Morgunblaðið - 18.03.1980, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980
33 mörk voru skoruð
í fyrri hálfleiknum
TÆPARA mátti það ekki standa
boltinn small í netinu hjá FH svo
til um leið og leiknum lauk og
jafntefli varð upp á teningnum
26-26 í leik FH og Vals í 1.
deildinni i handknattleik í
íþrótta húsinu i Hafnarfirði á
sunnudagskvoldið. Leikur þessi
var vægast sagt mjög furðulegur
og greinilegt á báðum liðum að
ekki var alltof mikið í húfi,
sjálfsagt hafa bæði liðin verið að
spara sig fyrir stórátökin í kvöld,
en þá leika liðin saman í átta liða
úrslitum i bikarkeppni HSÍ.
Það voru ekki færri en 33 mörk
sem skoruð voru í fyrri hálfleik,
staðan í leikhléi var 17—16 fyrir
Val. Varnarleikur beggja liða, svo
og markvarsla, var nánast engin
eins og markatalan ber með sér.
Mikill hraði var í leiknum í fyrri
hálfleik og sóknirnar mjög stuttar
hjá báðum liðum. Þetta lagaðist
aðeins í síðari hálfleik en þá léku
bæði liðin mun betur og fóru sér
ekki eins óðslega.
Það er athyglisvert í leiknum og
sýnir gang hans að í fyrri hálfleik
skora Valsmenn 17 mörk en fyrstu
26:26
14 mínútur síðari hálfleiksins
skora þeir aðeins eitt mark.
FH-ingar hófu síðari hálfleik-
inn af miklum krafti og ná
forystunni 18—17 með góðu marki
frá Geir Hallsteinssyni, héldu þeir
forystunni út hálfleikinn og þegar
15 mínútur voru eftir af leiknum
hafði FH náð fjögurra marka
forystu 23—19 og voru þeir hinir
mestu klaufar að tapa forystunni
niður.
Valsmenn brugðu reyndar á það
ráð að elta Geir Hallsteinsson og
við það riðlaðist leikur FH nokk-
uð, en Geir var mjög sprækur í
leiknum og skoraði falleg mörk.
Valsmenn minnkuðu muninn
smátt og smátt og þegar sjö
sekúndur voru eftir af leiknum
reyndi Kristján Arason skot,
Brynjar varði og Valsmenn brun-
uðu upp og Stefán Gunnarsson
jafnaði með skoti af línu. Þar voru
Valsmenn heppnir.
Bestu menn FH í leiknum voru
þeir Sæmundur Stefánsson og
Geir Hallsteinsson, þá varði ungur
markvörður liðsins, Haraldur
Ragnarsson, mjög vel í síðari
hálfleiknum. Hjá Val bar einna
mest á þeim Stefáni Halldórssyni
og Brynjari Harðarsyni en báðir
sýndu ágætan leik. Greinilegt var
að Hilmar þjálfari var frekar að
spara þá stóru sterku fyrir átökin
í kvöld en sá leikur skiptir öllu
meira máli.
í STUTTU MÁLI íslandsmótið 1.
deild. FH — Valur íþróttahúsinu
Hafnarfirði 16. mars.
FH - Valur 26-26 (16-17)
MÖRK FH: Sæmundur 7, Kristján
6/5, Geir 5, Pétur 2, Guðmundur 2,
Magnús 2, Árni 1, Guðmundur
Árni 1.
MÖRK Vals: Stefán H. 6, Brynjar
5/2, Þorbjörn G. 4, Þorbjörn J. 4,
Stefán G 2, Bjarni 2, Björn, Jón H.
og Gunnar eitt mark hver.
BROTTVÍSUN af leikvelli: Sæm-
undur Stefánsson FH í 2 mín.
MISHEPPNUÐ vítaköst: Kristján
Arason skaut í stöng á 39. mín.
DÓMARAR: Ólafur Steingríms-
son og Árni Tómasson.
- þr.
Skagamenn seigir
en KR—ingar betri
KR vann nokkuð öruggan sigur á
ÍA í 8-liða úrslitum bikarkeppni
HSÍ á Akranesi á laugardaginn.
Lokatölur leiksins urðu 28—22
fyrir 1. deildar liðið, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið
13-9.
Gangur leiksins var sá, að
heimaliðið náði snemma góðri
forystu, t.d. 3—1, 5—2 og siðast
6—4. Ená 17. mínútu jafnaði KR
loks í 6—6, komst síðan yfir er
íA átti slæman kafla og eftir það
var aldrei spurning hvorum meg-
in sigurinn hafnaði.
Þrátt fyrir mikið markaskor
var Sævar markvörður ÍA líklega
besti maður liðsins, en markhæst-
ir voru Haukur með 8 mörk, 7
víti, Kristján 4, Guðjón og Jón
Hjaltalín 3 hvor. Björn Pétursson
var markhæstur hjá KR með 8
mörk, öll úr vítaköstum. Símon
skoraði 7 mörk, Haukur Ottesen
og Konráð f jögur hvor.
HB/gg.
Vel heppnað unglingamót
hjá T.B.R. um helgina
Helgina 15. og 16 mars var
Meistaramót TBR í unglinga-
flokkum haldið í TBR-húsinu.
Mótið var einkum mikilvægt
fyrir þá sem fæddir eru árið 1965
því að í sumar kemur til þess að
eitt par verði valið úr þeim
aldurshópi til að fara í æfinga-
búðir í Danmörku i tilefni 50 ára
afmælis danska badmintonsam-
bandsins. Og þrátt fyrir að aðrir
keppendur hefðu ekki að öðru
eins að stefna létu þeir sitt ekki
eftir liggja í mótinu og voru
margir leikjanna mjög skemmti-
legir og spennandi.
Til nýjungar má telja að í
þessu móti var það, að á meðan
leikjum stóð var dregið úr nöfn-
um keppenda og þeir sem höfðu
heppnina með sér fengu ýmis
konar glæsilegan badminton-
varning í vinning. Annars urðu
úrslit sem hér segir:
Hnokkar — einliðal: Árni Þ.
Hallgrímsson IA sigraði Pétur
Lents TBR 11:2 og 11:4.
Hnokkar — tvíl:
Árni Þ. Hallgrímsson ÍA og Valdi-
mar Sigurðsson ÍA sigruðu Har-
ald Hinriksson ÍA og Bjarka
Jóhannesson ÍA 15:6,13:18 og 15:4.
Tátur — einliðal:
Guðrún Júlíusd. TBR sigrað Maríu
Finnbogad. ÍA 11:3 og 11:6.
Tátur — tvíll:
Guðrún Júlíusd. TBR og Helga
Erla Þórisd. TBR sigruðu Ástu
Sigurðard. ÍA og Maríu Finn-
bogad. ÍA 15:3 og 17:14.
Hnokkar — Tátur — tvenndarl:
Árni Þ. Hallgrímsson ÍA og Ásta
Sigurðard. í A sigruðu Pétur Lents
og Guðrúnu Júlíusd. TBR 15:3 og
17:14.
Meyjar — einliðal:
Þórdís Edwald TBR sigraði Karít-
as Jónsd. ÍA 11:3 og 11:3.
Meyjar — tvíll:
Þórdís K. Bridde TBR og Rannveig
Björnsd. TBR sigruðu Lindu Sif
Friðleifsd. TBR og Guðrúnu B.
Gunnarsd. TBR 15:4 og 15:5.
Sveinar — tvíH:
Þórður Sveinsson TBR og Snorri
Ingvarsson TBR sigruðu Ingólf
Helgason ÍA og Pétur Lents TBR
7:15,15:5 og 15:10.'
Sveinar — Meyjar — tvenndarl:
Þórður Sveinsson TBR og Þórdís
Elisabet Þórðardóttir T.B.R. stóð
sig vel í mótinu.
K. Bridde TBR sigruðu Ingólf
Helgason ÍA og Karítas Jónsd. ÍA
15:10,11:15 og 15:6.
Drengir — einliðal:
Indriði Björnsson TBR sigraði
Pjetur TBR 15:4 og 15:4.
Drengir — tvíll:
Þórhallur Ingason ÍA og Erling
Bergþórsson ÍA sigruðu Pjetur
Hjálmtýsson TBR og Ólaf Ing-
þórsson TBR 12:15,15:9 og 15:11.
Telpur — einliðal:
Elísabet Þórðard. TBR sigraði
Þórunni Óskarsd. KR 9:11, 11:4 og
11:0. Þórunn Óskarsd. KR. og
Ingunn Viðarsd. IA sigruðu Þór-
dísi Edwald TBR og Svövu Jo-
hansen TBR 15:5 og 15:1.
Drengir —Telpur — tvenndarl:
Pjetur Hjálmtýsson TBR og Þór-
unn Óskarsd. KR. sigruðu Indrið
Björnsson TBR og Þórdísi Edwald
TBR 15:14,12:15 og 15:12.
Piltar — einliðal:
Skarphéðinn Garðarsson TBR
sigraði Þorgeir Jóhannsson TBR
15:10 og 15:6.
Piltar — tvíll:
Skarphéðinn Garðarsson TBR og
Þorgeir Jóhannsson TBR sigruðu
Indriða Björnsson TBR og Birgi
Ólafsson TBV 17:14 og 15:13.
Stúlkur — einliðal:
Kristín Magnúsd. TBR sigraði Sif
Friðleifsd. KR. 11:7 og 11:3.
Piltar — stúlkur — tvenndarl:
Skarphéðinn Garðarsson og Krist-
ín Magnúsd. TBR sigruðu Þorgeir
Jóhansson TBR og Sif Friðleifsd.
KR. 15:13,14:17 og 15:13.
Sæmundur Stefánsson sem hér er tekinn föstum tökum, var
atkvæðamikill í liði FH.
fMMMH mm am M M mm mm
Einkunnagjofin
v .............’......__..
FH: Sverrir Kristinsson 1, Haraldur Ragnarsson 2, Geir Hallsteinsson
3, Sæmundur Stefánsson 4, Valgarð Valgarðsson 1, Árni Árnason 2,
Kristján Arason 3, Guðmundur Magnússon 2, Guðmundur SteMnsson
2, Magnús Teitsson 2, Pétur Ingólfsson 2, Hans Guðmundsson 1.
Valur: ólafur Benediktsson 1, Brynjar Kvaran 2, Þorbjörn Guð-
mundsson 2, Þorbjörn Jensson 2, Steindór Gunnarsson 2, Bjarni
Guðmundsson 2, SteMn Gunnarsson 2, Jón Karlsson 2, Gunnar
Lúðvíksson 1, SteMn Halldórsson 3, Brynjar Harðason 3, Björn
Björnsson 2.
Valur með yfirburði
í 2. flokki kvenna
VALUR varð íslandsmeistari í 2. ÍA — Fylkir 5—5
flokki í handknattleik kvenna, en Valur — ÍR 9—7
úrslitakeppnin íór fram á Akra- ÍA — Fram 11—11
nesi um helgina. Voru yfirburðir Valur — Fylkir 9—6
Valsstúlknanna umtalsverðir, Huginn — Fram 4—9
t.d. vann liðið Fram, sem varð í ÍA — Valur 4—7
öðru sæti, 7—1. Valur fékk fullt Fram — ÍR 6—3
hús stiga, 10 stig, en Fram hlaut Huginn — ÍA 4—11
7 stig. Fylkir — Fram 4—11
ÍA hreppti þriðja sætið Huginn — ÍR 7—13
eftir aukaleik við ÍR. Var jafnt Valur — Fram 7—1
að loknum venjulegum leiktíma í Huginn — Fylkir 5—2
aukaleiknum, 6—6, en Skaga- ÍA — ÍR 8—8
stelpurnar knúðu fram sigur í Huginn — Valur 2—14
framlengingu. Úrslit einstakra ÍR — Fylkir 14—6
leikja urðu annars þessi: HB/gg.
Tveir ungir og efnilegir badmintonspilarar, Snorri Ingvarsson til
vinstri og Þórður Sveinsson báðir i T.B.R.
li