Morgunblaðið - 26.01.1980, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1980
47
KR-stúlkurnar
meistarar í
körfuknattleik
í FYRRAKVÖLD íór fram leikur
í meistaraflokki kvenna í körfu-
knattleik. Áttust þar við lið ÍS og
KR. KR-stúlkurnar sigruðu i
leiknum með 55 stigum gegn 50
og eru þar með búnar að tryggja
sér íslandsmeistaratitilinn i ár.
Þær hafa ekki tapað leik í mótinu
til þessa. Leikur ÍS og KR var
mjög spennandi og framan af
fyrri hálfleik var allt útlit fyrir
að KR myndi tapa leiknum. Rétt
fyrir hálfleik var staðan 31 — 13
fyrir ÍS en með mikilli baráttu
tókst KR-stúlkunum að síga á,
jafna metin og sigra í leiknum.
Lið KR á aðeins eftir einn leik í
Reykjavíkurmótinu og sigri liðið
í þeim leik eru þær einnig orðnar
Reykjavíkurmeistarar. — þr.
• 1. flokkur KR, talið f.v. Efri röð: ólafur Finnsen, Hilmar
Viktorsson, Jön G. Guðlaugsson, Bogi Fransson, Guðjón Jóhannesson.
Neðri röð f.v.: Árni Guðmundsson, Sófus Guðjónsson, Guðmundur
Pétursson og Björn Björgvinsson. Strákhnokkinn heitir Guðmundur
Sófusson. Ljósm. Emilía.
Venjarin hjá
HB farin
av landinum
Hevur hverki verift professionellur fót-
bóltsspælari ella venjari
Nýi þjalfarinn vissi
varla deili á
UPP kom meiri háttar hneyksl-
ismál í Færeyjum fyrir skömmu,
er knattspyrnufélagið HB óskaði
eftir því við danska knattspyrnu-
sambandið, að það útvegaði góð-
an þjálfara. Þótti Dönum ekkert
vera sjálfsagðara og að vörmu
spori mætti maður nokkur að
nafni Abraham Mendes til leiks
hjá HB.
Það reyndist hins vegar ekki
allt vera . með felldu, því að þrátt
knattspyrnu
fyrir bestu meðmæli frá danska
knattspyrnusambandinu, kom í
ljós, að Mendez hafði hvorki
reynslu að baki sem knattspyrnu-
maður né þjálfari. Mendez hafði
haft vit á því að undirrita enga
samninga í Færeyjum með þeim
orðum að orð hans nægðu. Lét
hann sig síðan hverfa, en eftir
sátu forráðamenn HB „sjokkerað-
ir yfir að vera fuppaðir" eins og
lesa má í Dimmalætting.
Fram - Haukar
í bikarnum
EINN leikur fer fram í bikar-
keppni HSÍ á sunnudagskvöldið,
er það viðureign Fram og Hauka
og hefst leikurinn klukkan 19.00.
Einn leikur hefur þegar farið
fram, sannarlega fyrir luktum
dyrum. Þrátt fyrir feluleik hefur
Mbl. grafið upp úrslitin, en KR
lagði þá að velli UBK 26—21.
Leikur Hauka og Fram fer
fram í Laugardalshöllinni og
gæti orðið tvísýn viðureign, en
bæði liðin hafa til þessa ekki sýnt
hvað virkilega í sér býr það sem
af er íslandsmótinu. Gæti sigur
orðið til þess að hleypa fjöri i
viðkomandi lið.
• í fyrravetur var keppt á Akureyri og er myndin frá þeim leik.
Sigra Reykvíkingar
aftur í íshokkíinu?
í DAG kl. 15.00 fer fram á
Melavellinum bæjarkeppni í
ishokkí milli Reykjavíkur og
Akureyrar.
Keppt verður um
veglegan bikar og er aðgangur
að leiknum öllum ókeypis. Allt
bendir til þess að um hörkuleik
verði að ræða. í fyrra sigruðu
Reykvíkingar 4 — 1, en Akureyr-
ingar hafa löngum verið i
fremstu röð í greininni og munu
sjálfsagt ekki gefa það eftir á
morgun.
Lið Reykjavíkur hefur
æft vel að undanförnu og er
skipað góðum leikmönnum. Þar
eru fremstir í flokki synir Helga
Geirssonar formanns skautaráðs
Reykjavíkur. Það sem stendur
ishokki íþróttinni nú einna helst
fyrir þrifum er að ekki er vél-
fryst skautasvell til að æfa á
fyrir hendi.
Sigurliðið frá 1978
er ekki lengur til
Létt hjá
Laugdælum
UMFL tryggði sér enn einn
öruggan sigurinn í 1. deild
íslandsmótsins i biaki á fimmtu-
dagskvöldið, er Víkingarnir
sóttu Laugdæli heim. Sigraði
meistaraliðið 3—0,15—10,15—9
og 15—7, áttu Víkingarnir ekk-
ert svar við sterkum leik UMFL.
Kvennaíið Víkings var með í
förum og hefndi ófara karlanna.
Sigraði Víkingur UMFL örugg-
lega í kvennaflokki 3—0, 15—8,
15-6 og 15-7.
SEM kunnugt er urðu Argentínu-
menn ekki aðeins heimsmeistar-
ar í knattspyrnu 1978, heldur
varð unglingalandslið þeirra
einnig heimsmeistari á síðasta
ári. Þjálfarinn Cesar Menotti
hefur að undanförnu verið gagn-
rýndur mjög fyrir að tæta í
sundur sigurliðið frá 1978 og
nota leikmenn unglingaliðsins í
stórum stíl er hann teflir fram
A-landsliðinu.
Hitt er svo annað mál og fæstir
skilja, að misjafnlega er komið
fyrir þeim leikmönnum sem færðu
Árgentínu heimsmeistaratitilinn
1978. Aðeins þrír, kannski fjórir
gera.
geta talist liðtækir landsliðinu í
dag. Það eru fyrirliðinn Daniel
Pasarella, Americo Gallego,
Ubaldo Fillol og Jose Olguin. Af
hinum má geta þeirra Daniel
Bertoni, Mario Kempes, Rene
Houseman, Osvaldo Ardiles og
Ricardo Villa, sem allir leika vel
um þessar mundir (nema House-
man sem er í letikasti og hefur
ekki hreyft sig í 2 mánuði), en sá
er galli á gjöf Njarðar, að þessir
menn leika allir erlendis, í Evr-
ópu.
Luis Galvan þykir vera of gam-
all, Oscar Ortiz liggur á spítala
með heilaskemmdir og Leopoldo
Luque er að drukkna í þrálátum
meiðslum, leikbönnum og slíku.
Loks má geta Alberto Tarantini
sem lék um tíma með Birming-
ham, en líkt er komið með honum
og Rene Houseman, þ.e.a.s. kæru-
leysi. Tarantini hefur hvorki æft
eða leikið að undanförnu. Það er !
því engin furða að Menotti hafi
gefið ungu leikmönnum möguleika
að undanförnu, enda ekki stætt áj
öðru þegar að er gáð. Menotti er
farinn að hugsa til HM 1982 sem
fram fer á Spáni. Sem heims-
meistarar verða Argentínumenn
að mæta þar með frambærilegt lið
og að því stefnir Menotti, með því
að byggja ungu heimsmeistarna
sína upp í kring um hinn bráðefni-
lega Diego Maradonna.
Aðalfundur
Víkverja
Aðalfundur Víkverja verður
haldinn næstkomandi laugardag,
2. febrúar, að Mjölnisholti 14.
Fundurinn hefst kl. 15. Venjuleg
aðalfundarstörf.
Austur-Húna-
vatnssýslu
óskar eftir aö ráöa knattspyrnuþjálfara n.k.
keppnistímabli. N
Upplýsingar gefur Guömundur Guðmundsson í
síma 95-4123 milli kl. 8 og 23 og 13—18.