Morgunblaðið - 15.03.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980
Hrakningar og eignatjón i óveðrinu
ísafjörður:
Barnavagn
með barni í
tókst á loft
ísafirði. 14. marz.
ÉG HEF trú á, að veðurhamur-
inn hafi farið upp i 12 vindstig í
verstu hríðunum en þetta veður
var ekkert í líkingu við óveðrið
sem gekk hér yfir á dögunum.
Tjón varð ekkert að mér sé
kunnugt en ég sá barnavagn
takast á loft beint fyrir framan
mig, og þeytast á hliðina. Barn
var í vagninum og þegar ég kom
aðvífandi var það hágrátandi en
hafði ekki orðið meint af. Þá sá
ég dreng takast á loft og þeytast
utan í grindverk þar sem hann
hélt sér, þar til honum barst
aðstoð.
Úti á firðinum var 20 metra há
rokgæra. Rækjubátar fóru á sjó í
morgun en komu um hádegið
aftur. Þá fóru línubátarnir á sjó
í gær en þeir komu inn um
hádegið. Togararnir Guðbjörg og
Guðbjartur lönduðu 180 tonnum
hvor eftir fimm daga veiðiferð.
Rokveiði hefur undanfarið verið
frá Djúpál austur að Reykja-
fjarðarál.
- Úlfar.
Stykkishólmur:
Símalínur
slitnuðu
Stykkishólmi. 14. marz.
Það hefur verið hér óskaplegur
veðurofsi í dag, en þó hafa engin
óhöpp orðið. Símalínur slitnuðu og
örbylgjusambandið fór úr sam-
bandi þannig að Hólmarar hafa að
mestu verið sambandslausir við
umheiminn í dag. Baldur fór í dag
til Flateyjar og var væntanlegur
aftur í kvöld.
— Árni.
Mikill vatnselgur myndaðist viða á götum borgarinnar.
Ljósm. Mbl. RAX.
Um 200 manns teppt í Bláf jöllum:
Komu í bæinn undir morgun
„UM klukkan hálf sjö snerist
vindáttin og veðrið rauk upp.
Við vorum rólegir þvi við höfð-
um ýtu til að ryðja veginn,“
sagði Þorsteinn Iljaltason, fólk-
vangsvörður í Bláfjöllum, i sam-
tali við Mbl. „Upp úr sjö fréttum
við svo, að fyrir neðan brckkuna
væru á milli 20 og 30 fólksbílar í
erfiðleikum. Við sendum ýtuna
þar sem smábílarnir lokuðu veg-
inum fyrir rútunum, sem voru
að koma og taka fólkið.
Ýtan var um klukkutíma niður
eftir og hún ruddi smábílunum
leið og þeir komust leiðar sinnar í
bæinn. Þá var farið að skafa og
rúturnar urðu að hafa samflot
Ólafsvík:
Skreiðarhjallar fuku
og mikið af fiski
Ólalsvik, 14. marz.
AFSPYRNUVEÐUR hefur verið
hér síðan í gærkvöidi. Nokkurt
tjón hefur orðið. Nýreistir skreið-
arhjallar fuku um og mikið af
fiski með. Skemmdir urðu sömu-
leiðis á skreiðarskemmu.
Flutningavagn í eigu Arnar
Steingrímssonar fauk um og valt á
stæði sínu og skemmdist mikið.
Vera kann að meira tjón hafi orðið
þó mér sé ekki kunnugt um það nú.
Allir bátar eru í höfn. Síðustu
daga hefur afli verið góður eða
6—30 lestir á bát eftir nóttina,
algengast 12—15 tonn. Þetta rok
mun því valda tjóni á afla. Sex
snjó- og aurskriður hafa fallið í
Ólafsvíkurenni og er vegurinn þar
lokaður. Að síðustu má greina frá
því að rafmagnslaust hefur verið
af og til í dag. Stóri sunnan er
ekkert að læðast frekar en fyrri
daginn. — Helgi.
með ýtunni upp að skála. Þó fóru
þrjár á undan en fjórar fóru fetið
með ýtunni. Rúturnar sem fóru á
undan komust ekki lengra en að
Rauðuhnjúkum. Færð var orðin
mjög erfið og veðurhamurinn
Reykjavík:
Frí í skólum
í Breiðholti
„YNGRI börn áttu í erfiðleikum
og þar sem þau eru einkum í
skólanum eftir hádegi þá ákvað
ég að gefa frí eftir hádegi og hið
sama var gert í Hólabrekku-
skóla,“ sagði Finnbogi Jó-
hannsson, skólastjóri í Fella-
skóla við Mbl. í gær. „Ég fór
sjálfur út til að kanna aðstæður
og miklir strengir mynduðust
milli húsa,“ sagði Finnbogi
ennfremur. Lögregla hjálpaði
börnum að komast til sins heima
í gær. Veðurofsinn var mestur i
Breiðholti og þar fuku upp
gluggar víða. Veðurhæðin mæld-
ist 9 vindstig við Veðurstofu
íslands.
Talsvert var um, að fólk meidd-
ist þegar það fauk í vindhviðum,
margt fólk kom í slysavarðstof-
una eftir að hafa fokið, sumt með
beinbrot. Mikill vatnselgur
myndaðist víða á götum borgar-
innar og óvenju margir árekstrar
áttu sér stað. Frá klukkan 13 til
20 urðu 23 árekstrar í Reykjavík.
mikill. Við sendum tro^arann til
aðstoðar og loks um 12 leytið
komust rúturnar upp að skála.
Ýtan kom svo með hinar fjórar
rúturnar þegar klukkan var langt
gengin í tvö.
Það var ákveðið að halda hóp-
inn til baka en mikil þröng var í
skálanum og hver lófastór blettur
setinn. Það fór ekki vel um fólk,
en þrátt fyrir það báru krakkarn-
ir sig mjög vel og héldu uppi söng
og annarri skemmtun. Þá voru
margir krakkanna á skíðum fram
eftir kvöldi en við gátum haldið
einni lyftu gangandi.
Bílarnir héldu af stað til baka
og komust niður fyrir Eldborgina
en þar komust þeir ekki lengra
vegna snjókomu og ofsaveðurs.
Þar urðu þeir að bíða ýtunnar og
eftir að hún kom tók hálfan
þriðja tíma að komast niður að
Rauðuhnúkum. Þar var plógbíll
frá bænum, sem ekki hafði kom-
ist lengra. Eftir að kom út á
Sandskeið gekk ferðin í bæinn vei
og bílarnir komu undir sexleytið í
bæinn. Það er rétt að geta þess,
að ýtan bjargaði því sem bjargað
varð en við höfðum nýlega fengið
hana upp eftir og hún kom sér
mjög vel,“ sagði Hjalti ennfrem-
Akranes:
Rdta með 47 manns
f auk út af veginum
Svaðilför 9 ára drengs í Bláfjöllum:
Fannst rennblautur og
þjakaður í snjóskafli
„ÉG VAR uppi við Eldborg
þegar við sáum skyndilega 9
ára strák koma fjúkandi fram-
hjá. Okkur leist illa á ferðalag
hans, enda enginn i námunda
og hann var einn síns liðs. Við
snerum við á troðaranum og
höfðum ekki keyrt nema 200 til
300 metra þegar við keyrðum
fram á drenginn. Hann lá þá i
skafli, rennblautur og þja-
kaður. Veðrið þarna var afleitt,
skyggni ekki nema 2—3 metrar
og gekk á með dimmum éljum,“
sagði Einar Þorsteinsson,
starfsmaður i Bláfjöllum, i sam-
tali við Mbl. í gær.
„Þarna hefði getað farið illa
enda veður afleitt og drengurinn
einn síns liðs. Hann var hlýjunni
feginn þegar hann kom inn í
troðarann og ekki vafi að þar
sem hann lá í snjóskaflinum,
rennblautur þá hefði kuldi sest
fljótt að honum. Hann hafði
farið frá skálanum á eftir 16—17
ára strákum. Þeir sögðust hafa
rekið hann til baka og vissu ekki
að hann hélt í humátt á eftir
þeim. Við fórum með hann upp í
skála og honum varð ekki meint
af þessari svaðilför sinni," sagði
Einar Þorsteinsson.
„ÉG VAR á leið með 47 starfs-
menn Málmblendiverksmiðjunn-
ar við Grundartanga þegar rút-
an fauk þversum út af veginum,
en valt ekki þó sáralitlu hafi
munað,“ sagði Elí Halldórsson
bifreiðarstjóri en hann var á
leiðinni frá Akranesi að Grund-
artangaverksmiðjunni. Bíllinn
fór út af veginum skammt frá
Beljardalsá.
„Það var lán í óláni, að þar sem
bíllinn fór út af var vegurinn ekki
hár. Aðeins bíllengd lengra er
hins vegar hæðin fram af vegin-
um metri og skammt frá skurður.
Ef bíllinn hefði verið þar, þá er
lítill vafi á, að hann hefði oltið. Ég
tel að það hafi bjargað bílnum frá
að velta, að ég hafði lagt upp í
vindinn og síðan þegar vindhvið-
an feykti bílnum af stað þá lagði
ég undan vindinum og bíllinn fór
þversum. Engin meiðsli urðu á
fólki, sem betur fer.
Guðmundur Reynir Jóhannsson
frá Lambhaga, eigandi bílsins,
kom skömmu síðar frá Grundar-
tanga og hann tók farþegana og
flutti þá til Grundartanga. Ég
varð hins vegar eftir og veður-
hamurinn var hreint með ólíkind-
um. í snarpri hviðu fauk, topp-
rúða af bílnum og hann tókst á
loft og var við það að leggjast á
hliðina þegar hann skall niður
aftur á hjólin. Ég fór þá út úr
bílnum til að athuga afdrif rúð-
unnar en þar var ekki stætt í
verstu hríðunum og mér tókst að
komast til baka við illan leik,“
sagði Elí ennfremur.
Þá fauk fólksbifreið út af vegin-
um skammt frá Akranesi, en þar
urðu ekki meiðsli á fólki.
Borgarnes:
Arekstur er
bíll fauk fyr-
ir annan
ÁREKSTUR varð í dag við
afleggjarann að Ólafsvík
skammt frá Borgarnesi þegar
bíll fauk fyrir annan en
skemmdir urðu ekki miklar.
Talsvert varð um, að bílar yrðu
fyrir skemmdum undir Hafnar-
fjalli vegna grjótflugs en grjót-
hnullungar tókust á loft í veð-
urhamnum í dag, sagði Theódór
Þórðarson, lögreglumaður í
Borgarnesi, í samtali við blaðið í
gær.
„Víða fuku járnplötur í Borg-
arnesi en engar skemmdir urðu.
Björgunarsveitarmenn fóru á
stjá og tókst að koma í veg fyrir
að tjón hlytist af,“ sagði Theódór
ennfremur.