Morgunblaðið - 08.03.1980, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1980
Franz Josef Strauss:
Gagnrýnir hik Schmidts
varðandi bátttöku í 01.
Munchcn. London. 7. marz. AP.
FRANZ Josef Strauss,
ríkisstjóri í Bæjaralandi
og helzti keppinautur
líelmut Schmidts um
kanslaraembættið í kosn-
ingunum í haust, gagn-
rýndi Schmidt fyrir lina
afstöðu varðandi þátttöku
í Ólympíuleikunum í
Moskvu í sumar.
„Það er sorglegt," sagði Strauss,
„að kanslarinn skuli ekki opinber-
lega hafa lýst því yfir að þjóðin
taki ekki þátt í Ólympíuleikunum.
Hann er ekki trúverðugur leiðtogi
á örlagastund. Hik hans lýsir
óöryggi, óákveðni og grunn-
hyggni." Sagðist Strauss ekki bera
hatur til Socétríkjanna, stefna
hans í málinu væri ekki örgun,
heldur raunsæ.
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra Bretlands hóf í dag nýja
sókn gegn þátttöku Breta í 01-
ympíuleikunum. Hvatti hún Breta
til að fara ekki til Moskvu sem
áhorfendur þótt ákveðið yrði að
halda leikana.
Sendiherrar sem
skjól gegn kúlnahríð
Vínarborg, 7. marz. AP.
EDGAR Selzer sendihcrra scm
skæruliðar létu lausan úr haldi i
sendiráði Dóminíkanska lýðveld-
isjns í Bogota hvatti í dag alla, er
áhrif gætu haft. til að beita sér
fyrir friðsamlegri lausn deilu
skæruliða og stjórnvalda.
Selzer var látinn laus þegar
fréttist um veikindi konu hans, og
kom hann í morgun til Vínarborg-
ar á fund fjölskyldu sinnar. Hon-
um var sleppt án nokkurra skil-
yrða, að eigin sögn.
Selzer lýsti ástandinu í sendi-
ráðinu fyrir fréttamönnum í dag,
en hann sagði að andrúmsloftið
hefði verið þrungið spennu fyrstu
klukkustundirnar eftir að skæru-
liðarnir réðust inn í það, og meðan
skipst var á skotum. Þá hefðu
sumir sendiherranna verið notaðir
sem skjól gegn kúlnahríð og þeim
m.a. stillt upp í glugga, en til
allrar hamingju hefði enginn fall-
ið. Öðrum sendiherrum hefði verið
safnað saman í hóp á miðju gólfi
stórs herbergis og þeim hótað
lífláti ef herinn léti til skarar
skríða.
Hann sagði að gíslunum hefði
að öðru leyti ekki verið gert mein,
og til að bæta andrúmsloftið hefðu
sendiherrarnir lagt sig fram um
að halda uppi viðræðum við
skæruliðana. Selzer giskaði á að
skæruliðarnir í sendiráðinu væru
20 talsins, þar af fjórar til sex
stúlkur.
„Burgess-Maclean-Philby'4 — njósnamálið:
Uppljóstranir
á næsta leiti?
London. 7. marz. AP.
HAROLD „Kim“ Philby,
einn kunnasti njósnari
Breta, gaf í skyn í bréfi til
ritstjóra brezka tímaritsins
„Spectator" að nýrra upp-
ljóstrana væri að vænta í
njósnamálinu fræga.
Kim Philby
Ritstjórinn bauð Philby að
rita umsögn í blað sitt um bók
Andrews Boyle, „The Climate
of Treason", sem kom út í
nóvember og ljóstraði upp um
fjórða manninn í „Burgess-
MacLean-Philby“-njósnakeðj-
unni svokölluðu. Afþakkaði
Philby það boð, og sagði í bréfi
frá Moskvu, en þangað flúði
hann árið 1963, að heiðarleg
umfjöllun um bókina mundi
innihalda „stórkostlega óþag-
mælsku“, sem hann kvað
tímaritið sennilega ekki hafa
mikinn áhuga á að birta.
Brezk blöð hafa skýrt frá
því, að Philby hafi komizt til
æðstu metorða innan sovézku
leyniþjónustunnar, KGB, og
jafngildi tign hans þar hers-
höfðingjatign.
Kaffi hækkar
Rio dc Janciro. 4. marz. A.P.
BRAZILÍUMENN hækkuðu í
dag verð á kaffi um 55 cent
pundið. Hið nýja verð tekur
strax gildi.
yj!
Veó Akureyri >ur -3 skýjað
Amsterdam 9 skýjað
Aþena 10 rigning
Barcelona 20 iéttskýjað
Berlín 5 skýjað
BrUssel 9 skýjað
Chicago -3 skýjað
Dyflinni 9 rigning
Feneyjar 8 þokumóóa
Frankfurt 9 rigning
Genf 10 skýjaö
Helsinki 3 heiöskírt
Jerúsalem 16 þokumóða
Jóhannesarborg 24 heiðskírt
Kaupmannahöfn 2 rigning
Laa Palmas 18 skýjað
Lissabon 15 rigning
London 8 skýjaö
Los Angeies 16 skýjað
Madrid 18 heiðskírt
Malaga vantar
Mallorca 19 léttskýjaö
Miami 24 skýjað
Moskva -4 heiöskírt
New York 8 skýjað
Osló 1 snjókoma
Parít 11 skýjað
Reykjavík 0 snjóél
Rio de Janeiro 38 heiöskírt
Róm 16 skýjaö
Stokkhólmur 5 skýjað
Tel Aviv 19 þokumóöa
Tókýó 7 rigning
Vancouver 8 heiðskírt
Vínarborg 5 heiðskírt
Þetta gerðist 8. marz
1979 — Friðarferð Jimmy Carters
forseta til Miðausturlanda hefst.
1970 — Þyrla Makariosar skotin
niður á Kýpur en hann sakar ekki.
1969 — Her Rússa á landamærum
Kína settur í viðbragðsstöðu eftir
átökin við Ussuri-fljót.
1965 — Landganga 3,500 banda-
rískra landgönguliða í Suður-
Víetnam,
1961 — Suður-Afríka boðar úr-
sögn úr samveldinu á ráðstefnu í
London.
1954 — Varnarsamningur Banda-
ríkjanna og Japans undirritaður.
1950 — Voroshilov tilkynnir að
Rússar eigi kjarnorkuvopn.
1949 — Víetnam fær sjálfstæði í
franska samveldinu.
1942 — Japanir taka Rangoon.
1920 —Danir fá inngöngu í þjóða-
bandalagið.
1917 — Rússneska byltingin hefst
í Petrograd — Wilson forseti
fyrirskipað að bandarísk kaupskip
verði vopnuð — Bandarískir land-
gönguliðar ganga á land á Kúbu.
1865 — Lagning skurðar milli
Amsterdam og Norðursjávar
hefst.
1801 — Bretar taka Aboukir.
1765 — Brezka lávarðadeildin
samþykkir stimpillögin um álögur
í Norður-Ameríku.
1722 — Stríð brýst út milli
Afgana og Persa.
1702 — Anna drottning tekur við
ríkjum í Bretlandi.
t6.Afmæli. Richard Howe, enskur
aðmíráll (1726-1799) - C.P.E.
Bach, þýzkt tónskáld (1714—1788)
— Oliver Wendell Holmes, banda-
rískur hæstaréttardómari
(1841—1935) — Otto Hahn, þýzkur
efnafræðingur (1879—1968) —
Cyd Charisse, bandarísk dansmær
(1923 - ).
Andlát. 1844 Karl XIV Svíakon-
ungur — 1868 Hector Berlioz,
tónskáld — 1889 John Ericsson,
uppfinningamaður.
Innlent. 1843 Alþingi endurreist
— 1232 Hundadalsvíg, d. Snorri og
Þórður Þorvaldssynir — 1700 Tug-
ir fiskibáta fórust með hátt á
annað hundrað manns — 1868 d.
Jón Thoroddsen — 1779 d. Gísli bp
Magnússon — 1827 f. Páll Ólafs-
son skáld — 1869 d. Kristján
Jónsson skáld — 1937 Fyrsta
óperusýning á íslandi — 1940
Togarinn „Gullfoss" talinn af —
1944 Stjórnarskrá íslands sam-
þykkt.
Orð dagsins. Allir vilja lifa leng-
ur, en enginn vill verða gamall —
Benjamin Franklin (1706—1790).
Japanskir togarasjómenn mala dauða höfrunga í
kvörn í höfninni í Katsumoto í Ikiey, 1200 mílur
suðvestan við Tókýó. Sjómennirnir sögðust farga
höfrungunum, þar sem þeir væru „glæpadýr“ úthaf-
anna og ætu gríðarlegt magn af fiski sem væri
grundvöllur tilveru eyjarskeggja. í forgrunni má sjá
dauða höfrunga fljóta í sjónum.
Nýr Smyrill til Færeyja?
Frá frcttaritara Morgunblaðsins,
Þórshöfn í Færcyjum í gær.
LANDSTJÓRN Færeyja heíur beð-
ið Lögþingið um heimild til að
kaupa dönsku ferjuna Mikkel Mols
fyrir 21 milijón danskra króna og
taka nauðsynleg lán í því skyni.
Landstjórnin hefur jafnframt beð-
ið Lögþingið um heimild til að taka
nauðsynleg lán til breytinga á skip-
inu, þó ekki hærri en 3,5 milljónir
króna.
Hergeir Nielsen landstjórnar-
maður sagði að landstjórnin hefði
kannað hvernig hægt væri að fá skip
til að leysa Smyril af hólmi í
innaneyja siglingum og hefði komizt
að þeirri niðurstöðu að bezta lausnin
væri að kaupa systurskipið Mikkel
Mols.
Smyrill, sem áður hét Morten
Mols, var keyptur til Færeyja 1975
og hefur bæði verið notaður í
millilanda- og strandsiglingum. Nú
er ætlunin að Smyrill verði í sigling-
um til annarra landa allt árið, meðal
annars til Hirtshals.
Arge
1.000 pólitískir fangar á Kúbu
WashinKton. 7. marz. AP.
í SKÝRSLU mannréttindanefnd-
ar Bandalags Ameríkuríkja
(OAS) segir að um 1.000 pólitísk-
ir fangar séu á Kúbu. Mörgum
þeirra sé að jafnaði misþyrmt og
flestir búi þeir við kröpp kjör,
líði matarskort og þjáist af van-
næringu.
Sumir fanganna eru frá því í
forsetatíð Fulgencio Batista.
Fangarnir eru látnir gangast und-
ir „endurhæfingu", og sýni þeir
samstarfsvilja við hinn kommún-
istíska málstað eiga þeir von á
betri meðferð og jafnvel skjótri
lausn úr fangelsi.
Einkabílstjórinn
náði fórnarlamb-
inu úr klóm mann-
ræningjanna
Stokkhólmi, 7. marz. AP.
TVEIR menn gerðu í dag tilraun til að ræna 34 ára gomium syni
sænsks auðkýfings, Thomas Philipson, en mannránstilraunin fór
út um þúfur þar sem einkabilstjóra auðkýfingsins tókst að ná
honum úr kióm mannræningjanna eftir mikinn eltingarleik um
götur Stokkhólms. HIupu ræningjarnir af hólmi er bilstjóranum
tókst að króa bifreið þeirra af við gatnamót.
Ræningjarnir náðu Philipson yfir í sendibifreið sína, og hefur
komið til stympinga þar, þar sem Philipson var með svöðusár á
höfði eftir barsmíðar. í bíl ræningjanna fannst búnaður sem ljóst
er að nota átti til að svæfa hann. Komust ræningjarnir undan á
flótta. Talið er að þeir séu um þrítugt.
Lögreglan sagði að líklega hefðu mennirnir reynt að ræna
Philipson í auðgunarskyni, þar sem hann væri erfingi sænska
fyrirtækisins sem hefur söluumboð fyrir Mercedes og fleiri
sendibifreiðar. Ekki hefur áður verið framið mannrán í auðgun-
arskyni í Svíþjóð. Nokkrum sinnum hefur hins vegar verið komið
upp um áætlanir um rán á háttsettum og/eða auðugum mönnum.