Morgunblaðið - 18.03.1980, Síða 1

Morgunblaðið - 18.03.1980, Síða 1
48 SÍÐUR 65. tbl. 67. árg. ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Efnahagstillögur Carters: Misjafnar undirtektir WashinKton, 17. marz. Frá Önnu Bjarnadóttur fréttaritara Mbl. AP. VIÐBRÖGÐ við nýrri stefnu Jimmy Carters Bandaríkjaforseta í efna- hagsmálum hafa verið mis- jöfn. Stefnu hans er ætlað að draga úr 18% verðbólgu í landinu. en óttast er að Korchnoi sigraði Valden, 17. mars. AP. VIKTOR Korchnoi sigraði Tigran Petrosjan í fimmtu skak einvígis þeirra um áframhaldandi þátttöku í einvígjunum um réttinn til að skora á Karpov heims- meistara. Gafst Petrosjan upp er þeir höfðu setið að tafli í 15 mínútur, en skák- in fór i bið í gær. Til að verjast máthótun drap Petrosjan riddara fyrir Korchnoi, en missti við það drottningu sína. Þegar hann gafst upp átti hann enn hrók, tvo biskupa, ridd- ara og fimm peð, en Korch- noi, sem stýrði hvítu mönn- unum, átti drottningu, hrók, tvo biskupa og þrjú peð. Sjötta skákin verður tefld á morgun og hefur Petrosjan þá hvítt. þau skref sem hann ætlar að stíga dugi skammt. Edward Kennedy, sem keppir um forsetaútnefningu demókrata við Carter, gagnrýndi áform Cart- ers um að skera niður fjárlög, en heyrst hefur að fyrst og fremst verði skornar niður fjárveitingar til stórborga og til aðstoðar við fátæka. I kjölfar efnahagstillagna Cart- ers styrktist dollarinn í verði á gjaldeyrismörkuðum í Evrópu og gullúnsan lækkaði stórlega í verði, fór niður í 477 dollara únsan í London og 489 dollar í Zúrich. Hrun varð hins vegar á verðbréfa- markaðinum í New York. Símamynd — AP. Indira Gandhi forsætisráðherra Indlands baðst i dag afsökunar á framferði indverskra lögreglumanna við mótmælagöngu 500 blindra manna i Nýju Delhi á sunnudag, en þar misþyrmdu lögreglumennirnir nokkrum hinna blindu og lömdu með kylfum sinum, eins og myndin sýnir. Verða ólympíuleikar í Moskvu? Brezka þingið yjll að Bretar taki ekki þátt Genf, London, Bonn, 17. marz. AP. BREZKA þingið samþykkti i kvöld með yfirgnæfandi meirihluta tillögu stjórnar Margrétar Thatcher for- sætisráðherra að breskir íþrótta- menn taki ekki þátt í Ólympiuleik- unum i Moskvu i sumar og láti þannig i ljós andúð brezku þjóðar- innar á innrás Sovótmanna í Afgan- istan. Tillagan var samþykkt með 315 atkvæðum gegn 147, og sýnir það að margir þingmenn úr röðum stjórnarandstöðunnar hafa léð til- lögunni stuðning þar sem margir þingmenn voru fjarverandi og aðrir sátu hjá. Úrslitin eru sögð mikill sigur fyrir Thatcher, sem verið hefur einn dyggasti stuðningsmað- ur þeirrar stefnu Carters Banda- rikjaforseta að mótmæla beri innrás Sovétrikjanna í Afganistan með þvi að hundsa leikana i Moskvu. Bandarískir embættismenn sögðu kvöld að ljóst væri af viðræðum þeirra við embættismenn fjölmargra þjóða að helztu íþróttaþjóðir heims væru reiðubúnar að hætta við þátt- töku í Ólympíuleikunum í Moskvu, einnig þjóðir sem enn væru þó ekki formlega búnar að taka afstöðu. Þá sagði brezkur ráðherra sem er í forsvari fyrir fulltrúum Breta á fundi í Genf, sem fjallar um hugsan- Knut Frydenlund um Jan Mayen deiluna: Áfall fyrir utanríkisstefnuna ef ekki tekst samkomulag Ósló, 17. marz. Frd Birni Bjarnasyni. blaðamanni Morgunblaðsins. — ÞAÐ ER mín skoðun að það yrði mikið áfall fyrir norska utanrikisstefnu og norræna samvinnu almennt ef deilan um lögsöguna umhverfis Jan Mayen leiddi til alvarlegs og djúpstæðs ágreinings milli landa okkar, sagði Knut Frydenlund utanríkisráðherra Noregs á fundi með islenzkum blaðamönnum i Ósló i morgun. — Sú áherzla, sem við leggjum á það að ná samkomulagi við íslendinga um útfærsluna við Jan Mayen hyggist ekki á þvi, sagði utanrikisráðherrann, — að við efumst um fullveldisrétt Noregs yfir Jan Mayen, heldur byggist hún á því að teljum mjög mikilvægt að viðhalda góðu sambandi við tsiendinga. Auk þess sem við verðum að taka tillit til islenzkra hagsmuna er hart að okkur sótt af norskum sjómönnum. Þeir hótuðu því til dæmis i janúar að loka norskum höfnum cf ekki yrði farið að kröfu þeirra. Knut Frydenlund sagðist vera Utanríkisráðherrann sagði, að bjartsýnni um að lausn fyndist á Norðmenn myndu óska þess málinu eftir viðræður sínar við Ólaf Jóhannesson og fleiri íslenzka stjórnmálamenn í tengslum við Norðurlandaráðsfundinn í Reykja- vík. Yrði efnt til viðræðna í apríl, Iíklega fyrri hluta mánaðarins. Frydenlund sagðist skilja stefnuyfirlýsingu nýju ríkisstjórn- arinnar á íslandi á þann veg að hún vildi ræða við Norðmenn um fiskveiðilögsöguna umhverfis Jan Mayen og í því fælist viðurkenning á fullveldisrétti Norðmanna þar. Öðru máli gegndi ef til vill um landgrunnið. viðræðunum, að allir þættir máls- ins yrðu teknir til úrlausnar, en niðurstaðan gæti vel orðið sú að aðeins yrði unnið að lausn á fiskveiðiþættinum og öðru slegið á frest. Brýnt væri að komast að niðurstöðu fyrir loðnuvertíð á svæðinu í sumar. Hann sagði að norska stjórnin hefði ekki ákveðið hvað hún gerði ef samningar tækjust ekki, þ.e. hvort hún mundi færa út í sumar eða ekki. Enn væri ótímabært að taka ákvörðun um það. Frydenlund sagði að Norðmenn mundu leggja miðlínu til grund- vallar í upphafi viðræðnanna, en gaf fyllilega til kynna að með vísan til sanngirnissjónarmiða yrði unnt að ná samkomulagi á öðrum grundvelli. Eins og kunnugt er mæla íslenzk lög fyrir um 200 mílna efnahagslögsögu gagnvart Jan Mayen. Sagði utanríkisráð- herrann að sanngirnissjónarmið ykju rétt Islendinga gagnvart Jan Mayen sem og Norðmanna gagn- vart Sovétmönnum í Barentshafi, en framhaldsviðræður um skipti- línu þar hefjast að líkindum seinni hluta aprílmánaðar að frumkvæði Sovétmanna. Á fundi með norskum embætt- ismönnum í utanríkisráðuneytinu kom fram að þeir telja að það mundi bæta stöðu Dana og Græn- lendinga, og þar með einnig Efna- hagsbandalagsins, í viðræðum við Norðmenn um Jan Mayen-málið, ef allar kröfur íslendinga næðu fram að ganga. Á þeim grundvelli gætu þessir aðilar krafizt 100 þúsund ferkílómetra svæðis af Jan Mayen-lögsögunni og hefði loðna einmitt helzt veiðst þar. Knut Frydenlund Þá kom það fram að lögfræðing- ar utanríkisráðuneytisins telja að fyrirvarar íslendinga við landnám norsku veðurstofunnar á Jan Mayen 1927 hafi ekki gildi nú, þar sem þeir hafi ekki verið endurtekn- ir 1929 þegar norska ríkið sló eign sinni á eyjuna. legt íþróttamót fyrir íþróttamenn sem ekki verða meðal þátttakenda í Moskvu, að vaxandi áhugi væri fyrir meiri háttar íþróttamóti í stað leik- anna í Moskvu. Hann sagði að nokkur alþjóðasamtök íþróttamanna, sem hingað til hefðu ákveðið lýst sig fylgjandi leikunum í Moskvu, væru að endurskoða afstöðu sína, og full- trúi Bandaríkjanna á fundinum sagði, að nú þegar mætti reikna með að sum þessara sambanda lýstu sig andsnúin því að leikarnir yrðu haldn- ir í Moskvu. Hvorugur fulltrúanna vildi skýra frá hver samböndin væru. Blaðið Welt am Sonntag í Vestur- Þýzkalandi hafði það í gær eftir áreiðanlegum heimildum að stjórnin í Bonn hefði þegar tekið þá ákvörðun að vestur-þýzkir íþróttamenn tækju ekki þátt í leikunum í Moskvu. Þá sagði Willi Daume forseti Olympíu- nefndar V-Þýzkalands að nefndin myndi að öllum líkindum taka þá ákvörðun að senda ekki íþróttamenn á leikana ef stjórnvöld lýstu sig andvíg þátttöku í þeim. Yfirvöld í Austur-Þýzkalandi lýstu því yfir í dag að „það hefði alvarlegar afleiðingar fyrir íþróttasamskipti þýzku ríkjanna tveggja" ef Vestur- Þjóðverjar hættu við þátttöku í Ólympíuleikunum. Gromyko utanríkisráðherra Sov- étríkjanna veittist í dag harkalega að stjórnvöldum í Washington, og sak- aði þau um að ata Sovétríkin óhróðri og stefna Ólympíuleikunum í voða með tilraunum sínum til að fá þjóðir til að hætta við þátttöku i þeim. 35 féllu San Salvador, 17. marz. AP. Staðfest var í kvöld að 35 manns hefðu fallið í átökum vinstri sinnaðra skæruliða og öryggis- sveita í E1 Salvador í dag. Areið- anlegar heimildir hermdu að ótt- ast væri að enn fleiri hefðu fallið, líklega 60 manns.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.