Morgunblaðið - 18.12.1979, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 18.12.1979, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979 Norsk hjonarúm úr furu r Breidd 150 og 180. Getum afgreitt fáein rúm fyrir jól. VERIÐ VELKOMIN KJÖRGARÐI SIMI16975 SMIDJUVEGl 6 SÍMI44544 NÝ NILFISK Nýr súper-mótor: áður óþekktur sogkraftur. Ný sogstilling: auðvelt að tempra kraftinn Nýr ennþá stærri pappírspoki með hraðfestingu. Ný kraftaukandi keiluslanga með nýrri festingu. Nýr vagn sameinar kosti hjóla og sleða. Auðlosaður í stigum SOGGETA f SÉRFLOKKI l'insiakur mólor. cfnixgicAi. mark- vissi hyggingarlag. afhragðs sog- slykki — já. hvcrl smáalriói sluólar uo soggclu í scrflokki, fullkominni orkunýtingu. fyllsta nolagildi og dæmalausri cndingu. GERIÐ SAMANBURÐ: Sjáið t.d. hvcrnig stærð. lögun og siaðsclning nýja Nilfisk-risapokans tryggiróskert sogafl jióll í hann safnisí. GÆÐI BORGA SIG: Nilfisk er vönduð og tæknilega ósvikin. gerð til að vinna sitt verk fljótt og vel. ár eftir ár, með lág- marks truflunum og tilkostnaði. Varanleg: til lengdar ódýrust. Afborgunarskilmálar. Traust þjónusta. iyj 11 ETI MÆT heimsins besta rýksuga JfjE || l**l 1^^ Stórorð, semreynslan réttlætlr. ll^r^L FYRSTA FLOKKS FRÁ FÖNIX HÁTÚNI — SÍMI 24420 Vinarkveðja: Héðinn Maríusson Húsavík - Áttræður Hinn 18. desember 1899 fæddist hjónunum Maríusi Benediktssyní á Húsavík og konu hans Helgu Þorgrímsdóttur frá Hraunkoti sonur er hlaut nafnið Héðinn. Foreldrarnir Helga og Maríus voru frábærir dugnaðar garpar, þar sem landbúnaður og sjósókn var stundað jöfnum höndum, og sjálfsbjargarviðleitni sat í fyrir- rúmi, en ekki gerð kröfugerð til annarra. Á þessu merkis heimili ólst Héðinn upp og tók í arf lífsviðhorf og dugnað foreldra sinna. Frá fyrstu barnæsku fylgdi hann í fótspor þeirra og byrjaði kornungur að stunda sjóróðra, fyrst með föður sínum, og varð mönnum fljótt ljós afburða nátt- úrugreind og athyglisgáfa þessa unga manns, og að hann var kjörinn formaður til sjósóknar. Varð hann strax eftir fermingu formaður á árabátum, og við komu mótorbáta er hann var 18 ára varð hann formaður á mótor- bátnum Barða sem hann mun hafa átt að hluta, en síðan varð hann formaður á Friðþjófi, eign bræðranna Aðalsteins og Páls Kristjánssona, og tengdist þeim órjúfandi böndum meðan verzlun þeirra gerði út. Var hann ætíð aflakóngur, þótt keppti hann þar við stærri og gangbetri báta. Hin síðari ár hefir Héðinn ekki stund- að sjó, en rekið útgerð með syni sínum Helga, og hugsað um veið- arfæri og línu, og fellur aldrei verk úr hendi, en þó hefir hann alltaf stundað kolaveiði í net með svo og fyrirdrátt á loðnu og slíku, en Héðinn er þekktur að því að hafa svo glöggt náttúruauga að fyrstur manna veit hann þegar breytingar verða á sjó og fyrstur manna finnur hann að loðnugöng- ur hafi gengið í flóann, svo og annar fiskur, og fuglalífið fer ekki fram hjá honum. Selaveiðimaður var Héðinn með afbrigðum góður, og er mér minn- isstætt frá æskudögum mínum á Húsavík, þegar selaveiðimenn hrófuðu báta sína í fjörunni fær- andi nýmeti af sel á útmánuðum, og var Héðinn sá er sá fjölmennu heimili mínu fyrir nýmeti yfir veturinn, sem var rauðmagi, þorskur úr línuveiðum á árabát, og selur, og enginn mun sá Húsvíkingur eldri sem yngri sem hugsar ekki hlýtt til þessa ljúfa, broshýra drengskaparmanns á þessum tímamótum. Hann stend- ur enn teinréttur og glaðlegur við línustampinn og stokkar eða beitir línu sína og horfir til flóans, sem hann þekkir best og ann mest. Héðinn hefir verið mikill láns- maður, að sigla alltaf skipi sínu heilu í höfn án mannskaða, svo hefur hann einnig verið gæfu- maður með fjölskyldu sína, en 1921 giftist liann konu sinni Helgu Jónsdóttur, f. 16/2 1897, dóttur hins kunna völundarsmiðs Jóns Ármanns Árnasonar á Fossi í Húsavík, og eignast með henni 9 mannvænleg og góð börn, sem öll hafa tekið í arf dugnað og æðru- leysi góðra foreldra en þau eru: Kristbjörg, húsfrú á Húsavík; Maríus, skipstjóri í Hafnarfirði; Guðrún, húsfrú á Húsavík; Jón Ármann, fyrrv. alþingism. Kópa- vogi; Helgi, formaður Húsavík; Pálmi, skipstjóri Húsavík; Þór- unn, húsfrú Húsavík; Benedikt, sjómaður Húsavík og Sigurður, skipstjóri Hafnarfirði. Kæri vin. Þegar ég nú sest niður og skrifa þessar línur til þín, þá reikar hugur minn til æskuáranna á Húsavík og síðar fullorðinsára þar, þá verður mér enn ljósara, hve þú og þínir líkar eruð miklir feður Húsavíkur, sem snemma á öldinni breyttuð litla þurrabúðar þorpinu í bæ, frá árabát til stórskipa, með þrotlausri vinnu, afneitun og manndómi og iðjusemi til sjálfsbjargar, en gerðuð ekki kröfur til annarra svo sem nú virðist í tísku, og fylgir þessum hugsunum mínum lotningar kveðja til þín og þinna og leyfi ég mér að bera þér kveðjur foreldra minna þótt látnir séu í trausti þess að mér var kunnugt um þann mikla hlýhug sem þau báru ávallt til þín fyrir góð kynni, og að endingu bið ég þess að ellidagar þínir verði eins bjartir og ævidag- ar þínir til þessa. Þinn vin Vernharður Bjarnason Það var mikil gæfa fyrir mig, sjö ára snáðann, að foreldrar mínir skyldu fá bústað við kom- una til Húsavíkur í næsta ná- grenni við Helgu Þorgrímsdóttur og Maríus Benediktsson, útvegs- bónda að Hlöðum á Húsavík. Þar með höfðu forlögin slegið því föstu, að ég hafði í raun eignast tvö heimili á Húsavík, enda fór svo, að á bernskuárum mínum mun ég hafa sofið allt að því jafn margar nætur há þeim Helgu og Maríusi eins og heima hjá mömmu og pabba. Og á daginn sat ég við hlið Maríusar við kjallaradyrnar á Hlöðum, þegar hann var að brytja beinin til bragðbætis og fóðurs í heyið handa kindunum sínum en á daginn rölti ég um með sonum hans, sem voru allir nokkru eldri en ég en tóku mig samt sem bróður. Þessi forna og djúpa vinátta hefur svo haldist jafnan síðan á milli mín og afkomenda Helgu og Maríusar. Þegar elzti sonurinn Héðinn- hinn mikli formaður, aflamaður og veiðimaður, á 80 ára afmælis- dag hinn 18. desember, er ekki furða þó að minningarnar sæki fast á mig. Og þá verður mér efst í huga, að það voru einmitt Helga og Héðinn ásamt Fríðu og Agli Jónassyni, sem faðir minn batt fyrst saman á borgaralega vísu í hjónaband af ungum elskendum á Húsavík. Þetta atvik er alveg sérstaklega ljóst í minni mínu vegna þess, hve hrifinn ég þá var, ungur snáðinn, af þessum fallegu ungu elskendum, og ég skal fús- lega játa það í dag, að þá lá ég á gægjum með yngra bróður mínum í fyrsta og síðasta skipti, sem faðir minn framdi hjónavígslugerð, sem honum þótti farast sérstaklega vel úr hendi. Svona hófst hin trygga og langa lífsvinátta okkar Héðins Maríuss- onar heima á Húsavík og tel ég alltaf að þetta sé óvenjulega fallegur og heillandi forleikur að vináttu tveggja manna, vináttu, sem aldrei hefur borið skugga á en ætíð verið vafin birtu og kærleika. Sú árátta hefur fylgt mér síðan ég man fyrst eftir mér, að elska morguninn, birtuna og taka dag- inn snemma. Svona var þetta á Húsavík forðum daga, og lá þá löngum leiðin niður í fjöru, niður á gömlu bryggjurnar, stundum með lítinn spotta og öngul í lófanum og svo stundum með lítið bambusprik undir hendinni. En aldrei brást það, að hvað snemma sem ég kom á þennan eftirsótta vettvang, þá var Héðinn þar fyrir, ef hann þá var ekki kominn vestur á Flóann eða austur með Tjörnesi til fanga með skipshöfn sinni. En þegar við hittumst, þá var löngum sama kveðjan á vörum þessa morgunglaða veiðimanns: „Góðan daginn, glókollur minn, og gangi þér nú dagurinn vel.“ Hugsið ykkur þann mikla kærleika sem felst í slíkum morgunóskum. Og ég get ekki stillt mig um að minnast þess, að fyrir fáum árum var ég staddur heima á Húsavík og þá, eins og á bernskuárunum, var ég kominn eldsnemma niður á bryggju. Kemur þá ekki Héðinn upp úr báti sínum við byrggjuna, brosandi og hýr, eins og ævinlega og segir: „Nei, er þá ekki glókoll- urinn minn kominn hingað aftur." Það er kannski ekki við hæfi að rekja slíkar persónulegar minn- ingar á almannafæri á þessum hátíðisdegi Héðins Maríussonar. En þær eru mér svo kærar, að ég

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.