Morgunblaðið - 15.03.1980, Síða 15
/
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980
15
Þannig eru skólaborðin í sænskum barnaskólum.
Hádegisverður snæddur í skólanum.
Sigrún Gísladóttir skrifar frá Stokkhólmi:
Sænskir skólar III
Yngri deildir
Gangur þessi. sem aðallega er kennslutækjageymsla, er einnig
nýttur fyrir hjálparkennslu og móðurmálskennslu útlendinga.
Að verða kennari yngri
deilda (7, 8 og 9 ára) er mjög
eftirsótt nám í Kennarahá-
skólanum. Kennsluskylda
yngri deildar kennarans eru
29 tímar á viku (nýlækkað úr
30) og hefur hann umsjón með
„aðeins" einum bekk! En hann
kennir allar námsgreinar, þar
með talið leikfimi, teikningu
og tónlist. Við þetta eru bæði
kostir og ókostir. Fyrir yngstu
börnin gefur það vissa örygg-
iskennd að hafa alltaf sama
kennarann, en kennslan verð-
ur tæplega jafn góð og mark-
viss eins og hjá sérmenntuð-
um leikfimi — eða tónlistar-
kennara.
Þegar 7 ára börnin hefja
skólagöngu sína, er fyrsti
mánuðurinn eins konar aðlög-
unartími. Bekknum er skipt í
tvo hópa og fyrst í stað hefur
kennarinn aldrei nema annan
hópinn í skólanum í einu.
Smám saman er tímunum
fjölgað og hóparnir hafa
nokkra sameiginlega tíma. Þó
er venjan sú, að tvö fyrstu
skólaárin (allan 7 og 8 ára
bekk) er það aðeins helmingur
bekkjarins, sem mætir í tvo
fyrstu tímana, og tvo síðustu
tíma dagsins hefur kennarinn
aftur hálfan bekk. Það er því
einungis þriðji tími, fjórði
(sem er matarhlé) og fimmti
tími, sem eru sameiginlegir
fyrir allan bekkinn. Börnin
mæta ýmist klukkan átta og
eru til tólf, eða þau mæta tíu
og eru til tæplega tvö. Gefur
auga leið, að með slíku fyrir-
komulagi, hefur kennarinn
mun meiri möguleika til þess
að sinna hverjum einstökum
nemanda.
Á þriðja skólaári, 9 ára
bekk, hefst kennsla í handa-
vinnu og smíði. Þar er engin
kynjaskipting lengur — helm-
ingur bekkjarins fer í saum
meðan hinn er í smíði, og eftir
áramót skipta hóparnir.
Sund: Okkur frá íslandi
finnst ekki sundkennslunni
gert hátt undir höfði í sænsk-
um skólum. Það er fyrst í 9
ára bekk sem sundkennsla
hefst. Bekkjarkennari fylgir
börnunum í sund (sundkenn-
arar annast kennsluna), en
það eru aðeins tíu skipti!
Þessar tíu vikur falla niður
tveir leikfimistímar af þrem-
ur vikulegum tímum.
Skrift: Miklar breytingar
hafa orðið á skriftarkennslu.
Frá árinu 1972 gilda reglur
um kennslu í blokkskrift, sem
líkist mest samtengdum
prentstöfum, og er það eina
formið sem kennt er.
Enska: í 9 ára bekk hefst
kennsla í fyrsta erlenda
tungumáli, sem er enska. Til
enskukennslu er ætlað 4x20
mín. á viku. Fjórum sinnum í
viku er 40 mín. kennslustund
skipt milli ensku og sænsku.
Aðalhluti kennslunnar er
munnlegur — hlustun og tal.
Skólasjónvarpið er stór liður í
enskukennslunni. Sænska
sjónvarpið sendir út stutta
afbragðsgóða þætti, sem gerð-
ir eru af breska sjónvarpinu
BBC.
Heimavinna — umsagnir
Heimavinna nemenda í
barnaskólanum er svo til eng-
in, ekki einu sinni í lestri.
Skóladagurinn er það langur
að börnin geta lokið allflestu í
skólanum. En ef til vill væru
sænsk börn betur læs og
skrifandi væri þeim stundum
sett fyrir að vinna heima!
Gallinn við þetta er líka sá, að
foreldrar hafa enn minni tök
á að fylgjast með námi barn-
anna í skólanum — hvað þau
fást við og hvernig þeim
gengur að lesa, skrifa og
reikna. Búið er að afnema
með öllu próf og einkunnir í
sænskum barnaskólum.
Kennarar láta ekki heldur af
hendi skriflegar umsagnir um
nemendurna. Það eina, sem
boðið er upp á fyrir foreldra,
er fimmtán mínútna samtal
við kennarann tvisvar á vetri.
Reynslan sýnir að slíkt við-
tal upplýsir foreldra venju-
lega lítið um námsgetu barns-
ins og ástundun, en verður
frekar umræðugrundvöllur
um það félagslega, sem snert-
ir nemandann. Sá þáttur er
ekki síður nauðsynlegur, en
foreldrið er jafnnær um það
hvað barnið kann eða það sem
mikilvægara er, hvað barnið
ekki kann.
Áttundi hver nem-
andi útlendingur
í yngri deild er hámarks
nemendafjöldi 25, en 30 í eldri
deild. Nú er svo komið eftir
stöðugan straum innflytjenda
til landsins síðustu áratugi,
aðallega frá Finnlandi, Grikk-
landi og Tyrklandi, að áttundi
hver nemandi í grunnskóla er
útlendingur. Það þýðir að til
jafnaðar séu þrír útlendingar
í hverjum bekk, en þannig
hefur dreifingin ekki orðið. I
sumum hverfum og skólum
eru þeir fáir eða nær engir, en
í öðrum er allt að helmingur
nemendanna útlendingar.
Á síðustu árum hefur auk-
ist mjög að hafa finnska bekki
í skólunum. Þeim kenna
finnskir kennarar og öll
kennsla fer fram á finnsku.
Augljóst er að slíkur fjöldi
útlendinga, en ekki nema
hluti þeirra hefur þokkalega
kunnáttu í sænsku, hefur leitt
til ýmiss konar vandamála
innan skólans sem utan.
Samkvæmt nýjum lögum
eiga erlend börn í Svíþjóð rétt
á að fá kennslu í eigin móð-
urmáli frá 6 ára aldri (minnst
tvo tíma á viku). í reynd vill
oft verða erfitt að koma þeim
tímum fyrir svo vel sé. Skólar
með fjölda útlendinga af
mörgu þjóðerni (allt að 30
mism. þjóðerni er ekki óal-
gengt á vissum svæðum) eiga
í mestu erfiðleikum með að
finna húsrými fyrir alla móð-
urmálskennsluna og viðbótar
sænskutíma, sem þeirra er-
lendu nemendum eru ætlaðir.
Sigrún Gísladóttir
Sigurður Kr. Jónsson, Blönduósi:
Nokkur orð til Egils
Jónssonar á Seljavöllum
Eitt er hér og annað þar,
ekkert fært til raka.
En þitt granna gáfnafar,
Guð, mun um að saka.
Ég minnist þess frá mínum
unglingsárum að þá var sértrúar-
söfnuður einn að ná fótfestu hér á
landi. Þá var gjarnan talað um að
fólk væri látið vitna og þótti það
ærið umdeilanlegt hvað sannleiks-
gildi snerti.
Ég hélt satt best að segja að
þetta væri orðið óþekkt fyrirbrigði
þar til ég las viðtal Morgunblaðs-
ins við Egil Jónsson, alþing-
ismann, frá Seljavöllum, þ. 9.
febrúar sl.
Út úr allri greininni andar sú
hugsun ein „hvað skildi nú flokks-
forustan vilja sjá á prenti?"
Og það stendur ekki á vitnis-
burðinum, bunan bókstaflega
stendur út úr aumingja mannin-
um og það svo að stundum skilur
maður alls ekki hvert maðurinn er
að fara, eða hvað hann er um að
tala, eða hver skilur þessa setn-
ingu, — að ég hafi aldrei orðið var
við málefnaágreining þótt um sé
að ræða misjafnar skoðanir sem
auðvelt er að ná samkomulagi um.
— tilv. lýkur.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins,
sem spurðir hafa verið frétta af
þingfundum flokksins hafa í vel-
flestum tilfellum svarað því til að
umræður þar væru trúnaðarmál
sem ekki væri ætlað fjölmiðlum.
Egill Jónsson, virðist hinsvegar
ekki telja sig þurfa að taka tillit
til þess, svo veður hann elginn
þegar hann svarar spurningunni,
— Hvernig kemur þróun mála í
sambandi við ríkisstjórnarmynd-
un þér fyrir sjónir. — Ég minntist
er ég las þá endemis þvælu
setningar úr Biblíunni, „Guð, ég
þakka þér að ég er ekki eins og
aðrir menn“.
Það væri leitt ef þú fengir
sinadrátt af því að liggja lengi í
startholunum með bættan hlut
bænda í fanginu, en hinu gleðst ég
yfir að Pálmi Jónsson, skuli ekki
þurfa að reiða sig á fylgi sem þitt
til að koma málefnum bænda
fram til sigurs.
Hvað átt þú við með rætinni
aðdróttun þinni um Friðjón Þórð-
arson? Hvað hefur hann brotið af
sér á landsfundum Sjálfstæðis-
flokksins?
Egill Jónsson. Ég get fullvissað
þig um að það bera margir
sjálfstæðismenn virðingu fyrir
Gunnari Thoroddsen, hafa gert og
munu gera. Ég minnist líka Gunn-
ars Thoroddsen, frá mínum ungl-
ingsárum er ég sa hann og heyrði í
fyrsta sinni flytja ræðu á sjálf-
stæðismóti hér á Blönduósi, sem
unglingur hreifst ég af honum þá
og það hefur ekki minnkað með
nánari kynnum.
I síðustu málsgrein þinni biður
þú sjálfstæðismenn að taka þess-
um atburðum af ró, og það er
nánast það eina sem ég gæti verið
sammála þér með, ásamt því að
blekkingarnar munu fjúka og
sannleikurinn standa eftir, hitt er
svo annað mál að við erum trúlega
ekki sammála um hvað er blekk-
ing og hvað sannleikur í þessu
máli.
Annars er þessi síðasta máls-
grein þín alveg einstaklega fróðleg
til aflestrar. Þú byrjar á því að
biðja menn um að sýna nú ró og
stillingu, og að of snemmt sé að
meta störf þessarar ríkisstjórnar,
sem várla var búin að taka við
völdum, en ákveður samt snarlega
í lokin hver afstaðan gagnvart
henni muni verða. Mjög skarplega
ályktað, eða hvað?
Blönduósi, í febrúar 1980
Sigurður Kr. Jónsson.