mark Víkings, en HK sýndi seiglu
og á sjöundu mínútu leiksins var
staðan orðin jöfn, 3—3, og aftur
var jafnt, 4—4. Víkingur seig þá
fram úr, en ekki meira en svo að
tölur eins og 8—7, 10—9 blöstu við
á töflunni. Staðan í hálfleik var
síðan 12—10 eins og fyrr sagði.
í síðari hálfleik dró meira í
sundur með liðnum og komst
Víkingur þá mest sjö mörk yfir,
22—15. En lokakaflann lagaði HK
stöðuna dálítið sér í hag, skoraði 3
mörk gegn einu síðustu mínúturn-
ar.
-hT 24:18
Víkingarnir voru mjög daufir að
þessu sinni og virtust hafa tak-
markaðan áhuga á því sem þeir
voru að gera, einkum voru horna-
mennirnir lítið með á nótunum.
Skyttur Víkings voru hins vegar
skæðar og vörn HK fyrir miðjunni
var götótt. Þorbergur, Steinar og
Sigurður Gunnarsson skiluðu allir
bærilegri frammistöðu í sókninni,
en auk þeirra átti Árni traustan
og góðan leik að venju. Markverð-
irnir Kristján og Jens voru þokka-
legir.
HK gæti hugsanlega átt eftir að
hrella önnur lið 1. deildar, en allt
annað var að sjá til liðsins nú en í
fyrri leikjum mótsins. Margt verð-
ur þó enn að laga. T.d. skortir enn
mikið á yfirvegun í sókninni,
mörgum sinnum voru reynd
ótímabær skot í leiknum. Þá ætti
liðið að láta af að reyna hraðaupp-
hlaup, a.m.k. þangað til slíkt hefur
verið æft, en hvað eftir annað
glopraði liðið knettinum í hraða-
upphlaupunum einfaldlega vegna
þess að leikmennirnir réðu ekkert
við hraðann. Þá var vörnin ekki
nógu hreyfanleg og voru HK-
menn allt of oft áhorfendur þegar
skyttur Víkings léku kúnstir
sínar. En liðið sýndi ýmislegt gott,
t.d. tókst liðinu alloft að halda
knettinum vel, en það er gott vopn
hjá slíku liði. Þá eru nokkrir
leikmanna liðsins mjög liðtækir
og ef yfirvegun væri meiri, mætti
ná meiru út úr liðinu. Þá var núna
góð barátta í liðinu, enginn upp-
gjafartónn. HK gæti enn rétt úr
kútnum.
Bestu menn liðsins voru Ragnar
Ólafsson og Jón Einarsson sem nú
lék með að nýju og þó að hann
virðist enn skorta úthaid, sýndi
hann fallega takta. Hann skoraði
eitt mark í leiknum og er það
örugglega eitthvert fallegasta
mark sem skorað hefur verið í
vetur. Hann fiskaði knöttinn á
eigin punktalínu, óð eins og flug-
eldur upp allan völl, út í vinstra
hornið, stökk þar inn með tvo á
hælunum og skoraði stöngina og
inn í horninu fjær! Stórbrotið
mark. Auk þeirra áttu Hilmar og
Kristján Þór góða spretti, en
áminningin um meiri yfirvegun á
ekki síst við um þá tvo.
í STUTTU MÁLl:
Islandsmótið í handknattleik, 1.
deild, Víkingur — HK: 24—18
(10-8)
MÖRK VIKINGS: Sigurður Gunn-
arsson 6, Þorbergur Aðalsteinsson
og Steinar Birgisson 5 hvor, Árni
Indriðason og Páll Björgvinsson 3
hvor, Ólafur Jónsson-2 mörk.
MÖRK HK: Ragnar Ólafsson 5,
Kristján Þór Gunnarsson og
Hilmar Sigurgíslason 3 hvor,
Magnús Guðfinnsson og Berg-
sveinn Þórarinsson 2 hvor, Jón
Einarsson, Kristinn Ólafsson og
Karl Jóhannsson eitt hver.
BROTTREKSTRAR: Þorbergur
Aðalsteinsson í 4 mínútur, Erling
Sigurðsson og Steinar Birgisson í
2 mínútur hvor.
VÍTI í VASKINN: Kristján Sig-
mundsson varði frá Ragnari Ól-
afssyni, Einar Þorvarðarson varði
frá Árna Indriðasyni og Sigurður
Gunnarsson skaut í stöng. gg.
• Hér er sótt að Steinari Birgissyni i leik gegn Haukum fyrr i vetur. Steinar átti góðan leik gegn HK um
helgina.
Eyja-Þór í þriðju deild?
ÞEGAR upp var staðið í leik
Þróttar og Þórs úr Vestmanna-
eyjum, hafði Þróttur unnið stórt,
27—21. Erí það var furðulegur
tröppugangur í leiknum, því
snemma í síðari hálfleik hafði
Þróttur náð sjö marka forystu og
stefndi í yfirburðasigur, sem
raunin varð á. En þá meiddist
ólafur H. Jónsson á fingri og
varð að hverfa af velli í u.þ.b. 10
mínútur, staðan breyttist þá úr
17—11 í 18—6. Tvívegis fengu
Þórsararnir tækifæri til að
minnka muninn í eitt mark, en
ekkert varð úr. Ólafur kom síðan
aftur inn á og Þróttur fór þá að
leika handknattleik á ný og seig
fram úr á ný.
Það var jafnt upp í 3—3 en þá
kvöddu Þróttarar og staðan
breyttist á skömmum tíma í 8—3.
Þróttur
—Þór Ve &iZC |
Sex mörk skildu í hálfleik, 14—8,
yfirburðastaða. Þróttur skoraði
síðan fyrsta markið í síðari hálf-
leik og nokkru síðar meiddist
Ólafur og leikkaflinn, sem getið er
um hér að framan, gekk i garð,
Þór skoraði þá hvert markið af
öðru og Þróttarar féllu saman. En
sem betur fer fyrir þá tóku þeir
sig saman á ný og skriðu fram úr
og tryggðu sér öruggan sigur.
Hjá Þrótti bar mest á mannin-
um sem skoraði ll mörk, Sigurði
Sveinssyni, en hann var þó lengi
að hita sig upp og skoraði lítið
annað en úr vítaköstum framan af
leik. Höllin nötraði þó undan
þrumuskotum hans lokakafla
leiksins. Auk hans áttu Sveinlaug-
ur og Gísli góðan leik, Ólafur H.
var traustur og Páll gerði laglega
hluti í síðari hálfleik. Þá var
Sigurður markvörður lengst af
mjög góður, varði m.a. 2 vítaköst.
Sigmar Þröstur í marki Eyja
Þórs gerði þó enn betur, varði þrjú
víti og hefur furðulegt lag á að
verja vítaköst. En hlutskipti hans
var annars ekki öfundsvert, þar
sem vörn Þórs var hriplek. Það er
mikil flatneskja í leik Þórs, helst
glöddu línusendingar Ragnars
augað, þá var Herbert drjúgur.
Mörk Þróttar: Sigurður 11 (4),
Páll 4, Sveinlaugur og Gísli 3 hvor,
Lárus, Einar og Ólafur H. 2 hver.
Mörk Þórs: Herbert 6, Ragnar 5
(2), Albert og Ásmundur 3 hvor,
Öskar 2, Þór og Böðvar eitt hvor.