Morgunblaðið - 15.03.1980, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980 7
Miöaldir
í Háskóla
íslands.
Dagblaöiö sagöi í leið-
ara á dögunum, orörétt:
„Nú eru endurvaktir kaþ-
ólskir miðaldatímar í Há-
skóla íslands. í staö
hinna kaþólsku vísinda,
sem þá voru kórrétt, eru
komin hin marxisku vís-
indi, sem nú eru orðin
kórrétt í hluta heimspeki-
deildar.
Útskrifaður háskóla-
borgari, sem hefur kennt
dönsku í átján ár, getur
ekki haldið áfram frekara
námi í dönsku, af því að
hún hefur ekki sömu
marxísku trúarbrögðin
og kennarar í dönsku
vilja troða upp á alla
nemendur sína.
í gamla daga urðu
menn að gjalda skoðana
sinna, ef þeir töldu kaþ-
ólsku ekki vera vísindi.
Nú er aftur svo komið, að
menn verða aö gjalda
skoðana sinna, ef þeir
telja marxiska trú ekki
vera vísindi.
Auðvitað er marxismi
ekki vísindi. Það er ekki
einu sinni til einn marx-
ismi, heldur margir marx-
ismar. Alveg eins og
margar kaþólskur deildu
í gamla daga um merk-
ingu ritningarinnar, deila
nú margir marxismar um
sína ritningu.
Allir ismar heimsins
eru í bezta lagi hug-
myndakerfi, en oftast þó
trúarbrögð. Það, sem
sameinar þessa isma, er
fyrirlitning á skoðunum
annarra og notkun valda-
aðstöðu til að hindra rétt
þeirra til þessara skoð-
ana.
Voltaire gamli sagöi:
„Ég fyrirlít skoöanir
þínar, en er fús til aö láta
lífið fyrir rétt þinn til að
hafa þær.“ Þessi grund-
vallarhugsjón frelsis-
baráttu mannsandans
hefur falliö niður milli
fjala miðaldakaþólsku og
marxisma.
Auðvitaö er sjálfsagt,
að menn fái að læra
marxisma, helzt marga
marxisma, og raunar
aðra isma í háskólanum,
svo sem spíritisma og
nýalsisma, en þó á þann
hátt, að þeir trufli ekki
aðra kennslu, svo sem
dönskukennslu."
„Heimspeki-
deild til
skammar“
„Heimspekideild há-
skólans vísaði frá að lítt
athuguðu máli kærunni,
sem reis út af innrætingu
trúarbragða í dönsku-
kennslu. Þessi frávísun
og meðferðin á kærand-
anum eru deildinni og
háskólanum í heild tii
skammar.
Aðalstefna deildarinn-
ar viröist vera að standa
saman um sína menn.
Þetta minnir á stuðning
deildarinnar við skipun
prófessors í sagnfræði,
sem var í samræmi við
umdeilt álit dómnefnd-
armanns úr deildinni.
Þá setti deildin niður,
af því að þessi maður
skrifaði undir eitt álit, þar
sem hann taldi tvo um-
sækjendur hæfa, og ann-
að álit, þar sem hann
taldi þá óhæfa. Einnig
vegna þess, að álit hans
var fullt af skætingi og
áróðri.
Háskólarektor og há-
skólaráð yppta öxlum og
segja allt þetta vera
einkamál deildarinnar,
sem komi rektor og ráði
ekki við. Þetta er sjálf-
sagt rétt, en bjargar ekki
sóma skólans.
Almenningur og út-
skrifaðir háskólamenn
eru farnir að tala um
heimspekideildina sem
„súpergaggó". Er þá átt
við, að menn geti dólað
þar í gegn án forsenda úr
fyrra námi, án hæfileika
og án ástundunar.
Fyrir nokkru var svo
komið, að kunnugir menn
töldu sig hafa dæmi um
vaxandi andstöðu er-
lendra alvöruháskóla
gegn því aö taka gild próf
úr heimspekideild. Væru
önnur lönd en Norður-
lönd að lokast af þessum
ástæðum.
Með þessu er auðvitað
verið að dæma heila há-
skóladeild og raunar heil-
an háskóla fyrir vanda-
mál, sem kunna að vera
afmörkuð. En það er
verkefni deildar og skóla
að sýna fram á, að „súp-
ergaggó" sé rangnefni.
Við slíkar aðstæður
mega háskóli og heim-
spekideild sízt við því, að
hafið sé trúarbragðaof-
stæki í dönskukennslu."
RUSSARNIR
KOHIA...
Aöalfundur
Hestamannafélagsins Fáks veröur haldinn í félags-
heimilinu fimmtudaginn 27. marz kl. 20.30. Venjuleg
aöalfundarstörf.
Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu
félagsins frá 18. marz kl. 13—18.
Ath. Þeir félagsmenn sem skulda ársgjald frá 1979
hafa ekki rétt til fundarsetu, en tekiö verður á móti
greiöslum á fundinum.
Stjórnin.
Heimilistölvan
Tölvuskóli
Borgartúni 29,
sími 23280.
sr
Árshátíð Húnvetn
ingafélagsins
ÁRSHÁTÍÐ Húnvetningafé-
lagsins, Húnvetningamót,
verður haldið að Hótel Esju
laugardaginn 15. mars og
hefst kl. 19. Þar mun Arnljót-
ur Guðmundsson,bygginga-
meistari, flytja ræðu, Páll
Jóhannesson, tenórsöngvari,
syngja einsöng og Hljómsveit
Grettis Björnssonar leika
fyrir dansi.
Nú stendur yfir þriggja
kvölda spilakeppni hjá félag-
inu og lýkur keppninni 28.
mars. Spilað er í Félagsheimil-
inu. Bridgedeild félagsins er
þar einnig með spilakvöld á
miðvikudögum kl. 20.30.
Nýlokið er skákkeppni milli
Húnvetninga og Skagfirðinga.
Teflt var á 21 borði um fagran
bikar, sem Skagfirðingafélag-
ið gaf. Fyrirhugað er að gera
þessa keppni að árvissum at-
burði. Að þessu sinni unnu
Húnvetningar.
Félagið hefur verið með opið
hús tvisvar sinnum í vetur og
er það nýbreytni í starfi fé-
lagsins. Formaður félagsins er
Jóhann Baldurs.
Al'GLÝSINGASÍMINN ER:
IdargtwblAbib
Ný hraönámskeiö á smátölvur, (micro-
computers) eru aö hefjast.
Opið hús í dag, laugardag, kl. 14—18.00.
Komiö og kynnist starfsemi skólans af eigin raun
Sími Tölvuskólans er OOOOfl
Innritun stendur yfir LUfaOU
Höfum til sölu
í miðbæ
Kópavogs
verzlunar-, iðnaöar- og skrifstofu-
húsnæöi. Uppl. í símum 41390,
33732 og 41717._______
1980 SUZUKI 1980
Eigum væntanleg Suzuki TS-50 árgerö 1980. Fyrstu
sendingar eru þegar upp pantaöar. Þeir sem ætla aö
fá hjól á árinu eru hvattir til aö hafa samband viö sölu-
mann sem fyrst í síma 83499.
ATH: Eigum enn til örfá Suzuki AC-50 árg. 1979 á
mjög hagstæöu verði.
Suzukí-umboðiö —
Ólafur Kr. Sigurðsson hf.
Réttur áskilinn til verðbreytinga án fyrirvara.