Morgunblaðið - 08.03.1980, Side 19
HVAD ER AD GERAST I BÆNUM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1980
19
' H "" i I i
I JT" 1| ^ j’ y ■ X1
Kristjén Snorrason leikur á flöskurnar.
HLTÓÐFÆRI
Leikur létt lög o g
sígild verk á 13
brenmvínsflöskur
Á SUNNUDAGSKVÖLD er svokallað sólarkvöld í Súlnasal Hótels
Sögu, en íyrir því standa ferðaskrifstofurnar Samvinnuferðir og
Landsýn. Sitthvað er til skemmtunar, en það sérstæða er einleikur á
flöskur og einleikarinn leikur meira að segja úr verkum Beethovens.
Kristján Snorrason heitir flöskuleikarinn og við náðum tali af honum
á Bifröst þar sem hann stundar nám.
„Þetta eru þrettán brennivíns-
flöskur sem ég leik á, 12 sem eru
heilnótur og ein hálfnóta. Þær eru
misstórar, mismunandi mikið í
þeim og sumar eru tómar. Eftir
því sem þær eru minni, þeim mun
lægri verður tónninn. Einnig
skiptir glerþykktin máli. Það erf-
iðasta við þetta er að stilla
flöskurnar, en það geri ég með
aðstoð harmonikku og getur það
byggst á talsverðri blöndun. Með
þessu móti hef ég þrettán tóna,
rúmlega eina og hálfa áttund og á
flöskurnar leik ég með teskeið sem
ég held í hægri hendi, en með
þeirri vinstri leik ég á harmon-
ikkubassa.
Nei, ég hef ekki spilað opinber-
lega áður, aðeins á lokuðum
skemmtunum, en ég byrjaði að
fikra mig áfram við þetta árið
1973. Ég spila ýmis lög með
hröðum takti, létt lög sem margir
kunna eins og lagið úr Línu
Langsokk, polka og stef úr einu af
verkum Beethovens."
SKÍÐI
lOOOir í brekkurnar
OPIÐ verður á öllum skíðasvæð- Reykjavíkurborgar eru lyftur
um í nágrenni Reykjavíkur um opnar í öllum brekkunum og
helgina frá kl. 10—6 svo fremi að göngubrautir og hvarvetna eru
veður leyfi. Hér er um að ræða skálar opnir. Þegar allt er með
skíðabrekkurnar í Bláfjöllum, felldu í Bláfjöllum hvað veður
Hveradölum, Hamragili, Sleggju- varðar eru liðlega 3000 manns
beinsskarði og Skálafelli. Sam- þar en þegar mest er um helgar
kvæmt upplýsingum Stefáns getur mannfjöldinn orðið 6000—
Kristjánssonar iþróttafulltrúa 7000.
ÞALIA
Útibú til fjáröflunar
HJÁ Leikfélagi Reykjavikur er
„Lífið“ sýnt í kvöld, þ.e. Er þetta
ekki mitt líf?. en bað hefnr verið
Soffía og Margrét í Klerkaklíp-
unni.
sýnt liðlega fjörtíu sinnum við
góðar undirtektir að sögn Tómas-
ar Zoéga framkvæmdastjóra
Leikfélagsins. Á sunnudagskvöld
er Ofvitinn sýndur að vanda fyrir
fullu húsi og hafa sýningar verið
62 frá þvi í október.
Klerkar í klípu eru á fjölum
Austurbæjarbíós á föstudags- og
laugardagskvöldum kl. 23.30, en
Klerkarnir eru farsi sem hefur
verið sýndur 10 sinnum á einum
mánuði fyrir fullu húsi. í Klerkun-
um leika Soffía Jakobsdóttir,
Margrét Ólafsdóttir, Jón Hjartar-
son, Steindór Hjörleifsson, Guð-
mundur Pálsson, Harald G. Har-
alds og Saga Jónsdóttir.
Að sögn Tómasar er starfið að
hluta flutt í Austurbæjarbíói
vegna plássleysis í gamla Iðnó og
einnig til þess að afla fjár fyrir
reksturinn í Iðnó sem er mjög
erfiður í svo litlu leikhúsi.
NAUSTIÐ
Skötuselur í karry-
smjöri og nýtínd aða
VEITINGA- og matsölustaðir
borgarinnar hafa í sívaxandi
mæli lagt áherzlu á f jölbreytni og
glæsibrag í þeim réttum sem
boðið er upp á. Við höfðum
samband við Naustið til þess að
fá sýnishorn frá þeim af því sem
hinir fjölmörgu veitingastaðir
leggja áherzlu á.
„Við höfum lagt alla áherzluna
á fiskrétti hér í Naustinu síðustu
viku og höldum því áfram fram
yfir helgi a.m.k.,“ sagði Ib Wess-
man yfirbryti í Naustinu, en
ástæðuna fyrir því að þeir væru
með allt í fiski nú kvað hann vera
gesti Norðurlandaráðs sem hefðu
flykkst í fiskréttina.
„Það hefur farið mikið af skötu-
sel,“ sagði Ib, „og í gær fékk ég
hugdettu í sambandi við skötusel-
inn og framkvæmdi hana með
io meo v»nan slurk af djúprækju
og nýtíndri ööu í gær.
góðum árangri. Hugdettan var að
rista skötuselinn í karrysmjöri og
láta hann krauma og fólk hefur
verið sólgið í þetta síðan við
bárum þennan rétt á borð.
Skötuselurinn er skorinn í
bita og bakaður í karrysmjörinu
og síðan er hann borinn fram með
krydduðum hrísgrjónum, ristuðu
brauði og smjöri.
Þá bjóðum við til dæmis einnig
upp á nýtínda öðuskel, sem er
tekin á Vatnsleysuströnd og út af
Seltjarnarnesi. Við sjóðum hana í
eigin safa og bjóðum hana þannig
og einnig er hún framreidd bökuð.
Einnig má nefna að við bjóðum
óskelfletta djúprækju og reyndar
er hægt að fá skötuselinn í
karrysmjöri, öóuskel og djúp-
rækju í einum rétti og það hefur
verið mjög vinsælt."
GAMLA BÍÓ
Franska hverfið og Hundalíf
GAMLA bíó sýnir um helg-
ina bandarísku myndina
Franska hverfið á sýning-
um kl. 5, 7 og 9. Þá sýnir
Gamla bíó kl. 3 myndina
Hundalíf, hina rómuðu og
kunnu Disneymynd. Er
hún sýnd með íslenzkum
texta, en hún var sýnd í
bíóinu fyrir mörgum árum.
Franska hverfið sýnir
þann þjóðlífssvip sem nafn-
ið ber með sér og mætti ef
til vill á hógværu máli
segja að hún ætti sér stað í
samkvæmishúsi.
Þessar tvær koma viö sögu í Franska hverfinu í Gamla bíói.
Margrét Birgisdóttir er 19 éra gömul og stundar nám í Flensborg og
þegar blaóamenn Morgunblaðsins sáu myndina voru þeir sammála
um aö þaö v»ri eiginlega sóun aó þessi stúlka sýndi eitthvað
annað en eigin feguró.
DANSHÚS
Líf og fjör
Skemmtistaðirnir á höfuðborg-
arsvæðinu eru opnir að vanda með
ýmsum möguleikum fyrir þá sem
leggja út í næturlífið. Það er um
margt að velja eins og t.d. Hótel
Sögu, Óðal, Naust,. Klúbbinn,
Hollywood, Glæsibæ, Þórskaffi,
Sigtún, Leikhúskjallarann og
Snekkjuna í Hafnarfirði svo eitt-
hvað sé nefnt.
Svo við grípum niður í dag-
skrána á einum skemmtistaðnum,
Hollywood, má nefna að þar kem-
ur fram forláta plötusnúður frá
Bretaveldi. Heitir sá Sammy
Southall og lætur hann hljómplöt-
urnar þeytast á laugardagskvöld.
Á sunnudagskvöld verður þetta
með íslenzku bragði, því þá stjórn-
ar Gísli Sveinn Loftsson hljóm-
plötutækjunum og sér um verk-
stjórn í samkvæmisleikjum, en á
miðju kvöldi mæta sýningarstúlk-
ur frá Módelsamtökunum og sýna
fatnað úr ýmsum áttum. Reyndar
eru Módelsamtökin talsvert á
ferðinni um helgina og a.m.k. eru
þau einnig á Sólarkvöldi á Hótel
Sögu á sunnudagskvöld. Við fisk-
uðum upp myndir af sýningar-
stúlkum hjá Modelsamtökunum og
birtum sýnishorn hér með, en sjón
er sögu ríkari í þeim efnum.